Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Page 14
14
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
Helgarblað
Svíar og Finnar svíkja íslendinga á ársfundi Alþjóða hvalveiðiráðsins:
Einelti í hvalveiðiráði
Engar veiöar
Hvalveiðar Islendinga hafa legið niðri um árabil og ekki er að sjá að þær hefjist á næstunni.
Ársfundur Alþjóða hvalveiði-
ráðsins, sá 53., hófst í London sl.
mánudag. Á fundinum voru í
fyrstu greidd atkvæði um það
hvort fundurinn hefði vald til þess
að ákvarða um inngöngu íslands í
ráðið með fyrirvara um 0 kvóta.
Féll atkvæðagreiðslan þannig að
19 ríki greiddu atkvæði með því
að fundurinn hefði tilskilið vald
en 18 ríki greiddu atkvæði gegn
því. Að því loknu voru greidd at-
kvæði um það hvort íslandi skyldi
veitt innganga í Alþjóða hval-
veiðiráðið og féllu atkvæði þannig
að þau 19 ríki sem greitt höfðu at-
kvæði með þvi að fundurinn hefði
tilskilið vald greiddu atvæði gegn
fyrirvara íslands, þrjú ríki sátu
hjá og önnur ríki tóku ekki þátt í
atkvæðagreiðslunni. Alþingi sam-
þykkti árið 1998 að stefnt skyldi
að því að hefja hvalveiðar en þær
hafa ekki hafist, m.a. vegna hót-
ana Bandaríkjamanna um að Is-
lendingar verði beittir efnahags-
legum þvingunum ef þeir umgang-
ist hvali með öðrum hætti en að
sýna þá ferðamönnum. Margir
líkja aðförinni gegn íslendingum
á ársfundi hvalveiðiráðsins við
einelti.
Áheyrnarfulltrúar
Eftirtalin 19 ríki greiddu at-
kvæði með því að Alþjóða hval-
veiðráðið gæti greitt atkvæði um
aðild íslands með fyrirvara:
Argentína, Ástralía, Brasilía,
Bandaríkin, Chile, Finnland, Ind-
Geir A. Guðsteinsson
blaðamaður
land, Þýskaland, írland, Ítalía,
Mexíkó, Mónakó, Nýja-Sjáland,
Holland, S-Afríka, Spánn, Svíþjóð,
Bretland og Óman. Eftirtalin ríki
töldu að Alþjóða hvalveiðiráðið
hefði ekki hæfl til aö hafna aðild
íslands með fyrirvara: Kína, Dan-
mörk, Dóminíska lýðveldið,
Frakkland, Grenada, ísland, Jap-
an, Kórea, Marokkó, Noregur,
Panama, Sviss, Gínea, Solomon-
eyjar, St. Vincent, St. Lucia,
Antigua & Barbuda og St. Kitts &
Nevis. Fulltrúi Austurríkis var
fjarverandi. Þegar borin var upp
tillaga um að hafna fyrirvara ís-
lands um að ekki sé samþykkt fyr-
ir ákvörðun ráðsins um að leyfa
engar hvalveiðar í hagnaðarskyni
greiddu sömu 19 ríki atkvæði með
tillögunni og höfðu greitt atkvæði
um aðild Islands. Austurríki,
Frakkland og Sviss sátu hjá en
hin 16 ríkin tóku ekki þátt vegna
ólögmætis atkvæðagreiðslunnar. I
kjölfarið var íslendingum boðið
að vera áheymarfulltrúar án at-
kvæðisréttar.
