Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2001, Blaðsíða 2
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001
Fréttir
I>V
Þrælahald viðgengst á íslandi að mati alþingismanna:
600 útlendingar
án atvinnuleyfis
wmrnr
ízJLÍ
600 útlendingar eru meö dvalar-
leyfl á Islandi án þess aö hafa at-
vinnuleyfi. Þetta býður ýmsum
hættum heim og voru þingmenn
sammála um það á Alþingi í gær að
taka yrði af hertri alvöru og athygli
á málum sem snúa að erlendu
vinnuaíli. Orð eins og þrælahald
komu upp í umræðum þingmanna.
7. nóv. sl. voru 9 starfsmenn frá
Litháen handteknir við störf hjá fyr-
irtæki í Kópavogi og reyndist eng-
inn þeirra með atvinnuleyfi. Rann-
sókn er ekki lokið og er að sögn fé-
lagsmálaráðherra ekki hægt að
skýra frá stöðu málsins eða niður-
stöðu. Ráðherra upplýsti hins vegar
að félagsmálaráðuneytið hefði ný-
verið skrifað Vinnueftirliti ríkisins
bréf þar sem óskað væri að atvinnu-
rekendur gerðu nánari grein en fyrr
fyrir t.d. slysa-
hættu. Sérstak-
lega ætti þetta við
um erlenda starfs-
menn sem störf-
uðu hér tíma-
bundið.
Steingrímur J.
Sigfússon sagði að
veikleikar væru í
lögunum um rétt-
indi erlendra
starfsmanna. Mikilvægt væri að
komið yrði að málum með aðkomu
stéttarfélaga, bæði hvað varðaði
ráðningarskilmála og tilskilin leyfi.
Ljóst væri að hér myndu verða uppi
tilraunir til svartrar atvinnustarf-
semi og íslendingar gætu ekki
vænst þess að njóta góðs af erlendu
vinnuafli án þess að axla þær skuld-
Arnbjörg
Sveinsdóttir.
Guðrún
Ogmundsdóttir.
Karl V.
Matthíasson.
Páll
Pétursson.
Steingrímur J.
Sigfússon.
bindingar sem þjóðin hefði gagn-
vart útlendingum.
Arnbjörg Sveinsdóttir sagði óþol-
andi að ekki væri farið að leikregl-
um íslensks samfélags vegna launa-
og tryggingamála . „Glæpastarfsemi
á ekki að líðast,“ sagði þingmaður-
inn.
Karl V. Matthíasson kvað enn
fastar að orði og sagði að menn
væru farnir að sjá vísi að þræla-
starfsemi sem væri háalvarlegt mál.
Hann vonaðist til að ráðherra
myndi sjá til þess að þessi mál yrðu
rannsökuð ofan í kjölinn.
Það var Guðrún Ögmundsdóttir
sem var frummælandi í utandag-
skrárumræðunum. -BÞ
Húsnæðisvandi fatlaðra:
Biðlistum eytt á
næstu 4 árum
Páll Pétursson félagsmálaráö-
herra segir að stefnt sé að því að
biðlistum fatlaðra eftir húsnæði
verði eytt á tímabilinu fram til
ársloka 2005. Þetta sé samkvæmt
áætlun sem hafi verið sett upp.
Komið hefur fram í DV að um
800 milljónir þurfi til að leysa
þann vanda sem skapast hefur
vegna langra biðlista fatlaðra eft-
ir búsetu. Samkvæmt nýrri sam-
antekt Svæðisskrifstofu um mál-
efni fatlaðra í Reykjavík eru lang-
ir biðlistar bæði eftir skamm-
tímavistun og búsetu. Á búsetu-
listanum eru nú 114 manns. Blaö-
ið þekkir dæmi þess að fatlaðir
einstaklingar hafa beðið árum
saman og biða enn eftir úrræð-
um.
Tvö ný sambýli eru í byggingu
nú og bætast þar við tólf ný úr-
ræði. Ekki eru fleiri úrræði fyrir-
sjáanleg samkvæmt fjárlagafrum-
varpinu fyrir árið 2002.
Páll segir aö 4,4 milljarðar séu
nú ætlaðir til málefna fatlaðra.
Um sé að ræða verulega aukn-
ingu. Framlag til málaflokksins
hækki um 590 milljónir milli ára
en raunaukningin sé að minnsta
kosti 80 milljónir króna. Páll seg-
ir að verið sé að byggja eða kaupa
nokkur sambýli fyrir fatlaða.
