Dagblaðið Vísir - DV


Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Qupperneq 28

Dagblaðið Vísir - DV - 18.06.2001, Qupperneq 28
Helgason hf FRETTASKOTIÐ SÍMINN SEM ALDREI SEFUR Hafir þú ábendingu eöa vitneskju um frétt, hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert fréttaskot, sem birtist eöa er notaö í DV, greiöast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið í hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar er gætt. Viö tökum viö fréttaskotum allan sólarhringinn. 550 5555 FVrirmynd- artónleikar Á annan tug þúsunda fólks á ýms- um aldri lagði leið sína í Laugardals- höll um helgina til að berja þar aug- um og hlusta á tónlist þýsku rokk- hljómsveitarinnar Rammstein. Uppselt var á hvora tveggju tón- leikana og komust færri að en vildu. Varðstjóri hjá lögreglunni sagði að tónleikamir hefðu farið mjög vel fram og tónleikagestir verið til mikill- ar fyrirmyndar. Ölvun var ekki al- menn. Á fóstudagskvöld var ráðist á þrjá unga drengi sem höfðu hitt rokk- goðin þýsku fyrir utan Laugardals- höll fyrir tónleikana fyrr um kvöldið og fengið eiginhandaráritun þeirra. Tösku sem geymdi m.a. miðann dýr- mæta var stolið og hafðist ekki upp á þeim sem þama vora að verki -gk Hundur beit barn Hundur sem beit bam á þjóðhátíðar- skemmtun á Viðistaðatúni í Hafnar- firði í gær var umsvifalaust svæfður. „Þaraa vora vinkonur á ferð með böm sín og átti önnur hundinn. Eftir að hundurinn hafði bitið bam vinkonu hundeigandans varð að samkomulagi þeirra í milli að fara rakleitt með hundinn til dýralæknis og aflífa hann. Það var gert,“ sagði lögregluþjónn í Hafnarfirði en hundurinn var af blönd- J uðu kyni. -EIR 16. júní dansleikurinn: í sparifötun- um í sundlaug Hinn landsfrægi 16. júní dansleikur, sem er árviss atburður á Suðureyri við Súgandafjörð og hefur haldið vöku fyr- ir mörgum löggæslumanninum, fór betur í þetta sinn en oft áður. Er því helst þakkað að sýslumaður hækkaði aldurstakmark úr 16 árum í 18 ár. „Þetta kom ekki að sök því yngri krakkamir vora flestir fyrir sunnan að hlusta á Rammstein," sagði varð- yjf- stjóri á ísafirði. „Hins vegar var veðr- ið svo gott að þegar dansleiknum lauk klifruðu gestir yfir sundlaugargirðing- una á staðnum og stungu sér til sunds í sparifótunum. Þurftum við að draga minnst 20 manns upp úr lauginni enda átti hún að vera lokuð.“ -EIR Miöbærinn: Ein lögga á móti þúsund Þrjátíu lögregluþjónar stóðu fasta vakt í miðbæ Reykjavíkur við upphaf kvöldhátíðarhaldanna í gær. Hafði lög- reglan ráðagerðir uppi um að tvöfalda þá tölu ef á þyrfti að halda og sækja þá 'aút lögregluþjóna í önnur hverfi. Lætur því nærri að einn lögregluþjónn hafi verið á móti hverjum eitt þúsund gest- um sem í miðbænum vora. -EIR DVJvlYND ÞÖK Hljómsveitin Rammstein trylltl íslenska áhangendur sína í Höllinni á laugardagskvöldió Uppselt var á tvenna hljómleika sveitarinnar á föstudag og laugardag og komust færri aö en vildu. Seldust miöar á svörtum markaöi fyrir svimandi upphæðir og heyröist nefnt aö menn heföu þargreitt allt aö 15 til 70 þúsund krónur fyrir miðann. - Sjá nánar um tónleikana á bls. 37. Ógnvekjandi tölur sem endurspegla gróft ofbeldi og alvarleg fíkniefnabrot: Fimmtán sitja inni fyrir manndráp eða tilraun - þriðji hver fangi situr inni vegna fíkniefnabrota - jafngildir fjórum knattspyrnuliðum FANGELSIÐ UTLA-HRAUf\ Óviðkomandi