Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2001, Síða 2
2
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001
I>V
Fréttir
Holjgnskt par segist hafa orðið að halda vel á spilunum til að komast af í Rekavík:
Orvænting og vonleysi
við bágan kost í 8 daga
-segist kannski fara seinna til Hornstranda eftir að hafa verið bjargað
DV. VESTFJORÐUM:_________
„Við þurftum að hafa okkur öll við
til að komast af. Veðrið var vont og
landið erfitt. Stundum greip okkur
örvænting. Þá fórum við gjarnan í
hollenska orðaleiki og aðra leiki til
að dreifa huganum. Við reyndum
ýmsar leiðir úr Hvannadal, en allar
reyndust þær of erfiðar, ýmist varð
að klifra bratta kletta eða synda fyrir
ófærur," sagði Nel dem Breejen, lista-
kona frá Hollandi, sem dvaldi ásamt
manni sínum, Frank van Wijk kenn-
ara, í átta sólarhringa, löngum við ill-
an kost í Rekavík bak Hafnar á Horn-
ströndum.
Matur af skornum skammti
DV varð vitni að fagnaðarfundum
á bryggjunni í ísafirði í gær þegar
þau Frank og Nel hittu þá Jón Hall-
dór Pálmason, skipstjóra á Skutli ÍS-
16, og Ægi Hrannar Thorarensen sem
björguðu þeim daginn áður úr Reka-
vík. Hollenska parið hóf Horn-
strandafór sína frá Hesteyri þann 15.
ágúst er þau gengu þaðan til Homvík-
ur. Ætlunin var síðan að taka bát frá
Aðalvík til ísafjarðar þann 23. ágúst
eða á fimmtudag. Þá gerði hið versta
Unglingateiti í vesturbæ:
Lagt hald á
haglabyssur
Lögreglan í Reykjavík varð að
leysa upp unglingateiti í heimahúsi
í vesturbænum um miðnætti á
sunnudagskvöld. Sex ungmennum,
sem flest voru um fjórtán ára göm-
ul, var ekið heim. Á sama stað lagði
lögregla hald á tvær haglabyssur og
150 haglaskot sem lágu á glámbekk
í húsinu.
Lögregla telur það ábyrgðarhluta
þegar foreldrar samþykkja slík
veisluhöld ungmenna án þess að
nokkur fullorðinn sé viðstaddur. -aþ
Tunguháls:
Stórtækir sæl-
gætisþjófar
Brotist var inn í sendibíl, i eigu
lakkrísgeröarinnar Kóluss við
Tunguháls í gær. Að sögn lögreglu
höfðu þjófarnir á brott með sér mik-
ið magn af sælgæti en verðmæti
þess er taliö nema um 330 þúsund
krónum. Auk þess voru nokkrar
skemmdir unnar á sendibílnum.-aþ
DV-MYND HARI
Á Kjarvalsstöðum
Ólafur Ragnar Grímsson, forseti
íslands, heilsar Gary Doer, forsætis-
ráðherra Manitoba í Kanada, á Kjar-
valsstöðum í gær. Doer opnaði form-
lega málverkasýningu á verkum Vest-
ur-íslendingsins G. N. Louise Jonas-
son og við það tilefni færöi hann ís-
lensku þjóðinni tuttugu málverk sýn-
ingarinnar að gjöf. Doer er staddur
hérlendis í boöi Davíös Oddssonar for-
sætisráöherra. Hann átti fund meö
ráðherrum í gær og sat hádegisverð á
Bessastöðum. í dag er feröinni heitið í
Vesturfarasetrið á Hofsósi.
DV-MYND VALDIMAR HREIÐARSSON
Þakkarstund fyrir lífgjöf á bryggjunni á ísafiröi.
Frá vinstri, Ægir Hrannar Thorarensen og Jón Halldór
Páimason, skipstjóri á Skutli, með þeim Frank van Wijk
og Nel den Breejen sem þeir drðgu upp úr sjónum á
Hornströndum. Fólkið hittist á ný við skipshlið í gær eftir
giftusamlega björgun á sunnudag.
veður, norðaust-
an hvassviðri
með kalsarign-
ingu og þoku til
fjalla.
