Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2001, Síða 6
6
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001
Fréttir
I>V
Umræða um brottkast á íslandsmiðum sögð stórlega ýkt:
Þetta er áróður
þeirra kvótalausu
- segir skipstjóri í Ólafsvík sem hvorki svindlar né hendir fiski
„Brottkastiö er að minu mati
bundið við kvótalausa báta. Viö
hendum ekki einum einasta fiski. Ég
legg drengskap minn að veði fyrir
því. Enda er engin ástæða til að
henda fiski þar sem fiskverð er það
hátt,“ segir Ásgeir Finnsson, skip-
stjóri á netabátnum Pétri Jakobi SH,
vegna játninga Sigurður Marinósson-
ar á Báru og Níelsar Ársælssonar á
Bjarma sem leyfðu að brottkast yrði
myndað um borð í skipum þeirra.
Ásgeir segist þekkja dæmi um aö
einstakir skipstjórar láti fleygja öll-
um fiski undir þremur kílóum. Hann
kveöst hafa rætt við einn kollega
sinn á bryggjunni í Ólafsvík. Sá var
kvótalaus og var að landa afla þar
sem enginn þorskur var undir þrem-
ur kilóum þrátt fyrir að blandaður
fiskur hefði verið á veiðislóðinni.
„Aðspurður sagðist hann henda öll-
um þessum fiski. Ég spurði hann af
hveiju í ósköpunum en hann átti
ekkert svar við því. Mín útgerð hafði
hagnað af því að hiröa allan fisk
þrátt fyrir að þurfa að leigja afla-
heimildir á síðari hluta fiskveiðiárs-
ins. Að frádreginni leigunni vorum
við að fá 30 til 60 krónur fyrir kilóiö,“
segir Ásgeir.
Hann gefur ekkert fyrir þau rök að
kvótaleysingjar geti ekki gert upp við
mannskapinn miðað við söluverð
afla þar sem hátt kvótaverð leiði til
þess að mínus yrði á hveiju kílói.
Hann telur tölur um stórfellt brott-
kast vera stórlega ýktar.
„Á þessu svæði er þetta ekki eins
mikið og sumir vilja vera láta. Það
49b568 ,
1 •-j> i* íj A H! D
wi zn
DV-MYND PÉTUR
Verðmæti
Ásgeir Finnsson, skipstjóri á netabátnum Pétri Jakobi SH, segist hiröa allan fisk. Hann segir fáránlegt að henda físki
þegar hægt sé aö setja hann á markaöi fyrir verö sem skili afgangi eftir aö kvótaleiga hafi veriö greidd.
sést strax á aflasamsetningunni ef
menn eru að henda smáu fiskunum.
Brottkast er fátítt og að minu mati
gjörsamlega óþarft. Verðlag á fiski
sem er á bilinu 1,7 kíló til 3 kíló er
svo hátt að engin ástæða er til að
henda honum. Verðið á markaði er á
bilinu 180 til 220 krónur á kíló. Það er
bara rugl að henda þeim verðmæt-
um,“ segir Ásgeir.
Hann segir að brottkastsumræðan
einkennist af sjónarspili og áróðri
gegn kvótakerfmu. Allt hafi málið
sett svartan blett á heiður allra sjó-
manna. Nú sé spurt um aflabrögð
sem fyrr þegar i land kemur en
spumingunni fylgi oft önnur: „Ég er
hundleiður á því að vera sífellt
spurður í landi um það hve miklu
við höfum kastað af fiski. Margir sjó-
menn hér í Ólafsvik eru ævareiðir
vegna þessa,“ segir hann.
Dæmi eru um útgerðarmenn sem
tekið hafa þann kost að landa fram-
hjá vigt í skjóli myrkurs fremur en
fleygja fiski. Ásgeir segist aðspurður
ekki hafa landað afla fram hjá vigt.
„Viö svindlum ekki neitt. Ég hef
verið með bátinn meira og minna í
fjögur ár og engu svindlað fram hjá
vigt. Enda vil ég ekki taka þátt í
slíku,“ segir Ásgeir. -rt
Stórframkvæmdir Alþingis við Austurvöll:
580 milljóna króna
þjónustuskáli
- viðbyggingin tilbúin næsta haust
Nýr þjónustuskáli Alþingis er nú
að rísa viö hlið Alþingishússins við
Austurvöll. Þar er um 2.400 fer-
metra hús að ræða sem á að kosta
samkvæmt áætlun 580 milljónir
króna.
