Dagblaðið Vísir - DV - 28.08.2001, Page 24
28
ÞRIÐJUDAGUR 28. ÁGÚST 2001
Tilvera
1 í f 1 Ö
E F T I R V I N N U
Kvöldganga og
kúmentínsla
X kvöld, þríðjudaginn 28. ágúst,
verður farið í síðustu kvöldgöngu
sumarsins í Viðey og hefst hún
eins og vanalega með siglingu yfir
sundið kl. 19.30. Gangan verður
með óvenjulegu sniði því ásamt
því að fara um vesturhluta
eyjunnar og skoða þá
leyndardóma sem hún hefur að
geyma verður boðið til
kúmentínslu. Fólk sem hefur
áhuga á tínslunni er því beðið um
að koma með skæri og poka til
tínslunnar. Þeir sem hafa áhuga á
að tína kúmen en komast ekki í
kvöld og vita ekki hvernig það
lítur út geta haft samband við
leiðsögumann og mælt sér mót í
tínsluna út vikuna í síma 898-
2570. Fyrir ferðina í kvöld er
nauðsynlegt að fólk klæði sig eftir
veðri og verði í góðum skóm.
Leiðsögnin er án endurgjalds en í
ferjuna kostar aðeins kr. 400 fyrir
fullorðna og kr. 200 fyrir börn.
Klassík
ÞRIÐJUDAGSTONLEIKAR Síðustu
þriðjudagstónleikar í sumar-
tónleikaröð Listasafns Sigurjóns
Ólafssonar veröa haldnir i kvöld
klukkan 20.30. Þá munu þau
Ingibjörg Guðjónsdóttir sópran, Einar
Jóhannesson klarinettuleikari og
Valgerður Andrésdóttir píanóleikari
flytja verk eftir Louis Spohr, John
McCabe, Franz Lachner, Eyþór
Stefánsson, Karl 0, Runólfsson, Jón
Asgeirsson, Jórunni Viðar og Jón
Þórarinsson.
Fyrirlestrar
FYRIRLESTUR TIL MEISTARA-
PROFS I dag kl. 16.15 mun Oskar
Halldórsson Holm fiytja fyrirlestur
um meistaraþrófsverkefni sitt viö
eðlisfræðiskor raunvísindadeildar
Háskóla íslands. Fyrirlesturinn, er
ber heitiö Varmaeiginleikar
segulmagnaðra nifteindastjarna,
veröur haldinn í stofu 158
í VR-II, húsi verkfræöi- og
raunvísindadeildar Háskóla íslands
viö Hjaröarhaga. Hann er öllum
opinn.
FYRIRLESTUR Á JÖKLASÝNINGU
Komið er aö síðasta fyrirlestri
sumarsins á,Jöklasýningunni á Höfn
í Hornafiröi. í kvöld mun Helgi
Björnsson, jöklafræöingur á
Raunvísindastofnun HÍ, flytja erindi
sem varðar m.a samgöngur í
héraðinu. Fyrirlesturinn, sem erí
máli og myndum að vanda, fer fram
í bíósal Sindrabæjar og hefst kl.
20.00. Aðgangseyrir er kr. 400 og
veitir hann auk þess aðgang að
sýningunni.
Ljóðadagskrá
UÓÐADÁGSKRÁ I KÁFFÍ
LEIKHUSINU Heim og saman
nefnist Ijóðadagskrá í tali og tónum
í Kaffileikhúsinu i Hlaövarpanum
(Vesturgötu 3 b) í kvöld kl. 21.00.
Kristín Bjarnadóttir, Ijóðskáld og
söngkonan, og lagahöfundurinn Nína
Björk Elíasson bjóöa sýnishorn af
því sem þær eru að fást við hvor á
stnu sviði og í samvinnu. Kristín les
úr Ijóðum sínum og Nína Björk
Elíasson flytur spánný lög sín viö
Ijóö hennar. Söngkonan Nína Björk
mun einnig syngja lög sín viö Ijóð
nöfnu sinnar Árnadóttur, svo og Ijóð
fleiri íslenskra skálda, m.a. Sigurðar
Pálssonar.
