Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2001, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2001, Blaðsíða 22
26 FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2001 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartanssi 85 ára___________________________ -reddy Laustsen, Furugerði 1, Reykjavík. Ólafur Guðmundsson, Sævargörðum 20, Seltjarnarnesi. Þorbjörg S. Maher, Skjólvangi Hrafnistu, Hafnarfirði 80 ára _______________ Guðmundur Árnason, Hliðarhúsum 7, Reykjavík. 70 ára __________________________ lelena Ása Ásgrímsdóttir, Pórufelli 4, Reykjavík. Stefán Jónsson, Grænumýri, Akrahreppi, Skagafirði. S0 ára___________________ Hörður Árnason, Suðurvangi 14, Hafnarfirði ingi Sverrir Gunnarsson, Miötúni 50, Reykjavík. Martha Clara Björnsson, Karfavogi 23, Reykjavík. Sigríkur Eiríksson, Suöurgötu 21, Akranesi. Valdimar Guðnason, Markarflöt 18, Garðabæ. 50 ára_______________________ Bima S. Richarðsdóttir, Vesturtúni 1, Hólmavík. Einar K. Oddgeirsson, Kirkjubraut 4, Njarðvík. Guðlaugur Jónsson, 'fesbala 86, Seltjarnarnesi. Haildóra Oddsdóttir, istabergi 1, Hafnarfirði. jlda Harðardóttir, útahrauni 3, Reykjahlíð. gibjörg Andrésdóttir, ieigaseli 3, Reykjavík. Kristbjörg Magnadóttir, Hlíðargötu 11, Akureyri. Kristín Margrét Axelsdóttir, Melateigi 6, Akureyri. María Guðfinna Andrésdóttir, Vesturbergi 78, Reykjavík. 40 ára_______________________ Guðný Hildur Kristinsdóttir, Hofgörðum 6, Seltjarnarnesi. Indriði Margeirsson, Sólheimum 6, Breiðdalsvík. Rögnvaldur Karl Jónsson, Bylgjubyggð 35, Ólafsfirði. Steinunn Unnsteinsdóttir, Smáraflöt 45, Garðabæ. Vigfús Markússon, Eyrargötu 23, Eyrarbakka. Geirlaug Skaftadóttir Ottesen, Frumskógum 3, Hverageröi, lést á hjúkrunarheimilinu Skjóli þriðjudaginn 14. ágúst. Guðfinna Einarsdóttir, Hátúni 8, andaðist á hjúkrunarheimilinu Eir laugardaginn 11. ágúst. DV Fertug Eygló Karlsdóttir húsmóðir Eygló Karlsdóttir, húsmóðir, Hvassaleiti 10, Reykjavik er fertug í dag. Starfsferill Eygló er fædd og uppalin í Reykjavík. Hún gekk í grunnskóla og stundaði nám í bibliuskóla Day Star í Bandaríkjunum frá mars til júní 1988 og í biblíuskóla Arken í Svíþjóð þrjá vetur árin 1988 til 1991. Eygló var í myndlistarnámi tvo vetur og auk þess i myndlistar- klúbbi sem starfar undir leiðsögn leiðbeinanda i nokkra vetur. Hún hefur tekið þátt í tveimur samsýningum í myndlist á vegum klúbbsins. Eygló staifar sem verkakona og hefur lengst af unnið á sjúkrahúsum og elliheimilum. Fjölskylda Þann 16.8. 1998 giftist Eygló Ársæli Þórðarsyni, húsasmið, f. 29.1. 1943. Foreldrar hans voru Þórður Ársælsson og Helga Káradóttir sem voru bændur á Borg á Eyrarbakka. Þau er bæði látin. Systkini Eyglóar eru: 1) Anna Karls- dóttir; 2) Bjarni F. Karlsson; 3) Snorri Karlsson; 4) Karl M. Karlsson. Foreldrar Eyglóar eru Karl M. Gunnarsson, leigubílstjóri, f. 20.4. 1938, og Svanlaug Friðþjófsdóttir, matráðskona, f. 15.3. 1943. Eygló heldur upp á afmælið að Háeyrarvöllum 44 á Eyrarbakka frá klukkan 16, 17. og 18. ágúst og er opið hús fram eftir kvöldi báða dagana. Fimmtugur __________________________ : - ..-W Egill Ólafsson útibússtjóri Egill Ólafsson, útibússtjóri Söluskrifstofu Samvinnuferða Landsýnar í Keflavík, Bjarmalandi 9, Sandgerði, er fimmtugur í dag. Starfsferill Egill fæddist í Keflavík en sleit barnsskónum í Njarðvík. Hefur hann búið í Sandgerði í yfir 30 ár þar sem hann býr núna. Egill hóf nám í Iðnskólanum í Keflavík árið 1969 í skipasmíði og húsasmíði og lauk því námi árið 1974. Lauk hann skipasmíðinni sem skipasmíðameistari. Árið 1991 lauk hann námi í skrifstofu- og tölvutækni. Árið 1998 hóf Egill nám í Sjúkraflutnings- skólanum og útskrifaðist þar sem sjúkraflutningsmaður. Árið 1975 hóf Egill störf sem slökkviliðsmaður á Keflavíkurflugvelli og vann þar í 26 ár eða til ársins 2001 þar sem hann lauk slökkviliðsstarfi sínu sem yfirmaður þar. Einnig var Egill í Slökkviliði Sandgerðisbæjar frá árunum 1975 til 2000. Gegndi hann stöðu slökkviliðs- stjóra Sandgerðisbæjar í 16 ár, frá 1984 til ársins 2000. Frá árunum 1977 til 1992 starfaði Egill sem umboðsmaður Samvinnu- ferða-Landsýnar í Sandgerði og sem útibússtjóri Söluskrifstofu Sam- vinnuferða í Keflavík frá 1992 þar sem að hann starfar í dag. Fjölskylda Þann 7.8. 