Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2001, Side 4
Fréttir
MIÐVIKUDAGUR 15. ÁGÚST 2001
X>V
Flugvél Flugmálastjórnar íslands TF-FMS:
Ráðuneyti á ferð og flugi
- samgöngu-, dómsmála- og iönaöarráöuneyti mest í loftinu
Ekki bara notuö til mælinga á og viö flugvelli landsins. Drjúgur tími fer i aö
fljúga fyrir ráöuneytin og stofnanir.
Gísli S. Einarsson alþingismaður
hefur óskað eftir upplýsingum úr
leiðarbók flugvélar Flugmálastjórn-
ar TF-FMS um allar hreyfmgar vél-
arinnar undanfarin tvö ár. í vor
óskaði DV eftir upplýsingum um
flug vélarinnar 12 mánuði aftur í
timann, eða frá apríl 2000 til maí
2001. Voru þau gögn afhent 4. maí
sl. Þar er sundurliðuð eftir flugtím-
um notkun ráðuneyta og stofnana.
Flugmálastofnun neitar að upplýsa
hverjir hafi verið farþegar i um-
ræddum tilvikum en vísar á við-
komandi ráðuneyti eða stofnun.
Samtals var flogið á vegum ráðu-
neyta og forsetaembættis á þessu
timabili í tæpar 65 klukkustundir.
Á vegum ýmissa stofnana var hins
vegar flogið í 30 klukkustundir.
Flugmálastjórn taldi sig ekki geta
gefið upp við afhendingu gagna
hvaða einstaklingar hefðu flogið
með TF-FMS á þessu tímabili. Flug-
málastjórn innheimti gjald vegna
notkunar áðurnefndra aðila en
fram til 1. janúar í ár var gjaldið
77.000 krónur á flugtíma en hækk-
aði í 85.000 um áramótin. Sam-
kvæmt þessu var innheimtur kostn-
aður vegna flugs fyrir ráðuneyti og
forsetaembætti þessa tólf mánuði
samtals 5.062.800 krónur. Fyrir
stofnanir voru innheimtar 2.343.600
krónur.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugmálastjórn er hlutverk flugvél-
arinnar skýrt skilgreint. Helsta
hlutverk hennar er að annast flug-
prófanir. Það er að stilla radar-
senda og búnað á flugvöllum lands-
ins, enda er tækjabúnaður vélar-
innar miðaður við það. Auk þess er
henni ætlað að sinna leitarflugi og
taka átt björgunarstörfum þegar
þörf krefur. Vélin hefur einnig ver-
ið leigð í verkefni fyrir dönsku flug-
málastjórnina á Grænlandi. Þrátt
fyrir þessi skilgreindu hlutverk hef-
ur vélin ítrekað verið leigð til ráðu-
neyta og ríkisstofnana þegar hún
hefur ekki verið í sinum foátu verk-
efnum.
Samkvæmt upplýsingum frá
Flugmálastjórn er nokkuð öruggt
að einhvem tíma hafi stangast á
þarfir ráðuneyta og Flugmála-
stjómar. Ráðuneytin séu hins vegar
vel meðvituð um skilgreint hlut-
verk vélarinnar sem gangi þá fyrir.
Vélin getur borið 9 farþega auk
flugmanna. Til að slíkt sé hægt þarf
þó að fjarlægja ýmsan búnað úr vél-
inni til að koma sætum fyrir í stað-
inn.
Vélin er, eins og áður sagði, vel
búin tækjum og hámarksflughraði
hennar er áþekkur og á Fokkervél-
um Flugfélagsins, eða um 500 km á
klukkustund. Hún er af gerðinni
Beechcraft Super King Air 200,
smíðuð árið 1985 og skráð hér á
landi áriðl997.
Samgönguráöuneytiö mest
á lofti
Duglegasta ráðuneytið í að nýta
sér flug TF-FMS var samgöngu-
ráðuneytið, eða í alls 16,5 klukku-
stundir á áðurnefndu tímabili. Þess
má þó geta að flugvellir heyra und-
ir það ráðuneyti. Dómsmálaráðu-
neytið var með næstmesta flugið,
eða 10,8 klukkustundir. Þá kom iðn-
aðarráðuneytið og forsætisráðu-
neytið með skráð flug hvort um sig
í 9,4 klukkustundir. Þá kom sjávar-
útvegsráðuneytið með 6,3 klukku-
stundir, menntamálaráðuneytið
með 3,3 klukkustundir, forseti ís-
lands með 2,6 klukkustundir, fjár-
málaráðuneytið með 2,4 klukku-
stundir, heilbrigðisráðuneytið með
1,7 klukkustundir, utanríkisráðu-
neytið með 1 klukkustund, land-
búnaðarráðuneytið með 0,9 klukku-
stundir og félagsmálaráðuneytið
með 0,4 klukkustundir.
