Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Blaðsíða 6

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Blaðsíða 6
6 MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2001 Fréttir ÐV Karlakórinn Fóstbræður hlaut gullverðlaun á evrópsku móti 15 kóra sem nýlokið er í Prag í Tékk- landi. Fimmtiu og fimm Fóstbræður sungu sig þar inn í hugi og hjörtu dómnefndarmanna og urðu sjálfir hissa þegar þeir unnu: „Við komum, sáum og sigruð- um, okkur sjálfum að óvörum,“ sagði Jón Þorsteinn Gunnarsson, formaður Fóstbræðra, þar sem hann sat ásamt félögum sínum í langferðabifreið á leið til Vínar í Austurriki í gærkvöldi. Þar ætla þeir félagar að halda tónleika í kvöld. Á kóramótinu í Prag sungu Fóst- bræður á ýmsum tungumálum: frönsku, tékknesku, latínu og svo á íslensku þjóðlagið „Það var barn í dalnum“ í útsetningu Áma Harðar- sonar, stjómanda kórsins. „Það var tékkneskur kór þama sem reyndist okkur skeinuhættur en við tókum hann á endasprettin- um. Þessi verðlaun setja okkur á stall Fóstbræður Á stall meö bestu kórum í Evrópu. með bestu kórum i Evrópu,“ sagði Jón Þorsteinn. Fóstbræður fóru einnig til Búda- pest þar sem þeir sungu fyrir 800 gesti í einni bestu tónleikahöll álf- unnar. Hljómburðurinn var þvílík- ur að Árna Harðarsyni stjórnanda varð að orði: „Ég vissi ekki að við værum svona góðir.“ -EIR Fóstbræður leggja Evrópu að fótum sér - hrepptu gullið á kóramóti í Prag Skallaður í Lækjargötu Karlmaöur varð fyrir árás í Lækj- argötu i Reykjavík í fyrrinótt. Ann- ar veittist þar að honum og skallaði hann í andlitið með þeim afleiðing- um að sá er fyrir árásinni varð léit- aði aðhlynningar á slysadeild. Lögreglan hafði vitneskju um hver þama var að verki og fann kauða skömmu síðar þar sem hann var hinn rólegasti í biðröð fyrir utan skemmtistað skammt frá og hugöist halda „djamminu" áfram. Hann var hins vegar handtekinn og fluttur í fangageymslu. -gk Fyrsti laxinn úr Elliðaánum - Jón Þ. Júlíusson fékk sjö punda fiskinn á maðk „Það var gaman að veiða fyrsta laxinn í ánum, hann tók á Breiðunni og þetta er 7 punda lax,“ sagði Jón Þ. Júlíusson í samtali við DV í gær. Jón veiddi fyrsta laxinn í Elliðaán- um á þessu sumri, aðeins höfðu veiðst urriðatittir í ánni fyrir þenn- an tíma. „Fiskurinn tók maðkinn. Ég var með hann á i nokkrar mínút- ur og það voru fleiri laxar þama,“ sagði Július skömmu eftir að hann landaði fyrsta laxi sumarsins í ánum í gær. Vonandi fer veiðin að glæðast í Elliðaánum og fleiri laxar að láta sjá sig í straumi hennar, tíminn er alla vega kominn. Það er kannski skýring á fáum löxum í ánni. Laxinn hefur farið upp vestari kvísl Elliðaánna og þar hefur hann það fint, enda má ekki veiða þar. Þangað gætu verið komn- ir á milli 15 og 20 laxar. Laxveiðin gengur frekar rólega, Norðurá er komin yfir 100 laxa og Blanda hefur geflð 90 laxa, Laxá í Aðaldal 35, Laxá á Ásum 10 laxa og Laxá í Kjós 20 laxa. Veiðin byrjar í Korpu á mið- vikudaginn og sú byrjun gæti orðið góð, laxar hafa sést í ánni og alla vega einn verulega vænn. -G. Bender DV-MYND JÞJ Jón Þ. Júlíusson meö fyrsta laxinn sem fékkst úr Elliöaánum í gær Aöeins höföu veiðst urriöatittir áöur. Þetta var 7 punda fiskur og var hann grálúsugur þegar hann kom upp á bakkann. Útgerðarmenn, bændur, verktakar og aðrir VÍR fyrirLYFTUR tæki og vélar Höfum ávallt á lager ýmsar gerðir