Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Page 22

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Page 22
34 MÁNUDAGUR 18. JÚNÍ 2001 íslendingaþættir________________________________________________________________________________________________________py Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 80 ára________________________________ Gísli Guöjónsson, Lindarbraut 16, Seltjarnarnesi. Lilja Jónsdóttir, Tjarnarlundi 17c, Akureyri. 70 ára________________________________ Elín Guðjónsdóttir, Laugarásvegi 16, Reykjavík. María Þórhildur Óskarsdóttir, Lambastekk 2, Reykjavík. Marteinn H. Kratsch, Krummahólum 8, Reykjavík. 60 ára________________________________ Sigfús Þ. Guðmundsson ! bifvélavirkjameistari, M Álfaheiöi la, Kópavogi. Hann er aö heiman á Elsa Georgsdóttir, Lindargötu 36, Reykjavík. Lars David Nielsen, Þelamörk 54, Hveragerði. Ólöf Guðnadóttir, Fífulind 1, Kópavogi. Örn Hallsteinsson, Dalseli 29, Reykjavík. 50 ára________________________________ Emilía Ásgeirsdóttir skrifstofumaður, Hábergi 20, Reykjavík. Eiginmaður hennar er Andri Bachmann tónlistarmaður og vagnstjóri hjá SVR. Erla Ósk Björnsdóttir, Smárarima 102, Reykjavík. Gróa Eiðsdóttir, Fálkagötu 11, Reykjavík. Kristján Jón Eysteinsson, Bólstaöarhlíö 58, Reykjavík. Oddur Helgason, Sólvöllum 19, Akureyri. Ólöf Hallsdóttir, Garðbraut 83, Garði. Reynir Páll Wium Kristinsson, Fannarfelli 8, Reykjavík. Sigríöur Einarsdóttir, Mosarima 2, Reykjavík. Stefán Eggertsson, Selvogsgrunni 16, Reykjavik. 40 ára________________________________ Bjarni Sigurðsson, Mávahlíð 33, Reykjavík. Einar Friðjónsson, Smárahlíð 12d, Akureyri. Ingibjörg Helgadóttir, Espilundi 3, Akureyri. Ingunn Sævarsdóttir, Hlíöarhjalla 59, Kópavogi. Linda Björk Holm, Hjarðarslóð Id, Dalvík. Óskar Þór Halldórsson, Dalsgeröi lk, Akureyri. Sylvía Ingibergsdóttir, Grundartanga 25, Mosfellsbæ. Persónuleg, aihliöa útfararþjónusta. Áralöng reynsla. Svarrir Elnarsson Bryndís útfararstjórl Valbiamardóttlr útfararstjóri Útfararstofa íslands Suðurhliö35- Sími 581 3300 allan sólarhringinn. www.Utforin.iS 7--------- JJrval -960síðuráári- fróðleikur og skemmtun sem iifír mánuðum og árum saman Attræöur Eiríkur Elí Stefánsson fyrrv. skrifstofustjóri í Reykjavík Eiríkur Elí Stefánsson skrifstofu- stjóri, Hjúkrunarheimilinu Eir, 2. h. suður, herbergi U, Hlíðarhúsum 7, 112 Reykjavík, verður áttatiu ára á morgun. Starfsferill Eiríkur fæddist í Haga í Þjórsár- dal. Hann lauk stúdentsprófi frá MA 1943 og stundaði um skeið nám i byggingaverkfræði við HÍ. Eiríkur var kennari við Kvenna- skólann í Reykjavík 1945-1947, leigubílstjóri í Reykjavík 1946-1955 og skrifstofustjóri hjá ísarn hf. Scania-umboðinu og Norðurleið hf. í Reykjavík 1956-1996. Eiríkur var stjórnarformaður Landleiða frá 1956 og meðan fyrir- tækið stundaði rekstur og hefur verið stjórnarformaður Scania-um- boðsins og Norðurleiða frá 1956. Þá hefur hann starfað í Sjálfstæðis- flokknum og verið í fulltrúaráði hans. Fjölskylda Eiríkur kvæntist 31.12. 