Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Qupperneq 39
LAUGARDAGUR 28. JÚLÍ 2001
47
smáauglýsingar - Sími 550 5000 Þverholti 11
Tækifæri til aö stofna eigiö fyrirtæki i
búslóöaflutningum.
Til sölu Benz 614,1998, trailer,
33 rúmmetra kassi.
Minnaprófsbíll sem þarf ekki stöðvar-
leyfi, Uppl, 895 0900, Hafsteinn,
Vömbílar
Getum útvegaö erlendis frá alls konar
krókbíia ásamt alls konar vinnutækjum:
krönum, vögnum, alls konar vörubíla,
einnig getum við útvegað alls konar
grindur og fleira sem tilheyrir krókbíl-
um, svo sem götusópa, krana o.fl. Að-
stoðum við Ijármögnun hjá Glitni, 25 ára
reynsla. Amarbakki hf., s. 568 1666, 892 1
0005.
Til sölu er tengivagn meö gámalásum,
árg. ‘95, á loftfjöðrun. Einnig flutninga- j
kassi með alopnum hliðum báðum meg-
in.
Nánari uppl. í s. 898 4044.
s
IJrval
- gott í hægindastólinn
Byggðasafnið í Skógum:
Gömul járnsmiöja endurbyggð^,
Hjá Byggðasafninu í Skógum
stendur nú yfir endurbygging gam-
allar smiðju Tómasar Þórðarsonar,
föður Þórðar Tómassonar, safn-
stjóra í Skógum. Tómas flutti að
Skógum 1959 frá bænum Vallnatúni
í sömu sveit. Tómas hafði átt góða
járnsmiðju í Vallnatúni þar sem
hann sat löngum stundum við steðj-
ann og hamraði skeifur og aðra
nytjahluti úr járni. Hann undi illa
aðgerðaleysi í Skógum og vinir
hans, bræðurnir Bárður og Tómas
Magnússynir frá Steinum undir
Eyjafjöllum, byggðu honum smiðju í
fornum stíl með grjóthlöðnum
veggjum og helluþaki. Var smiðjan
orðin mjög hrörnuð og orðin í vegi
fyrir nútímaframkvæmdum í Skóg-
um. Nú var ákveðið að endurbyggja
smiðjuna og flytja hana að torfbæ
Byggðasafnsins. Á fyrri tímum var
smiðja á hverju sveitaheimili svo
hér er hús sem sómir sér vel í húsa-
safninu í Skógum og mun vekja at-
hygli safngesta. Bændurnir Viðar
Bjarnason og Kolbeinn Gissurason
tóku að sér þetta verkefni og hafa
sannað það að Eyfellingar eiga enn í
dag hleðslumenn sem kunna vel til
verka. Viðar er ekki óvanur að fást
við grjóthleðslur fyrir Byggðasafnið
því hann hlóð á sínum tíma kirkju-
garðsveggina í Skógum.
S.K.H.
Samgöngusafn á Skógum
Viöar Bjarnason og Kolbeinn Gissurarson vinna við aö endurbyggja grjóthlaðna járnsmiðju Tómasar Þórðarsonar frá
Vallnatúni í Skógum. I baksýn má sjá einn hluta afgömlu brúnni á Jökulsá á Sólheimasandi, brúin var byggð árið
1921 og kemur í framtíðinni til með að gegna hlutverki fyrir safngesti nýja Samgöngusafnsins í Skógum.
Á hjólabát
Lagt er af stað frá Dyrhólum og ekiö eftir flæðarmálinu að Dyrhólaey þar sem gatið á tónni blasir við.
Útsýnis-
ferðir
að Dyr- »
hólaey
Þorsteinn Gunnarsson, bóndi á
Vatnsskarðshólum í Mýrdal, hefur
hafið útsýnisferðir með leiðsögn á
stórum hjólabát eftir fjörunni í Dyr-
hólahverfí í Mýrdal. Lagt er af stað
frá Dyrhólum og ekið eftir flæðar-
málinu að Dyrhólaey þar sem gatið
á tónni blasir vel við, við Dyrhólaey
er fjölskrúðugt fuglalíf og gott út-
sýni til Mýrdalsfjallanna. Að lok-
inni ferð er boðið upp á kaffi og ný-
steikta ástarpunga. Ferðin tekur
u.þ.b. l.klst og verðið er kr.1200 á
mann. * —
Innköllun
vegna rafrænnar skráningar hlutabréfa í Fjárfestingarfélaginu Straumi hf.
Straumur
FJÁRPBSTINGABÞÉLAG
Kirkjusandi 2,155 Reykjavik, s. 560 8900
Mánudaginn 15. október 2001 verða hlutabréf í Fjárfest-
ingarfélaginu Straumi hf. tekin til rafrænnar skráningar hjá
Veróbréfaskráningu íslands hf. í samræmi við ákvörðun stjórn-
ar Fjárfestingarfélagsins Straums hf. þar að lútandi. Þar af
leiðandi verða engin viðskipti með hlutabréf félagsins þann
dag. Frá þeim tíma ógildast hin áþreifanlegu hlutabréf i fyrir-
tækinu í samræmi við ákvæðí laga og reglugerðar um raf-
ræna eignarskráningu verðbréfa.
Nánar tilgreint verða öll hlutabréf i Fjárfestingarfélaginu
Straumi hf. tekin til rafrænnar skráningar. Þau eru gefin út á
nafn hluthafa og útgáfudags er getið é hverju bréfi.
Hér með er skorað á alla eigendur hlutabréfa í félaginu
sem teija nokkurn vafa leika á að eignarhald þeirra sé rétti-
lega fært í hlutaskrá Fjárfestingarfélagsins Straums hf. að
staðreyna skráninguna með fyrirspurn til hlutaskrár Fjár-
festingarfélagsins Straums hf., Kirkjusandi 2,155 Reykjavík
eða i sfma 560 8900. Komi í Ijós við slíka könnun að eig-
endaskipti hafi ekki verið skráð ber eigendum að færa sönn-
ur á þau gagnvart féiaginu fyrir nefndan dag.
Enn fremur er skorað á alla þá sem eiga takmörkuð rétt-
indi til ofangreindra hlutabréfa, s.s. veðréttindi, að koma
þeim á framfæri við fullgilda reikningsstofnun, þ.e. banka,
verðbréfafyritæki eða sparisjóð sem gert hefur aðildar-
samning við Verðbréfaskráningu íslands hf., fyrir skrán-
ingardag.
Athygli hluthaía er vakín á að hin áþreifanlegu hiutabréf
félagsins verða ógild sjálfkrafa og því er ekki þörf á að skila
þeim til félagsins. Jafnframt er vakin athygli á að ferli raf-
rænnar skráningar hefur engin áhrif á möguleika hluthafa til
að eiga viðskipti með hluti sína í félaginu að undanskildum
sjálfum skráningardeginum.
Að lokinni rafrænni skráningu þurfa hluthafar að fela reikn-
ingsstofnun umsjón með eignarhlut sínum í félaginu til að
geta framselt hluti sína svo sem vegna sölu eða skipta. Reikn-
ingsstofnun mun í þessu skyni stofna VS-reikning í nafni við-
komandi hluthafa.
Stjórn Fjárfestingarfélagsins Straums hf.