víra. • Stálvír ■ Kranavír • Riðfrír vír Göngum frá endum í samræmi við óskir kaupenda , - # vS'Tb/ : '' * | Netagerð Jóns Holbergssonar ehf Hjallahraun 11, 220 Hafnarfjörður sími: 555 4949 Umsjón: Hörður Kristjánsson netfang: hkrist@ff.is Með kollhúfu Trillukarlar á Vestfjörðum hugsa hlýlega til ráðamanna þjóðarinnar ef dæma má af viðtökum sem forsætis- ráðherrann Davíð , Oddsson fékk á [ Hrafnseyri, fæð- [ ingarstað Jóns Sigurðssonar, 17.1 júní. Þar mættu [ trillukarlar í sínu | finasta pússi en all- ir með bláar der- húfur. Voru þeir prúðir í fasi og af- henti Hálfdán Kristjánsson, trillu- karl á Flateyri, forsætisráðherranum húfu að gjöf, líkt og öðrum gestum. Víst er að húfan kemur að góðum notum í rigningunni syðra en óvíst hvort þetta verður uppáhaldshöfuð- fat Davíðs. Á hana var nefnilega letr- aður smásannleikur um mikilvægi smábátaútgerðar fyrir atvinnulífið vestra. Fremur ólíklegt er því talið að Davíð mæti með húfuna á fund með Árna M. Mathiesen þegar kvótanefndin skilar af sér... Litlir kallar Sagt er að lítið hafl orðið úr íslenk- um olíufurstum Olíufélagsins Esso, Skeljungs og Olís þegar fregnir bárust um að íslensk blómarós væri að f ganga í það heilaga með aðalerfmgja Ir- ving- olíurisans í Kanada. Margir minnast þess þegar Irving-bræður reyndu að festa sér land undir oliustarfsemi hér á landi við litla hrifningu íslensku olíufyrir- tækjanna. Nú hefur fyrrum íslensk flugfreyja, íris Lana Birgisdóttir, skotið þessum peningamönnum ref fyr- ir rass er hún giftist Irving olíufursta í Fríkirkjunni á laugardag. Veldi Irving- hölskyldunnar er mikið, svona rétt eins og þrefóld íslensku fjárlögin. Flug- freyjunni fyrrverandi myndi því vera hægðarleikur að kaupa upp íslenska olíufursta með húð og hári ef henni bara dytti það í hug... Óþarfi aö örvænta... Steingrímur J. Sigfússon og Össur Skarphéðinsson eru vart sagðir ná upp í nef sér fyrir bræði þessa dagana. Þeir hafa margsinn- is varað við því að þjóðarskútan væri að sligast undir rangri hleðslu ríkis- stjómarinnar og dallurinn að sigla í [ kaf. Margt bendir og | til að þeir hafi nokk- uð til síns mál, sér í lagi ef litið er á vaxandi verðbólgu. Reiði Steingríms og Össurar er þó ekki vegna þess að þeir hafi klikkað á nokkrum hlut, heldur hinu að fjármálaráðherrann, Geir H. Haarde, lætur sér fátt um fmnast og Davíð Oddsson líka. Þeir gefa gagn- rýnendum langt nef og segja óþarfa að mála skrattann á vegg þó aðeins gefi á daliinn... Guð býr í... „Vertu mér samferða inn í blóma- landið, amma“ er ein af sigildum perlunum á fyrstu plötu Megasar, sem út kom 1972. Fyrir j tuttugu og sjö árum, eða árið 11974, tók Ríkissjón- varpið upp þátt með kappanum ásamt tónlistar- mönnunum Böðvari Guðmundssyni og Erni Bjarnasyni. Útvarpsráð þvertók fyrir að þátturinn yrði sýndur á sín- um tíma, þar sem hann gæti farið fyr- ir brjóstið á biskupi og fleira góðu fólki. Nú er öldin önnur og þjóðin búin að kyrja þennan slagara Megas- ar i hart nær 30 ár. Þar segir að guð búi í garðslöngunni, glötuninni, galeiðunni, gúmmíinu, girðingunni, gjaldheimtunni, gasbindinu, gengis- hruni og gaddavímum. Eftir allan þennan tíma hefur loks verið ákveðið að sýna megi þáttinn og hann þá væntanlega ekki lengur guðlast. Enda Megas kominn á stall með sjálfu Pass- íusálmaskáldinu...

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.