Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Blaðsíða 12

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Blaðsíða 12
12 MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2001 Skoðun dv Spurning dagsins Hvernig finnst þér að búa í Grafarvogi? (Spurt í Grafarvogi) Sólveig Magnúsdóttir héraðsskjalavöröur: Mjög fínt, svo er ég aö vinna í Mosfellsbæ. Ingibjörg Þorbjörnsdóttir, 10 ára: Bara fínt, mikiö af skemmtilegum krökkum sem búa hér. Óskar Erlendsson verslunarmaöur: Bara mjög fínt, róieg hverfin hér. Guömundur Rafn Guðmundsson, 7 ára: Þaö er rosalega gaman, hér er svo mikiö af börnum. Jóhanna Þorgeirsdóttir: Ég hef búiö hér í 4 ár og þaö hefur hvergi veriö betra. Guömundur Kristján Guömundsson: Yndislegt, rólegt og gott. Besti staöur sem viö hjónin höfum búiö á hingaö til. Skuggi græðginnar yfir oss ^ Það er ofarlega í jÆKgBmi endurminningunni þegar maður T ^orfði úr landi á bátaflotann frá 4, Keflavik aö kvöld- lagi bíða þess í Garðsjónum, upp ' — undir landstein- Andersen mega fara blm. skrifar: af staö á miðin. það var J^pp í sjó- mönnunum að komast sem fyrst af stað, vera framarlega í röðinni til að fá gott rými viö lögnina. Og þá eins og nú voru sumir bátar aflahærri en aðrir, og menn á aflaskipunum nutu þess í afkomu. Ég man samt ekki eftir að sá „súperafli“ hafi gefið mönnum á viðkomandi báti í aðra hönd mánað- arlaun annarra stétta á einum degi. Þetta skaust í gegnum hug mér eftir að hafa lesið í frétt að háseta- hlutur á íjölveiðiskipunum hér væri um eða yfir 100 þúsund krónur á dag. Dæmi var tekið af síldveiðum. Og annað dæmi þar sem hásetar labba i land með 1,6 milljónir eftir túrinn, tæpan hálfan mánuð. Þegar maður les þessar fréttir er aðeins ein spurning sem kemur upp í hug- ann: Hvernig er staðið að þessari verðlagningu? - Og svo: Er ekki betra minna og jafnara? Þegar einstaka stétt manna getur halað inn þessi fim af peningum hlýtur hún að vera í góðum málum flárhagslega. Með skattaívilnunum. En er þetta ekki starfsstéttin sem er að kvarta um að ekki hafi verið samið við í meira en áratug? Þarf eitthvað að semja þegar svona er staöan? Árslaun hinna og þessara starfsstétta tekin á einum mánuði? Hér dugar ekki hót að blanda saman „vinnunni að baki tekjun- um“ eða hinni margívitnuðu „fjar- veru frá fjölskyldunni". Heldur ekki Á grálúöunni Topptekjur og skattafsláttur. „Þegar einstaka stétt manna getur halað inn þessi firn af peningum hlýt- ur hún að vera í góðum málum fjárhagslega. En er þetta ekki starfsstéttin sem er að kvarta um að ekki hafi verið samið við í meira en áratug?“ „fast þeir sóttu sjóinn-versinu“, því þetta eru bara allt aðrar Ellur. Ég er einfaldlega að ýja að endemis hræsninni og yfirdrepsskapnum sem viðgengst í afstöðunni til hinna rangnefndu „undirstöðuatvinnu- vega“, svo og hinni góðkunnu græðgi sem menn verða slegnir þeg- ar þeir fara að finna fyrir alls óverð- skuldaðri velgengni, byggðri á sjálftökuhugtakinu í skammtafræði kaups, kjara og fríðinda. En græðgin er náskyld grunn- hyggninni. Vel má vera að góðærið sem hér hefur gengið yfir eins og eldur í sinu hafi brennt sig svo inn í huga fólks að því finnist ekki nema sjálfsagt að hrifsa það sem næst og láta svo slag standa hvern- ig umhorfs verður þegar „allir“ hafa fengið sitt og ekkert verður eftir. Og þau teikn eru einmitt á lofti nú að skuggi græðginnar færist yfir of margan atvinnuveginn. Nema sjó- menn og útveginn, þar sem fall krónunnar þýðir „gróði“ en tap fyr- ir alla aðra. - Og hver reisir krón- una við? Ólíkar fréttir um fiskveiðimál „Hagsmunaárekstrar eru augljósir þegar kemur að því að breyta lögum um