Mjög erfitt er
yfirferðar á þess-
um slóðum, og
Nel hrasaði í ein-
stigi vegna hvass-
viðrisins. Ákváðu
þau þá að halda
til baka í
Hvannadal, sem
er ofan Rekavík-
ur. Þar dvöldu
þau í tjaldi þar til
þeim var bjargað.
Matur var af
skornum
skammti og byrj-
uðu þau að skammta hann.
Veifuðum og kölluðu en þeir
sáu okkur ekki
„Þegar við vöknuðum í fögru veðri
á sunnudaginn sögðum við hvort við
annað: „Þetta er dagurinn okkar, í
dag komumst við í burtu.“ Við pökk-
uðum niður og vorum í þann veginn
að leggja af stað þegar við komum
auga á þrjá báta á sjónum fyrir neðan
okkur. EVrst héldum við að þetta
væru björgunarskip sem væru komin
til að leita að okkur. Við veifuðum og
kölluðum, en þeir sáu okkur ekki. Þá
sáum við að þetta voru fiskibátar.
Frank veifaði þá rauðum lóðabelg,
sem við höfðum fundið í fiörunni, og
þá sáu sjómennirnir okkur. Við ætl-
uðum að æða niður klettana ofan í
fjöru, en sjómennirnir bentu okkur á
að fara yfir i Rekavík, því að þar er
fjara,“ segir Nel.
Skutul tók niðri rétt við land og
urðu þau Frank og Nel því að vaða
allt upp undir axlir til að ná til báts-
ins. „Það var stórkostlegt að sjá bát-
ana og að vera síðan komin um borð.
Eftir að þeir Jón og Ægir höfðu dreg-
ið mig um borð þá hugsaði ég að þetta
er í fyrsta skipti á ævinni sem ég kem
um
borð í fiskibát," sagði Nel og hló.
Köld og hungruð
Hollenska fólkið var blautt, kalt og
hungrað þegar um borð var komið.
Þeir Jón og Ægir hlúðu að þeim eftir
fóngum, gáfu þeim samloku og kók en
þau voru orðin slæm í maga eftir rýr-
an kost í marga daga.
En þau Nel og Frank höfðu tekið
gleði sína á ný eftir hrakningamar.
„Við komum aftur til Islands, jafnvel
til Hornstranda," sögðu þau. Parið
heldur heim til Hollands á laugardag.
-VH/Ótt
DV-MYND SIGURÐUR K. HJÁLMARSSON
Erfitt að hýsa Skaftfelling
/ gær var unnið hörðum höndum við að koma gamla Skaftfellingi í hús í Vík. Fjöldi Víkurbúa og ferðamanna fylgdist
með þegar tveir stórir kranar tóku bátinn af dráttarvagninum sem hann var fluttur á til Víkur. Þokkalega gekk að koma
skipinu inn í húsið en því er samt ekki að fullu lokið þegar þetta er skrifaö.
Vinna við Smáralind samkvæmt áætlun:
Um 800 manns að störfum
- innrétting verslana að komast á skrið
Um 800 manns eru nú að störf-
um á byggingarsvæði Smáralind-
ar. Vinna er hafin á næturvöktum
við einstaka þætti verksins og að
sögn byggingarstjóri gengur allt
samkvæmt áætlun.
Völsun álsins í síðasta áfanga
klæðningar þaks Smáralindar er
lokið og er verið að leggja það á
þakið. Búið er aö malbika um 70%
þess sem þarf að malbika á bíla-
stæðum. Þá er innrétting verslana
að komast á fullt skrið.
Fyrir framan stórt innitorg sem
er undir gleri í byggingunni og
kallast Vetrargarður er Sumar-
garðurinn. Þar er unnið af krafti
að grásteinshleðslu en alls verða
hlaðnir um 350 fermetrar. Þar fer
lítið fyrir stórvirkum vinnuvélum
eða nýjasta tæknibúnaði. í slíkri
DV-MYND H.KR,
Með hamar og meitil að vopni
Grjóthieösiumennirnir Björn og
Guðni sjá fyrir sér mörg hamars-
höggin áöur en frágangi Sumar-
garðsins við Smáralind lýkur.
vinnu er notast við ævafomar að-
ferðir og handbragðið sótt aftur til
steinaldar. Unnið er með meitli og
sleggju en hver maður nær að
hlaöa um 2-3 fermetra á dag.