1949 Guð- rúnu Ragnheiði Rögnvaldsdóttur Líndal, f. 16.6. 1915, húsfreyju. Hún er dóttir Rögnvalds Hjartarsonar Líndal, bónda í Hnausakoti í Fremri-Torfustaðahreppi í Vestur- Húnavatnssýslu, og k.h., Þorbjargar Guðmundsdóttur húsfreyju. Sonur Ragnheiðar og stjúpsonur Eiríks er Grétar Hreinn Óskarsson, f. 3.3. 1938, flugvélaverkfræðingur og fyrrum framkvæmdastjóri Loft- ferðaeftirlitsins, kvæntur Ingi- björgu Guðfinnu Haraldsdóttur, f. 19.4. 1942, fyrrum féhirði ASÍ, en þau búa nú í Kanada. Böm þeirra eru Eiríkur Álmar Grétarsson, f. 14.8. 1964, flugvéla- verkfræðingur, nú búsettur í Bandaríkjunum, kvæntur Lisu Grétarsson, réttarritara; Ragnheið- ur Ýr Grétarsdóttir, f. 26.8. 1966, sjúkraþjálfari í Reykjavík, gift Ólafi Sverrissyni verkfræðingi og eiga þau þrjú þörn; Haraldur Eyjar Grét- arsson, f. 24.3. 1969, lögregluvarð- stjóri í Reykjavík, kvæntur Mjöll Þórarinsdóttur skrifstofumanni og eiga þau tvo syni. Systkini Eiríks: Guðrún, f. 12.11. 1911, d. 17.6. 1912; Guðrún, f. 19.3. 1914, d. 25.2. 1943, kennari og hús- freyja í Haga í Þjórsárdal; Sigurður, f. 3.2. 1916, d. 29.11. 1916; Sigurður, f. 25.4. 1918, d. 21.9. 1921; Jóhanna, f. 27.8. 1919, húsmóðir á Seltjarnar- nesi; Gestur, f. 8.12. 1923, verkfræð- ingur í Danmörku. Fósturbróðir Eiríks var Ágúst S.G. Hafberg, f. 30.6. 1927, d. 16.5. 2001, fyrrv. forstjóri í Reykjavík. Foreldrar Eiríks voru Stefán Sig- urðsson, f. 11.4. 1885, d. 18.5. 1927, bóndi í Haga, og k.h., Jóhanna Mar- grét Eiríksdóttir, f. 12.6.1886, d. 23.6. 1968, kennari og húsfreyja í Haga. Ætt Stefán var sonur Sigurðar, b. í Hrepphólum í Hrunamannahreppi, Jónssonar, pr. á Stóra-Núpi, Eiríks- sonar, dbrm. á Ási í Holtum, bróður Benedikts, pr. í Hraungerði, langafa Einars Benediktssonar skálds. Ei- ríkur var sonur Sveins, prófasts í Hraungerði Halldórssonar, og Önnu, systur Jóns Eiríkssonar kon- ferensráðs. Móðir séra Jóns var Guðrún Jónsdóttir, pr. i Holti undir Eyjafjöllum, Jónssonar, bróður Steingríms, biskups i Laugarnesi. Móðir Sigurðar var Guðrún Páls- dóttir, pr. í Holtaþingum, Ólafsson- ar, pr. í Eyvindarhólum, Pálssonar, klausturhaldara í Gufunesi Jóns- sonar, ættfóður Pálsættar. Móðir Páls í Holtaþingum var Helga Jóns- dóttir, eldprests Steingrímssonar. Móðir Stefáns var Jóhanna Guð- mundsdóttir, b. í Ásum í Gnúpverja- hreppi, Þormóðssonar, b. í Hjálm- holti, Bergssonar. Móðir Jóhönnu var Margrét, systir Vigfúsar, föður Grétars Fells rithöfundar. Annar bróðir Margrétar var