Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Page 11
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
11
Vera kann, ef ég er alveg
hreinskilinn, að þær hafi
réttilega ályktað að ég
myndi aldrei panta mér
tíma hjá fegrunarlœkni.
inn nefið rétt í þessu. „Það er fint, ég
þoli ekki bólur á köllum.“ Það hvarfl-
aði ekki að þeim mæðgum að ég hefði
eitthvað um málið að segja. Ég var
hreinlega sendur. Vera kann, ef ég er
alveg hreinskilinn, að þær hafi rétti-
lega ályktað að ég myndi aldrei panta
mér tíma hjá fegrunarlækni. Því
þyrfti að taka af skarið.
Sem betur fer var nokk-
ur tími þar mér var gert
að mæta í andlitslyft-
inguna. Því reyndi
ég mitt besta til að
gleyma þessu böli.
Það varð til þess
að ég hrökk við
er síminn
hringdi fyrr í
vikunni og óm-
þýð konurödd til-
kynnti að mér
bæri að gefa mig
fram við téðan
lækni næsta morg-
1 un. Ég svaf illa og
sá fyrir mér hvít-
klæddar verur
með stórar
sprautur
og
hnífa. Ég var folur og fár þegar stund-
in rann upp.
Læknirinn tók mér alúðlega og ég
reyndi að bera mig karlmannlega.
„Konan sendi mig,“ sagði ég til þess að
afsaka það að trufla mann í fullri
vinnu fyrir svona smáræði. „Jú,“ sagði
læknirinn. „Ekki veit ég hvernig karl-
kynið færi að ef ekki væru konur til
þess að hafa vit fyrir þeim.“ Ekki var
samúðar að leita hjá þessum kynbróð-
ur mínum. „Kemst ég í vinnuna?“
spurði ég. „Auðvitað," svaraði læknir-
inn, eins og það væri smámál að fegra
mann á mínum aldri. „Get ég haldið
fund með mínu fólki?" spurði ég aftur.
|
)
/
)
„Þó nú væri,“ svaraði læknirinn, „ég
afgreiði þig á korteri. Leggstu bara á
bekkinn."
Lengur með leikarann
Ég sá út undan mér að doktorinn
mundaði sprautu og hnif. Hjartað ólm-
aðist í brjósti mér. Ég gaf mér að hann
skæri mig milli eyma til þess að lyfta
andlitinu en létti þegar hann deyfði
mig aðeins hjá meintri bólu og Qar-
lægði hana snarlega. „Þetta er búið,“
sagði iæknirinn, eiginlega áður en
hann byrjaði.
„Er ég þá orðinn fallegur?" spurði ég
og leit í spegil á læknastofunni. „Það
em þín orð,“ sagði læknirinn. „Ætli
það sé ekki rétt að þú spyrjir konuna.
Það var víst hún sem sendi þig.“
„Þú yrðir lengur með Redford,"
sagði ég um leið og ég gekk út með
plástur á dofnu nefinu. Ég er samt ekki
viss um að læknirinn hafi fattað
kommentið.
Kastró fagnar af-
maeli byitingaiinnar
En auðvitað er gott að
grípa einn snærisþjóf og
hengja í þeirri von að
tréð sem hann dinglar í
muni skyggja á allan
skóginn.
það ráðslag sem er á hlutum þar
mætti ætla að jólavísan góða: „Allir
fá þá eitthvað fallegt, í það
minnsta...“ eigi vel við. Peningum
er ausið í allar áttir og aðalatriðið
er aö kjördæmapotarar fái sínu
framgengt. Þar með fá þeir atkvæði
sem aftur gefur vald.
Alþingismenn sem misnota fjár-
veitingavald sitt eru margir hverjir
sem þjófar í paradís. Brú þar, vegur
og jarðgöng hér og svo framvegis.
Reikningurinn er sendur á ríkissjóð
en fjármálaráðherra seilist síðan í
vasa landsmanna til að fjármagna
bruðlið. Þar fara upphæðirnar sem
skipta máli úr ríkissjóði.
Én auðvitað er gott að grípa einn
snærisþjóf og hengja í þeirri von að
tréð sem hann dinglar í muni
skyggja á allan skóginn.