Ráðuneytiö og Öryrkjabandalagið
hafi gert meö sér samning um aö
Öryrkjabandalagið byggi eða
kaupi húsnæöi sem ríkið taki síð-
an á leigu. -JSS
Þórshöfn:
Sveitarstjórinn
segir upp
Magnús Már Þorvaldsson hefur
sagt upp starfi sveitarstjóra á
Þórshöfn. Hann hefur þegar látið
af störfum, en á fundi sveitar-
stjórnar á Þórshöfn í gær lagði
hann fram uppsagnarbréf sitt.
Þar segir að uppsögnin sé af per-
sónulegum ástæðum. Meira virö-
ist þó hanga á spýtunni. í samtali
við DV í morgun staðfesti Sigurð-
ur Ragnar Kristinsson, oddviti
Þórshafnarhrepps, að upp heföi
komið trúnaðarbrestur milli
Magnúsar og meirihluta hrepps-
nefndar og því viki sveitarstjór-
inn af velli.
„Við höfum sammælst um að
upplýsa ekki hvers vegna þessi
trúnaðarbrestur kom til, en engir
samstarfsöröugleikar hafa hins
vegar verið milli manna,“ sagði
oddvitinn. -sbs
DV-MYND E.ÓL.
Mislæg gatnamót Víkurvegar og Vesturlandsvegar
Eiga aö draga úr vaxandi slysahættu vegna aukinnar umferöar og greiöa úr umferöarhnútum sem þar myndast.
Gatnamót Víkurvegar og Vesturlandsvegar:
Steypuvinna tefst um hálfan mánuð
- mannvirkið verður samt tekið í notkun 1. júlí 2002
í haust fór vinna við gerð mislægra
gatnamóta Víkurvegar og Vestur-
landsvegar í fullan gang. Að sögn
Jónasar Snæbjörnssonar hjá Vega-
gerðinni er verkið um hálfum mánuði
á eftir áætlun vegna ófyrirséöra tafa.
Þar var um að ræða frágang ýmissa
lagna sem þarna eru. Ráðgert var að
uppsteypu brúar og annarra mann-
virkja yrði lokið um miðjan nóvem-
ber. Nú er gert ráð fyrir að steypa
brúargólfið um næstu mánaðamót.
Jónas segir að þrátt fyrir þessar tafir
sé framkvæmdin öll innan viðunandi
marka. Endanlegum frágangi á ekki
að verða lokið fyrr en 1. júlí á næsta
ári. Þá fyrst verður umferð formlega
hleypt á mannvirkið.
Brúin sem þarna um ræðir á að
tengja saman Víkurveg úr Grafar-
vogshverfinu og Reynisvatnsveg sem
liggur yfir í nýja Grafarholtshverfið.
Þá verða einnig gerðar afreinar og aö-
reinar með slaufum og tengibrautum
sem og undirgöng fyrir gangandi um-
ferð.
Framkvæmdin er samvinnuverk-
efni Vegagerðarinnar og Reykjavík-
urborgar. Mun Vegagerðin fyrir
hönd ríkisins greiða um 3/4 af kostn-
aðinum en Reykjavíkurborg um 1/4.
Það eru verktakafyrirtækin Svein-
bjöm Sigurðsson ehf. og Jarðvélar sf.
sem vinna verkið. Samkvæmt samn-
ingi sem undirritaður var i sumar á
það að kosta 390.741.000 krónur.
Áætlun Vegagerðarinnar hljóðaði
hins vegar upp á tæpar 409 milljónir
króna. -HKr.
Kaupmannahöfn:
Friður um íslandsprestinn
Friður skal ríkja um Is-
landsprestinn í Kaupmanna-
höfn. Þetta er inntak sam-
komulags forstjóra Trygg-
ingastofnunar rikisins og
biskups íslands sem jafnað
hafa ágreining um þjónustu
íslandsprests í Kaupmanna-
höfn við sjúklinga á vegum
Tryggingastofnunar ríkisins Kar( steinar
þar ytra. Verður þjónustan Guðnason.
með óbreyttu sniði til árs-
loka 2003. Sem kunnugt var Þórir
Jökull Þorsteinsson skipaður í emb-
ættið enda þótt sérstök valnefnd
hefði mælt með öðrum umsækj-
anda.
Karl
Sigurbjörnsson.
Þórir Jökull
Þorsteinsson.
„Tryggingastofnun leggur mikla
áherslu á að sjúklingar á vegum
stofnunarinnar njóti góðrar þjón-
ustu og telur að eins og málum er
háttað sé farsælasta lausnin að
halda áfram góðu samstarfi
við kirkjuna um veitingu
þessarar þjónustu,“ segir í
fréttatilkynningu.
