Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Blaðsíða 28
28
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
DV
Helgarblað
reglur þá gengur það fyrir sig með
ákveðnum hætti. Málið er rannsak-
að af hlutlausum aðilum og síðan
fellur dómurinn. í máli Árna hefur
þetta tvennt þegar gerst. Menn hafa
þóst hafa sjálfskapað umboð til að
rannsaka málið og þeir hafa dæmt.
Árni hefur þegar tekið út stærri
refsingu en aðrir menn fá að jafnaði
fyrir slík brot.
Menn sem hafa eitthvað annar-
legt i farteskinu tala um það í
tengslum við þetta mál að opna
þurfi bókhald og fjármál stjórn-
málaflokka. Það skiptir engu máli
þótt bókhald stjórnmálaflokks sé
opið, menn geta stolið úti í bæ. En
mér er á hinn bóginn fyrirmunað að
skilja hvers vegna stjórnmálafor-
ingjar, sem þykjast tala fyrir opnun
á bókhaldi flokkanna, gefa ekki gott
fordæmi og birta bókhald síns
flokks. Það er ekkert sem bannar
það. Gerðu þeir það yrði þetta tal
þeirra trúverðugt."
- Nú hafa heyrst raddir um að
Björn Bjarnason verði aó axla
ábyrgð í málum Árna Johnsens.
Helduróu aó þetta mál veiki Björn?
„Það held ég ekki. Hann hefur
tekið mjög vel og fast á þessu máli.
Honum varð jafn mikið um og öll-
um öðrum. Þetta mál er allt mjög
sérkennilegt. Fjölmiðlamenn hafa
farið i innhverfa íhugun og öallað
endalaust og á barnalegan hátt um
frammistöðu sína í málinu Tökum
fyrsta málið sem snýr að BYKO.
Enn þá hefur ekkert endanlegt kom-
ið fram um að saknæmt athæfi hafi
átt sér stað þar. Saknæmt athæfi
virðist hafa komið fram í öðrum
viðskiptum Árna en ekki með óyggj-
andi hætti um innkaupin í BYKO
sem fyrstu fréttir byggðust á. Ég
veit ekki hver niðurstaðan verður
en menn ættu að fara varlega í full-
yrðingar."
- Þér finnst þá að Björn Bjarna-
son eigi ekki aó taka ábyrgð á þessu
máli?
„Ef þú færir í Hagkaup á vegum
DV til að taka viðtal og styngir ein-
hverju inn á þig í leiðinni ætti Óli
Björn Kárason þá að segja af sér rit-
stjórastarfi á DV. Finnst þér það?“
- Nei, mér flnnst það ekki.
„Það getur enginn búið til óskeik-
ult kerfi sem útilokar svona óheilla-
atvik. Kerfið er ekki þannig og verð-
ur aldrei þannig að menn geti ekki
tekið neina hluti ófrjálsri hendi en
það eru á hinn bóginn yfirgnæfandi
líkur á að eftir nokkra mánuði eða
misseri, þegar endurskoðunin og
bókhaldið fer í gang, þá komist slík
atferli upp. Það er bara spuming
um tíma. Tók það ekki nærri tvö ár
að koma upp um kjólakaup Guðrún-
ar Helgadóttur fyrir peninga Al-
þingis og þá endurgreiddi hún með
nákvæmlega sama hætti og Árni
Johnsen. Hún sagði ekki af sér. Jón
Baldvin gaf manni úti í bæ áfengi
sem var skrifað á ríkið. Hann end-
urgreiddi. Ekki sagði hann af sér.
Formaður Alþýðubandalagsins tók
á sínum tíma sem fjármálaráðherra
veð sem allir sáu að var blekking til
að afstýra því að vinir hans misstu
húsin sin. Ríkið tapaði tugum millj-
óna. Ekki sagði hann af sér. Gísli S.
Einarsson, sem slær sér upp á því
nú að sparka í liggjandi mann, með-
an hann kallar hann vin sinn og fé-
laga í hverju orði, skrifaði bréf út af
bílaumboði og notaði stöðu sina og
Alþingis til aö styrkja málarekstur
sinn og nefndi þar hvergi að hann
væri eingöngu að draga taum fjöl-
skyldu sinnar. Hann sagði ekki af
sér. Enginn þessara manna gerði
- Hver eru stœrstu framtíðarverk-
efni?
„Ég held að mikilvægasta verk-
efnið núna sé að skapa hér alþjóð-
legt viðskiptaumhverfl. Það er eina
stóra leiðin til að við séum ekki
háð, á sama hátt og áður, örfáum
stoðum í efnahagslífinu. Þess vegna
eigum við líka að forðast að binda
okkur í tollabandalög og varnar-
bandalög í efnahagsmálum eins og
Evrópusambandið. Við eigum að
skapa skilyrði svo að hingað sæki
menn með fjárfestingar sínar, skrái
sín fyrirtæki hér á landi og reki
starfsemi sína héðan af því hér sé
gott efnahagslíf, traust stjómvöld og
réttlát lög í landinu. Þannig gæt-
um við búið okkur til stöðu sem
væri varanleg og ekki háð sveiflum
i verði á afla, sveiflum í þorskstofni
eða þvi að setja álver í hvern ein-
asta fjörð."
- Telurðu aó á þeim tíu árum sem
þú hefur verió forsœtisráöherra hafi
ytri aóstœður í þjóðfélaginu verió þér
hliöhollar?
