Dagblaðið Vísir - DV - 08.08.2001, Blaðsíða 9
MIÐVIKUDAGUR 8. ÁGÚST 2001
9
Norðurland
Fjölskylduhátíðin Ein með öllu á Akureyri:
Mun færri gestir en
reiknað hafði verið með
„Þaö sem stendur upp úr eftir
helgina að mínu mati er aö mjög vel
tókst til meö allt sem boðið var upp
á og þátttaka bæjarbúa í dagskránni
virðist hafa verið mun almennari
en áður hefur verið í atburðum um
þessa helgi. Það sem við bölvum
hins vegar mest er veðurspáin sem
við fengum fyrir helgina en hún hef-
ur án efa orðið til þess að við feng-
um mun færri gesti til bæjarins en
ef spáin hefði verið í líkingu við það
veður sem hér var,“ segir Bragi
Bergmann hjá kynningarþjónust-
unni Fremri á Akureyri en það fyr-
irtæki var framkvæmdaaðili fjöl-
skylduhátíðarinnar Einnar með
öllu á Akureyri um helgina.
Þeir sem gerst þekkja til telja að
aðkomumenn á Akureyri um helg-
ina hafi verið á bilinu 2-3 þúsund
en það er ekki langt frá því sem ger-
ist um venjulega helgi um hásumar.
Oft eru þó fleiri aðkomumenn í
bænum, t.d. fyrstu helgina í júlí ár
hvert þegar tvö knattspymumót eru
haldin en þau sóttu t.d. um 5 þús-
und manns í sumar.
Svokallaðir „hagsmunaaðilar"
hafa staðið að samkomuhaldi um
verslunarmannahelgi á Akureyri
undanfarin ár, fyrst undir nafninu
Halló Akureyri en nú undir öðru
nafni. Þessir hagsmunaaðilar eru
fyrst og fremst verslunar- og veit-
ingamenn sem hafa þá hagsmuni að
geta haldið uppi öflugri starfsemi
þessa helgi. Eftir að allt hafði farið
úr böndunum undir nafninu Halió
Akureyri var söðlað um og í stað
þess að höfða fyrst og fremst til ung-
linga var áhersla nú lögð á fjöl-
skylduna sem markhóp en útkoman
varð sú að færri komu en vonir
stóðu til.
„Vissulega hefðum _ við viljað fá
fleiri gesti til bæjarins en við gerum
okkur ljóst að það tekur tíma að
byggja upp fjölskylduhátíð sem
þessa. Upp úr stendur hins vegar
góð þátttaka i þeim atburðum sem
voru á boðstólum, fjölmenni var t.d.
á Ráðhústorgi alla dagana og á
sunnudagskvöld voru 4-5 þúsund
manns á Akureyrarvelli og
skemmtu sér konunglega, m.a. við
fjöldasöng," segir Bragi.
Talið er að kostnaður viö hátíð-
ina Eina með öllu sé um 5 milljónir
króna. Þar af greiðir Akrueyrarbær
tæplega milljón en hagsmunaaðil-
arnir annan kostnað. Bragi segir að
nú þurfi að skoða það hvort fram-
hald verði á þessu en hann segist
telja það vist að hátíð undir sömu
formerkjum verði haldin á Akur-
eyri um næstu verslunarmanna-
helgi. -gk
Rólegt hjá skátunum
Ásgeir Hreiöarsson, umsjónarmaður tjaldstæðis skáta við Hamra, sést hér við einn prammann sem búið var að út-
búa á svæðinu fyrir helgina. Hetgin var róleg hjá skátunum eins og víðar.
Fjölnota íþróttahús á Akureyri 20% dýrara en gert var ráð fyrir:
Mjög mismunandi tilboð
Tréverk í Dalvíkurbyggð átti
lægsta tilboðið í fjölnota íþróttahús á
Akureyri sem rísa mun á svæði
íþróttafélagsins Þórs. Tilboðið hljóð-
aði upp á 447,5 milljónir króna sem er
72 milljónum króna hærra en bæjar-
stjórn Akureyrar hafði samþykkt að
verja til verksins á 2 ára fram-
kvæmdaáætlun, eða um 375 milljón-
um króna. Fjögur fyrirtæki sendu inn
ails 8 tilboð. Þar af komu 3 tilboð frá
Tréverki og önnur 3 frá Kötlu í Dal-
víkurbyggð en einnig komu tilboð frá
Istaki að upphæð 531 milljón króna og
frá íslenskum verktökum að upphæð
449 milljónir króna, með frávikum
vegna verktilhögunar sem hækkar til-
boðið mismunandi mikið. Tilboðin
eru þó mjög mismunandi, ýmsar gerð-
ir húsa, ýmist einangruð sem óein-
angruö og með mismunandi gervi-
grasi.
Gengisbreyting orsök
hækkunar
Þórarinn B. Jónsson, bæjarfulltrúi
Sjálfstæðisflokks og formaður íþrótta-
og tómstundaráðs, segir að þetta bil
milli áætlunar og tilboða verði að
brúa og hluta skýringarinnar sé að
leita til gengisbreytinga. Því gangi til-
boðin nokkuð eftir vonum.
