Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Síða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Síða 23
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001 ÐV 23 Helgarblað Þjóðhátíðarsjóður úthlutar 2,2 milljónum króna: Verndun arnarins meðal verkefna Ekki karlkyns útgáfa af Díönu Spencer Jarl, bróðir Díönu prinsessu, kveðst vona að ekki verði litið á Vilhjálm prins sem karlkyns útgáfu af móður sinni. Jarlinn tók fram í sjónvarpsviðtali að fólk hefði á orði að Vilhjálmur líktist mjög móður sinni. Það væru gullhamrar og yndislegt að tekið væri eftir því hvað þau væru lík. Spencer lagði áherslu á að Vilhjálm- ur yrði að feta sína eigin braut. Jarlinn gat þess einnig að Vilhjálm- ur og Harry væru líkir móður sinni að þvi leyti að þeir bæru virðingu fyrir samferðamönnum sínum, hver svo sem bakgrunnur þeirra væri. Þeir væru langt frá því að vera snobbaðir. Fjölmörg og fjölbreytt verkefni víða um land fengu náð fyrir aug- um stjórnar Þjóðhátíðarsjóðs sem nýlega hefur lokið úthlutun styrkja í sjóðnum fyrir þetta ár. Samkvæmt skipulagsskrá sjóðs- ins er tilgangur sjóðsins að veita styrki til stofnana og annarra þeirra sem hafa það verkefni að vinna aö varðveislu og vernd verðmæta lands og menningar sem núverandi kynslóð hefur tekið í arf. Formaður sjóðsins er Hulda Valtýsdóttir blaðamaður sem er skipuð af forsætisráð- herra. Til úthlutunar í ár koma allt að 2,2 milljónir króna og barst í ár 91 umsókn um styrki að fjárhæð um 71,1 milljón króna. Þeim sem Þjóðhátiðarsjóður gaukaði að aurum þetta árið er Félag um þjóðlagasetur á Siglu- firði sem fékk 200 þúsund krónur til umbóta á þjóðlagasetri sr. Bjarna Þorsteinssonar og til að færa það í upprunalegt horf. Hús- ið er það elsta á Siglufirði, byggt árið 1883. Kaupfélag Hrútfirðinga á Borðeyri fékk einnig 200 þús- und krónur til áframhaldandi endurbyggingar Riis-húss á Borð- eyri sem byggt var 1862. Héraðs- skjalasafnið á ísafirði fékk sömu upphæð til kaupa á filmuskanna til að skanna litfilmur í eigu safnsins frá 6. og 7. áratug 20. aldarinnar. Önnur verkefni sem styrki fengu voru meðal annars Minja- vörður Austurlands sem fékk 140 þúsund krónur til að endursmíða kross er stendur í Njarðvíkur- skriðum milli Njarðvíkur og Borgarfjarðar eystra. Örnefna- stofnun íslands fékk styrk til að vinna örnefnakort yfir Skeiða- hrepp í Árnessýslu. Landvernd fær peningaupphæð til að merkja staði í Árneshreppi á Ströndum sem hafa sögulegt gildi eða eru merkar náttúruminjar. Fugla- verndarfélag íslands 100 þúsund krónur til verndunar íslenska arnarins. Skútustaðahreppur fékk styrk til göngustígagerða og íleira í Dimmuborgum og Fá- skrúðsfirðingar fá aura til að lag- færa aðkomu að franska graf- reitnum þar I kauptúninu. -GG Örninn flýgur fugla hæst / forsal vinda flýgur örninn en er sjaldséöur og því ekki að ástæðulausu að nokkrum krónum sé nú varið til verndunar hans. Vill ekki fjölmiðla- brúðkaup Ofurfyrirsætan Christy Tur- lington mun á áringu ganga upp að altarinu með leikaranum Edward Burns. Christy hefur tekið það fram að hún vilji engan fjölmiðlasirkus í kringum brúðkaupið. Hún ætlar að minnsta kosti ekki að selja press- unni myndir af brúðkaupinu. Turtildúfurnar langar báðar til að fjölskyldan stækki sem fyrst. Christy getur hugsað sér að eignast fjögur börn en hefur ekkert á móti því að þau verði fleiri. frábær staðsetning, gott inni- og útipíáss vantar bíla á staðinn Nissan 300ZX TWin Turbo.árg. 1995, sjálfskiptur, ekinn 34 þús. km. Verð. 2.600 þús. Subaru Impreza 1,6 LX, 4WD,á skrá 09/98, ekinn 57 þús. km. Verð 990 þús. Ford Focus, beinskiptur.á skrá 02/99, ekinn 31 þús. km. Verð. 1.350 þús. Renault 19 RN, árg. 1995, ekinn 148 þús. km. Verð 390 þús. BMW325I árg. 1995, sjálfskiptur, ekinn 172 þús. km. Verð 1.450 þús. Isuzu IVooper, 38 tomma, á skrá 02/99, ekinn 77 þús. km. Verð 3.450 þús. Ný bílasala - ferskir sölumenn BlLASALA.NET BÍLAMIÐSTÖÐIN v/ Funahöföa - sími 540 5800

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.