Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Page 49
57
LAUGARDAGUR 16. JÚNÍ 2001
I>V Tilvera
Afmælisbörn
Sonia Braga fimmtug
Brasilíska leikkonan Sonia Braga verður fimm-
tíu ára í dag. Braga var löngu orðin frægasta lei-
konan í Brasiliu þegar hún varð þekkt um hinn
vestræna heim fyrir leik sinn í Dona Flor"og eig-
inmennirnir tveir. í kjölfarið lék hún í verðlauna-
myndinni Kiss of a Spider Woman. Leið hennar lá
til Bandaríkjanna þar sem hún lék meðal annars í
The Milagro Beanfield War og Moon Over Para-
dor. Um nokkurra ára skeið bjó hún með Robert
Redford. Ekki hefur mikið borið á Soniu Braga á
undanfórnum árum en hún hefur jöfnum höndum
verið að leika í Bandaríkjunum og Brasilíu.
Barry Manilow, 58 ára
Einn þekktasti dægurlagasöngvari siðari
tíma Barry Manilow verður 58 ára á morgun.
Manilow hefur löngum verið samnefnari fyr-
ir þá dægurlagasöngvara sem nánast ein-
göngu eru í rómantískum ballöðum og hefur
frægð hann byggst á rólegum lögum sem
heillað hafa viðkvæmar sálir. Sitt besta tíma-
bil átti hann seint á áttunda áratugnum og í
byrjun þess níunda. í dag er hann aðallega að
skemmta á stórum og dýrum næturklúbbum
auk þess sem hann heldur konserta þar sem
aðalnúmerin eru gömlu smellirnir hans.
Stjörnuspá
Gildir fyrir sunnudaginn 17. júní og mánudaginn 18. júní
Vatnsberinn (20. ian.-18. febr.):
Spá sunnudagsins
Einhverjar hindranir sem
verið hafa á vegi þínum
varðandi framkvæmdir
virðast nú horfnar. Ný og betri þróun í
persónulegum málum þinum er hafin.
Þú ert að velta einhverju alvar-
lega fyrir þér og það gæti dregið
athygli þína frá því sem þú ert að
vinna að. Reyndu að hvíla þig.
Hrúturinn <21. mars-19. aprih:
Spá sunnudagsins
Ekki borgar sig að
reyna að ráða í hegðun
kunningja sem kemur
stöðugt á óvart. Betra er að snúa
sér að öðru fólki 1 dag.
Spá mánudagsins
Þú verður að vera varkár í sam-
skiptum þínum við annað fólk.
Kæruleysi gæti valdið misskiln-
ingi.
Tvíburarnir <21. maí-21. iúníi:
láta neitt uppi um áætlanir þínar
fyrr en þær eru komnar í höfn.
Þú verður að hafa stjóm á örlæti
þinu og mátt ekki láta aðra kom-
ast upp með að nota sér hjálpsemi
þína þannig að það skaði þig.
Lióniö (23. iúlí- 22. áeústi:
' Þér miðar vel áfram á
eigin spýtur og virðist
htið hafa til annarra
að sækja. Vertu viðbúinn ófriði á
milli ástvina.
Dagurinn einkennist af seinkun-
um og einhverri spennu. Það
slaknar þó á spennunni er kvöld-
ar og kvöldið verður ánægjulegt.
Vogin (23. sept-23. okt.):
Þú heldur fast við þína
skoðun og kemur það
r f sér vel í vinnunni. Það
er bjart fram undan í félagslífinu.
Happatölur þinar eru 2, 14 og 29.
E3HKH2Ei
Þú ert ef til vill haldinn dálitilh æv-
intarýraþrá í dag og það kann að
koma fram í vinnu þinni. Ekki skipu-
leggja daginn í smáatriðum fyrir fram.
Bogamaður <22. nóv.-21. des.l:
"Þú ert ekki öruggur um
stöðu þina á vinnustaðn-
i um og getur ekki leyft þér
að slaka þar á. Kvöldið bætír það upp
enda verður þú alveg dauðuppgefinn.
Þér gengur ekki nógu vel að komast
yfir verkefhi þín fyrri hluta dags og
verður fyrir sífelldum töfum. Það
gengur allt betur er liður á daginn.
Fiskarnir (19, febr.-20. marsl:
Spá sunnudagsins
• Þér leiðast þessi hefð-
bundnu verkefni og lang-
ar til þess að eitthvað
nýtt og spennandi gerist. Mundu að
tækifærin skapast ekki af sjálfu sér.
Þú ert dáhtið óþohnmóður í dag
og sækist eftir tilbreytingu. Njóttu
félagslífsins eins vel og þú getur
og hittu vini og fjölskyldu.
Nautið (20. april-20. maí.l:
pa sunnudagsins
Náinn vinur á í einhveij-
um erflðleikum um þessar
mundir og þarf á þér að
halda. Það er nauðsynlegt að sýna þol-
inmæði og gefa sér tíma með honum.
Peningamálin eru ofarlega á
baugi og þú þarft að fara vand-
lega í gegnum máhn áður en þú
tekur einhverjar ákvarðanir.
Krabbinn (22. iúní-22. iúiii:
Spa sunnudagsins
| Þér gengur vel að ná
sambandi við einhvern
sem hefur verið fjarlæg-
ur undanfarið og sameiginlega gætuð
þið komist að gagnlegri niðurstöðu.
