Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Blaðsíða 26
26
Helgarblað
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
DV
Við krýningu í Feguröarsamkeppni íslands í vor. Ragnheiöur Guönadóttir fyrir miöju á myndinni - en hjá henni standa
nöfnurnar íris Björk Árnadóttir og íris Dögg Árnadóttir. Feguröardrottningar brosa í gegnum tárin.
Ungfrúin sem
varð ófrísk
- en er ekki ómissandi
Ungfrú ísland er kona vikunnar.
Árni Johnsen átti sviöið í fyrri
viku. Nema hvað þingmaðurinn,
sem bráðum er fyrrverandi, getur
ekki líífræðilega séð verið eigi ein-
samall - og tekið brátt jóðsótt. Sú er
hins vegar raunin með Ragnheiði
Guðnadóttur, ungfrú ísland 2001.
Hún er ófrísk og eru því allar bjarg-
ir bannaðar með frekari þátttöku,
svo sem í alþjóðlegri keppni um feg-
urstu konur landa og álfa. En eng-
inn er ómissandi, ekki einu sinni
ungfrú Island. Við hlutverki Ragn-
heiðar taka þær íris Björk Áma-
dóttir og íris Dögg Oddsdóttir en
þær urðu í 2. og 3. sæti þegar keppt
var um það á liðnu vori hver væri
fegursta kona landsins. DV heilsaði
upp á nöfnurnar og stöllurnar bráð-
fallegu nú í vikunni. -sbs.
MYND: EINAR J.
Ungfrú ófrísk
Ragnheiöur Guönadóttir, feguröardrottning ísiands, er komin fjóra mánuöi á
leiö. Hún er tveggja manna maki í fegurö.
I
DV-MYND EINAR J
Hin íöifagra Iris Björk
„Kannski er þaö broslegt aö stúlkur sem taka þátt í feguröarsamkeppni eigi
svo margar þennan draum. En felst ekki í flugfreyjustarfinu eitthvaö þaö sem
allar stúlkur þrá? Þaö aö feröast um heiminn og sjá eitthvað framandi. “
Stúlkan á skiptiborðinu í öðru sæti:
Bamagæla grillar
- íris Björk Árnadóttir á sér draum um hamingju í hjónabandi
„Eins og hjá hverri annarri
stúlku eru draumar mínir og vænt-
ingar í lífmu auðvitað helst þær að
eignast böm, giftast hamingjusam-
lega, eiga fallegt heimili og komast í
vinnu sem ég er sátt við,“ segir íris
Björk Ámadóttir. Hún varð í vor í 2.
sæti sem ungfrú ísland. Og nú þegar
fegurðardrottning Islands er úr leik
þarf íris að hlaupa í skarðið og sinna
nokkram af skyldum hennar, svo
sem að taka þátt í keppninni um ung-
frú Skandinavíu. „Það á þó enn eftir
að koma nákvæmlega í ljós hvemig
þetta allt mun verða en margar af
þessum keppnum sem um ræðir eru
á svipuðum tíma og gætu kannski
rekist á,“ segir ungfrúin - sem utan
þessa fæst við fyrirsætustörf fyrir
fyrirtækið Oroblu. Þarf þeirra starfa
vegna í haust að fara suður til Spán-
ar að sýna sokkabuxur og undirfót.
Reyndar er Iris þaulvön í fyrirsætu-
störfunum, hefur gripið í þau alltaf
öðru hvom síðan hún var þrettán
ára.
Ég er mikil barnagæla
íris Björk stendur á tvítugu. Hún
víkur sér fimlega undan sígildum
spumingum blaðamanns til fegurð-
ardrottningar um hver sé kærastinn
ef einhver er. „Þarf ég nokkuð að
svara þessu?“ segir hún. Ungfrúin
starfar sem skiptiborðsdama hjá
Securitas og er reyndar farin aö ská-
skjóta sér einnig inn í bókhaldsstörf-
in, það er að stemma af reikninga og
fleira slikt. Hugur Irisar stendur
raunar til frekari starfa á þessu sviði
og ætlar hún einmitt þess vegna i
bókhaldsnám í haust. Engu að síður
kveðst hún ótrauð stefna á nám í
bamasálfræði í náinni framtíð. „Ég
er voðalega mikil bamagæla í mér og
mér flnnst gaman að passa,“ segir
íris Björk.
