Dagblaðið Vísir - DV - 16.06.2001, Qupperneq 56
Helgason hf.
FRETTASKOTID
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Rammstein:
Trylltist í
anddyrinu
Nítján ára piltur, fullur af áfengi
og eftirvæntingu, trylltist í anddyri
Laugardalshallarinnar skömmu
áður en tónleikar Rammstein hófust
þar í gærkvöldi. Braut hann rúðu
og stilltist ekki fyrr en fjórir dyra-
verðir höfðu hann undir og héldu
þar til liðsauki barst frá lögreglu.
Pilturinn var vistaður í fanga-
geymslu með Rammstein-miðann
sinn í vasanum. -EIR
Veðrið 17. júní:
Blaut
þjóðhátíð
Veðurstofa íslands spáir rigningu
um allt land á sunnudag, þjóðhátíð-
ardag íslendinga, og hitastigið verð-
t~1+ ur frá 7 til 12 stig yfir daginn, hlýj-
ast á Austíjörðum en kaldast norð-
austanlands. Veðurfræðingur á vakt
sagði síðdegis á föstudag að víðast
mætti búast við skúrum. Helst geta
íbúar á suðausturhorni landsins
gert sér vonir um að fagna 57 ára af-
mæli lýðveldisins án vætunnar.
Yfir landinu hefur verið lægðar-
drag í tengslum við aðra lægð sem
er við Nýfundnaland en breyting á
henni kann að valda því að það
dragi úr skúrum víða. íslendingar
skemmta sér því væntanlega á þjóð-
hátíðardaginn í regnfatnaði. -GG
Sjá veður bls. 4
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 • sími 588 1560
Verð frá
35.500
EVRÓ
Allar stærðir
Mikil spenna ríkti fyrír utan Laugardalshöllina í Reykjavík viö upphaf tónleika þýsku hljómsveitarinnar Rammstein í gærkvöldi þar sem íslenska hljómsveitin
Ham hitaöi upp. Eftirvænting skein úr hverju andliti og mörg hundruö metra biöröö myndaöist áöur en byrjaö var aö hleypa inn. - Sjá mynd af rööinni á bls. 2.
Krökkt á Rammstein
Afleiðingar verkfalls þroskaþjálfa æ þungbærari:
Við björgum hverjum
deginum fyrir sig
- segir móðir fjölfatlaðrar og flogaveikrar 11 ára stúlku
„Við verðum bara að treysta á að-
standendur og bjarga hverjum degi fyr-
ir sig,“ segir Jórunn Magnúsdóttir, móð-
ir 11 ára stúlku, Rögnu SiQar, sem er
fjölfötluð og flogaveik. Ragna Sif hefur
verið í dagvist á Lyngási. Vegna verk-
falls þroskaþjálfa á sjálfseignarstofnun-
um er hún nú heima hjá fiölskyldu
sinni allan sólarhringinn.
Jórunn og eiginmaður hennar, Sig-
urður Kristjánsson, eiga tvær dætur,
Rögnu Sif og Karen Rós, sem er 8 ára.
Jórunn er komin átta mánuði á leið.
Hún lenti raunar inni á spítala í vik-
unni þar sem útlit var fyrir að nýja
barnið ætlaði að koma mánuði of
snemma í heiminn. Úr því varð þó ekki
svo Jórunn fékk að fara af spítalanum í
gær. Þau hjónin verða að fá aðstoð, þar
sem Ragna Sif þarf manninn með sér
allan sólarhringinn. Samkvæmt tilmæl-
um læknis á mamma hennar að liggja
sem mest fyrir og má ekki lyfta henni
né reyna að öðru leyti á sig.
„Ef verkfallið dregst á langinn verð-
um við að grípa til þess ráðs að Sigurð-
ur taki frí,“ segir Jórunn. „Það getur þó
orðið snúið því barnið kemur í heiminn
í næsta mánuði og enginn veit hversu
lengi verkfallið varir. Það þarf að að-
stoða Rögnu Sif við allar athafnir hins
daglega lífs. Hún hefur verið í þétt skip-
aðri dagskrá á Lyngási og fengið fram-
úrskarandi þjálfun sem hefur aukið
andlegan og líkamlegan þroska hennar
eins og tök eru á. Það hefur tekið lang-
an tíma að byggja hana upp en hún
verður fljót að hrynja ef langt hlé verð-
ur á þjáifúninni. Við foreldramir reyn-
um að gera eins og við getum en við
erum ekki þroskaþjálfar og komum ekki
í stað þess færa fagfólks sem vinnur á
Lyngási."