Síðar i vikunni var svo skipuð
nefnd til það kanna kjörbréf Ind-
lands. Enginn vafi var talinn leika
á því að þau væru gild en einhver
vafi lék á því viðkomandi fulltrú-
ar hefðu kosningarétt. Hvert ríki
tilnefnir einn aðalfulltrúa og vara-
mann fyrir hann og aðeins þeir
mega kjósa. Vafi leikur á því
hvort Indverjinn sem kaus gegn
íslandi á mánudag hafi haft til
þess tilskilið leyfi. Þess má geta að
Rússar sitja fundinn án atkvæðis-
réttar, þar sem þeir hafa ekki
greitt félagsgjöld, en þeir eru tald-
ir fylgjandi íslandi og þá hefði til-
laga Ástrala og Bandaríkjamanna
um aö hafna fyrirvara íslands um
hvalveiðar í hagnaðarskyni fallið
á jöfnu.
Líta á sig sem fullgilt ríki
íslendingar líta á sig sem full-
gildan aðila og hafa í samræmi
við það tekið þátt í umræðum og
atkvæðagreiðslum á ársfundinum
þó sendinefndin telji það algjör-
lega óviðunandi. I samræmi við
áðurnefnda atkvæðagreiðslu er
nafn íslands ekki lesið upp í
nafnakalli í atkvæðagreiðslum en
fulltrúar íslands hafa ævinlega til-
kynnt hvemig þeir greiða atkvæði
og tilkynna formanninum að láðst
hafi að lesa upp nafn íslands í
nafnakallinu. Þannig hefur verið
tvöfalt bókhald í atkvæðagreiðsl-
um á fundinum. Annars vegar hef-
ur formaður ráðsins, Svíin Bo
Fernholm, ekki talið íslensku at-
kvæðin með, en í kjölfarið hafa
ýmis ríki lýst því yflr að þau við-
urkenni ekki talningu formanns-
ins heldur bætt við atkvæðum ís-
lands og álíta það niðurstöðu at-
kvæðagreiðslunnar.
Sjávarútvegsráðherra, Árni M.
sjávarútvegsráö- son alþingismaö-
herra. ur.
Mathiesen, hefur sagt að það séu
vonbrigði að mörg evrópsku ríkj-
anna skuli vera svo öfgasinnuð í
hvalveiðimálum að þau láti sig
engu varða rétt eða rangt. Því hafi
stuðningur Frakklands, Sviss og
Austurríkis komið á óvart en að
sama skapi mikil vonbrigði að
Svíþjóð og Finnland skyldu snúast
gegn íslandi. Ráðherra segir þjóð-
réttarfræðinga telja það skýlausan
rétt íslendinga einna að taka
ákvörðun um fyrirvarann, slíkt
vald sé 1 höndum einstakra aðild-
arríkja, og í öðru lagi sé ákvörðun
ráðsins efnislega röng þar sem
fyrirvari íslands sé í fullu sam-
ræmi við tilgang og markmið
hvalveiðisamningsins. Fleiri ríki
hafa gegnum tíðina birt fyrirvara
við hvalveiðar, s.s. Argentína árið
1960, Chile og Perú árið 1979 og
Ekvador árið 1991, en Alþjóða
hvalveiðiráðiö hefur aldrei greitt
atkvæði um þá fyrirvara. Utanrík-
isráðherrar Norðurlanda ræddu
málið fyrir ársfundinn en afstaða
Svía og Finna bendir til að utan-
ríkisráðuneyti viðkomandi rikja
komi allt of lítiö að málinu, af-
staða ríkjanna mótist af afstöðu
umhverfisráðuneytanna, en ný-
lega var samþykkt samhljóða yfir-
lýsing Norðurlandanna um sjálf-
bæra þróun.
Hvalveiðiráöið hefur sett
nlður
Stefán Ásmundsson, þjóðréttar-
fræðingur og formaður íslensku
sendinefndarinnar, segir að engar
stórar ákvarðanir verði teknar á
þinginu, til þess þurfi 75% at-
kvæða, og hvorki hvalafriðunar-
sinnar né hvalveiðisinnar hafi
þann tilskilda meirihluta. Hval-
friðunarsinnar hafi þó meirihluta
og því samþykktar ályktanir eins
og gagnrýni á vísindaveiðar Jap-
ana, hvalveiðar Norðmanna, en
ekkert sé bindandi.