stranglega bannai aðgangur Meira en einn af hverjum tíu föngum sem sitja f fangelsi á ís- landi hafa framið manndráp eða gerst sekir um að hafa gert tilraun til slfks með sannanlegum hætti. Þetta eru 11,3 prósent allra fanga. Einn af hverjum þremur, sem af- plána refsidóma í dag, situr hins vegar inni vegna fíkniefnabrota. Þetta eru ógnvekjandi tölur sem endurspegla greinilega gróft of- beldi í islensku þjóðfélagi sem, eins og mörg dæmi á meðal fimmt- ánmenninganna, sannar að þau eiga sér gjarnan stað samfara flkniefnaneyslu. Væri safnað í fótboltalið í fang- elsum landsins myndu þeir sem eru dæmdir fyrir flkniefnabrot geta myndað fjögur slík lið eða því sem næst því þeir eru 43. Alls sitja 133 fangar inni, þar af eru 17 í gæsluvarðhaldi - einn vegna manndráps, Atli Helgason, sem bíður eft- ir að Hæsti- réttur kveði upp endanleg- an dóm í hans máli. Frá því í júlí 1999 hafa sex menn ver- ið dæmdir í fangelsi fyrir manndráp tvö málanna eru kennd við Leifsgötu en hin viö Engihjalla, Espigerði, Njarðvik og Öskjuhlíð. Senn verður réttað á ný í sjö- unda manndrápsmálinu á þessu tæplega tveggja ára tímabili og er það kennt er við Bláhvamm í Þing- eyjarsýslu. Ekki óhagstæður samanburður Sé síðasti áratugur skoöaður hafa tæp tvö manndráp verið framin að meðaltali á ári á íslandi. Fimm hafa áttu sér stað á árinu 2000 en til samanburðar voru fjög- ur framin árið 1991 og þrjú árið 1992. Engin manndráp voru hins vegar framin á árunum 1994, 1995 og 1998. Þrátt fyrir að 15 morðingjar eða menn sem gerðu tilraun tii slíks (3) sitji inni nú eru manndráp á Is- landi í raun sjaldgæf, sé geröur samanburður á milli landa. Á íslandi voru 1,8 manndráp framin á ári síðasta áratug. Þetta þýðir 0,7 manndráp á hverja 100 þúsund íbúa. Sama tala á við í Finnlandi en 4,27 manndráp eru framin á hverja 100 þúsund ibúa í Danmörku - sjö sinnum fleiri en hér á landi. í Bretlandi er talan 2,6, 4,11 í Frakklandi, 7,41 í Banda- ríkjunum en 2,64 í Noregi. Kólombía á sennilega metið. Þar voru 59 manndráp framin á hverja 100 þúsund fbúa, áttatíu og fjórum sinnum fleiri en á íslandi á síðasta áratug. -Ótt Forsætisráðherra með nýjan málshátt: Aldrei heyrt „Ég hef aldrei heyrt þetta. Ég giska á að hér sé um að ræða íslenska þýð- ingu á erlendum málshætti," sagði Jón G. Friðjónsson prófessor um málshátt sem Davíð Oddsson notaði í þjóðhátiðarræðu sinni á Austurvelli í gær. Þar sagði Davíð orðrétt: „Þegar þú ert kominn ofan í holu þá áttu að hætta að moka.“ Jón G. Friðjónsson prófessor, sem er höfundur bókarinnar Mergur málsins, sem fjallar um íslensk orð- tök, sagðist þó vel skilja hvað forsæt- isráðherra hefði átt við: - segir prófessor Davíð Oddsson „Þegar þú ert kominn ofan i holu þá áttu að hætta aö moka. “ þetta „Hann er að segja að menn eigi að sjást fyrir því moki þeir of djúpa holu getur bakkinn hrunið yfir þá. Hann hefði náð svipaðri merkingu með ís- lenska málshættinum „Vandratað er meðalhófið" eða þá farið allt aftur til 13. aldar þar sem stendur í Jónsbók: „Allmjótt er mundangshófið." Jón sagði að nýr málsháttur for- sætisráðherra væri góður og gegn- sær. Það væri svo almennings að ákveða hvað lifði og hvað ekki í þess- um efnum. Fagna bæri þó allri góðri þróun tungumálsins. -EIR Jói útherji Knattspyrnuverslun Ármúla 36 • sími 588 1560

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.