1971 giftist Egill Jónu Guðrúnu Bjarnadóttur, húsmóður. f. 24.01. 1951. Foreldrar hennar eru Jóhanna Ingigerður Sigurjónsdóttir, f. 6.11. 1932, búsett í Sandgerði, og Bjarni P. Sigurðsson, f. 5.11. 1928, d. 6.6. 1981. Uppeldisfaðir Jónu Guðrúnar er Jón Grétar Erlingsson f. 10. 6. 1933, d. 13. 12. 1996. Börn Egils og Jónu Guðrúnar eru: 1) Jóhanna Þórunn, f. 9.1.1973, dóttir hennar er Jóna Kristín Óttarsdóttir Hasler, f. 29.4. 1998; 2) Ólafur Högni, f. 11.3 1976, maki Kristín Birna Karlsdóttir, f. 15. 4. 1971, sonur þeirra er Þorsteinn Goði f. 26.6.1998. Systkini Egils eru: 1) Þórdis Ólafsdóttir f. 12.9. 1946, búsett í Reykjavík; 2) Sigurbjörg Ólafsdóttir f. 5.8. 1949, búsett í Njarðvík, 3) Bjarni Þór Ólafsson f. 3.10. 1956, búsettur á Álftanesi; 4) Ragna Ólafsdóttir f. 16.3. 1958, búsett í Bandaríkjunum; 5) Ólafur Högni Ólafsson f. 7.1. 1961, búsettur í Reykjavík; 6) Sóley Ólafsdóttir, f. 19. 6. 1964, búsett í Skálatúni í Mosfellsbæ. Foreldrar Egils eru Ólafur Högni Egilsson, bifreiðarstjóri, f. 15. 6.1927, d. 26. 11. 1991, og Nílsína Þórunn Larsen, f. 17.1. 1926, búsett í Njarðvík. Merkír Íslendíngar Knud Zimsen borgarstjóri fæddist 17. ágúst 1875 í Hafnarfirði, sonur Knuds Due Christian Zimsens og konu hans Önnu Cathincu. Knud var stúdent í Reykjavík 1893 og cand. phil. frá Kaupmannahafnar- háskóla 1894. Hann lauk síðan prófi í byggingarverkfræði frá Danmarks Tekniske Hojskole á aldamótarárinu 1900. Knud ferðaðist um Danmörku, Noreg og Þýskland næsta árið í þeim tilgangi að kynna sér rekstur tóvinnuvéla og gera tillögur um þau mál á íslandi fyrir íslensku stjórnardeildinna. Knud starfaði sem aðstoðar- verkfræðingur hjá bæjarverkfræðingi Kaup- Knud Zimsen mannahafnar í nokkur ár áður en hann flutti til baka til íslands. Hann var bæjarverkfræðingur í Reykjavík og byggingarfulltrúi 1904 til 1907 og gerði meðal annars uppdrátt að Reykjavík, sá um lagningu fyrstu vatns- og frárennslislagna og samdi fyrstu byggingarsamþykkt fyrir Reykjavík. Knud rak eigin verkfræðistofu í sjö ár og varð síðan borgarsjóri árið 1914. Því starfi gegndi hann til ársins 1932. Hann sat í mörgum nefndum og ráðum og átti einna mest frumkvæði að stofnun Verkfræðingafélags íslands. Eiginkona Knuds var Flora Marie. Knud Zimsen lést þann 15. apríl 1953. María Guðlaug Pétursdóttir, Öldustíg 13, Sauöárkróki, verður jarðsungin frá Sauöárkrókskirkju laugardaginn 18. ágúst kl. 14. Geir Tryggvason, Þrúðvangi 29, Hellu, verður jarðsunginn frá Eyvindarhóla- kirkju, Austur-Eyjafjöllum, laugardaginn 18. ágúst kl. 14.00. Sigurbjörg Sigríður Guðmundsdóttir, húsmóðir, Öxi, Sveinsstaðarhreppi, verður jarðsungin frá Þingeyrarkirkju laugardaginn 18. ágúst kl. 14.00. Sigurður Á. Sigurbergsson, Háaleitis- braut 30, Reykjavík, verður jarðsunginn frá Landakirkju, Vestmannaeyjum, laugardaginn 18. ágúst kl. 14. Halldóra Lárusdóttir, Krókatúni 15, Akranesi, verður jarðsungin frá Akraneskirkju mánudaginn 20. ágúst kl. 14.00. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Sjúkrahús Akraness. Ólafur Ólafsson, dvalarheimilinu Fellaskjóli, lést á Sjúkrahúsi Akraness aöfaranótt þriðjudagsins 14. ágúst. Jónína Rebekka Þorgeirsdóttir (Nína), Laufásvegi 14, Reykjavík, lést á Landspítala Hringbraut aöfaranótt mánudagsins 13. ágúst. Sigurður Magnússon, Álfaskeiði 74, Hafnarfiröi, lést á Landspítala Hringbraut miðvikudaginn 15. ágúst. mmam n g a r <D 550 5000 c/> @ vísir.is ■cxo = 550 5727 03 '03 1 =’| E Þverholt 11, 105 Reykjavik to Okeypis smáauglýsingar! ►I Gefins -alltaf á miðvikudögum ►I Tapaö - fundið -alltaf á þriðjudögum Smáauglýsingar 550 5000 Skoðaðu smáuglýsingarnar á VÍSÍI'.ÍS

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.