____________________Skoðun
Forgjöf íslands
Ein af mikilvægari samþykktum
seinni tíma í umhverfismálum náði
fram að ganga í vikunni þegar aðildar-
ríki Loftslagsráðstefnu Sameinuðu
þjóðanna í Bonn undirrituðu pólitiskt
samkomulag þar sem kveðiö var á um
útfærsluatriði á hinni víðfrægu Kyoto-
bókun um losun gróðurhúsaloftteg-
unda. Það spillir þó aðeins fyrir að
ekki tókst að ganga frá ýmsum tækni-
legum atriðum samkomulagsins en
búast má við að á næstu ráðstefnu,
sem haldin verður í Marokkó í haust,
verði tilbúinn formlegur samningur á
öllum tungumálum og þá geti menn
líka gengið frá þeim lausu endum sem
út af stóðu í Bonn núna. I hnotskurn
gengur samningurinn út á að ríki
heimsins reyni að stemma stigu við
útblæstri hinna svokölluðu gróður-
húsalofttegunda, einkum koltvísýr-
ings, sem sagðar eru mynda hjúp um
jörðina og virka eins og gróðurhús
sem loka hitann inni. Hækkandi hita-
stig muni síðan hafa gríðarlegar lofts-
lagsbreytingar í fór með sér með til-
heyrandi röskun fyrir lífríkið og
mannkynið, ekki síst okkur íslendinga
sem eigum allt okkar undir viðkvæmu
jafnvægi hafstraumanna. Því hefur
hin almenna niðurstaða orðið sú að
það sé beinlínis siðferðileg skylda okk-
ar að draga úr útblæstri til þess að
börn okkar og barnaböm eigi betri
möguleika á mannsæmandi lífi á jörð-
inni að okkur gengnum. Vissulega hef-
ur þessi kenning þó verið dregin í efa
og til eru þeir vísindamenn sem með
trúverðugum hætti hafa haldið því
fram að útblásturinn skipti ekki sköp-
um í þessum efnum og því sé óþarfi að
grípa til dramatískra og dýrra ráðstaf-
ana.
Umhverfissóði
Þessi síðari tónn hefur einmitt ver-
ið áberandi í umræðu manna sem
standa nærri Bush Bandaríkjaforseta,
en hann hefur sem kunnugt er lýst því
yfir að Bandaríkin muni ekki taka
þátt í Kyotobókuninni. Fyrir vikið hef-
ur forseti Bandarikjanna áunnið sér
nafnbótina umhverfissóði í flestum
upplýstum ijölmiðlum og félögum á
vesturhveli jarðarinnar. Sýnu merki-
legri er því samstaða annarra en
Bandaríkjanna um samninginn og
sýnir að þrátt fyrir allt eru riki heims
ekki tilbúin til að fórna framtíð barna
sinna bara vegna þess að hættan gæti
hugsanlega verið ofmetin.
Hrossakaup
En þegar gleðilátum linnir og fagn-
aðarhrópin eru þögnuð í Bonn fara
menn að íhuga samninginn
örlítið betur og gera sér grein
fyrir að samkomulagið kost-
aði sitt - leitin að einum sam-
nefnara þýddi að menn urðu
að teygja sig nokkuð hátt eft-
ir honum. Undanþágur og eft-
irgjöf varð þannig meiri en
hörðustu umhverfisvinir
vonuðust eftir. í Kyoto var
markmiðið sett við 5,6%
minnkun útblásturs miðað
við 1990 en eftir Bonn-fund-
inn er þetta markmið komið
niður í tæplega 3% minnkun.
Eins og við er að búast, þegar
miklir hagsmunir eru í húfi,
hafa farið fram mikU hrossa-
kaup á síðustu dögum og vik-
um. Þar tókust á stórþjóðir
sem losa mikið magn gróður-
húsalofttegunda og hver um
sig taldi sína stöðu sérstaka.
Ákvæði um að gamlir skógar
teldust geta aukið á losunar-
kvóta þjóða vegna bindingar
skóganna á koltvísýringi eru
dæmi um þetta sem skiluðu löndum
eins og Japan, Kanada og Rússlandi
tugum miiljóna tonna i aukinni losun.
Og þessi dans var sannkallaður trölla-
dans í samanburði við þá hagsmuni og
þær stærðir sem ísland tók með sér tU
fundarins. Þó þykir okkur nóg um því
það 1,6 miUjóna tonna þak, sem „ís-
lenska ákvæðið" felur í sér. er talið
vera um 1,8 mUljarða króna virði á
ári, samkvæmt frétt í DV í vikunni, og
í ekki stærra samfélagi en okkar mun-
ar um minna en það. Hlutfallslega er
stærðargráða íslenska ákvæðisins
ekki mUíil og þó að það hafi ekki náð
að afgreiðast á ráðstefnunni i Bonn í
gær, eins og áformað var, þá er mjög
ólíklegt að menn fari að agnúast út í
slíkt „smotterí" eftir það sem á undan
er gengið! En auðvitað er málið ekki í
höfn fyrr en það hefur fengið af-
greiðslu.
Golfiö
Um daginn var einn kunningi
minn að reyna að fá mig til að stunda
golf og benti þá á að í golfinu væru í
gangi merkar reglur sem gerðu spUur-
Samkomulagið sem menn
hafa nú náð snýst um að
jafna út þennan mismun og
koma mönnum áfram á lofts-
lagsgolfvellinum. Þróunarrik-
in hafa mikla forgjöf enda
ástandið verst þar. Aðrir axla
ábyrgð af losun sinni eftir því
sem hœgt er og aðilar ná sam-
komulagi um. En niðurstað-
an virðist hins vegar augljós-
lega sú að allir, stórir og smá-
ir, hafa knúið fram forgjöf,
hvort sem það eru Kanada-
menn, Japanar, Rússar.
um á ólíku getustigi kleift að spila
hver við annan á jafnréttisgrundveUi.
