Dagblaðið Vísir - DV - 17.08.2001, Blaðsíða 6
FÖSTUDAGUR 17. ÁGÚST 2001
Fréttir
I>v
Búfjáreftirlit og lögreglan í eftirlitsferð að Höfða í Þverárhlíð:
Vikufrestur til
ýmissa úrbóta
- en engar staðfestingar um meinta slæma umhirðu hrossa
Lögreglan í Borgarnesi og fóður-
eftirlitsmenn fóru nýverið að Höfða
í Þverárhlíð, samkvæmt tilskipan
sýslumannsins í Borgarnesi, til að
kanna meinta slæma umhirðu og
ástand á hrossum þar. Höfðu sýslu-
manni og héraðsdýralækni borist
kærur þar að lútandi. Lögreglan og
búfjáreftirlitið hafa skilað sýslu-
mannsembættinu skýrslum í kjölfar
ferðarinnar. Ekki var talin ástæða
til aðgerða.
Hins vegar gáfu fóðureftirlits-
menn bændunum á Höfða vikufrest
til að koma tilteknum atriðum í lag,
svo sem að sleppa skepnum sem enn
voru hafðar á húsi. Auk lögreglu-
manna fóru héraðsdýralæknirinn,
fulltrúi yfirdýralæknis og fulltrúi
Búnaðarsambands Vesturlands í
eftirlitsferðina.
Búskaparhættir að Höfða hafa
valdið ágreiningi bænda og yfir-
valda um langt skeið, eins og DV
hefur áður greint frá. Fimm systkin
standa að félagsbúi þar. Þau hafa
búið þar með a.m.k. 1200-1400 fjár,
um 100 hross, mjólkandi kýr og
nautgripi. Búskapurinn er ekki
„heföbundinn" vegna fjölda búfjár.
Þá hafa bændur á Höfða smám sam-
an komið því á að gefa ánum úti
yfir vetrartímann og láta þær ganga
við opið.
í vetur fóru héraðsdýralæknir,
fulltrúi yfirdýralæknis og fulltrúi
Búnaðarsamtaka Vesturlands í eftir-
litsferð að Höfða. Þegar þeir komu að
bænum höfðu bændur lagt btl við
hlið heim að honum og bönnuðu eft-
irlitsmönnunum heimgöngu. Eftir
alllöng orðaskipti hurfu hinir síðar-
nefndu frá. Þeir skrifuðu samdægurs
bréf til sýslumannsembættisins í
Borgarnesi þar sem þeir óskuðu eft-
ir að hann leitaði úrskurðar um að-
gang þeirra að býlinu. Stefán Skarp-
héðinsson sýslumaður taldi hins
vegar að það væri héraðsdóms að
kveða upp slíkan úrskurð og þangað
beri því að sækja hann. Þannig stóð
málið þar tO nú að eftirlitsferðin var
farin að tilskipan sýslumanns á
grunni dýraverndunarlaga.
Aðspurður um hvað yrði þegar fé
kæmi af fjalli í haust sagði Stefán að
það væri mál sveitarstjórnarinnar.
Hún væri yfir búijáreftirlitinu og
gæti sett reglur um fjölda skepna i
byggðarlaginu. Hins vegar yrði
fylgst meö að ábúendur í Höfða
bættu úr þeim atriðum sem ábóta-
vant hefðu verið innan tilskilins
tíma. -JSS
Dómsmálaráðherra um fíkniefnainnflutning:
Engin ástæða
til uppgjafar
PV, SKAGAFIRDI:
Sólveig Pétursdóttir dómsmála-
ráðherra var ræðumaður dagsins á
Hólahátíð sem haldin var á dögun-
um. Fjallaði ráðherrann m.a. í ræöu
sinni um dómskerfið, löggæslu og
fíkniefnamál. Gerði hún að umtals-
efni það sem öðru hverju hefur
komið fram í umræðu hér á landi
aö stefna stjórnvalda gagnvart inn-
flutningi og dreifingu fikniefna hafi
mistekist og rétt sé að leyfa ein-
hverjar tegundir efna hér.
Um þetta sagði ráðherrann meðal
annars: „Mín skoðun er sú að við
eigum aldrei að sætta okkur við að
neysla fikniefna sé þáttur í lifi og
tilveru íslenskra ungmenna. Þótt
þessu böli hafi ekki verið útrýmt
hér á landi og ekki sé fyrirsjáanlegt
að það takist í bráð er engin ástæða
til uppgjafar. Ég er þeirrar skoðun-
ar að núverandi stefna skili okkur
árangri.