Spá mánudagsins
Þú finnur fyrir miklum stuðningi
og áhuga á hugmyndum þínum.
Þér tekst að vinna upp eitthvað
sem hefur lengi setið á hakanum.
Mevlan (23. áeúst-22. sept.l:
Þú gerir þér mikiar vonir
í ákveðnu máli og þú gæt-
* h þurft að fóma einhveiju
tii að ná settu marki. Vertu varkár ef
þú skipuleggur eitthvað með öðrum.
Það er mikið um að vera hjá þér
þessa dagana og þú þarft því að
skipuleggja tima þinn vel. Ef þú
gerir það mun allt ganga að óskum.
21. nðv.):
Soorðdreki (24. okt.
Í»ÍÍ
Hugsaðu þig tvisvar um áður en
þú samþykkir eitthvað sem verið
er að reyna að fá þig til að gera.
Viðskipti ganga sérlega vel.
Spa sunnudagsins
Frumkvæðið er hjá
Pöðrum í dag en þú
leggur sitthvað til mál-
anna og það verður hlustað á þig.
Happatölur þínar eru 6, 16 og 33.
Ástarlífið blómstrar um þessar
mundir og þú skalt ekki hafa
samviskubit yfir því að láta aðra
hluti sitja örlítið á hakanum.
Steingeitin (22. des.-19. ian.V
Þó að þessi vika hafi
ekki byijað vel verður
_ þér samt vel ágengt og
árangurinn verður talsverður í viku-
lok. Þér gengur vel f ástarmálunum.
Tæknivæddur púki
/ sjávarþorpum er veiöimennska börnum i blóö borin. Hér má sjá Jóhann Þorsteinsson á Flateyri þar sem hann hefur
þurft aö taka sér frí frá marhnútaveiöinni til aö tala í farsímann. Þó er þaö fátt sem dregur púkana frá veiöum þegar
vel fiskast, en tæknin heillar.
Búnaðarbankinn:
Tveir listamenn styrktir
Fengu styrk
Björg Stefánsdóttir meö textíl sem sérsviö og Ingibjörg Böövarsdóttir meö
grafík sem sérsviö hlutu styrk frá Búnaöarbankanum i ár.
Um langt árabil hefur verið gott
samstarf milli nemenda Listahá-
skóla íslands (áður Myndlista- og
handíðaskóla íslands) og Búnaðar-
bankans við Hlemm. Nemar í Lista-
háskólanum hafa sýnt verk sin í út-
stillingarglugga bankans sem snýr
að Rauðarárstíg og hafa verkin oft
vakið mikla og verðskuldaða at-
hygli og er Ijóst að efniviðurinn er
mikill og góður í Listaháskólanum.
Verk hvers nemenda eru til sýnis
hverju sinni í tvær vikur.
Einu sinni á ári var nafn eins
listamanns sem sýnt hafði í glugg-
anum á tímabilinu dregið úr potti
og hlaut sá styrk frá Búnaðarbank-
anum. í ár var ákveðið að styrkja
tvo listamenn og voru þeir dregnir
út í hófi í bankanum á dögunum.
Vinningshafar í ár útskrifuðust
báðir með BA gráðu frá hönnunar-
deild skólans, Björg Stefánsdóttir
með textíl sem sérsvið og Ingibjörg
Böðvarsdóttir með grafik sem sér-
svið.
Hörð keppni á Guggumótinu
DV, SKAGAFIRÐI:_____________________
Olöf Þorsteinsdóttir, Reykjavík,
og Svala Pálsdóttir, Keflavik, sigr-
uðu á minningarmóti um
bridgekonuna Guðbjörgu Sigurð-
ardóttur sem fram fór í Sólgarða-
skóla um síðustu helgi. Þær háðu
harða baráttu um sigurinn við
Ágústu Jónsdóttur, Sauðárkróki,
og Þórdísi Þormóðsdóttur, Reykja-
vík, og náðu efsta sætinu með
góðri lokasetu sem gaf þeim 15
stig á meðan keppunautarnir
náðu „aðeins“ 5 stigum.
Þetta er í þriðja skiptið sem
mótið fer fram en gamlir vinir
Guggu standa árlega fyrir því.
Mótið er eingöngu ætlað konum
og voru 16 pör mætt til leiks að
þessu sinni og spiluð sex spil milli
para. Keppnisstjóri var Jóhann
Stefánsson. Röð sex efstu varð eft-
irfarandi: 1. Ólöf Þorsteinsdóttir
og Svala Pálsdóttir, 98 stig. 2.
Ágústa Jónsdóttir og Þórdis Þor-
móðsdóttir, 92 stig. 3. Bryndís Þor-
steinsdóttir og María Haraldsdótt-
ir, Reykjavík, 74 stig. 4. Ólína Sig-
urjónsdóttir og Ragnheiður Har-
aldsdóttir, Akureyri, 62 stig. 5.
Hanna Friðriksdóttir og Soffia
Daníelsdóttir, Reykjavík, 44 stig.
6. Jónína Pálsdóttir og Una
Sveinsdóttir, Akureyri, 35 stig.
-ÖÞ
DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON
Hörkukonur í bridge
Þrjú efstu pörin meö verölaun sín, frá vinstri: Ágústa, Þórdís, Svala, Ólöf,
María og Bryndís.