Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Blaðsíða 9
MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2001
DV
Fréttir
f r h • r.
9
Fiskmarkaðurinn Suðureyri:
Bátum í föstum við-
skiptum fjölgar
DV, SUDUREYRI:__________________
Arni Arnason kom upphaflega til
Suöureyrar til að smíða, enda læröi
hann trésmíðar á sínum tíma. „En
fiskurinn og lífið kringum höfnina
heillaði mig og síðustu tvö ár hef ég
eingöngu sinnt rekstri Fiskmarkað-
arins Suðureyri," segir Árni sem
lætur vel af aflabrögðum undanfar-
ið, um þrjú til fjögur tonn á bát á
dag, ágætis fiskur. Afla af 10-12 bát-
um er landað hjá fiskmarkaðnum
sem sér um slægingu, sölu og flutn-
ing til kaupanda.
„Það sem er nýtt hjá okkur núna
er að stór hluti handfærabátanna
hér hefur komið sér í fóst viðskipti
við okkur,“ segir Árni. Mun þetta
vera vegna þess að menn eru
hræddir við sveiflur sem kunna að
koma á mörkuðum ef mikill afli
berst að landi. Þar að auki hefur
veiðidögum á handfærum fækkað
verulega vegna samdráttar veiði-
heimilda. Þegar svo er verða menn
aö hafa fast land undir fótum varð-
andi ýmsar skuldbindingar tengdar
útgerðinni. Fara þessi viðskipti
þannig fram í flestum tilvikum að
markaöurinn sér um alla þjónustu,
þ.e.a.s. löndun, slægingu og af-
greiðslu hráefnisins.
Sem dæmi um verð má nefna að
UV-MYNU VALUIMAK HKtlUAKbbUN
Stjórnar fiskmarkaönum
Árni Árnason, forstöðumaður Fiskmarkaðarins Suður-
eyri, við kar fullu af þorski af Vestfjarðamiðum.
nú eru fóst verð á
markaðnum á Suð-
ureyri 120 krónur
fyrir allan óslægðan
fisk sem nær máli
og 75 krónur fyrir
óslægðan undir-
málsfisk. Kaupandi
tekur á sig allan
kostnað við löndun
og frágang hráefnis-
ins. Verð á þorski á
fiskmarkaði hefur
nú síðustu daga ver-
ið frá 106 krónum
upp í 180 krónur.
Hjá Fiskmarkaðn-
um Suðureyri starfa
nú 7 manns að meö-
altali og fleiri þegar
vel veiöist. „Fólk á
landsbyggðinni er
kvíðið vegna stefnu
stjórnvalda í fisk-
veiðimálum og það
gleður okkur lands-
byggðarfólk að finna
stuðning höfuðborg-
arbúa við okkur í
þessu máli,“ sagði
Árni að lokum.
-VH
litýtt hla9 ullt áríð
Tálgað í tré
Jónína Bjartmarz
Vorið og fuglarnir
Grindverk og pailar
Einar Logi grasalæknir
Vín og matur smeila saman
Kolonihave í Kaupmannahöfn
Askriftarsími 586 8005
Útgefandi: Rit & Rækt ehf, Háholti 14,270 Mosfellsbæ, www.rit.is, rit(®rit.is
Sterk stóriöja í fallegu umhverfi á Akranesi:
Sjá árið 2007 í hillingum
PV, AKRANESI:_________________________
Atvinnumálanefnd Akraness hefúr
lagt fram stefnumótun í atvinnumál-
um til ársins 2007. Stefnan var unnin
undir handleiðslu Iðntæknistofnunar.
Það vekur athygli að nú jtegar ástand
atvinnumála er þokkalegt leggja
Skagamenn fram stefhumótun i at-
vinnumálum en sjáifsagt er þeim í
fersku minni mikið atvinnuleysi fram
eftir tíunda áratug síðustu aldar.