Þeir sem mest tala um að fíkni-
efnastefnan hafi brugðist vegna
þess að þrátt fyrir allt séu þessi
ólöglegu efni í umferð ættu að velta
því fyrir sér hvernig ástandið væri
í dag ef við hefðum ekki spymt á
móti,“ sagði ráðherrann og spurði:
„Væri staðan betri ef við hefðum
ekki lagt það sem við gerðum á um-
liðnum árum til löggæslu, meðferð-
ar og forvarna? Ég leyfi mér að full-
yrða að fikniefnaneysla væri miklu
alvarlegra samfélagsmein en nú ef
þannig hefði verið haldið á málum,“
sagði Sólveig Pétursdóttir dóms-
málaráðherra. -ÖÞ
DV-MYND ÖRN ÞÓRARINSSON
Árangur í fíkniefnamálum
Sólveig Pétursdóttir dómsmálaráöherra flutti ræöu í Hóladómkirkju. Hún telur
aö núverandi stefna í fíkniefnamálum skili árangri. Fíkniefnin væru enn alvar-
legra þjóöfélagsmein ef ekki heföi veriö hamlaö á móti.
Nemendur skortir í Grafarholti, segir formaður fræðsluráðs:
Unglingar fá einkaakstur
- ákveðið að bæta við áttunda bekk í Ingunnarskóla
„Við vitum enn
ekki nema um
einn eða tvo nem-
endur sem þurfa
á þessu að halda,
meira er það nú
ekki,“ sagði Sig-
rún Magnúsdótt-
ir, borgarfulltrúi
og formaður
fræðsluráðs, í
gær. „Það má
sem veldur okkur
DV-MYNDIR JG
Ný brú
Hér má sjá nýju brúna gægjast und-
an mótatimbrinu.
Hafnarfjörður:
Ný brú yfir
Lækinn
Ný brú er nú í smíðum og unnið
að verulegum endurbótum á gatna-
mótum Hverfisgötu og Lækjargötu í
Hafnarfirði. Verkinu á að ljúka 15.
september og þá mun Lækurinn
komast í sitt gamla, góða horf á
þessum slóðum. Þessum endurbót-
um er ætlað að auka verulega ör-
yggi gangandi vegfarenda, ekki síð-
ur en akandi.
Settar verða miðeyjar á Lækjar-
götu og umferðarljós, auk þess sem
gatan var breikkuð svolítið. Brúin
sem fyrir var reyndist ónothæf og
því var smíðuð ný og er hún helm-
ingi lengri en sú gamla. Það er verk-
takafyrirtækið Magni ehf. sem sér
um þessar framkvæmdir en þær eru
hannaðar af Linuhönnun/Landmót-
un. -DVÓ/JG
Sigrún
Magnúsdóttir.
segja að það
áhyggjum núna er hvað við erum
með fáa nemendur á skrá í Grafar-
holti. Það má eiginlega segja að
nemendur skorti,“ sagði Sigrún. 1
gær var ákveðið að bæta 8. bekk við
í Ingunnarskóla og þar með eru að-
eins tveir bekkir á unglingastigi
sem ekki verða í skólanum.
Þessir nemendur, einn eða
kannski tveir, munu fá skólaakstur
úr nýbyggingahverfinu í Grafar-
holti til skóla síns utan hverfis.
Þetta eru nemendur í 9. og 10. bekk
en hinn nýi skóli hverfisins, Ing-
unnarskóli, býöur kennslu í 1. til 8.
bekk til að byrja með. Hæg upp-
bygging hverfisins þýðir aö grunn-
skólanemendur verða fáir í hverf-
inu í vetur en fer þó væntanlega
fjölgandi þegar á líöur.
Sigrún Magnúsdóttir sagði í gær:
„Ég þori að fullyrða að aldrei í sögu
Reykjavíkur hefur grunnskóli verið
Ingunnarskóli
Yngri börnin á Grafarholti fá inni í skólanum en þeim eldri veröur ekiö annaö.
kominn í hverfi áður en íbúamir
eru fluttir i hverfið. Þama byrjum
við vissulega með færanlegar stofur
sem fluttar hafa verið úr Borgar-
holtshverfi, en í því hverfi opnar
eftir tíu daga skóli sem bandarískur
arkitekt hefur hannað, sérfræðing-
ur í hönnun skóla og hefur unnið
með foreldrum hverfisins. En tal
um kaos og klúður er gjörsamlega
út í hött.“
Sigrún vísar þar til þess að Guð-
laugur Þór Þórðarson borgarfulltrúi
D listans sagði í DV í gær að upp-
bygging 1 hverfinu frá hendi borgar-
innar einkenndist af kaosi og
klúðri.