Fyrir stofnanir var flogið mest
fyrir Ratsjárstofnun, eða i 16,1
klukkustund. Þá kom Raunvísinda-
stofnun Háskólans með 12,4 klukku-
stundir, Flugráð með 0,9 klukku-
stundir og Tryggingastofnun ríkis-
ins var með 0,6 klukkustunda flug.
-HKr.
Breikkun Reykjanesbrautar:
Umhverfismat undirbúiö
- endurbætur á bugðunni við Kúageröi ræddar
Verkfræðistofan Hönnun vinnur nú
að undirbúningi umhverfismats vegna
framkvæmda við breikkun Reykjanes-
brautar. Unnið er á vegum Vegagerð-
arinnar á grundvelli matsáætlunar
sem Skipulagsstofnun hefur sam-
þykkt. Stefnt er að því að matsskýrsl-
an verði tilbúin og kynnt í haust.
Lokahönnun og gerð útboðslýsingar
hefur nú verið boðin út vegna fram-
kvæmdanna. Miðað er við að þær geti
haflst á næsta ári.
Frumdrög hafa verið gerð að hönn-
un Reykjanesbrautar, frá mörkum
Hafnarfjarðar og Vatnsleysustrandar-
hrepps til Njarðvíkur. Útboðið sem nú
fer fram er í lokahönnun og gerð út-
boðslýsingar fyrir verkið. Ýmsir kost-
ir eru bomir saman í skýrslu um
fmmhönnun. Er lagt til að brautin
verði tvær akreinar í hvora átt. Hver
akrein verði 7,5 metrar á breidd, með
11 metra graseyju á milli.
Framkvæmdum verður þannig hátt-
að að lögð verður ný akbraut við hlið
þeirrar gömlu. Sökum þess hve veg-
lína er kröpp við Kúagerði hafa ýmsar
tillögur komið fram um hvemig
breikkun vegarins verður útfærð til
að tryggja öryggi á þeim stað. Hefur sú
tiilaga verið gerð að núverandi veg-
línu yrði haldið að mestu leyti á sama
stað en þó reynt að lengja beygjuna
þannig að hún verði ekki eins kröpp
og hún er nú. Ekkert hefur enn verið
ákveðið í þessu efni.
For- og verkhönnun fyrir þá tvo
kaíla sem næstir eru Hafnarfirði á að
vera lokið 17. desember nk. auk út-
boðslýsingar fyrir fyrsta kaflann sem
liggur meðal annars um Kúagerði sem
skal lokið í byrjun júní í vor. Forhönn-
un fyrir þá þrjá kafla sem liggja sunn-
ar skal lokið í lok apríl í vetur og verk-
hönnun fyrir þá svo og útboðslýsing
fyrir allan veginn nema fyrsta kaflann
á að vera lokið 1. april 2003. -DVÓ
DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON
Drungaleg viðvörun
Talan á skiltinu á Hellisheiöi hefur
hækkaö úr tíu i tólf um helgina.
12 hafa týnt
lífi í umferðar-
slysum
DV, SELFOSSI:
Umferðin heldur áfram að taka
sinn toll. Nú hafa 12 manns látist í
umferðinni það sem af er árinu. Á
sama tíma í fyrra höfðu 19 látist.
Samanburðurinn er þó ekki mark-
tækur að því leyti að árið 2000 var
mesta hörmungaár í umferðarsög-
unni.
Nú er fjöldinn sami og hefur ver-
ið undanfarin ár og því ljóst að
grípa verður til aðgerða af hálfu
vegfarenda til að fækka slysum.
Ekkert átak mun fækka slysum í
umferðinni betur en samstilltur
vilji þeirra sem eru á vegum og göt-
um. Til að fækka óhöppum þarf að
hugsa áður en lagt er af stað. -NH
Hafnarfjörður:
Bæjarstjori hugar
að bryggjuhverfi
Hugmyndir um listaháskóla í
Hafnarfirði eru runnar út í sand-
inn, að sögn Magnúsar Gunnarsson-
ar, bæjarstjóra í Hafnarfirði. Hann
segir á heimasíðu sinni að í staðinn
verði hugað að bryggjuhverfi á
norðurbakkanum. Bæjarstjórinn
segir Listaháskóla íslands hafna að-
stöðu fyrir skólann í Hafnarfirði.
