Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2001, Side 9
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001
DV
9
Fréttir
Styrkurinn eflist
„Alþjóðavæðingin og samning-
urinn um EES gera utanríkisþjón-
ustuna enn mikilvægari en áður.
Mikil vinna felst í samskiptum
okkar við ESB og aukið vægi al-
þjóðastofnana gerir það að verk-
um að byggja þarf upp enn öflugri
utanríkisþjónustu en áður. Hinu
sama valda aukin viðskipti; vegna
þeirra þurfa samskipti milli landa
að verða formlegri eins og opnun
sendiráðs íslands í Japan er til
vitnis um,“ segir Baldur Þórhalls-
son, lektor í stjórnmálafræði við
Háskóla íslands, sem hefur að
undanförnu unnið að úttekt á ís-
lensku utanríkisþjónustunni.
Spurningin um stofnun sendi-
ráðs íslands í sunnanverðri Evr-
ópu er að verða tímabær, segir
Baldur. Hann bendir á að ítalir og
Spánverjar séu áhrifamiklir innan
ESB við mótun sjávarútvegsstefnu
sambandsins og síðarnefnda þjóð-
in beiti sér mikið i sjávarútvegs-
málum. Ef íslendingar vilji tryggja
hagsmuni sína innan EES og ESB
hljóti spurningin um sendiráð i
þessum löndum að vakna. Það
dugi ekki að hafa aðeins áhrif á
stefnuna innan
stofnana áður-
nefndra ríkja-
bandalaga held-
ur verði einnig
að reyna að hafa
áhrif á stefnu
einstakra ríkja.
Skýrslur sem
utanríkisþjón-
ÞórhaNsson. ustan hefur ver’
ið að senda fra
sér á síðustu misserum sýna
glögglega, að mati Baldurs, hver
styrkur utanríkisþjónustunnar er
orðinn. Sérfræðingar hennar hafa
orðið mikla þekkingu til aö takast
á við Evrópumálin sem og alþjóða-
mál almennt. „Fyrst eftir að við
gengum í EES vanmat utanríkis-
þjónustan ef til vOl hvað samning-
urinn var umfangsmikill og hve
mikil vinna felst í að gæta okkar
hagsmuna gagnvart ESB. En nú
starfa menn í samræmi við nýjan
veruleika og byggð hefur veriö
upp mikil sérfræðiþekking til að
takast á við sífellt flóknari og
vandasamari verkefni.“
Góður sfuðningur
„Frá mínum bæjardyrum séð
hafa orðið kaflaskil á síðustu árum
í stuðningi íslensku utanríkisþjón-
ustannar við útflutning á íslenskri
menningu," segir Halldór Guð-
mundsson forstjóri Eddu - miðlunar
og útgáfu. Hann segir þennan stuðn-
ing í raun ekki hafa verið til staðar
þegar hann var að hefja störf að út-
gáfumálum fyrir um 15 árum. Kafla-
skil hafi hinsvegar orðið þegar
Hjálmars W. Hannessonar var
sendiherra í Þýskalandi og Ingi-
mundur Sigfússon á eftir honum.
„Auðvitað fara áherslur í starfi
utanríkisþjónustunnar alltaf að
nokkru leyti eftir áhugasviði
manna. Þeir Hjálmar og Ingimund-
ur reyndust í sendiherratíð sinni í
Þýskalandi íslenskri menningu
góðir bandamenn," segir Halldór
og bætir við að
meðal annars ís-
lenskar bók-
menntir njóti
vinsælda nú um
stundir í Evr-
ópu. Þar hafi sá
stuðningur
sendiherrarr-
anna haft tals-
vert að segja.
Einnig nefnir
Halldór að íslenska sendiráðið í
Peking hafi veitt góðan stuðning
við útgáfu á Englum alheimsins
eftir Einar Má Guðmundsson þeg-
ar hún kom út i Kína.
„í kynningu á íslandi hafa bók-
menntir æ meira að segja, ímynd
landsins er meira en bara landslag
og fiskur,“ segir Halldór.
Halldór
Guömundsson.
