Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Blaðsíða 12
TÍskufflmolar
*
>■
>•
Jk.
NotaSir
gullmolar
Notaður fatnaður hefur síðast-
liðin ár verið mikið notaður hjá
tískuliðinu, þeim sem vilja
skapa sér sérstöðu og vera
leiðandi í tískuheiminum. Þar
sem stefnur og straumar und-
anfarinna ára hafa verið sótt
til liðinna tíma er svo komið að
notuð föt eru orðin gífurlega
vinsæl og hafa víða erlendis
rokið upp í verði. í stuttu
spjalli við Heiðu í Spútnik
komumst við að því hvað sé
svona sérstakt við notuð föt og
hver séu bestu kaupin fyrir vet-
urinn.
Hönnuðir hafa undanfarin ár
verið í nostalgíukasti og horft
löngunaraugum til liðinna ára.
Sjöundi, áttundi og níundi ára-
tugur 20. aldarinnar hafa verið
hvað mest áberandi, þó svo að
þetta árið sé horft enn lengra
aftur, eða til loka 19. aldarinnar.
Vegna þessa hafa notuð föt orðið
gífurlega vinsæl.
I dag eru það ekki bara ung-
lingar í uppreisnarhug sem
ganga í notuðum rifnum galla-
buxum, skreyttum leðurbeltum
8. áratugarins, heldur er þetta
orðið eftirsóknarvert hjá há-
tískuliðinu. Stílistar stóru tísku-
húsanna keppast um að gramsa
í gegnum notuð föt á mörkuðum
og í verslunum. Þeir borga oft
fyrir þau of fjár og færa þau
vinnuveitanda sínum sem fær
svo innblástur frá liðnum tíma.
Sex mánuðum síðar sjáum við af-
raksturinn á sýningarpöllunum
og heldur þessi eilífa hringrás
tískunnar áfram.
„Second hand“ fíkill
Hér á Islandi eru nokkrar
verslanir sem sérhæfa sig í því að
Heiða Agnarsdóttir
Pels, prjónahúfa og gamlar Levi's 517 gallabuxur eru
ómissandi fyrir veturinn að mati Heiðu.
selja notuð föt. Spútnik er sú
stærsta og hefur hún notið mik-
illa vinsælda í áratug. Hún hef-
ur ekki farið varhluta af tfsku-
straumum sfðustu ára og er nú
flutt á Laugaveginn og viðskipt-
in blómstra sem aldrei fyrr.
Heiða Agnarsdóttir er starfs-
maður verslunarinnar og gegnir
þvf hlutverki að kaupa inn fatn-
aðinn og sjá um útlitið á búðinni.
„Eg er algjör „second hand“ fík-
ill og hef keypt mér notuð föt frá
því að ég var 12 ára,“ segir hún.
Heiða hefur unnið í Spútnik,
með hléum, síðastliðin sex ár. Þó
að hún kjósi ekki að titla sig
verslunarstjóra má nú eiginlega
kalla hana það. Því það er
einmitt hún sem flakkar á milli
Amsterdam, London og New
York í innkaupaferðum fyrir
verslunina. „Við kaupum hjá
heildsölum erlendis. Þetta virk-
ar eins og hjá öðrum búðum,
munurinn er bara sá að okkar föt
eru notuð,“ segir hún og bætir
við: „Þegar ég kaupi inn fer ég
mikið eftir minni tilfinningu, ég
kaupi föt sem ég hef trú á. Auð-
vitað fylgist ég líka með því sem
er að gerast í blöðunum og spái
líka í fólkið í kringum mig.“
Heppnir finna YSL
Víða erlendis eru sérstakar
verslanir sem selja notuð
merkjaföt. Þessar búðir hafa orð-
ið vinsælar og er fatnaðurinn oft
á tíðum mjög dýr. En fræga fólk'
ið er orðið sólgið í „vintage“'StíL
inn og mætti t.d. Chloe
Sevigny á óskarsverðlaunahátíð-
ina árið 2000 í gömlum Yves
Saint Laurent'kjól.
„Við erum ekki meðvitað að
leita uppi gömul merkjaföt, þar
sem er lítið til af þeim yrði það
kannski langur prósess að finna
þau og þá myndu þau kosta mik-
inn pening. Það slæðast þó
stundum merkjavörur með, mað-
ur gæti t.d. rekist á YSL-jakka-
föt. En þeir kúnnar eru þá bara
sérstaklega heppnir."
Klassík FYRIR LÍFSTÍÐ
Það eru örugglega einhverjir
sem eru ekki enn búnir að upp-
götva notuð föt og finnst jafnvel
eitthvað skrýtið við það að kaupa
sér föt sem aðrir hafa svitnað í.
Þetta er þó frekar lummulegt
viðhorf og segir mest um það
hvað viðkomandi einstaklingur
er aftarlega á merinni. Þar sem
fræga fólkið, Gucci-gellurnar og
Versace-stílistarnir er æst í not-
uð föt ætti það að segja eitthvað
um tíðarandann.
En hvað er það sem heillar?