Ragna Sif var mikið veik á siðasta
ári. Hún var hætt að geta matast. Það
hefur tekið þrotlausa vinnu frá því í
fyrrasumar að koma því í lag. Að und-
anfömu hefur hún verið vel hraust.
DV-MYNDIR TEITUR
Verkfallsbarn
Ragna Sif er ellefu ára. Hún hefur
veriö í dagvist á Lyngási en er nú
heima allan sólarhringinn vegna
verkfalls þroskaþjálfa. Henni fer aft-
ur hvern þann dag sem hún nýtur
ekki þjálfunar. Hér er hún ásamt
móður sinni, Jórunni Magnúsdóttur,
og systur sinni, Karen Rós.
Hún er með spelkur á öðmm fæti en
hann hefur tilhneigingu til að kreppast.
Þroskaþjáifar, ásamt sjúkraþjáifa, á
Lyngási hafa komið í veg fyrir það með
æfmgum. En fóturinn krepppist á fáein-
um dögum ef æfmgunum er hætt. Nú
liggja þær niðri.
„Ragna Sif verður að hafa allt í föst-
um skorðum," segir Jómnn. „Dagamir
verða henni svo miklu erfiðari ef það
breytist. Hún fyllist óöryggi, verður óró-
legri og grætur meira með hverjum deg-
inum sem líður með óhefðbundnum
hætti.
Mín skoðun er að það ætti að semja
við þroskaþjálfa um almennileg laun.
Það þarf alltaf að borga fyrir að hafa
gott fólk sem er ánægt í starfi. Það er
gott að hafa „stórt hjarta" eins og ein-
hver orðaði það við mig um daginn þeg-
ar rætt var um störf þroskaþjálfa. En
það liflr enginn af því einu saman ef
launin em smánarleg eins og staðreynd-
in er hjá þroskaþjálfum." -JSS
Sigur Rós í The Economist
- líkt við náttúruundur á menningarsíðu blaðsins
Hið virta breska viku-
blað, The Economist, fjall-
ar um hljómsveitina Sigur
Rós og reykvíska dægur-
menningu á heilli síðu en
blaðið kemur út i dag. Þar
er Sigur Rós líkt við nátt-
úraundur sem eigi sér
hvorki hliðstæðu né fyrir-
mynd. The Economist spá-
ir því að hljómsveitin leysi
Björk af hólmi innan tíöar
sem „frægasta íslenska
fyrirbærið".
„Tónlist Sigur Rósar er
Sigur's saga
The Economist
„Sigur’s saga - once a
home of Nordic bards,
lceland is now
exþorting rock bands. “
hlaðin því-
líkri fegurð að nærri ligg-
ur sturlun," segir í grein-
inni og því bætt við að
meðlimir hinnar heims-
þekktu hljómsveitar,
Radiohead, hafi orðið svo
hriínir af Sigur Rós að
þeir hafi boðið henni að
hita upp fyrir sig í
tvígang.
Um forsprakka Sigur
Rósar, Jónsa Birgisson,
segir svo í The Economist:
„Þó herra Birgisson sé aðeins 25 ára
hefur hann í sér fólgna alla þá þætti
sem gera tónlistarmann að
súperstjömu. Hann líkist
helst andhetju úr víkinga-
sögu; létbyggður, klæddur í
stíl við Tinna, blindur á öðm
auga, viöurkenndur hommi
og síðast en ekki síst, græn-
metisæta.
Þegar blaðamaður The
Economist biður Jónsa að
skilgreina tónhst Sigur Rósar
verður fátt um svör í fyrstu.
En svo segir hann: „Ég get það ekki en
eigum við ekki að kalla hana einlæga?"
The Economist segir að í Reykjavik
Jónsi
Náttúruundriö.
búi 280 þúsund manns og þar
sé menningarlífið í óvenju
miklum blóma þrátt fyrir fá-
mennið; fimm atvinnuleikhús,
þjóðarópera, nútímalegur
dansflokkur og svo Björk sem
hefur heillað hálfa heims-
byggðina með sérstæðri rödd
sinni.
í lok greinarinnar í The
Economist segir að næsta verk-
efni strákanna i Sigur Rós sé
að vinna með íslenskum bónda sem
kveði rímur að þjóðlegum sið.
-EIR