fiskveiðar. Fœreyingar virð- ast hafa haldið rétti sínum fyrir þjóðina og haldið út- gerðarmönnum utan við eignarréttinn. “ Þegar fylgst er með fréttum frá Færeyjum og Is- landi um fiskveiði- mál er áberandi hvað þær fréttir eru ólíkar. Færeyingar báru gæfu til að varpa fyrir róða kvótakerfl sem var líkt okkar kerfl og virðast þeir hafa haft full umráð yfir kerfinu. Hjá okkur er ekki því að heilsa þvi búið er að taka eignarrétt þjóðarinnar á fiskveiðiheimildinni og veðsetja hana í þágu útgerðarinnar. Nú segjast þingmenn ætla að end- urskoða fiskveiðikerfið. Ekki er augljóst hvemig þeir ætla að fram- kvæma breytingar á kerfinu, því þeir stóðu að því aö gefa það á sin- um tíma. Þingmenn margir hverjir eru vanhæfir til þess að fara með fiskveiðimál fyrir hönd þjóðarinnar vegna skyldleika við fiskveiðiheim- ildir og arfsréttar í þeim. Hagsmunaárekstrar eru augljósir þegar kemur að þvi að breyta lögum um fiskveiðar. Færeyingar virðast hafa haldið rétti sínum fyrir þjóðina og haldið útgerðarmönnum utan við eignarréttinn. Það hafa þeir gert með því að úthluta veiðiheimildum einu sinni á ári. Og gilda þær að- eins það fiskveiðiárið. Ekki virðast því neinir sægreifar í Færeyjum og væri betur að þannig væri það hérna. Ef þingmenn gerðu tilraun til þess að koma svona lagi á fiskveiði- heimildirnar héma færu útgerðar- menn og bankar fram á skaðabætur því þeir vildu að þjóðin keypti heimildirnar af þeim. Þaö er því augljóst að þingmenn hafa unnið mikið óhappaverk þegar þeir komu málum svona fyrir og geta þeir aldrei lagað það. - Skaðinn er var- anlegur. Garri Fullar forsetadætur Garri er með böggum hildar þessa dagana yfir fréttaflutningi íslenkra fjölmiðla af meintu fyllirii bandarísku forsetadætranna, þeirra Jennu og Barböru. Þessar lífsglöðu stúlkur af Runnaætt mega varla líta inn á pöbb í villta vestrinu og fá sér þar Egils pilsner án þess að ijölmiðlar hér norður á hjara fjalli ítarlega um það í máli og myndum. Vissulega lepja hérlendir miðlar þetta upp eftir erlendum fréttamiðlum en það breytir ekki öllu og er engin afsökun fyrir svo umfangsmikilli umfjöllun um unglinga- drykkju i útlöndum. Garri hefur ekki síst áhyggjur af því að þegar íslensk ungmenni lesa um öldrykkju Jennu og Barböru, sem eru einkar hraustlegar og búldu- leitar stúlkur, langi þá til að fara og gjöra hið sama, þ.e. fá sér einn öllara. Þessi fréttaflutning- ur af þeim Runnasystrum getur því virkað sem jákvæð umfjöllun um áfengi og jaðrar við áróð- urs- og auglýsingastarfsemi. Og varðaði auðvitað fljótlega við lög ef verið væri að fjalla um að Jenna og Barbara væru farnar að reykja í laumi. Öls víð pel Það má líka spyrja hvort okkur hér uppi á ís- landi komi það yfirleitt nokkurn skapaðan hlut við þó tilteknar tvíburasystur í Texas sitji annað veiflð „öls við pel“ eins og Hallgrímur sálugi Pétursson orðaði það. En ef svo er, liggur þá ekki beinna við að fjalla ítarlega um öldrykkju nafntogaðra íslenskra unglinga, svona rétt til þess að hafa þetta á þjóðlegu nótunum? Þurfum við sem sé að óttast að islenskir fjölmiðlar fari að greina ítarlega frá því ef íslensku forsetadæt- urnar fá sér bauk af Thule í góðra vina hópi? Að ekki verði látið nægja, eins og hingað til, að nefna þær í dálkinum „Hverjir voru hvar?