SJá nánar: Lífið eftir vlnnu á Vísi.is
Nafnið er tilfinningamál
Aðalbjörgvin, Fryolf, Hnikarr,
Jámsíða, Ben, Vídó og Werner eru
meðal þeirra karlmannsnafna sem
mannanafnanefnd á vegum dóms-
málaráðuneytisins hefur hafnað á
síðustu árum. Kvenmannsnöfnin
Anastasia, Arnapála, Satanía, Axel,
Ýri, Veronica og Viborg fengu sama
dóm. Á síðasta fundi nefndarinnar
hlutu karlmannsnöfnin Príor og
Anthony hins vegar náð fyrir aug-
um nefndarinnar og hafa nú verið
færð á mannanafnaskrá.. En hvemig
veit fólk hvaða nöfn það má gefa
börnum sínum? Andri Árnason, lög-
fræðingur og formaður Manna-
nafnanefndar svarar því: „Það er
skylda hvers foreldris að athuga
hvort það nafn sem það velur barni
sínu sé á mannanafnaskrá. Ef svo er
ekki leitar það ýmist sjálft til nefnd-
arinnar og óskar eftir úrskurði
hennar eða til prests sem þá snýr
sér til nefndarinnar fyrir hönd for-
eldra.“
Endurskírn
- Kemur aldrei fyrir að búið sé að
skíra barn þegar i ljós kemur að
nafnið fæst ekki skráð?
„Jú, það kemur fyrir og það er
auðvitað versta mál. Þá er fólki
nauðugur einn kostur að finna ann-
að nafn á barnið."
- Er nefndin svo staðföst í trúnni
að hún láti aldrei undan þrýstingi?
„Nefndin vinnur samkvæmt
ákveðnum reglum sem eru ekkert
voðalega strangar. Þær hafa verið
rýmkaðar frá því sem áður var.
Meginreglan varðandi aðainöfn
fólks er að þau taki viðunandi eign-
arfallsendingu þannig að þau sam-
rýmist islenskri málhefð. Stafasam-
setningin þarf líka að vera þannig
að nöfnin séu rituð samkvæmt ís-
lensku málkerfi. Reyndar er til að
nöfn hafi unnið sér hefð í íslensku
máli þótt þau séu með ci eða séu frá-
brugðin íslenskum nöfnum að ein-
hverju öðru leyti.“
Andri Árnason, formaður Mannanafnanefndar
“Ein vinnureglan sú aö nafniö megi ekki vera nafnþega til ama. “
DV-MYND EJ.
- Eru svo ekki einhverjar sérregl-
ur um millinöfn?
„Jú, þau geta verið lík gömlu ætt-
arnöfnunum. Þau mega ekki hafa
nefnifallsendingu. Það má skíra
Arnfjörð en ekki Arnarfjörð.
Endingin aðalþröskuldurinn
- Er mikið um að þið fáið til um-
sagnar nöfn sem þið getið ekki sætt
ykkur við?
„Já, nokkuð. Sem dæmi má nefna
að fyrstu sex mánuði þessa árs
komu 57 nöfn inn á borð nefndar-
innar og þar af var 20 hafnað. Segja
má að endingin sé oft aðalþröskuld-
urinn. Svo má ekki gefa stúlku
strákanafn og öfugt. Ein vinnuregl-
an er sú að nafnið megi ekki vera
nafnþega til ama.“
- Er alltaf eining innan Manna-
nafnanefndar þegar fjallað er um ný
nöfn?
„Vissulega eru oft umræður um
hvort einstök nöfn teljist vera fylli-
lega í samræmi við lögin.“
Jökla og Jaki
- Hvert er fáránlegasta nafnið
sem þið hafið fengið inn á ykkar
borð?
„Nafnaval er tilfinningamál hjá
fólki þannig maður gantast ekki
með nöfnin sem nefndin fær til úr-
skurðar."
- En geturðu ekki sagt frá nýjum
nöfnum sem hafa verið vel valin að
áliti nefndarinnar?
„Jú, ég get nefnt kvenmannsnöfn-
in Sera og Jökla og karlmannsnafn-
ið Jaki. Þetta eru nöfn sem taka
ágætlega eignarfallsendingum."
- Fáið þið aldrei kvartanir frá
fólki sem er óánægt með nöfnin sín?
„Nei, vegna þess að það getur
auðveldlega skipt með því að sækja
um það hjá Hagstofunni."
Gun.
Eins og hjá ömmu
Stofulampar prýdóu sviöiö og gáfu tónleikunum svolítiö heimiiisiegt yfir-
bragö.
Strengirnir stroknir
Hákon Aöalsteinsson gítarleikari sýndi snilldartakta.
DV-MYNDIR EINAR J.
Seiðmögnuð tónlist
Björk Viggósdóttir, hljómborösleikari Lúnu, galdraöi fram ýmis kynjahljóö á
tónleikunum.
Lúna gefur út sína fyrstu plötu:
Tónlist frá
tunglinu
Hljómsveitin Lúna gaf nýverið út
fyrstu plötu sína sem heitir því
skemmtilega nafni Leyfðu mér að
þegja þögn þinni. Af þessu tilefni
hélt hljómsveitin tónleika í Tjamar-
biói á fóstudaginn þar sem hún lék
af nýju plötunni. Fjöldi manns var á
tónleikunum enda hefur Lúna getið
sér gott orð í tónlistarheiminum
fyrir kröftuga og kynngimagnaða
rokktónlist sína.