Umhverfið fjölþættara og
hagsmunir margþættari
„Alþjóðasamskipti hafa breyst
töluvert á undanförnum árum og
munu halda áfram að breytast,"
segir Halldór Ásgrímsson utanrik-
isráðherra við DV. „Breytingarnar
einkennast af aukinni hnattvæð-
ingu á mörgum sviðum, auknu al-
þjóðlegu samstarfi, ásamt vaxandi
hlutverki alþjóðastofnana. Þeim
málum sem aðeins er hægt að
leysa í alþjóðlegu samstarfi fer
fjölgandi. Afleiðingin hefur orðið
sú að störf sendiherra eru enn
mikilvægari en áður. Með vaxandi
alþjóðlegri samvinnu á fleiri svið-
um en áður aukast líka verkefni ís-
lensku utanríkisþjónustunnar og
sendiherranna. Eitt af því sem hef-
ur ekki breyst með bættum tækni-
legum möguleikum til samskipta
er mikilvægi persónulegra tengsla
á flestum sviðum, þar á meðal í
viðskiptum og pólitískri sam-
vinnu. Þar gegna sendiherrarnir
lykilhlutverki eins og áður. Önnur
lönd virðast meta þetta á sama hátt
og við.“
Þróunarsamvinna efld
HaOdór Ásgrímsson segir að ut-
anríkisþjónustan hafi brugðist við
þróuninni í alþjóðamálum með
ýmsu móti. Viðskiptaþjónusta utan-
ríkisráðuneytis hafi verið stofnuð
til að styðja útrás íslenskra fyrir-
tækja og auðvelda þátttöku þeirra í
auknum alþjóðlegum viðskiptum.
íslenska friðar-
gæslan, sem nú
er verið að
stofna, sé þáttur í
viðbrögðum ís- •
lands við breyttu
umhverfi í örygg-
ismálum en eðli-
legt sé að Island
leggi meira af
mörkum í þessu
efni við breyttar
kringumstæður.
„Þá hefur framlag til þróunar-
samvinnu verið aukið og stofnað
sendiráð í Afríku vegna meiri
áherslu á þróunarríkin en áður.
Einnig hafa viðskiptaskrifstofa
ráðuneytisins og sendiráðið í Bruss-
el verið efld verulega á síðustu tíu
árum vegna aukins samstarfs við
Evrópusambandið innan ramma
EES.“
Þrjú ný sendiráð í ár
En er eitthvað í uppbyggingu utan-
ríkisþjónustunnar sem hefur setið á
hakanum að mati Halldórs Ásgríms-
sonar? „Segja má að stofnun tvíhliða
sendiráða hafi setið á hakanum í 40
ár frá því að sendiráð var stofnað í
Bonn 1955 og þar til sendiráðið í Kína
var opnað 1995. Þær sendiskrifstofur
sem voru settar upp á þessu tímabili
voru allar stofnaðar vegna þátttöku
íslands i og tengsla við alþjóðastofn-
anir. Það var orðið brýnt að bæta úr
þessu og stofna sendiráð í ríkjum þar
sem við höfðum mikilvægra hags-
muna að gæta. Stofnun nýrra sendi-
ráða á undanfornum árum hefur
gerst hraðar af þessum sökum en
ella.“
ísland er nú með 20 starfsstöðvar
erlendis, að sögn Halldórs. Hann seg-
ir Lúxemborg hafa 30 sendiráð og
fastanefndir, Noregur rúmlega 100 og
önnur Norðurlönd álika mörg.
„Með stofnun sendiráðsins í Japan
hefur ísland nú sendiráð í flestum
stærstu iðnríkjum heims. Viðskipta-
hagsmunir ráða því mjög miklu um
staðsetningu sendiráðanna," segir
Halldór. Hann segir að þegar ákvarð-
anir séu teknar um uppbyggingu ís-
lensku utanríkisþjónustunnar sé
nauðsynlegt að horfa fram á veginn
og meta hagsmuni Islands með hlið-
sjón af líklegri þróun alþjóðamála,
ekki síður en núverandi stöðu.
Einnig þurfi að hafa þróun viðskipta-
lífs og þjóðfélagsbreytingar hér á
landi í huga.
„Ég vil samt benda á að á þessu ári
hafa veriö opnuð þrjú ný sendiráð.
Engar ákvarðanir hafa verið teknar
um stofnun fleiri sendiráða á allra
næstu árum. í framtíðinni verður að
meta hvort þjóðarhagsmunir kaOa á
opnun fleiri sendiráða."
Krefst mikils undirbúnings
Friðargæsla, viðskiptaþjónusta og
þróunaraðstoð. Halldór Ásgrimsson
segir aö öU þessi verkefni séu mikD-
væg í framtíðaruppbyggingu utan-
ríkisþjónustunnar, en hann vill bæta
nokkrum fleiri á listann. „Alþjóðleg
efnahagssamvinna á eftir að fá enn
meiri þýðingu á næstu árum, sömu-
leiðis umhverfismál og hryðjuverka-
árásin á Bandaríkin sýnir að örygg-
is- og varnarmál eru ekki síður mik-
ilvæg nú en áður.