Ófeigur, afi Tryggva útgerðarmanns. Margrét var dóttir Ófeigs ríka í Fjalli, Vig- fússonar, ættföður Fjallsættarinnar, Ófeigssonar. Móðir Ófeigs í Fjalli var Ingunn Eiríksdóttur, ættfóður Reykjaættar, Vigfússonar. Jóhanna Margrét var dóttir Ei- ríks Jónssonar, b. í Fossnesi í Gnúpverjahreppi, bróður Sigurðar í Hrepphólum. Móðir Jóhönnu Mar- grétar var Guðrún Jónsdóttur hús- freyja. Dóra Erla Þórhallsdóttir starfsmaður við móttöku Ríkisútvarpsins Konráð Ásgrímsson sérfræðingur við Hagstofu íslands Dóra Erla Þórhalls- dóttir, starfsmaður við móttöku Ríkisútvarpsins í Efstaleiti, Sólheimum 27, Reykjavík, verður sextug á morgun. Starfsferill Dóra Erla fæddist í Reykjavík og ólst upp á Teigunum í Reykjavík. Hún lauk gagnfræðaprófi 1957, stundaði nám viö Húsmæðraskóla Reykjavíkur 1958-1959 og stundaði kennaranám við Idrætshöjskolen Haslev, 1969-1972. Dóra Erla var húsmóðir og ráðskona Lýðháskólans í Skálholti 1972-1982 og húsmóðir og ráðskona Þjóðgarðsins Þingvöllum 1982-1992. Hún hefur starfað við móttöku hjá Ríkisútvarpinu frá 1992. Fjölskylda Dóra Erla giftist 9.9. 1961 sr. Heimi Steinssyni, f. 1.7. 1937, d. 15.5. 2000, sóknarprestur og þjóðgarðs- verði á Þingvöllum. Hann var sonur Amþrúðar Ingólfsdóttur og Steins Stefánssonar. Böm Dóru og Heimis era sr. ÞórhaUur Heimisson, f. 30.7. 1961, prestur í Hafnaríjarðarkirkju, búsettur í Hafnarfirði, kvæntur sr. IngUeif Malmberg, sjúkrahús- presti á Landspítalanum við Hringbraut og em börn þeirra Dóra Erla, f. 22.6. 1987, Rakel, f. 15.3 1991 og Hlín, f. 25.1. 1993 Amþrúður Heimisdóttir f. 6.9. 1971, þúfræði kandidat, búsett að Langhúsum í Fljótum en maður hennar er Þorlákur Sigurbjörnsson búfræðingur og er sonur þeirra Heimir Sindri, f. 14.12. 2000 Systkini Dóra Erlu: Ólafur, f. 2.12. 1936, d. 26.3. 1963; Ásbjörg, f. 12.11. 1959, ljósmóðir og hjúkrunar- fræðingur en maður hennar er Kristbjöm ísfeld Reynisson geislagreiningarlæknir og eiga þau þrjár dætur. Foreldrar Dóra Erlu voru Þórhallur Þorkelsson, f. 3.8. 1910, d. 4.12. 1977, húsgagnasmiður 1 Reykjavík, og Halldóra Ólafsdóttir, f. 16.4. 1914, d. 4.6. 1999, húsmóðir. Dóra Erla verður 1 Kaupmanna- höfn ásamt bömum sínum og fjölskyldum þeirra á afmælis- daginn. Konráð Ásgrímsson sérfræðingur, Huldu- braut 16, Kópavogi, verð- ur fimmtugur á morgun. Starfsferill Konráð fæddist á Torfa- stöðum í Biskupstungum en ólst upp á Laugar- vatni. Hann lauk stúd- entsprófi frá ML 1972, stundaði nám við HÍ 1972-1976 og við University of Reading á Englandi 1976-1978 og við Vrije Uni- versiteit í Brússel 1993-1994. Konráð var kennari og námsráð- gjafi við Fjölbrautaskóla Suðurnesja 1979-99 en starfar nú á skólamála- deild Hagstofu íslands. Eftir Konráð liggur þýðing á kennslubók í sálfræði sem