Dagblaðið Vísir - DV - 05.11.2001, Blaðsíða 11
11
MÁNUDAGUR 5. NÓVEMBER 2001______________________________________________________________________________________
JOV Útlönd
JÍK
DUNDUk
Indverjar vara við ástandinu í Kasmír:
Sjálfsmorðsárás á
indverska herstöð
Aukinn órói hefur verið í Kasmír-
héraði við landamæri Pakistans í
kjölfar árása Bandarikjamanna og
Breta á Afganistan og hefur harkan
færst mjög i aukana síðustu daga.
í gær féllu fjórir indverskir her-
menn, auk þess sem tveir aðrir
særðust alvarlega, þegar þrír liðs-
menn Lashkar-e-Taiba skæruliða-
samtakanna, sem eru á „svarta
lista“ Bandaríkjamanna sem birtist
nýlega, gerðu sjálfsmorðsárás á ind-
verska herstöð í nágrenni borgar-
innar Srinagar. Áður höfðu liðs-
menn samtakanna gert eldflauga- og
handsprenguárás á aðra herstöð í
Anantnag-héraði á laugardagskvöld-
ið, en þar hafði ekkert frést um
mannfall. Miklir skotbardagar
fylgdu í kjölfarið og mun einn
skæruliði hafa fallið i þeim.
Talsmenn indverska hersins
sögðu að barist hafi verið á fleiri
stöðum i gær og í Kupwara-héraði
hefðu sex skæruliðar falliö í
tveimur skotbardögum. Þeir segjast
einnig hafa fellt tuttugu múslimska
aðskilnaðarsinna í skotbardaga í
Poonch-héraði á laugardaginn, um
500 kilómetra suð-vestur af héraðs-
höfuðborginni Jeunmu.
Að sögn indverskra fjölmiðla var
þar um að ræða liðsmenn Mujahed-
in og Jehad skæruliðahreyfinganna,
sem studdir eru af pakistanska
hernum og segja talsmenn ind-
verska hersins að pakistanskar her-
sveitir hafi aðstoðað þá á flótta eftir
skotbardagann, með því að varpa
sprengjum á svæðið. Munu þrír
skæruliðar að auki hafa særst í
sprengjukastinu.
Fyrr í vikunni munu fjórir
skæruliðar hafa fallið í skotbardaga
við indaverska hersveit í Kalaban,
um 180 kólómetra norður af Jammu
og aðrir þrír í Rajouri-héraði suð-
vestur af Srinagar.
Talsmaður indverska hersins til-
kynnti síðan í gær að pakistanskir
hermenn hafu um helgina gert
skotárás á indverska gæslustöð í
landamærahéraðinu Haji Peer í um
100 kílómetra fjarlægð frá borginni
Srinagar. Að sögn talsmannsins
svöruðu indverskir hermenn skot-
hríðinni og er talið að þrír pakist-
anskir hermenn hafi fallið í bardag-
anum. Stöðug átök hafa verið á
svæðinu síðustu vikuna og hefur
einn indverskur hermaður fallið.
Fyrr í vikunni varaði háttsettur
yfírmaður í indverska hernum við
að ástandið í Kasmír-héraði væri
orðið mjög slæmt og sagði það mjög
svipað því sem var árið 1965, þegar
upp úr sauð milli Indverja og
Pakistana.
Fallinn skæruliöi eftir sjálfsmorösárásina á indversku herstööina í gær.
Trimble
annað tækifæri
Peter Reid, írlandsmálaráðherra
bresku ríkisstjórnarinnar, hefur
ákveðið að David Trimble, fái í dag
annað tækifæri til að ná endurkjöri
sem forsætisráðherra heimastjórnar
Norður-írlands, en í kosningu sem
fram fór fyrir helgina mistókst
Trimble að ná tiiskyldum stuðningi
eftir að tveir flokksmenn hans úr Ul-
ster-hreyfingu sambandssinna, svik-
ust undan merkjum við atkvæða-
greiðsluna á föstudaginn.
Reid tók þessa ákvörðun eftir að
David Ford, formaður Sambands-
flokksins, lofaði að flokksmenn hans á
þinginu, sem ekki eiga beina aðild að
heimastjórninni, myndu styðja kosn-
ingu Trimbles, með því að ganga
tímabundið í raðir Ulster-hreyfmgar-
innar.
Harðlínumenn á þinginu eru mjög
óhressir með þessa ákvörðum írlands-
málaráðherrans og segja hana ólög-
lega þar sem lögin segi að leysa hefði
upp þingið og boða tO nýrra kosninga
ef nýr forsætisráðherra hefði ekki
veriö skipaður fyrir 5. nóvember.
Reid varði aftur á móti ákvörðun sína
með því að segja að um endurtekna
koningu sé að ræða sem ákveðin hafi
verið fyrir sett tímamörk.
* , VETRAR
UTSALA,