Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2001, Side 9

Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2001, Side 9
9 ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001 I>V _____________________________________________________________________________Neytendur Kjúklingabring- ur með spínat- fyllingu Eins og fram kemur hér á síöunni hefur nýtt fyrirtæki haflö innrás sína á kjúklingamarkaðinn. í fram- haldi af því má búast við einhverj- um verðlækkunum þó ekki sé það nú alveg víst. En fari svo er ekki úr vegi að nota tækifærið og elda kjúkling oft- ar þvi hann er bæði holiur og góð- ur. Hér er uppskrift að einum slík- um rétti sem ætti að kæta sælkera landsins. 4 beinlausar kjúklingabringur 3 msk. matarolía tU steikingar Skerið djúpar raufar i hliðarnar á bringunum svo hægt sé að fyUa þær. Setjið spínatfyUinguna í, brúnið siðan bringurnar í heitri olíu, bragðbætið með salti og pipar, leggið í eldfast form og ofnsteikið við 200° C í 20 mínútur. Skerið hverja bringu í tvennt þegar borið er fram. Spínatfylling 100-150 g spinat 1 kjúklingabringa, hamflett 1 eggjahvita 1 dl rjómi salt og pipar Skerið kjúklingabringuna í bita og setjið í matvinnsluvél ásamt eggjahvítu. Maukið, bætið rjóma saman við og síðan spínati, salti og pipar. Setjið bringurnar í lokið. Sósa og meðlæti 200 g litlir sveppir 200 g spínat 2 laukar 2 dl hvítvín, óáfengt 1 peli rjómi 1 kjúklingateningur frá Knorr 2 msk. maizenamjöl eða sósujafnari 3 msk. matarolía Saxið laukinn, skerið stærstu sveppina í tvennt. Léttbrúnið lauk- inn í oliunni, bætið sveppunum á pönnuna og síðan spínatinu. Steikið áfram í 1-2 mínútur. Þá er hvítvíni, rjóma og kjúklingakrafti bætt á pönnuna, suðan látin koma upp og sósan þykkt með sósujafnaranum ef með þarf. Með þessum rétti er gott að bera fram gróft brauð. Úr Ferski og framandi íslandsfugl, nýtt kjúklingafyrirtæki: Munum ekki keppa við sýktar vörur - segir Auðbjörn Kristinsson framkvæmdastjóri Kjúklingur rifinn út íslenskir neytendur kunna vel aö meta kjúkling, ekki síst ef hann er á lágu veröi. Því kætast þeir ef til veröstríös kemur en nýtt kjúklingafyrirtæki setti sínar fyrstu vörur á markaö í síöustu viku. Myndin er tekin fyrir nokkru þegar ódýrir kjúklingar voru til sölu í verslun einni á höfuðborgarsvæöinu. „Megnið af þeim kjúklingi sem seldur er frosinn á íslandi í dag er sýktur af salmonellu eða campylobacter og við munum ekki keppa á þeim markaði," segir Auð- björn Kristinsson, framkvæmda- stjóri íslandsfugls sem er nýtt fyrir- tæki á kjúklingamarkaði. Islandsfugl markaðssetur sig fyrst og fremst sem fyrirtæki sem framleiðir gæðavöru og vonast til að geta boðið lægra verð en samkeppnisaðilarnir. Aðspurður hvort verð- stríð sé i uppsiglingu segir Auðbjörn að það sé undir'öðrum komið en íslandsfugl muni mæta samkeppninni. „Við ætl- um hins vegar ekki að keppa við vöru sem er ekki í lagi. Því getur vel verið að hægt verði að fá ódýrari vöru sem ekki hefur komist 'í gegnum heilbrigðisskoðun ein- hvers staðar en við mun- um ekki keppa við það. Það er tvennt ólíkt, hvort varan er í lagi eða hvort hún er sýkt.