„Það þarf að taka ákvörðun um
Þórarlnn B. Jakob
Jónsson. Björnsson.
hvort treystandi sé að fara í verkið á
þessum forsendum. Meginbyggingar-
framkvæmdin er fyrirhuguð á næsta
ári og það er ekkert nú sem bendir til
annars en að staðið verði við áður-
gerða byggingaráætlun og húsinu lok-
ið árið 2002 en framkvæmdafé færi
fram á árið 2003. Það er verið að bjóða
okkur heldur betri hús en við ætluð-
um að byggja en ljóst er að við þurf-
um viðbótarfjármagn ef við ætlum að
sjá þetta hús rísa,“ segir Þórarinn B.
Jónsson.
Bætt við fjármunum vegna
stóryrða
Jakob Björnsson, bæjarfulltrúi
Framsóknarflokks, sem skipar minni-
hluta bæjarstjórnar ásamt L-lista, seg-
ir að síðasta vinnuáætlun meirihlut-
ans hafi hljóðað upp á 200 milljónir
króna vegna fjölnota íþróttahússins
en nú sé það að nálgast 400 milljónir
króna og dugi greinilega ekki enn til.
Jakob segir framkvæmdaráð bæjarins
funda um tilboðin strax eftir verslun-
armannahelgina. 70 milljónir króna
séu um 20% af verðinu og stundum
hafi þótt ástæða til að staldra við að
fengnum slíkum upplýsingum.
„Það verður erfitt fyrir meirihluta
bæjarstjómar að stoppa, miðað við
þau loforð sem búið var að gefa, auk
ýmissa stóryrða sem látin voru falla.
Það verður því væntanlega bætt við
fjármunum til þess að standa við þau
loforð en ég veit ekki hvernig þeir
ætla að ljúga sig út úr þvi. En það er
ekki bara þetta sem hefur komið til
viðbótar við upphaflegar áætlanir í
íþróttageiranum, heldur aðstoð við
íþróttafélögin, ný skíðalyfta og dýrari
skautahöll en áætlað var. En mér, og
sjálfsagt engum, eru ljós þau takmörk
sem meirihlutinn setur sér þar. En
með allar þessar tölur í huga, þrátt
fyrir verulega tekjuaukningu, j)urfa
menn að hugsa sinn gang alvarlega,
því ég minni á að t.d. viðbygging
Amtsbókasafnsins verður verulega
dýrari en reiknað var með og eru
sjálfsagt ekki búnir að bfta úr nálinni
með það vegna aukaverka," segir Jak-
ob Bjömsson. -GG
ÆR, lömb og hrútar
Þema sýningarinnar á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit veröur „sauðkindin“.
Níunda handverkssýningin hefst á morgun:
Handverkshátíð
á Hrafnagili
Handverkshátíðin Handverk 2001
hefst á Hrafnagili í Eyjafjarðarsveit
á morgun, fimmtudag, og stendur í
fjóra daga. Handverkshátíðin er sú
níunda í röðinni á jafn- mörgum
árum og er orðin að föstum og
ómissandi lið í tilveru íslensks
handverksfólks. Það má með sanni
segja að Hrafnagil sé vagga hand-
verks á íslandi. Aðsókn að sýning-
unum hefur verið einstaklega góð
allt frá byrjun og sækja þær milli
sex og átta þúsund gestir árlega víðs
vegar af landinu. Handverkshátíðin
á Hrafnagili er því einn stærsti við-
burður i ferðaþjónustu á Norður-
landi á hverju ári.
Samtals er sýningarsvæðið um
1700 fermetrar í íþróttahúsi Hrafna-
gilsskóla og kennsluhúsnæði skól-
ans. Einnig er sýnt í útibásum. Á
sýningarsvæðinu verða bæði sölu-
og vinnubásar handverksfólks og
gefst gestum tækifæri á að sjá hand-
verksfólk að störfum.
Þema sýningarinnar að þessu
sinni er „sauðkindin". Leitast verð-
ur við að móta umgjörð sýningar-
innar og dagskrá með þemað að
leiðarljósi. Margt verður til afþrey-
ingar á sýningunni, s.s. spuna-
keppni, bæði fyrir einstaklinga og
lið, tískusýning þar sem megin-
áhersla verður lögð á föt úr ull,
vinnubás verður fyrir böm þar sem
þau geta fengið að spinna og þæfa.
Ær, lömb og hrútar verða á svæð-
inu. Laugardag og sunnudag verður
boðið upp á gæslu fyrir yngstu
bömin.
DV verður með sérstakan kynn-
ingarbás á Hrafnagili um helgina og
verður þar dreift handverksblaði
sem unnið hefur verið í tilefni sýn-
ingarinnar.
Heimasíða Handverkshátíðarinn-
ar er www.skyggnir.is/handverk.
..þafi sem
fagmaðurinn
nntarl
BYGGINGAVINKLAR
Allar gerðir festinga
fyrir palla og grindverk
á lager
Slml: 533 1334 fax-. 55B D439