Dagblaðið Vísir - DV - 28.07.2001, Page 56
'íffÁFlRA'
FR ÉTTASKOTIÐ
SÍMINN SEM ALDREI SEFUR
Hafir þú ábendingu eða vitneskju um frétt,
hringdu þá í síma 550 5555. Fyrir hvert
fréttaskot, sem birtist eöa er notað í DV,
greiðast 3.000 krónur. Fyrir besta fréttaskotið
I hverri viku greiðast 7.000. Fullrar nafnleyndar
er gætt. Við tökum viö fréttaskotum allan
sólarhringinn.
550 5555
Hveragerði:
Stúlkur
fyrir bíl
Ekið var á tvær 13 ára stúlkur í
Hveragerði í gærdag. Ekki er ljóst
hváð olli slysinu en bifreiðin ók á
hóflegum hraða í gegnum þorpið
þegar hún lenti á stúlkunum. Þær
sluppu án beinbrota en saumspor
þurfti í skrámur og skurði. -EIR
Hollendingur valt
Hollenskur ferðamaður velti litl-
urn jeppa við bæinn Haukholt í
Hrunamannahreppi i gær. Fór jepp-
inn út af og valt þar sem malbiki
sleppir. Hollendingurinn var fluttur
með sjúkrabifreið á slysadeild í
Reykjavík. -EIR
Bleikir skátar dv-mynd einar j.
Skátarnir í Grafarvogi eru á ieiö á alþjóölegt skátamót í Svíþjóö þar sem allar þjóöir eiga aö vera í sínum lit. Skátarnir
í Grafarvogi völdu óleikan og lituöu hár sitt allir sem einn í skátaheimilinu í Logafold í gærkvöldi. Þeim leiddist þaö
ekki eins og sjá má.
Hjartaáfall
í Hlöðuvík
- mikill viðbúnaður
Þyrlu Landhelgisgæslunnar og björg-
unarbáti frá ísafirði var stefnt i Hlöðu-
vik á Hornströndum um kvöldmatar-
leytið í gær. Þar hafði ferðamaður í
gönguhópi fengið hjartaáfall og þurfti að
komast til byggða hiö fyrsta. Mildi var
að læknir var meðal göngumanna og gat
hann hlúð að manninum á meðan beðið
var hjálpar.
Ekkert símasamband er við Hlöðuvík
en samferðamenn mannsins komust í
talstöð í neyðarskýli á staðnum. Tókst
þeim aö ná sambandi við Vestmanna-
eyjaradíó sem sendi neyðarkall þeirra
áfram til réttra aðUa. Þyrlan fór í loftið
skömmu fyrir klukkan 21 í gærkvöld og
þá var bátur björgunarsveitarinnar
kominn langleiðina á staðinn. Sam-
kvæmt upplýsingum sem bárust lögregl-
unni á ísafirði um svipað leyti var
ástand ferðamannsins stöðugt. -EIR
Sumarrok
og rigning
Þakplötur losnuöu af húsi í
Krummahólum í rigningargjósti
sem þá gekk yfir Reykjavík þar
sem hún stendur hæst.
„Þetta er sumarrok, undanfari
haustsins sem brátt kemur til
okkar,“ sagði varðstjóri lögregl-
unnar í Reykjavík sem hafði í
nógu að snúast í rigningunni í
gær. „Það hafa orðið óvenjumarg-
ir árekstrar í rigningunni enda
skyggni eins og það er,“ sagði
hann. -EIR
Árni í Kanada
Árni Johnsen flaug af landi
brott á fimmtudaginn ásamt eig-
inkonu sinni meö stefnuna á
Kanada.
„Frúin dreif hann út til að
slaka á,“ sagði Breki Johnsen,
sonur þeirra hjóna, sem gætir
húss á meðan. „Þau ætluðu til
Toronto og Halifax, skildist mér,
og koma heim eftir fimm daga
eöa svo.“
Ekki sagðist Breki vita hvort
faðir hans hefði afhent forseta Al-
þingis afsagnarbréf sitt sem þing-
maður áður en hann hélt utan.
Ekki náðist í Halldór Blöndal,
forseta Alþingis, í gær en þá var
hann á leið á Blönduós ásamt eig-
inkonu sinni sem þar ætlaði að
hitta gamlar vinkonur sínar.
Sjálfur átti Halldór erindi á Hofs-
ós. -EIR
Forsætisráðherra segir sjálfstæðismenn axla ábyrgð með afsögn:
Ríkið tapaöi tugum
milljóna á Ólafi Ragnari
- tók veð sem fjármálaráðherra og blekkti til að bjarga vinum sínum
Davíö
Oddsson.
