Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Page 29

Dagblaðið Vísir - DV - 19.10.2001, Page 29
RÓmantískustu plöturnar Loci Bergmann Eiðsson FRÉTTAMAÐUR Distant Lover - Marvin Gaye I heard it trough the grapevine. Stór- kostlegt lag. Fullt af öðrum á disknum. Let’s get it on og fleiri. Hrikalega flott lög. Dzej - Dzej Júgóslavneskur sígauni. Afskaplega tregablandið eins og margt annað frá Júgóslavíu. Skemmtilegur sígaunataktur í lögunum. Mæli sérstaklega með Ged du sad moja Ruzo (hvar ertu rósin mín). Sarah MacLachlan - Live Afskaplega rólegt og rómantfskt. Live-diskurinn eiginlega bestur og heil- mikil tilfinning í lögunum. U2 - Best ballads Diskur sem sennilega fæst ekki hvar sem er enda keyptur á útimarkaði í Bosníu. Aðallega útaf One sem er frábært lag. Kannske ekkert brjálæðislega rómantískt en mikil stemning í laginu. Van Morrison - Best of Algjör snillingur. Moondance, Hatfe I told you lately, Someone like you. Snilld. Sjóræningjadiskur Eg myndi blanda f einn disk með því að stela músík af Netinu. Mæli sér- staklega með audiogálaxy.com. Það væri mjög undarleg blanda á disknum: Clapton, smá kántrí fflingur, Ray Charles, Sigurrós, Moby, Alison Krauss, Aretha Franklin, Chris Isaak, David Gray, Jackie .Wilson, Dr. Hook, Jude og að sjálfsögðu Rakkauslaulu með Rasmus. Diddaskáldkona Night Nurse - Gregory Isaacs Bara mest sexí karlarödd að hjala við eyrun á manni í sængurfylli af kynóra- legu bassaplokki herra robbie shakespear og rétt takföstu tromm- eríi séra Sly Dunbar. Ef mjaðmirnar þfnar fara ekki að hreyfast í hringi við þessa plötu þá ertu dáinn. Indverska prinsessan Leoncie var að gefa út plöt- una Love Messages from Overseas á dögunum. Platan fæst að sjálfsögðu í Hljómalind og var prinsessan meira en til í að koma í smáspjal! af þessu tilefni. Leoncie Nýja platan þih, Love Messa- ges from Overseast fæst nú loks- ins í Hljómalind. I hvaða stúdíói tókstu þlötuna upp? „Þau voru nú ansi mörg. Ég tók hana meðal annars upp í Bretlandi, Indlandi, Kanada, Islandi, Tékklandi og Dan- mörku.“ Það eru 17 lögá plötunni. Það hlýtur að hafa kostað þigfúlgu fjár að gefa þetta út. Fékkstu ríkis' styrk eða hvað? „Rfkisstyrk? Nei, elskumar mínar. Ég fór til útlanda að syngja og hafði það mjög gott. Ég tók líka bankalán og borgaði þau upp sjálf. Ríkisstuðningur er aðeins fyrir innfædda íslendinga. Þetta er kölluð íslensk menning. Danskir tónlistarmenn í KODA hlustuðu á tónlistina mína sem ég sendi inn til þeirra og buðu mér fjárhagsaðstoð til að klára plötuna. Ég var þá búin að fjárfesta í henni sjálf. Ég er mjög sjálfstæð kjamakona oglíka bylting- arkona þegar ég er f miklu stuði. Ég er óstöðv- andi þegar ég fer af stað.“ Hvemig tónlist semur þú? „Popp' og danstónlist sem fólk elskar. Beautiful Melodies.“ Hvar getum við náð í þig ef við viljum bóka þig til að syngja? „í síma 691-8123 eða í gegnum tölvupóst á indianprincess@simnet. is.“ Hvemig hefurðu haldið þér svona kynþokka- fullri ogfallegri? „Ég grenja ofsalega mikið og hlæ ennþá meira og hærra. Ha, ha. Nei, nú var ég að plata ykkur. Ég stunda jóga, hef minn eigin æfingasal og bið mikið til Jesú Krists.