“ held- ur einnig að taka fram hvað þær drukku og hvað mikið? Jón og Sir John Nú hefur Garri ekki hugmynd um hvort for- setadæturnar íslensku drekka bjór eður ei, enda kemur honum það ekki við og þjóðinni ekki heldur. Enda væru þær heldur ekki að brjóta nein lög með ölkneyfi hér eins og Barbara og Jenna í Texas. Og þó svo íslensk forsetabörn kæmust í kast við lögin með einum eða öðrum hætti þá væri heldur ekki ástæða til að geta þessa sérstaklega i fjölmiðlum, fremur en ef aðr- ir og „óbreyttir" unglingar ættu í hlut. En í íslenskum fjölmiðlum hefur lengi gilt að það er ekki sama séra Jón og Sir John. Þess vegna er birting á hneykslissögum úr einkalífl erlends frægðarfólks yfirleitt aðeins uppbót fyrir þær krassandi sögur af einkalífi nafntogaöra Is- lendinga sem þegjandi samkomulag er um meðal hérlendra fjölmiðla að birta ekki. Garri Við Dauöahafiö 77/ lækninga, ekki dauöa. Húðsjúkdómar og Gamla testamentið Vilhjálmur Alfreðsson skrifar: I fréttabréfi Samtaka psoriasis- og exemsjúklinga (júníhefti 2001) var upplýst að í Gamla testamentinu hefði fólki með húðsjúkdóma verið ráðlagt að halda sig „utan samfélagsins“. Þetta sýnir aumingjaskap Gyðinga. En Jesús Kristur, sá sanni ísraelski þjóðernissinni, hafði óbeit á Gamla testamentinu, en var krossfestur af strangtrúuðum Gyðingum. Kristur var ekki bara þjóðemissinni, heldur heimssinni. I dag viðurkenna ísraels- menn ekki tilvist Krists á jörðinni. Ég verð þó að segja að ísraelsmenn hafa komið sér upp ágætisstöðum fyrir fólk með húðsjúkdóma, t.d. á bökkum Dauðahafsins. - Þetta gátu þeir. Þakkir til Íslandssíma Margrét Jónsdóttir skrifar: Ég vil koma á framfæri þakklæti fyrir frábæra þjónustu Íslandssíma. Ég er ekki mikið fyrir biðraðir eða að hlaupa eftir tilboðum. En í síðustu viku var hringt í mig frá Íslandssíma og mér boðið að skipta heimilissíma og GSM yfir frá Landssímanum, til sparnaðar. Það sem mér kom á óvart var hve auðvelt þetta var. Auk þess að halda gamla heimilisnúmerinu kom ungur maður frá Íslandssíma heim og skipti út GSM-kortinu gamla fyrir nýtt. Þarna þurfti ég ekki einu sinni að fara i verslun. Toppurinn var síðan að gömlu símanúmerin voru áfram í símanum þar sem Íslandssími afritaði þau öll á nýja kortið. Bush í höfuöstöövum NATO Hlýlegar móttökur hvarvetna. Vinsæll í Evrópuferð Páll Sigurösson skrifar: Það er eins og sumir islenskir fjöl- miðlamenn, jafnvel þeir sem eru er- lendis, eins og á vegum RÚV, vilji allt til vinna að koma að fréttum um mis- heppnaða heimsókn Bush Bandaríkja- forseta til Evrópu. Þannig sagði frétta- ritari Bylgjunnar á Spáni í hádegis- fréttum t.d. frá „óforfrömuðum" Bush í heimsókn í Madríd. Einhverjir hafa svo reynt að kasta rýrð á Evrópu- heimsókn forsetans. En það versnar í því fyrir þá því Bush hefur fengið hlýjar móttökur hvarvetna, utan hvað sænskir atvinnumótmælendur standa enn í fjandskaparmálum. Sennilega endar heimsókn Bush til Evrópu þannig að hann snúi leiðtogum ríkj- anna til fylgis við flestar hugmyndir sínar, þ.m.t. um nauðsyn hins nýja eldflaugavamakerfis og aukna þátt- töku Evrópuríkjanna í eigin vömum. Ekiö á gangstéttum Kona í Grafarvogi skrifar: Við götuna Logafold, þ.e. á göngu- stígum fyrir neðan, eru einhverjir vinnuhópar að störfum. Vinnubrögðin eru þó ekki burðugri en svo að þarna aka ungir drengir, sýnilega úr vinnu- flokknum, á pallbílum eftir göngustígn- um, eins og fjandinn sé á hælunum á þeim, á móti krökkum á hjólum, og öskra að þeim að hypja sig frá bílnum. Ég hef reynt að komast að því á hvaða vegum vinnuhópur þessi er (hringt í Vinnuskólann, embætti gatnamála- stjóra o.fl.) en án árangurs. Mér finnst þetta vera ófyrirgefanlegt athæfi. Lesendur geta hringt allan sólarhring- inn í síma: 550 5035. Eöa sent tölvupóst á netfangiö: gra@ff.is Eöa sent bréf til: Lesendasíöa DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík. Lesendur eru hvattir til að senda mynd af sér til birtingar meö bréfunum á sama póstfang.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.