Það eru íslenskir aðalverktakar
sem hafa með byggingu hússins að
gera samkvæmt útboði. Ráðgert er
að taka húsið í notkun fyrir þing-
setningu haustið 2002. Samkvæmt
upplýsingum Alþingis er bílakjall-
ari undir húsinu. í kjallara er
einnig aðstaða fyrir fréttamenn með
upptökuaðstöðu fyrir útvarp og
sjónvarp. Á jarðhæð verður framtíð-
aranddyri Alþingis til daglegra
nota. Gamla anddyriö verður þá
einungis nýtt viö hátíöleg tækifæri,
auk þess sem ýmsar breytingar
verða gerðar í þinghúsinu sjálfu.
Á jarðhæðinni verður móttökuað-
staða fyrir gesti, fundarými og ráð-
stefnusalur. Þá verður þar líka öll
aöstaða fyrir öryggisgæslu Alþingis.
Á efri hæð veröur matsalur þings-
ins, sem nú er í gamla húsinu, auk
nokkurs fundarýmis. Þannig á nýja
DV-MYND E.ÓL
Hér rís þjónustuskáli Alþingis.
Mun stórbæta aöstööu fyrir þingmenn, fréttamenn, gesti og
starfsmenn þingsins.
húsið aö virka sem sameiginlegur
þjónustuskáli Alþingis en engin sér-
aðstaða veröur þar fyrir þingflokk-
ana. Halldór Blöndal, forseti Alþing-
is, mun síðan væntanlega hafa vök-
ult auga með að verkið fari ekki
fram úr heimildum fiárlaga.
-HKr.
Skipstjóri Báru skorar á ráðherra að breyta lögum:
Vill útrýma brottkastinu
- Fiskistofa verði logð niður og veiðistjóraembætti komi í staðinn
Sigurður Marinósson, skipstjóri og
eigandi netabátsins Báru, hefur sent
sjávarútvegsráðherra ítarlegar tillögur
í 17 liðum sem ætlað er að fyrirbyggja
brottkast. Sigurður er sjálfur ekki
ókunnugur brottkasti því hann játaði í
DV-yfirheyrslu um helgina að hafa
staðið fyrir stórfelldu brottkasti á fiski
um borð í báti sínum. Hann leyfði
fréttamönnum Sjónvarps og Morgun-
blaðsins að koma með í tvær veiðiferð-
ir þar sem fest var á filmu það sem
gerðist um borð.
„Gífurleg blokk útgerðarmanna hef-
ur risið upp sem ræður ótrúlega miklu
um það hvemig þvi er stýrt sem kall-
að er sameign þjóð-
arinnar. Blokkin
teygir anga sína
eins og krabbamein
um ailt stjómkerfið
þannig að hags-
munir einstakra út-
gerðarmanna á ts-
landi verða skyndi- _. .
lega hagsmunir allr- MfSn.
ar þjoðarmnar og
sjávarútvegsráöherra virðist standa ráð-
þrota og vamarlaus sem viljalaust verk-
færi í höndum þessara hagsmunaðila,“
segir Sigurður í greinargerð með tillög-
um sínum.
Sigurður vill
láta banna togveið-
ar á stórum svæð-
um og taka upp
sóknarstýringu í
fiskveiðilögsög-
unni. Þá vill hann
ekki að sérstökum
sóknardögum
verði úthlutað á
hvem bát eða skip
heldur ákveður sjávarútvegsráðherra
hveiju sinni sóknartímabil á hver ein-
stök svæði og getur beitt skyndilokun-
um reynist samsetning afla of smá.
Sigurður vill að möskvastærð í net-
Arni
Mathiesen.
um verði takmörkuð við 7 tommur og
veiðum verði stýrt alfarið frá veiðum á
stærsta fiskinum, nema þá til grisjun-
ar vegna stærða stoöia.