Steinssmiðirnir Björn og Gunni
voru þar önnum kafnir þegar
blaðamann DV bar að garði fyrir
helgina. Þeir sögðu að það væru
mörg tonnin af grjóti og mörg
hamarshöggin sem færu í þetta
verk.
Hellulögn í eyjum á bílastæðum
er komin langt á veg og einnig
hellulagning og lagning snjó-
bræðsluröra meðfram miðhúsi að
sunnanverðu. Alls verða hellulagðir
um 8.000 fermetrar og malbikaðir
um 70.000 fermetrar á svæðinu við
Smáralind.
-HKr.
Verðlagning gagnaflutninga
Samgönguráð-
herra hefur skipað
starfshóp til að fara
yfir kostnað við
gagnaflutninga og efl-
ingu fjarskiptaneta
og Qarskiptaþjónstu
á íslandi. Notendur
gagnaflutningsþjón-
ustu hafa gagnrýnt verðlagningu fyrir
gagnaflutning og leigulínur þrátt fýrir
ítrekaðar yfirlýsingar stjómvalda og
Alþingis um það markmið að tryggja
beri ódýran aðgang að nægjanlegri
flutningsgetu um allt land.
M
Hagnaöur Símans
Rekstrarhagnaður Símans fyrir af-
skriftir var 3.551 milljón króna en var
3.337 milljónir fyrir sama tímabil í
fyrra. Veltufé frá rekstri nam 2.638
milljónum króna en 2.734 milljónum
króna á sama tíma í fyrra.
Nýr forstjóri
Nýr forstjóri tekur við hjá flugfélag-
inu Atlanta 1. september. Hafþór Haf-
steinsson tekur þá við forstjórastarf-
inu af Amgrími Jóhannssyni. Hafþór
hefur verið flugmaður og flugrekstrar-
stjóri hjá Atlanta frá 1992 og fram-
kvæmdastjóri markaðssviðs siðan í
fyrra.
Um 900 kærur
Breytt reglugerð
um húsbréf og hús-
bréfaviðskipti, sem
Páll Pétursson félags-
málaráðherra kynnti
í gærmorgun, veldur
vonbrigðum, segir
Guðrún Ámadóttir,
formaður Félags fast-
eignasala. Á niunda hundrað kærar
hafa borist Fasteignamati ríkisins
vegna branabótamats frá miðjun júní
og vilja íbúðaeigendur fá hækkað mat.
- RÚV greindi frá.
Blómin á haugana
Miklu magni af blómum er hent í
viku hverri og er þar um að ræða um-
framframeiðslu sem ekki fæst seld
lægra verði frá heildsölum tfl blóma-
sala. - Fréttablaðið greindi frá.
Samgöngu ráöherrar funda
Sturla Böðvarsson samgönguráð-
herra situr nú fund samgönguráðherra
Norðurlandanna í Bjömeborg í Finn-
landi. Jafnframt hittast nú í fyrsta
skipti samgönguráðherrar Norður-
landanna og samgönguráðherrar
Eystrarsaltsríkjanna og ræða ýmis
sameiginleg hagsmunamál þjóðanna á
sviði samgangna.
Lánshlutfall hækkað
Samkvæmt nýrri
reglugerð félagsmála-
ráðherra lánar
íbúðalánasjóður nú
65% eða 70% af kaup-
verði íbúðar en þó
aldrei meira en sem
nemur 85% af bruna-
bótamati. Þessi
breyting á að vega upp misgengi á
markaðsverði og lánum vegna nýs
brunabótamats sem tekur gildi um
miðjan september.
Ætla að kæra
Á fundi stjómar Afls, starfsgreinafé-
lags Austurlands, í gær var samþykkt
að kæra til umhverfisráðherra úr-
skurð Skipulagsstofnunar um Kára-
hnjúkavirkjun. - RÚV greindi frá.
Tímamótasamningur
Ólafur Kjartan Sigurðarson var í
gær fyrsti söngvarinn tfl þess að und-
irrita fastráðningarsamning við Is-
lensku óperuna. Samningurinn mark-
ar tímamót í íslensku tónlistarlífi en
þetta er í fyrsta sinn sem gerður er
slíkur samningur við söngvara hér á
landi. -HKr./aþ