notuð hefur verið 1 mörgum framhalds- skólum. Hann er áhugamaður um námsmat, rannsóknir á skólastarfl og um aukin gæði starfsmenntunar. Hann hefur látið til sín taka hvað varðar umfjöllun um tölvuvætt námsmat og staðið fyrir námskeið- um og fræðslu á þvi sviði. Konráö hefur unun af tónlist og góðum söng. Hann hefur sungið með Karlakór Reykjavíkur um ára- bil eða allt frá 1987 Fjölskylda Konráð kvæntist 14.6. 1972 Elínu Siggeirsdóttur, f. 6.10.1952, tölvunarfræð- ingi. Hún er dóttir Sig- geirs Pálssonar og Unu Georgsdóttur, bænda að Baugsstöðum í Stokkseyr- arhreppi. Börn Konráðs og Elín- ar eru Ásgeir Konráðs- son, f. 18.12. 1970, doktorsnemi í Bandaríkjunum en kona hans er Sjöfn Gunnarsdóttir, f. 29.3. 1974, doktorsnemi í Bandaríkjunum; Karl Konráðsson, f. 24.10. 1972, hagfræð- ingur í Noregi en kona hans er Elínóra Kristinsdóttir, f. 5.1. 1974, myndlistarmaður, og er dóttir þeirra Katrín Ásta Karlsdóttir, f. 18.8. 1999 Systkini Konráðs: Guðrún Erla Ásgrímsdóttir, _f. 13.2. 1944, d. 18.3. 1997; Stefán Ásgrímsson, f. 24.7. 1946, blaðamaður og ritsjóri; Eirik- ur Ásgrímsson, f. 3.5. 1952, d. 20.9. 1975. Foreldrar Konráðs: Ásgrlmur Jónsson, f. 8.6. 1917, d. 25.3. 1986, garðyrkjumaður og tilraunastjóri á Laugarvatni, og Þorbjörg Eiríks- dóttir, f. 20.9. 1913, húsmóöir. Merkir íslendingar Oddný Soffía Ingvarsdóttir bæjarfulltrúi, fæddist í Gaulverjabæ í Flóa 17. júní 1903. For- eldrar hennar voru Ingvar G. Nikulásson, prestur í Gaulverjabæ og síðar að Skeggjastöðum við Bakka- fjörð, og k.h., Júlía Guðmundsdóttir húsfreyja. Eig- inmaöur Sofílu var Sveinbjörn Sigurjónsson, magister og skólastjóri Gagnfræðaskóla Austurbæj- ar en barnabörn Sofíiu eru Sveinbjörn rithöfundur og Tryggvi tónskáld Baldvinssynir og Sofíia líf- fræðingur og Þrándur tölvufræðingur Amórsbörn. Systkini Soffiu voru Ingunn Júlía, húsfreyja að Desjamýri, og Helgi, yfirlæknir á Vifilsstöðum, afi Júlíusar Vífils borgarfulltrúa sem er einmitt fimm- tugur í dag. Soffía stundaöi nám við Gagnfræöaskólann á Ak- Soffía Ingvarsdóttir ureyri 1916-1917 og brautskráðist úr Kvennaskól- anum í Reykjavík 1921. Húnvar húsfreyja í Reykja- vík, bæjarfulltrúi þar 1938-1946 og varaborgarfull- trúi 1962-1966. Þá var hún varaþm. fyrir Alþýðu- fokkinn 1949-1953 og sat um hríð á Alþingi. Hún var formaður Kvenfélags Alþýðuflokksins í Reykja- vík 1943-1967, átti sæti 1 miðstjðrn Alþýðuílokks- ins 1938-1967 og gegndi ýmsum trúnaðarstörfum fyrir flokkinn. Hún sat í stjórn Sjúkrasamlags Reykjavíkur 1954-1974, í stjórn Kvenréttindafélags íslands 1948-1956 og í stjórn Bandalags kvenna í Reykjavík 1962-1976. Soffia lést í hárri elli 19. ágúst 2000. Þjónustu- auglýsingar ►I 550 5000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.