Stóriðja, matvælaiðnaður, verktaka-
iðnaður og smáiðnaður eru megin-
þunginn í atvinnustefnunni. Lögð er
áhersla á að stóriðjufyrirtækin á
Grundartanga nýti þau tækifæri sem
þau hafa í sátt við umhverfið. Atvinnu-
stefnan tekur einnig til annarra þátta í
samfélaginu á Skaganum tfl stuðnings
atvinnulífinu. Það er ljóst samkvæmt
henni að menn ætla sér stóra hluti í
heflbrigðismálum enda er sjúkrahúsið
á Akranesi eitt það öflugasta utan
Reykjavikur. Efla á sjúkrahúsið og
stækka markaðssvæði þess út fyrir
hefðbundið upptökusvæði. Akranes á
að verða miðstöð íþróttalífs á íslandi
DV-MYND DANÍEL V. ÖLAFSSON
Stefnumótunln afhent
Kar/ Friöriksson, framkvæmdastjóri
hjá iöntæknistofnun, Björn S. Lárus-
son, rekstrarráðgjafi og verkefnis-
stjóri, afhendir Guðna Tryggvasyni,
formanni Atvinnumálanefndar Akra-
neskaupstaðar, stefnumótun í at-
vinnumálum til ársins 2007.
og bærinn er sterkur sem aðdráttarafl
ferðamanna með íþróttir, sögu og
ýmsa afþreyingarmöguleika. Það er
ljóst að Skagamenn ætla sér áfram
stóra hluti í atvinnumálum en bærinn
hefur verið í kröftuguri uppsveiflu
undanfarin ár. -DVÓ
Ólafsfjörður:
Nýtt skip í flotann
DV, DALVlK:
Nýr Guðmundur Ólafur ÓF 91 kom
tfl heimahafnar á dögunum og kemur í
stað eldra skips með sama nafni. Dag-
inn eftir var haldin móttaka og veisla
fyrir áhöfn, fjölskyldur skipverja og
raunar alla sem lögðu leiö sína um
borð.
Nýja skipið er glæsflegt í afla staði,
rúmgott og nýtískulegt. Hannes Garð-
arsson hélt stutta tölu fyrir hönd fjöl-
skyldu Garðars Guðmundssonar og
áhafnarinnar. Hann rakti sögu fyrir-
tækisins allt frá siðari hluta 19. aldar.
Hann útskýröi að nafn skipsins tengd-
ist ættinni óijúfanlegum böndum, bæði
Guðmundamafnið og ekki síður Ólafs-
nafnið, það vísaði bæði til Ólafs og
Ólafar.
Þórður Jónsson, forstjóri SR-mjöls,
hélt einnig stutta tölu. í máli hans kom
fram að hann væri ánægður með að
viðræður við Garðar Guðmundsson hf.
um samvinnu hefðu tekist, og það hefði
verið sigur beggja aðila. Siðan var gest-
Glæsileg skip
Hinn nýi Guðmundur Ólafur í höfn í
Ólafsfirði, hið gtæsiiegasta skip eins
og sjá má.
um boðið upp á kaffl og veitingar.
Fjöldi manns lagði leið sína til að skoða
skipið. Guðmundur Ólafur gamli liggur
við landfestar í Siglufjarðarhöfn. Nýja
skipið er stálskip, smiðað í Noregi árið
1990, en það kom tfl íslands árið 1999 og
hét þá Sveinn Benediktsson SU-77. Það
er 56 metra langt og 11 metra breitt, alls
1.230 brúttólestir. Guðmundur Ólafur
ÓF 91 hélt á veiðar á mánudagskvöld.
-hiá
Nú hlöðum við
vopnabúrið
AEG BOSCH AEG ^ BOSCH
Úrvalið af handverkfærum hjá okkur, fyrir hinn handlagna heimilismann, jafnt sem lengra
komna, er slíkt að líkja má við vopnabúr. Og það engin smá tæki, Bosch og Atlas Copco
frá AEG, margreynd verkfæri f höndum fslenskra afreksmanna til sjávar og sveita.
Nú höfum við tekið ærlega til á lagernum og bjóðum
af því tilefni til verkfæraveislu.
—
AEG K;
mm
VOPNABUR AF HANDVERKFÆRUM
BS2E 12T
12w- hleðsluborvél
8.600
SBE 570R
Bor- og skrúfvél
m/höggi og
hraðastilli í rofa
4.900
STEP 570X
Stingsög - 570w
8.700
Gott úrval Verð frá
Borvélar 8.600
Bandslípivélar 9.900
Juðarar 6.785
Stingsagir 8.700
Slípirokkar 11.900
Borhamrar 16.900
Sverðsagir 17.900
Hjólsagir 15.985
Fræsarar 13.685
Kassann þarf að fylla
daglega, þvi varan
stoppar stutt við.
Ástæðan er:
50-70% afsláttur
BOSCH
HÚSIÐ
BRÆÐURNIR ORMSSON
Lágmúla 9,
sími 530-2801