„Afstaða stjórnar Listaháskólans
er skýr og munu því bæjaryfírvöld
snúa sér að annarri uppbyggingu á
norðurbakkanum án Listaháskóla
íslands. Á næstu vikum hefst vinna
í samvinnu við hagsmunaaðila á
norðurbakkanum um uppbyggingu
á glæsilegu bryggjuhverfi sem ráð-
gert er að risi þar á næstu árum. Er
ekki nokkur vafi að hér verður um
afar vinsælt svæði að ræða enda
eina sanna bryggjuhverfið á höfuð-
borgarsvæðinu sem tekið verður
undir íbúðabyggð og tengda þjón-
ustu,“ segir Magnús. -DVÓ
Veðrið i kvóld | Solargangur og sjavarföll 1 Veðrið á morgun
pJP 12“ (5
fi Ýirí' ' u.
(S 12°>
A fs y
fiarf"'"'
;ftí°
REYKJAVIK
Sólariag i kvöld 21.44
Sólarupprás á morgun 05.22
Síbdegisflóö 15.16
Árdeglsflób á morgun 03.47
Skýringar á veðurtákniun
^VINDÁTT 10V—WTI
-10
AKUREYRI
21.41
04.54
19.49
08.20
VINDSTYRKUR
i metrum á sekúndu
HEIÐSKÍRT
*Nfhost
€> €> O
Súld eða rigning fyrir norðan
Noröaustlæg eða breytileg átt, 3 til 8 m/s.
Súld eða dálítil rigning norðan- og austanlands
en skýjað meö köflum suövestan til. Hiti 8 til
18 stig aö deginum, hlýjast suðvestanlands.
LÉTTSKÝJAÐ HÁIF- SKÝJAO SKÝJAÐ ALSKÝJAO f3
íxry") \ : W RIGNING SKÚRIR W: SLYÐDA , ; SNJÓKONIA
w S? Í*
ÉUAGANGUR ÞRUMU- VEÐUR SKAF- RENNINGUR ÞOKA
13
SS?iP«V:
Vegir landsins
Upplýsingar um færð og ástand
fjallvega, vegaframkvæmdir, lokanir á
vegum og ýmislegt fleira er tengist
vegum landsins má finna á heimasíðu
Vegagerðarinnar, í þjónustusíma
hennar eða í Textavarpinu.
mmmmmmmmmmmmmmmmtmmmmmmmmnvirmv fT1 r.i g.tsB3a«a<
Skýjað með köflum suðvestan til
Norðaustlæg eða breytileg átt, 3 til 8 m/s. Súld eða dálítil rigning norðan
og austanlands en skýjað með köflum suövestan til. Hiti 8 til 18 stig,
hlýjast suðvestanlands.
Fostuíi^iir
Latigard; mm Sunruidíigu
Vindur: /f
3-5 tn/8
Hiti 8° iil 15"
Fremur hæg breytileg átt
og víba skúrlr. Hitl 8 tli 15
stlg.
Vindur: 4A
10-15 xtv*
Hiti 8° til 15°
Austlæg átt, 10 til 15
m/s meb suburströndinnl
en hægari annars stabar.
Rigning sunnan- og
austanlands og hiti 8 til
15 stig.
5-10 Itv'*
Hiti 8° til 15°
Breytlleg átt og viba
rigning.
mmvm MBhIÍ :
AKUREYRI súld 9
BERGSSTAÐIR skýjaö 9
BOLUNGARVÍK skýjaö 8
EGILSSTAÐIR súld 9
KIRKJUBÆJARKL. skýjaö 9
KEFLAVÍK léttskýjaö 8
RAUFARHÖFN þokumóða 8
REYKJAVÍK léttskýjaö 7
STÓRHÖFÐI þoka 10
BERGEN þokumóöa 16
HELSINKI þoka 14
KAUPMANNAHÖFN þokumóöa 19
ÓSLÓ súld 17
STOKKHÖLMUR 17
ÞÓRSHÖFN skýjaö 13
ÞRÁNDHEIMUR rigning 13
ALGARVE léttskýjaö 18
AMSTERDAM léttskýjaö 20
BARCELONA léttskýjað 22
BERLÍN heiöskírt 20
CHICAGO skýjaö 15
DUBUN rigning 13
HALIFAX skúrir 17
FRANKFURT léttskýjaö 21
HAMBORG léttskýjaö 21
JAN MAYEN alskýjað 7
LONDON léttskýjaö 20
LÚXEMBORG helöskírt 20
MALLORCA léttskýjað 24
MONTREAL heiöskírt 18
NARSSARSSUAQ rigning 8
NEWYORK skýjaö 22
ORLANDO léttskýjaö 27
PARÍS skýjaö 20
VÍN heiöskírt 20
WASHINGTON heiöskírt 18
WINNIPEG heiöskírt 16
■r:ttgy8.e::A«vV-:cai:t«rÆaYviaKJtui.t<i