“ Allt kapp verður lagt á að óæskilegar bakterí- ur skjóti ekki upp kollin- um hjá hinum nýja framleiðanda og því verður strangt innra gæðaeftitlit og stífari heilbrigðis- og sótt- vamakröfur en lög og reglur kveða á um í gangi hjá íslandsfugli. Þær reglur sem gilda í dag leyfa sölu á sýktum kjúklingi ef hann er seld- ur frosinn. Þannig að stærstur hluti frysts fugls er smitaður, segir Auðbjörn, en tekur fram að eina kjúklingabú- ið sem hann viti um og hefur verið að frysta fugl án þess að hann sé smitaður sé ísfugl. Góð sala í vikunni íslandsfugl hóf starfsemi i febrú- ar og fyrir skömmu komu fyrstu af- urðir þess á markað. Fyrirtækið er í Dalvíkurbyggð og gert er ráð fyrir að slátrað verði um 14 tonnum af kjúklingum á viku og ársframleiðsl- an verði um 6-700 tonn sem er um 20% af markaðnum. Starfsemin fer fram á þremur stöðum, varpstöð er á Árskógsströnd, eldishús í landi Ytra-Holts og sláturhús, vinnslustöð og útungunarstöð á Dalvík. Auðbjörn segir að ef neytendur taki fyrirækinu vel muni þeir njóta þess í verði. „Salan fyrstu vikuna var mjög góð þannig að þetta lítur allt ljómandi vel út og viðbrögðin hafa verið slík aö við erum þegar komnir með áform um stækkun á starfseminni til að geta mætt þörf markaðarins. 1 siðustu viku seldum við eingöngu heila kjúklinga en í þessari viku koma bitar á markað. Verðiö verður ívíð betra en verið hefur á slikri vöru hingað til.“ Kílóverðið á ferskum kjúklingum frá íslandsfugli hefur verið 399 kr. og hefur hann eingöngu verið seld- ur í Hagkaupi en von er á honum í fleiri verslanir á næstunni. Þá verð- ur verðið væntanlega eitthvað hærra. Þrátt fyrir það er kjúklingur orðinn eitthvert ódýrasta kjötið sem islenskum neytendum býðst í dag. „Það á að vera hægt að framleiða gæðakjúkling á góðu verði og það er skylda framleiðendanna að skila því til neytenda,“ segir Auðbjörn. -ÓSB Kjúklingar á búi Nokkra slíka þarf til aö uppfylla þörf íslenska markaðsins en hún fer sífellt vaxandi. Kjúklinga- kjöt er hollt og gott auk þess sem veröiö er af- skaplega hagstætt miöaö viö aörar kjötvörur. Fréttatilkynning frá Manneldisráði: Svali kemur ekki í staðinn fyrir grænmeti og ávexti Undanfarna daga hafa foreldrar ungra skólabarna fengið í hendur bréf frá fyrir- tækinu Vífilfelli, þar sem koma fram alvar- legar rangfærslur um hollustu sykraðra svaladrykkja. í bréf- inu er foreldrum talin trú um að Svali eða aðrir sykraðir svala- drykkir geti komið i staðinn fyrir ávexti í fæði bama og að Svali í nestisboxinu sé því ágæt lausn fyrir for- eldra sem vilja senda böm með ávexti í skólann. Til að bæta gráu ofan á svart er tvívegis vísað í Manneldisráð í bréfinu og þannig gefið í skyn að ráðið sé sammála þessum staðhæfingum. Þarna er heldur betur hallað réttu máli því Manneldisráð hefur þvert á móti hvatt til þess að börn borði ávexti en drekki helst vatn eða léttmjólk í skólanum - ekki sykraða svala- drykki. Kannanir Manneldisráðs hafa sýnt að íslensk böm borða óvenju- lítið af grænmeti og ávöxtum. Þess- ar matvörur hafa að geyma mikið af hollustuefnum sem skipta máli fyrir heilsu barna til framtíðar. Hins vegar innbyrða þau kynstrin öll af sykri og mun meira en jafnaldrar þeirra í nágrannalöndun- um. Þar sem Svali er tveir þriðju hlutar sykrað og bragðbætt vatn en aðeins einn þriðji ávaxtasafi er hann síður en svo ákjósan- leg leið til að auka neyslu barna á ávaxtavörum. Syk- urneysla íslenskra barna er miklu meiri en góðu hóíl gegnir. Gosdrykkir og sykraðir svaladrykkir eiga þar drjúgan hlut að máli og þvi er síst af öllu ástæða til að hvetja til neyslu sætra drykkja undir hollustumerkjum. ffte§ts íírvel |gnáffii»s uí kt'MmméMm. a líí é tih t v gl u i: inðvörur í úrvali cr Vi5 Fellsmúla Simi 588 7332 www.heildsoluverslunin.is OPK>: Mónud. - föstud. kl. 9-18 Laugord. kl. 10-14 IHW fjil

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.