Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Side 5
MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2001
5
I>V Fréttir
VG og Samfylkingin:
Vilja helst stilla
upp eigin lista
Samfylkingarfélag Akureyrar hefur
ákveðið að bjóða fram í næstu sveitar-
stjómarkosningum vorið 2002. Félagið
hefur ákveðið að leita eftir því hvort
skapast geti breið samstaða fólks á
vinstri væng stjómmálanna á Akureyri
og því markmiði telur Samfylkingarfé-
lagið að ekki verði náð nema með þvi að
sameina krafta félagshyggjufólks.
Jón Ingi Cæsarsson, formaður Sam-
fylkingarfélags Akureyrar, segir að vilji
sé til að kanna hvort ekki sé um sameig-
inlegan málefnagrundvöll að ræða.
Samfylkingin telur að saga bæjarmála á
Akureyri hafl einkennst af gríðarlegum
styrk Sjálfstæðisflokks og Framsóknar-
flokks til skiptis og því þurfi félags-
hyggjufólk að breyta.
Valgerður Jónsdóttir, formaður kjör-
dæmisráðs VG í Norðurlandi eystra,
segir að VG ætli að ræða við Samfylk-
inguna en mun fleiri VG-fylgjendur á
Akureyri séu fylgjandi því að fara fram
einir með lista.
Steingrímur J. Sigfússon, þingmaður
og formaður VG, segir það alls ekki yfir-
lýstan vilja VG að fara fram einir með
lista við næstu sveitarstjómarkosningar
þó sá andi svífi nokkuð yfir vötnum. -GG
Marel fær
nýsköpunar-
verðlaun
Flæðilina Marels hlaut CFIA-nýsköp-
unarverðlaunin 2001. CFIA-sýningin var
haldin í Rennes í Frakklandi og vom
þar samankomnir framleiðendur tækja
til vinnslu matvæla. Flæðilína Marels
hlaut nýsköpunarverðlaun sýningarinn-
ar og tók Þorvaldur Tryggvason frá
Marel France við verðlaununum.
FlæðiIInan er eitt af flaggskipunum í
framleiðslu Marels og hefur vakið verð-
skuldaða athygli, bæði í fisk-, kjöt- og
kjúklingaframleiðslu. Notkun Marel-
flæðiltnunnar gefur meiri verðmæti af
sér vegna bættrar meðferðar hráefnis,
styttri vinnslutíma, meiri sveigjanleika
við ákvörðun vinnsluleiða og meiri
framleiðslugetu starfsmanna.
Segja má að verðlaunin séu enn ein
hvatningin til starfsmanna Marels og
viðurkenning á hugviti og nýsköpunar-
vinnu fyrirtækisins. -GG
Stofnuö 1918
Rakarastofan
Klapparstfg
Sími SS1 3010
Borgarstjórinn
í Reykjavík
Áætluð verklok eru í lok september.
ENDURNÝJUN
PÓSTHÚSSTRÆTIS
Þriðjudaginn 19. júní hefjast framkvæmdir
við endurnýjun Pósthússtrætis frá
Kirkjustræti og norður fyrir Austurstræti.
Óhjákvæmilegt er að loka þessum hluta
götunnar fyrir akandi umferð meðan á
framkvæmdum stendur.
ÚTSALA
fatnadur og pelsar
PEISINN
Kirkjuhvoli - sími 552 0160
-þar sem vandlátir versla