„Það getur eng-
inn búiö til
óskeikult kerfi
sem útilokar
svona óheillaat-
vik. Kerfið er ekki
þannig og verður
aldrei þannig að
menn geti ekki
tekið neina hluti
ófrjálsri hendi en
það eru á hinn
bóginn yfirgnæfandi líkur á að
eftir nokkra mánuði eða misseri,
þegar endurskoðunin og bókhald-
ið fer í gang, þá komist slík at-
ferli upp. Þaö er bara spurning
um tíma,“ segir Davíð
Oddsson, forsætisráðherra
og formaður Sjálfstæðis-
flokksins, um mál Árna
Johnsens alþingismanns.
Davíð er haröorður í
garð annarra stjórnmála-
manna sem lent hafa í
spillingarmálum. Hann
tekur dæmi af Guðrúnu Albert
Helgadóttur, fyrrverandi Guðmundsson.
forseta Alþingis, og Jóni Baldvin
Hannibalssyni, fyrrverandi utan-
ríkisráðherra.
„Tók það ekki nærri tvö ár að
koma upp um kjólakaup Guðrún-
ar Helgadóttur fyrir peninga Al-
þingis og þá endurgreiddi hún
með nákvæmlega sama hætti og
Árni Johnsen? Hún sagði ekki af
sér. Jón Baldvin gaf manni úti í
bæ áfengi sem var skrifaö á rík-
ið. Hann endurgreiddi. Ekki
sagði hann af sér,“ segir Davíð og
heldur áfram aö rekja spillingar-
mál þar sem Ólafur Ragnar
Grímsson, fyrrverandi formaður
Alþýðubandalagsins og þáverandi
Gísli S.
Einarsson.
Guðrún
Helgadóttir.
Johnsen.
Jón G.
Sólnes.
fjármálaráðherra, er næstur.
„Formaöur Alþýðubandalags-
ins tók á sínum tíma sem fjár-
málaráðherra veð sem allir sáu
að var blekking til að afstýra því
að vinir hans misstu húsin
sín. Ríkið tapaði tugum
milljóna. Ekki sagöi hann
af sér. Gísli S. Einarsson,
sem slær sér upp á því nú
að sparka í liggjandi mann,
meðan hann kallar hann
vin sinn og félaga i hverju
orði, skrifaði bréf út af bíla-
umboði og notaði stöðu
sina og Alþingis til að
Jón Baldvin
Hannibalsson.
Olafur Ragnar
Grímsson.
styrkja málarekstur sinn og
nefndi þar hvergi að hann væri
eingöngu að draga taum fjöl-
skyldu sinnar. Hann sagði ekki af
sér,“ segir Davíð og bendir á að
sjálfstæðismenn hafi axlað sína
ábyrgð.
„Þessir karlar sátu allir eins og
ekkert hefði gerst og dæmin eru
fleiri. Albert Guðmundsson, Jón
Sólnes, Árni Johnsen, allir sjálf-
stæðismenn, öxluðu á hinn bóg-
inn ábyrgð."
Opnuviðtal við Davíð er á
bls. 28 og 37
-KB/rt
Þjóðminjavördur getur
stöðvað Kárahnjúkavirkjun
^ ‘ a slíkum en bendum á
m minjastaðir sem verð-
ur aö-rannsaka aður
Margrét Hallgrímsdóttir þjóð-
Hallgrímsdóttir. minjavörður um
Kárahnjúkavirkjun. Samkvæmt nýjum
þjóðminjalögum er ljóst að þjóðminja-
vörður getur stöðvað Kárahnjúkavirkj-
Þjóðminjasafnið
Vald til aö stööva virkjun.
un ef skilyrði um rannsóknir á minja-
stöðum verða ekki uppfyllt. „Það er
ómögulegt að segja hversu mörg ár
þetta tekur; það fer allt eftir fjármagni
sem til verksins er veitt og hversu
hratt er unnið. En ég geri fastlega ráð
fyrir að skilyröi okkar verði uppfyllt."
-Enefekki?
„Það er önnur saga. Ég sé ekki fyrir
mér að menn fari að eyða fomminjum
að óathuguðu máli en hitt er eins ljóst
að fomminjarannsóknir em bæði dýr-
ar og tímafrekar,“ segir þjóðminjavörð-
ur. -EIR
Jói útherji
Knattspyrnuverslun
Ármúla 36 * sími 588 1560