„Það sem kann að sitja eftir eru
samþykktir um griðasvæði hvala,
áskorun á Japana og Norðmenn
að hætta hvalveiðum og ákvörðun
Breta að hindra vísindarannsókn-
ir Norðmanna í breskri lögsögu
sem þeir telja að þjóni ekki þeim
tilgangi að vernda hvalastofnana.
Sú ákvöröun Breta var mjög gagn-
rýnd, ekki síst vegna þess að það
er áratuga hefð á samvinnu Breta
og Norðmanna.
Það er mjög útbreiddur miskiln-
ingur hér aö íslendingar séu að
hefja hvalveiðar. Jafnvel halda
sumir því fram að við séum að
veiða hvali, en við notum hvert
tækifæri til að leiðrétta þann mis-
skilning. Fjöldi félagasamtaka,
eins og t.d. Greenpeace, eru með
áheyrnarfulltrúa, og þau dreifa
gögnum á ganginum framan við
þingsal, og það gera einnig hval-
veiðisinnar. Á fimmtudag var svo
samþykkt að framlengja bann við
hvalveiðum í ágóðaskyni um eitt
ár. Þar með fór út um þúfur til-
raun Japana og Norðmanna að fá
aflétt 15 ára hvalveiðibanni. Til-
laga um hvalavemdarsvæði í Suð-
ur-Kyrrahafi var felld.
Mér finnst í lok þessa ársfundar
að Alþjóða hvalveiðiráðið hafi sett
töluvert niður, ekki síst vegna
þeirrar ákvörðunar að setja okkur
hjá, sem við álítum algjörlega
ólöglega. Hún er tekin á pólitísk-
um forsendum, ekki lögfræðileg-
um eða vísindalegum. Ég vil þó
ekki halda því fram að þessi sam-
tök séu gagnslaus eða búin. Við
trúum enn að okkur verði hleypt
inn, kannski strax á næsta árs-
fundi í Japan,“ segir Stefán Ás-
mundsson.
Hvalveiðar ekki líklegar á
næstunni
„Þetta far sem Alþjóða hval-
veiðiráðið er i er greinilega það að
engar hvalveiðar verði leyfðar og
þeir sem mynda meirihlutann eru
greinilega mjög óvandir að meðul-
um, fara ekki eftir reglum í al-
þjóðasamskiptum. Það er ills viti.
Ég átti samt ekki von á því að
menn mundu ganga svo hart fram
gegn okkar aðildarumsókn og
taldi að við gætum gengið inn á
þessum fyrirvara. Þetta töldu lög-
spekingar, ég trúði því, en við
erum reynslunni ríkari núna.
Menn geta deilt um formið og
lagaumhverfið sem þarna ætti að
hafa í heiðri en ekki var gert. Við
verðum að vera í þessum samtök-
um en ég fagna því að það var þó
tekin skynsamleg ákvörðun um að
farið yrði í mat á áhrifum hvala-
stofna á nytjastofna og ég trúi
ekki öðru en niðurstaðan verði
staðfesting á verulegum áhrifum á
nytjastofna og skynsemin verði
látin ráða. Þetta fólk í hvalveiði-
ráðinu lítur meira á hnöttinn sem
eina heild og það er ekki hægt að
þræta fyrir það að hvalastofnar
eru aðeins svipur hjá sjón í heild-
ina miðað við fyrri tíma. Ég tel að
ekki sé líklegt að viö veiðum hvali
í atvinnuskyni á næstunni; þessi
ráðstefna kippti okkur svolítið
niður á jörðina með það. Við
þyrftum þá að éta sjálfir hvalaaf-
urðirnar og fiskmarkaðir gætu
verið í hættu, þó svo Norðmenn
hafi ekki tapað mörkuðum vegna
hrefnuveiða," segir Jóhann Ár-
sælsson, þingmaður og nefndar-
maður í sjávarútvegsnefnd Al-
þingis.
Bundin skip
Hvalbátarnir verða áfram verkefnalausir.