Biskup íslands, herra Karl
Sigurbjömsson, mun setja
sr. Þóri Jökul Þorsteinsson
inn í embætti íslandsprests
við messu í Sct. Pauls kirkju
í Kaupmannahöfn sunnudag-
inn 25. nóvember. Tilkynn-
ing þar um er birt á heima-
síðu safnaðarins, þar sem biskup
biður sérstaklega um að safnaðar-
fólk komi með börn til kirkjunnar
þennan dag. Að lokinni athöfn verð-
ur messukaffi í Jónshúsi. -sbs
Ekið á Borgarleikhúsið
Bifreið var ekið í gegn-
um rúðu í Borgarleik-
’húsinu snemma í
morgun. Ekki er vitað
hvort þama var í
'gangi tilraun til inn-
brots, en þegar viðvör-
unarkerfi fór í gang við rúðu-
brotið forðaði sá sér í burtu sem þarna
var á ferðinni.
Eldur í gólfteppi
Litlu er talið hafa munað að eldur
kæmi upp í íbúðarhúsinu að Kvígsstöð-
um í Borgarfirði þegar háspennu-
straumur komst í rafmagnsofn og olli
skemmdum. Rafmagnsofninn skemmd-
ist mikið og úr honum komst eldm- í
gólfteppi. Brann teppið verulega og
þykir mikil mildi að eldur skuli ekki
hafa blossað upp í húsinu.
Stútur velti á Nesjavallavegi
BUvelta varð á Nesjavallavegi í gær-
kvöldi. Ökumaðurinn var fluttur á
slysadeUd Landspítalans í Reykjavík
en meiðsli hans voru ekki talin mjög
alvarleg. Hann er grunaður um ölvun-
arakstur.
Fyrir mannréttindadómstól
RUtisstjóm íslands
samþykkti í gær að
skila greinargerð
vegna málflutnings
Sophiu Hansen. Þann
18. október sl. ákvað
Mannréttindadóm-
stóU Evrópu að taka
kæm Sophiu gegn
tyrkneska ríkinu tU skoöunar. Sophia
kærði stjómvöld í Tyrklandi árið 1997
fyrir að fuUnægja ekki 8. grein mann-
réttindasáttmálans þar sem kveðið er á
um friðhelgi einkalUs, fjölskyldu og
heimUi.
Sjópróf í næstu viku
Ráðgert er að halda sjópróf vegna
bUunarinnar í togaranum Örfirisey í
næstu viku. Skipið er við bryggju i
Reykjavíkurhöfn en það heldur tU
veiða i kvöld.
Forstööumanni sagt upp
Bimi Hermannssyni, forstöðumanni
Sólheima í Grímsnesi, var í gær sagt
upp störfum og hann beðinn aö rýma
skrifstofu sína, vegna samstarfsörðug-
leika við stjóm Sólheima.
Orkuveita eykur hlut
Borgarráð samþykkti í gær tUlögu
stjórnar Orkuveitu Reykjavíkur um að
auk hlut sinn í Lmu.Neti hf. í tiUög-
unni er lagt tU aö Orkuveitan nýti for-
kaupsrétt og kaupi hlutabréf fyrir 450
miUjónir króna.
Fornminjarnar varöveittar
Ólafur F. Magnússon, borgarfuUtrúi
sjálfstæðismanna, hefur lagt tiUögu fyr-
ir borgarstjóm þar sem hann fer fram
á að borgaryfirvöld endurskoði
deUiskipulag í suðausturhluta Grjóta-
þorps með tiUiti tU fomminjanna á
homi Aðalstrætis og Túngötu.
Síldin kemur austur
SUdveiði hefur tekið við sér úti fyrir
Austurlandi eftir mikla deyfð um
nokkra hríð. Steinunn SF landaði í gær
300 tonnum af sUd sem fengust í einu
kasti í Berufjarðarál. RÚV greindi frá.
Afnám ríkisstyrkja
Valgerður Sverris-
dóttir, iðnaöar- og
viðskiptaráðherra,
kynnti fyrir hönd ut-
anrikisráðherra
helstu áherslur ís-
lands á ráðstefnu Al-
þjóðaviðskiptastofn-
unarinnar, sem lauk
í Doha í Katar í gær. Valgerður sagði
mikUvægt fyrir þróunarlönd að styrkir
til sjávarútvegs yrðu lagðir af.
-aþ/gk