„Þau eru bara æðisleg. Það er
engin flík eins og það er náttúr-
lega frábært. Maður getur rekist
á gullmola þegar maður er að
gramsa, eignast klassík fyrir lífs-
tíð,“ segir Heiða.
Endurvinnsla heit
Eftir að Spútnik flutti á
Laugaveginn hefur verslunin að
sjálfsögðu orðið vinsælli og meira
áberandi. Og það er alls kyns
fólk sem verslar þarna. „Alls
konar fólk, konur og karlar,
ungir sem aldnir," segir Heiða.
En ekki er einöngu notaðan
fatnað þar að finna heldur er
verslunin einnig með fatnað sem
er þeirra eigin hönnun og fram-
leiðsla. „Við Bára Hólmgeirs-
dóttir hönnum fötin saman. Þau
eru gjarnan saumuð úr gömlum
fötum en við notum líka ný
efni,“ segir Heiða.
Endurvinnsla er einmitt heitt
hugtak í tískuheiminum í dag og
nægir að nefna bandaríska
merkið Imitation of Crist.
Hönnuðir þess hanna föt úr
gömlum flíkum og hafa slegið í
gegn með skemmtilegri hönnun.
Fatnaður þeirra hefur á skömm-
um tíma orðið mjög dýr og alls
ekki á færi allra að eignast hann.
Pelsar oc flauel
Aðspurð hvað sé það vin-
sælasta í Spúútnik fyrir vetur-
inn svarar Heiða: „Pelsarnir eru
vinsælir, sem og rifflað flauel.
Svo eru snjáðar gallabuxur og
thai'buxurnar orðnar klassík og
seljast alltaf jafnvel. Já, og her-
mannafötin eru líka vinsæl,
jakkar, bolir og fleira í þeim
stíl.“
Notuð föt geta verið ótrúlega
flott og getur verið skemmtilegt
að blanda þeim saman við nýjar
flíkur. Leyfa þannig hugmynda-
fluginu að njóta sín og skapa
sinn eigin stfl. Með því að skoða
á mörkuðum og gramsa í gegn-
um fötin í verslunum eins og
Spútnik getur maður fúndið
hreina gullmola. Það eina sem
þarf til' að hefja leitina er opinn
hugur og nægur tími til að
gramsa.
Tíska • Gæði • Betra verð
PlNNAHÆLAR VÍKJA
Það er kominn tfmi til að skipta támjóu pinna-
hælunum út fyrir öllu grófari skó. Fyrir veturinn er
táin aðeins rúnaðri og hællinn breiðari. Langflest
tískuhúsin hafa boðað þessar breytingar þó að sjá
'megi hinn stílinn enn þá. Marc Jacobs er grófari,
það er Ifka Tom ford fyrir YSL og Gucci, sem og
Prada. Það er ekki verið að tala um einhverja þykk-
botna hlussuskó heldur aðeins slakað á þessum
brjáluðu pinnahælum sem svo fáar konur ráða
hvort eð er við. Skórnir á myndinni eru úr 38
þrepum.
See by Chloé
Sævar Karl bætti rós f hnappagat sitt á dögun-
um. Hann var að taka inn nýtt merki, See by Chloé,
sem er ódýrari Ifnan frá Chloé. I augnablikinu eru
eingöngu komnar nokkrar yfirhafnir og eru þær
mjög fallegar. Það er svo von á fleiri vörum seinna
f vetur og verður það að teljast tilhlökkunarefni.
Smáralind
Jæja, þá er búið að opna þessa blessuðu Smára-
lind og fleiri verslanir hafa bæst f hópinn. Samt er
alveg merkilegt hvað Iftið bættist við f verslunar-
flóruna þrátt fyrir allar þessar þúsundir fermetra.
Benetton er góð viðbót og nauðsynlegt fyrir
okkur sem búum á þessu kalda landi að hafa að-
gang að fallegum og hlýjum peysum á góðu verði.
Þar eru Ifka sæt barnaföt og ekki er það verra.
Zara er Ifka ágæt viðbót. En þar gefur að Ifta eft-
irlfkingar af hönnun helstu tfskuhúsanna á góðu
verði. Gluggaútstillingin þeirra er t.d. flott, þar má
sjá föt f anda YSL Rive Gauche, svartar pffur f
sfgaunastfl. Inni eru svo púffermar og gallabuxur
með broti, allt f anda Marc Jacobs.
Meira er ekki hægt að segja um fatabúðirnar f
Smáralindinni. Jú, þarna er Top Shop, sem getur
lumað á flottum ftfkum. Hún er Ifka niðri f miðbæ
og þvf engin nýjung þar á ferðinni. Gólfið f Gap er
flott og Baby Gap á vfst að koma, gott mál það.
Húsið sjálft er frekar kuldalegt og ekkert
merkilegt nema fyrir stærðina. Og að utan, ekki
fallegt og hvað er eiginlega með þessar bláu flfsar?
HM
RCWELLS
Skyrta úr þeirra eigin framleiðslu.
19. október 2001 f ó k u s