Foreldrar írisar Bjarkar era þau
Ámi Guðmundsson, einn eigenda og
stjómenda Securitas, og Sigríður
Huld Konráðsdóttir sem er kennari
við Kópavogsskóla. „Mamma kennir
stærðfræði og það er fullt af reikn-
ingshausum í ættinni minni. Tvö
eldri systkini mín eru til dæmis við
nám i rekstrarfræði við Tækniskól-
ann þar sem er mikil stærðfræði.
Systir mín sem er yngri en ég er að
læra kokkinn og tvö yngstu systkini
mín eru enn í grunnskóla."
Draumur flugfreyjunnar
Eins og íslensk fegurðardrottning á
íris Björk sér hinn sígilda draum
þeirra allra. Hún stefnir að því að
verða flugfreyja. „Jú, kannski er þaö
broslegt að stúlkur sem taka þátt í feg-
urðarsamkeppnum eigi svo margar
þennan draum. En felst ekki í flug-
freyjustarfmu eitthvað það sem allar
stúlkur þrá? Það að ferðast um heim-
inn og sjá eitthvað framandi," segir
íris og brosir. Hún segir að undirbún-
ingur fyrir störf á þessum vettvangi
hafi meöal annars verið spænskunám-
skeið sem hún sótti nú í sumar á
Malaga á Spáni og em hún og Sigur-
björg Helgadóttir, vinkona hennar,
raunar nýlega komnar heim úr þeirri
Bjarmalandsfór.
„Við Sigurbjörg eram ákaflega nán-
ar vinkonur, höfum verið það alveg
síðan í grunnskóla. Hún var algjör
klettur í hafinu fyrir mig í veikindum
sem ég lenti í þama úti. Ég á auðvitað
margar fleiri vinkonur en hana og við
geram margt skemmtilegt saman.
Höldum matarboð, fórum mikið í úti-
legur út á land - og skemmtilegast er
auðvitað að grilla úti í rigningu," seg-
ir íris. Hún kveðst einnig gera mikið
af því að fara út að hreyfa sig, fer í
sund á nánast hverju kvöldi eða í
gönguferðir um Nauthólsvíkina sem
hún segir vera mikla útivistarparadís
með iðandi mannlífl. Eða þá um Kópa-
vogsdalinn, þaðan er stutt að fara úr
Smárahverfinu þar sem íris býr ásamt
foreldram sínum og systkinum.
Öryggistrix og Ámamál
Fegurðardrottningin á skiptiborð-
inu hjá Securitas er hvergi hrædd við
þau meindýr samfélagsins sem fyrir-
tækið sem hún starfar hjá er til höfuðs.
„Eins og aðrir sem starfa hjá þessu fyr-
irtæki er ég búin að fara á sjálfsvam-
amámskeið. Að vísu ætla ég að vona
að ég þurfi aldrei að nota þær aðferðir
sem ég lærði þar við að verjast. Örygg-
isverðimir sem starfa hjá okkur hafa
hins vegar lent í ýmsu,“ segir íris
Björk.
Aðspurð um pólitíkina í landinu
segir fris hana alla vera að koma til.
Um Árnamálið segir fegurðardísin
þokkafulla að öllum geti orðiö á mis-
tök „... og ég ætla ekki að dæma Áma.
Svona lagað byrjar smátt og sem fikt
en verður að flkn. Mér finnst illa hafa
verið farið með Áma - en ef til vill fór
hann verst með sig sjálfur". -sbs
í,„;
I
I
i
h
•s-^r