„Ekki hefur það alltaf verið en
menn eru fljótir að gleyma. Árin
1992-1993 var hér á landi mikil nið-
ursveifla. Þáverandi formaður Al-
þýðubandalagsins kom á skrifstofu
mína óg sagði að nú væri ekkert
annað hægt að gera en að mynda
þjóðstjórn, allt væri að fara á verri
veg og augljóst væri að ísland hefði
aldrei gengið i gegnum aðra eins
kreppu síðan 1930. Þetta var hans
mat og ég held að það hafi ekki ver-
ið rangt. Af þjóðstjórn varð ekki en
þetta var erfiður tími. Menn gleyma
tímabili eins og þessu og segja að ég
hafi verið svo lánsamur að hafa
alltaf vind í seglin.“
- Hver eru mestu vonbrigöin á þín-
umferli?
„Ég gæti nefnt ýmislegt sem ég
hefði viljað gera öðruvísi. Ég kýs
samt að gera það ekki því þá þyrfti
ég að útskýra hvað gerðist og færi
að nefna til sögu menn sem mér
fannst hafa spillt fyrir niðurstöðu.
Vel gæti verið að það væri ekki rétt
mat hjá mér þvi maður hefur til-
hneigingu til að ímynda sér að hlut-
imir séu fremur öðrum að kenna en
manni sjálfum. Fjölmargt hefur
gengið öðruvisi en maður ætlaði en
í stærstum dráttum hefur þetta
gengið bærilega. Ætli það að hlut-
irnir hafa gengið sæmilega sé ekki
meginskýringin á því að menn hafa
sætt sig svo lengi við forystu sama
mannsins."
Davíð Oddsson forsætisráðherra hefur setið lengur en
nokkur annar í forsætisráðuneytinu. f viðtali við
Kolbrúnu Bergþórsdóttur ræðir Davíð um mál Árna
Johnsens, framtíðina og pólitíska andstæðinga.
- Staöa ríkissjóös er ekki eins hag-
stœö og búist var viö, krónan sígur
og vextir eru háir. Stefnir í óefni í
efnahagsmálum?
„Nei, þetta stefnir allt mjög vel.
Sum merki sem virðast neikvæð
eru jákvæð, það á til dæmis við um
ríkissjóð. Við uröum að auka út-
gjöld á sumum sviðum vegna
kjarasamninga, öryrkjadóms og
fleira. Svo gerist það að tekjur rík-
issjóðs dragast saman vegna þess
að fólk er byrjað að spara við sig.
Krónan er að styrkjast dag frá
degi, bensín hefur lækkað og gjald-
eyrisinnstreymi eykst. Þenslan
mun minnka. Allt er þetta mjög já-
kvætt.“
- Þrálátar sögur hafa lengi gengið
um aö þú sért að hverfa úr stjórn-
málum - enn eina ferðina, er eitt-
hvað til í þessu?
„Nei, nei, en það er fyrirsjáanlegt
að einhvern tíma rætast þessar
spár. Fjallasprangarar segja að það
sé puð að klífa upp á tindinn. Þar
geti verið gaman að vera um stund
en þar blási úr öllum áttum og sé
ekki til langtímadvalar. Tíu ár í
starfi þykir ekki stórbrotið í öllum
öðrum störfum en i þessu starfi þyk-
ir það mikið. Það er vegna þessa
lögmáls; það næðir um og staðurinn
er ekki ætlaður til langtímadvalar.
Ég hef öðru hvoru gefið andstæðing-
um mínum þokkaleg færi á að koma
mér héðan en þeir hafa ekki notað
þau tækifæri.
Hitt er annað mál að mér finnst
þeir menn þekkja mig illa sem telja
að þegar aðeins blæs á móti, eins og
í efnahagsmálum nú, þá ýti það
undir tilfinningar hjá mér að nú
skuli ég koma mér burt. Það er
þvert á móti. Það væri á skjön við
allan minn feril að flýja af hólmi
þegar gustar örlítið á móti.“
Innhverf íhugun fjölmiöla
- Víkjum aó málum Árna
Johnsens. Teluröu aö í tengslum við
þaó mál sé nauósynlegt að setja
stjórnmálamönnum siöareglur?
„Þetta mál kemur stjómmálum
ekkert við. Maður tekur sér fé sem
hann á ekki. Það gerist alls staðar í
þjóðfélaginu. Sem betur fer mjög
sjaldan þegar stjórnmálamenn eiga
í hlut, held ég. Þess vegna vekur
þetta meiri athygli. Oftast þegar
mönnum verður illa á og brjóta leik-
Flý ekki þótt gusti
- Nú erum vió hunsuö af Alþjóða
hvalveiöiráöinu, hver eru vióbrögö
þín vió því?
„Þeir geta ekki hent okkur út.
Þessi regla að menn geti komið sam-
an og greitt atkvæði til þess að
drepa fyrirvara einnar þjóðar stenst
ekki. Það getur bara hver og ein
þjóð mótmælt fyrir sig. Vandamálið
við Alþjóða hvalveiðiráðið er aö það
fer hvorki eftir lögum né vísindaleg-
um leikreglum. Af hverju erum við
þá að sækja í slíkan klúbb? Skýring-
in er sú að við gætum ekki selt okk-
ar vörur nema vera aðilar að
Visindaveiðar eru nauðsynlegar
en þær skapa okkur engar tekjur.
Atvinnuveiðar þurfa að koma til. Út
frá visindalegu sjónarmiði ættu þær
að geta hafist fljótlega ef menn
vildu. En við þurfum að vera raun-
sæ og við erum ekki búin að vinna
þann markað sem við þurfum til að
geta selt hvalaafurðir. En mér sýn-
ist að ýmislegt sé að snúast í átt til
okkar."
DV-MYND GVA
Mál Arna Johnsens
Menn hafa þóst hafa sjálfskipað umboð til að rannsaka málið og þeir hafa dæmt. Árni hefur þegar tekið út stærri
refsingu en aðrir menn fá að jafnaði fyrir slíkt brot.
Flý ekki af hólmi
þegar gustar á móti