Að sögn Sigrúnar er það vísinda-
lega sannað að unglingar þurfi meira
á félagsskap að halda en yngri börn
og í nýju hverfunum sé meira af
yngri börnunum. Hún segir að ung-
lingunum úr Grafarholti verði séð
fyrir vist annaðhvort í sínum gamla
skóla, eða þá í Réttarholtsskóla þar
sem er frekar fámennur skóli á ung-
lingastigi. Skólaakstur verður í boði
og þá væntanlega með leigubíl ef svo
fer sem horfir að nemendur verði
einn eða tveir.
í frétt DV í gær þar sem rætt var
um Borgarholtshverfí átti að sjálf-
sögðu að standa Grafarholtshverfi.
-JBP
Umsjón: Hörður Kristjánsson
netfang: hkrist@ff.is
Breyttar forsendur?
Fyrirhuguð nýlagning svokallaðs
Suðurstrandarvegar á milli Grinda-
víkur og Þorlákshafnar hefur farið
fyrir brjóstið á mörgum sem annt er
um skattpeninga,
almennings. Fram-
kvæmd upp á 1,1'
milljarð króna. Á I
Vef-Þjóðviljanum
er fast skotið á
þessar hugmyndir
og þar segir m.a.: ■
„Af hverju þarf allt I
í einu rándýran •
veg á milli Þorlákshafnar og Grinda-
víkur? Af hverju kemur enginn vit-
inu fyrir þá þingmenn sem stóðu í
því að berja þessa hugmynd í gegn?“
í heita pottinum spyrja menn hins-
vegar um hvort forsendur hafi ekki
breyst. Vegurinn hafi ekki síst orðið
til vegna baráttu Árna Johnsens og
Kristjáns Pálssonar fyrir oddvita-
sæti í nýju sameinuðu kjördæmi. Nú
sé Árni horfinn af pólitíska sviðinu
og því gæti veriö klókt hjá Kristjáni
að geyma þetta tromp uppi i erminni
til betri tíma,...?
Eins og úldið smjör!
Halldór Blöndal hjó ótt og títt í
Vinstri hreyfinguna - grænt framboð
í blaðagrein í Mogga 9. ágúst. Fann
hann hreyfingunni og formanni
hennar flest til
foráttu. Hreyfingin
væri á móti flest-
um, ef ekki öllum,
góðum málum.
Steingrímur J.
Sigfússon svarar í
sama miðli í gær
og kallar skrif Hall-
dórs „ryöbrandara"
og segir síðan: „Sérstaklega er leitt
að skynja geðvonskuna svo ekki sé
sagt biturðina sem leggur af ritsmið-
um hans eins og ódaunn. Þetta fram-
lag Halldórs Blöndals til stjórnmála-
umræðunnar minnir á smjör sem
upphaflega var sæmilega strokkað og
hæft til átu, en hefur kasúldnað í
sumarhitum og er nú ekki manni
bjóðandi...!“
Rekstrarhagræöing
Úrvalsdeildarlið KR og fyrrver-
andi Islandsmeistarar eiga ekki sjö
dagana sæla um þessar mundir.
Gengi liðsins í sumar hefur verið af-
leitt og nú berst
það á botninum
fyrir tilveru sinni
í deildinni. Til að
efla fjárhags-
grunninn var
stofnað KR-Sport
hf. og einnig stofnað sérstakt rekstr-
arfélag. í kjölfar brattrar niður-
sveiflu i ár og mikils kostnaðar og
skulda félagsins var tilkynnt að
rekstrarfélagið starfaði ekki lengur
og rynni í raun inn i KR-Sport. Allt
á þetta að stuðla að hagræðingu í
rekstri. í heita pottinum velta menn
fyrir sér hvað verði næst. Hvort KR-
Sport endi með sitt hafurtask á bar-
endanum á Rauða ljóninu ...?
Vantaði slagsmál?
Um síðustu helgi var haldin í
Bjamarfirði á Ströndum glæsileg
fjölskyldu- og menningarhátíð sem
nefndist Galdrastef. Þar komu m.a.
fram Megas og
hljómsveitin Sig-
ur Rós. Gestir
voru í kringum
1500 og allt fór vel
fram. Á vefsíðunni
Múrnum þykir
undrum sæta hvað
lítið hafi farið fyrir
þessari merkilegu
samkomu í fjölmiðlum. Þar velta
menn fyrir sér ástæðum og kannski
hafi vantað ráðherra til að klippa á
einhvem borða. Sennilega líði að-
standendur Galdrastefsins þó mest
fyrir að þar fór allt vel fram. Ekki
kuklað með fikniefni „eins og geng-
ur og gerist á útihátíðum", og heldur
ekki „viðunandi" fjöldi nauðgunar-
mála eins og hjá Einari Birtupabba
á Eldborg um daginn. Menn virðast
ekki einu sinni hafa getað slegist til
að komast í fréttirnar ...!