Þetta átti greinUega að vera hvatning
til mín, því ég þoli Ula að tapa í leikj-
um og íþróttum, og þarna átti ég sem
byijandi að geta leikið við hann á jafn-
réttisgrunni. Golf er sem kunnugt er
íþrótt þar sem menn slá kúlu með
kylfu efir sérstökum brautum og eiga
að koma kúlunni ofan í holu við enda
brautarinnar. Fyrir fram er ákveðið
hversu mörg högg er eðlUegt að nota á
hverri braut en þeir sem eru lagnir
nota fá, hinir nota fieiri. Reglan sem
hann vísaði tU snýst um svokaUaða
forgjöf. Samkvæmt sérstöku kerfi fá
spUarar svo og svo mörg högg í forgjöf
þannig að þeir sem eru góðir hafa
minni forgjöf en þeir sem lakari eru.
Þessi forgjöf jafnar síðan að verulegu
leyti út getumuninn og menn hafa
meira gaman af leiknum fyrir vikið.
Mér fannst þessi lýsing kunningja
mins minna um margt á loftslagsráð-
stefnur Sameinuðu þjóðanna, ekki síst
þá síðustu í Bonn. Þar hafi menn ver-
ið ná saman reglum um forgjöfina. Að-
Udarríkin mæta jú tU leiks í misjöfnu
ástandi og með mismunandi aðstæður.
Samkomulagið sem menn hafa nú náð
snýst um að jafna út þennan mismun
og koma mönnum áfram á loftslags-
golfvellinum. Þróunarríkin hafa mikla
forgjöf enda ástandið verst þar. Aðrir
axla ábyrgð af losun sinni eftir því
sem hægt er og aðilar ná samkomulagi
um. En niðurstaðan virðist hins vegar
augljóslega sú að allir, stórir og smáir,
hafa knúið fram forgjöf, hvort sem það
eru Kanadamenn, Japanar eða Rússar.
íslenska ákvæðið
ísland hefur, eins og aðrir, óskað
eftir því að fá nokkur högg í forgjöf.
Það hefur sumum hér heima fundist
frekar snautlegt af spilara sem er jafn
þróaður og raun ber vitni. Ekki má
gera lítið úr heilbrigðum metnaði en í
samanburðinum virðist þessi forgjöf
þó ekki hafa stungið samstarfsþjóðir
okkar í augu. Og auk þess eru það ein-
faidlega gild rök í hnattrænu sam-
hengi að álver á Íslandi þjónar mark-
miðum Kyotobókunarinnar betur en
álver í einhverju þróunarlandanna
vegna þess að ál á íslandi er framleitt
með endumýjanlegum orkugjöfum. En
þó sumum kunni að þykja það metnað-
arlaus spilamennska að knýja fram
forgjöf mega menn ekki halda að eftir-
leikurinn verði auðveldur íslending-
um. Undanþága okkar dugar vissulega
fyrir þeirri stóriðju sem áformuð er
um þessar mundir, svo framarlega
sem notaðar verði umhverfisvænstu
aðferðir sem þekkjast, eins og segir í
íslenska ákvæðinu. En aðhaldið er
engu að síður tii staðar, það er jú þak
á þeim útblæstri sem taka má út fyrir
sviga í útblástursbókhaldinu og hin al-
mennu ákvæði um 10% aukningu mið-
að við 1990 setja okkur þröngar skorð-
ur. Þá er líka ljóst að ef við viljum ná
fram enn meiri almennri viðbótarlos-
un þarf að stórefla landgræðslu með
æmum tilkostnaði til aö ná þeim kvót-
um sem við höfum samið um vegna
bindingar. Island væri því þrátt fyrir
islenska ákvæðið að munstra sig inn á
talsvert strembinn 18 holu útblásturs-
völl með því að staðfesta Kyotobókun-
ina.
ísland er með?
Það sem mestu máli skiptir þó er að
ísland verður að öllum líkindum með
í leiknum en lendir ekki utangarðs
með Bandaríkjamönnum. Sú niöur-
staða yrði jafnframt mikill sigur fyrir
rikisstjórnina, og kannski sérstaklega
fyrir umhverfisráðherrann sem hefur
verið sakaður um að vilja fórna Kyoto
fyrir ál. Ef hins vegar svo ólíklega
vildi til að Islendingar dyttu út úr
þessu samstarfi vegna þess að islenska
ákvæðið fengist ekki samþykkt yrði
það gríðarlegt áfall fyrir stjómvöld og
setti alla umræðuna um stóriðju á ís-
landi í nýtt samhengi. Sem betur fer
em þó litlar likur til þess enda heppi-
legast fyrir alla að umræðan um rétt-
mæti stóriðju á íslandi fari fram á sín-
um eigin forsendum, frekar en því
hvemig tekst að lenda íslenska ákvæð-
inu á loftslagsráðstefnum Sameinuðu
þjóðanna þar sem það er hvort sem er
talið vera hálfgerð afgangsstærð.