Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Side 6
Lotið
fitla f
friði
Hrafnkell skrifar:
Eg veit að það er aðeins að núa salt
í sárin með að fara rifja upp háðu-
lega útreið þá er íslenska landsliðið í
fótbolta fékk f tveim seinustu leikj-
um sfnum í undankeppni heims-
meistaramótsins í fótbolta. En ég
get hreinlega ekki orða bundist. I
seinasta tölublaði Fókuss var í dálk-
inum I og úr fókus Atli Eðvaldsson
settur úr fókus. Einhver bitur ein-
staklingur í ritstjórn blaðsins tók sig
þar til og dró hæfileika Atla sem
fótboltaþjálfara f efa, þrátt fyrir
einstaklega farsælan feril á því
sviði, og heimtaði afsögn hans. Þar
gæti ég ekki verið meira ósamála.
Ég tel hann hvergi eiga sök. Það er
kannski hans helstu mistök ef ein-
hver eru að hreinlega skipta ekki út
leikmönnum. Margir ofaldir at-
vinnumenn landsliðsins erlendis,
eins og fram kom í opnugrein sein-
asta blaðs, hafa greinilega ekki
metnað í sér til að spila fyrir lítilfjör-
legt land sitt sem þeir hafa nú yfir-
gefið. Þeim á því að skipta út og í
staðinn á nota þá hæfileikaríku og
metnaðarfullu drengi er tuðruspark
stunda enn í heimahögum. Þótt
möguleiki á árangri væri kannski
snöggtum minni þá gæfu þeir sig
alla vega alla í verkefnið. Atli
áfram, oföldu kálfana út.
Lesendum Fókuss gefsc nú kostur á
að senda inn hugleiðingar sínar, hrós
og kvartanir á netfangið
fokus@fokus.is. Besta bréfið í viku
hverri birtist svo á siðum blaðsins.
whitetrash
.com
„Ert þú manneskjan sem móðir þín
varaði þig við? Er andfélagsleg hegðun
það sem þér finnst skemmtilegast? Þá
ert þú á réttum stað.“ Þetta eru skila-
boðin sem að lesa má á upphafsfðu
whitetrash.com en þetta er sérlega
áhugaverð síða sem inniheldur allt
sem að vekur lukku hjá Bandaríkja-
mönnum sem búsettir eru í Suðurríkj-
unum. Kjörorð síðunnar er einmitt
„Breakin' the Law!“ eða „Brjótandi
lög!“ Aðstandendur síðunnar hafa að
mestu lagt hana undir mótorhjól,
mótorhjólagellur og alls konar efhi
tengt því. Þar er einnig að finna „The
School of Bad ldeas“ sem kennir fólki
að hegða sér eins og alvöru mótor-
hjólatöffara sæmir.
NetÖolleríið
Dauðasveitir öfgasinnaðra byssumanna eru nú á vappi um hálendið í þeim
tilgangi að stráfella blásaklausar og forviða rjúpur. Ákveðinn hluti þess-
ara dauðasveita virðist álíka vitgrannur og fiðurféð sem ofsótt er og gerir
sig að fíflum í fréttum íslenskra fjölmiðla ár eftir ár sökum illa skipulagðr-
ar helfarar og áttavillu í kjölfar þess. Fókus vill ólmur hjálpa þessum
mönnum til að líða sem best meðan beðið er eftir björgun.
LÍfsnauSsynjar
rjúpnaskyttu
rammvilltrar
Vasareiknir
Fyrir samviskusama rjúpnarata sem vilja
gera kostnaðaráætlun um hvernig þeir
ætla að greiða kostnað við björgun til
baka.
Eldavél
Hentug ef björgun er lengi
á leiðinni og rjúpan (ef
einhver fæst) orðin nógu
hangin til að matreiðslu.
JÖKLATJALD OC
SVEFNPOKI
Þak yfir höfuðið og
einangrun um kropp-
inn fyrir rammvillta.
Skófla
Góð til að grafa sig í
fönn ef tjaldið gleymist.
CÚMMÍDÚKKA
Kynþörfin spyr ekki um stað og
stund og fátt um gleðihús á há-
lendinu. Annar valkostur er
hreinlega að taka konuna með í
ógöngurnar.
Biblían
Einhvem tímann fær fólk nóg
og hættir að bjarga rjúpnarötum.
Þá er gott að hafa hið helga orð til að
hugga sig við hina hinstu stund.
Rjúpnarops-orðabók
Því verðandi fómarlömb skyttunnar eru
kannski þau einu sem hægt er að tala við svo
dögum skiptir.
Spóla með umferðargný
Fjallakyrrðin verður yfirþyrmandi eftir
langa villigöngu, sama hversu mikið
náttúrubarn skyttan er.
Tarotspil
Óvissan um björgun getur verið óbæri-
leg og því ekki óvitlaust að gá hvað æðri
máttarvöld hafa um málið að segja.
Brennivín
... og nóg af því. Vel hífaður maður
tekur minna eftir því þegar líkam-
inn dofnar upp í kuldanum og
vosbúðinni.
You couid use the Lavatory Diease.
Þú gætir notað klósettið...
Þarna eru ágengir framleiðendur og
sölumenn á ferð.
Til að fara á klósettið þarftu að fara aftur í átt
að afturendanum á þér.
f ó k u s
Þetta er víst nestisbox. Framleiðendurnir Neyðargildra. Trap þýðir vfst
geta varla verið alveg heilir. tröppur á hollensku en hver veit
það svo sem.
6
19. október 2001