“ Hvemig var að skemmta með Stuðmönnum? „Það var alveg frábært. Þetta er ekki í fyrsta skipti sem við skemmtum á sama stað. Tómas Tómasson blandaði fyrir mig tit- illagið á nýju plötunni og ég er hæstánægð með hann. Pétur Hjaltested blandaði lagið Hold Me In Your Arms og lagið hljómar frábærlega vel. Þessir gæjar em ffnir og Palli líka. Ég vildi gjaman heyra lögin mín spiluð meira á útvarpsstöðvum á Islandi, án þess að fá blammeringar frá þeim.“ Þú ert komin með heimasíðu, hver er slóðin? „Hún er www.simnet.is/leoncie. Svo er ég líka meðlimur í Worldwide Bandname.com. Fólk getur skoðað mig þar.“ Hvað ertu að gera núna? „Ég er að gera dreifingarsamning erlendis. Svo er ég líka að skrifa texta í hindí sem ég ætla að taka upp fljótlega. Og ég er að fara að flytja aftur út.“ A/ hverju Islartd, Leoncie? Og af hverju Reykjanesbær? „ísland er kalt og svalandi. Ég hef búið hér f 16 ár og elska ísland. Sandgerði er svo nálægt flugvellinum og það er ungt og hresst fólk sem býr í Sandgerði." Between The Sheets - Millie Jackson Þessi kona er svo frábær, hún er svona kona sem tal- ar á meðan hún gerir það! Og trúir svo staðfastlega á ást- ina að það hvarflar ekki að henni að ljúga að sér eða öðr- um útá hvað þessir blossar ganga. Fallega kjaftfor og kynþokkafull. Dub From The Roots - King Tubby Það gerist alltaf eitthvað stórkostlegt fyrir líkamsbú- skapinn hjá mér þegar reggae er úðað inn í eyrun á mér, og dub, vá! Þá erum við að tala um orðalaus samskipti, líkamlegan gjörning með manni sem kann allar réttu hreyfingamar. Family Man In Dub - Aston Familyman Barrett Familyman er sá sem bassaði hjá b.marley og er fræn- di hans krumma míns, og þessi maður kann alveg eins og king tubby, að rata réttar leiðir um leyndustu afkima líkamans. Promised Land - Elvis Presley Þegar þig langar að standa fyrir neðan gluggann hjá einhverjum eða einhverri og mæra viðkomandi í armana á þér, þá er næstum því sama hvaða lag af þess- ari plötu þú ákveður að gaula, það virkar, Elvis virkar alltaf. The Best of Chet Baker - Chet Baker Chet! Maðurinn sem syngur þannig að þér finnst þú geta þetta allt, og ef þú verður ekki rómó af honum, þá er ekkert hægt að gera fyrir þig, ekkert. Safnplatan Rómantískur ruðningur: 1. African Roots - King Tubby 2. Night Nurse - Gregory Isaacs 3. Seeing Is Believing - Itals 4. Dubbing Naturally - Aston Familyman 5. Capo - Hippy Boys 6. Mellow Mood - Bob Marley 7. Liquid Homs - Vin Gordon 8. The Great Pablo - Augustus Pablo 9. I’ve Never Had It So Good - Bunny Scott 10. Black Organ - Jackie Mittoo 11. Indra - Thiévery Corporation 12. Congoman - Congos 13. Do Your Thing - Isaac Hayes 14. All The Way Lover - Millie Jackson 15. Missippi - Bob Dylan 16. Love Minus Zero (no limit) - Bob Dylan 17. Lay Lady Lay - Bob Dylan 18. Crazy Love - Van Morrison 19. Lets Get Lost - Chet Baker ifÓ k U S kynnir Vetrardagskrá Hljómalindar 2001 e uismemberment Plan & The Aoes * | Engin forsala! Fyrstir koma fyrstir fá! 20. október á Vídalín við Ingólfstorg. Miðaverð: 1200 kr. Húsið opnar kl. 11. Sjá nánar á www.hljomalind.is (hugsanlega verður uppákoma Vídalín eftir miðnætti á föstudag) 19. október200i

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.