Þá vill hann að allir útgerðarmenn
greiði auðlindagjald af afla, t.d. 20-25
% af brúttó aflaverðmæti sem greiðist
í ríkissjóð.
Hann vill að í hverjum landsfjórð-
ungi verði tekið upp embætti veiði-
stjóra sem sjái um daglega veiðistýr-
ingu. Fiskistofa verði lögð niður og
veiðistjóri sjái um skráningu afla og
skipa í hverjum fiórðungi. Ámi
Mathiesen sjávarútvegsráðherra fékk
tillögumar í gær. -rt
Umsjón: Birgir Gu&mundsson
netfang: birgir@dv.is
Einar eða Guðjón
Framboðsmál flokkanna í hinu
nýja Norðvesturkjördæmi hafa tals-
vert verið í umræðunni í heita
pottinum en ljóst,
þykir að þar |
verða margir kall-
aðir en trúlega I
talsvert færri út- ]
valdir því þing-
mönnum mun I
fækka talsvert á I
þessu svæði, eöa
úr 15 niður í 10.1
Þannig er ljóst að ýmsir sjálfstæð-
isþingmenn á svæðinu munu eiga
erfitt með að komast að en nú eru
í kjördæmunum þremur sex þing-
menn flokksins, tveir í hverju kjör-
dæmi. Almennt er talið að flokkur-
inn sé öruggur með þrjá þingmenn
og að það verði efstu menn í
hverju kjördæmi, þ.e. Sturla Böðv-
arsson, Einar K. Guðflnnsson og
nú Vilhjálmur Egilsson. En
spurningin er þá um hvort sá
fiórði kemst að og hver það yrði
þá. í pottinum eiga menn ekki von
á öðru en þeir muni takast á um
þetta sæti, þeir Einar Oddur
Kristjánsson og Guðjón Guð-
mundsson ...
Gísli í Framsókn?
En það er víðar en í Sjálfstæðis-
flokknum sem raddir heyrast um
framboðsmál í
þessu kjördæmi. í
pottinum er sögð
sú saga að þrátt
fyrir marga fram-
bjóðendur í röð-
um Framsóknar-
flokks þá sé jafn-
vel að vænta enn
fleiri kandídata.
Sagt er að Gísli Gíslason, bæjar-
stjóri á Akranesi, sem verið hefur
áberandi á sviði sveitarstjórnar-
mála og hefur m.a. sinnt Evrópu-
samskiptum sveitarfélaga vel, sé
talinn af mörgum heitur til þing-
mennsku fyrir Framsókn, enda sé
hann með svipaðar áherslur í Evr-
ópumálum og formaöur flokksins,
Halldór Ásgrímsson ...
Rauká dyr
Annars héldu framsóknarmenn í
Norðvesturkjördæminu stofnfund
kjördæmissambandsins um helgina
og þar bar þaö
einkum til tíð-
inda að til mikilla
átaka kom milli
Kristins H.
Gunnarssonar og
ýmissa kvótasinn-
aðra framsóknar-
höfðingja, einkum |
úr Skagafirðinum.1
Raunar munu Skagfirðingamir
hafa átt stuðning annarra þing-
manna flokksins líka. í sjávarút-
vegsstarfshópi þingsins munu um-
ræður hafa verið mjög heitar og á
tímabili mun Kristinn H. hafa rok-
ið á dyr og segja pottverjar þetta
vera til marks um að enn sé hiti í
íslenskri pólitík, ekki síst sjávarút-
vegspólitík ...
Fer hvergi!
Miklar sögusagnir hafa gengið í
viðskiptaheiminum upp á síðkastið
um að Már Guðmundsson, aðal-
hagfræðingur
Seðlabankans,
væri að hætta hjá
bankanum og fara
til starfa erlendis,
hjá Alþjóðagjald-
eyrissjóðnum. Hjá
andstæðingum
vaxtastefnu Seðla-
bankans hefur
þessi orðrómur hljómað eins og
tónlist því margir telja Má einn að-
alhugmyndafræðinginn bak við nú-
verandi hávaxtastefnu. í pottinum
er hins vegar fullyrt að þessi
orðrómur eigi ekki við nein rök að
styðjast og ekkert fararsnið sé á
Má úr bankanum, á næstunni í það
minnsta ...!