Hvað varðar einstök mál vildi ég
nefna að tengsl íslands við Evrópu-
sambandið eru viðfangsefni sem hef-
ur verulega þýðingu og mun fá enn
meira vægi við stækkun ESB en
áður. Öryggi landsins verður, eins og
áður, tryggt með varnarsamstarfmu
við Bandaríkin og þátttökunni í Atl-
antshafsbandalaginu. Hins vegar er
eðlilegt að ísland haldi áfram á
þeirri braut að leggja meira af mörk-
um á þessu sviði. Af öðrum málum
má einnig nefna framboð íslands til
öryggisráðs Sameinuðu þjóðanna
2009-2010 sem mun krefjast mikils
undirbúnings," segir HaOdór og bæt-
ir við;
„Nauðsynlegt er að hafa í huga að
sá tími er liðinn aö hægt sé að taka
eitthvert eitt eða tvö verkefni út úr
og segja að þau ein skipti máli. Al-
þjóðlega umhverfið sem við búum i
er orðið fjölþættara og samofnara en
áður og hagsmunir okkar að sama
skapi margþættari. Það verður að
horfa á heildarmyndina til að ákveða
hvar áherslurnar eru settar."
Halldór
Ásgrímsson.
Sendiráð, fastanefndir
og ræðisskrifstofur
Sendiráö í Vín
Sendiherra: Þórður Ægir Öskarsson
Starfsmenn: 3
Lönd: Austurriki, Bosína-Hersegóvina
31 og fastanefnd hjá
í Alþjóðakjamorkumálastofiiuninni
(IAEA) og Öryggis- og
samvinnustofnun Evrópu, ÖSE
Sendiráö í Washington
Sendiherra: Jón Baldvin Hannibalsson
Starfsmenn: 7
Lönd: Bandaríkin, Mexikó, Argentina,
L':- . Chile, Kólumbía, Kostaríka,
1.1 “ Gvatemala, Nikaragúa, Perú og
~_ Venesúela
= hl
Fastanefnd hjá Sameinuöu
þjóöunum í New York
Fastafulitrúi: Þorsteinn Ingólfsson
Starfsmenn: 5
Verkefni: Fastanefnd íslands hjá SÞ, auk
ræðismannsskrifstofú i New York
Sendiráö í Brussei í Belgíu
Sendiherra: Gunnar Snorri Gunnarsson
Starfsmenn: 17
Lönd: Belgía, Lúxemborg og
_ _ Liechtenstein.
• ■ Meginverkefm: EES-samningurinn og
BH hagsmunagæsia við EB.
_ 9 starfsmenn á vegum íslenskra
•— fagráðuneyta
Fastanefnd ísiands hjá Nato í
Brussel
Fastafulitrúi: Gunnar Pálsson
Starfsmenn: 6
Verkefhi: Fastanefnd gagnvart
■ Atlantshafsbandalaginu
Sendiráöiö í London
Sendiherra: Þorsteinn Pálsson
Starfsmenn: 7
Lönd: Bretland,. Grikkland, Holland,
Indland, Irland, Maldív-eyjar,
5 — Nepal og Nígería
:■
Sendiráöiö í Kaupmannahöfn
Sendiherra: Helgi Ágústsson
Starfsmenn: 5
Lönd: Danmörk, Færeyjar, Grænland,
vS ísrael, Litháen, Malta, Rúmenía
£11 og Tyrkland
mm I
Sendiráöiö í Helsinki
Sendiherra: Komelíus Sigmundsson
Starfsmenn: 4
Lönd: Finnland, Eistland, Lettland og
, “ Úlu-aína
Sendlráöiö í París
Sendiherra: Sigríður Snævarr
Starfsmenn: 8
Lönd: Frakkland, Andorra, Ítalía,
■ la I Portúgal, San Marino og Spánn.
»2; Auk þess fastanefndir hjá ÓECD,
V f ■ ; UNESCO. Undir þessu: Skrifstofa
í Róm með einum starfsmanni
sem er fulltrúi hjá FAO
Evrópuráöiö í Strassborg ■
Fastafuiltrúi: Hörður H. Bjarnason
Starfsmenn: 2
Verkefhi: Fastanefnd hjá Evrópuráðinu
Sendirálölö í Ottawa í Kanada
Sendiherra: Hjálmar W. Hannesson
Starfsmenn: 3
Lönd: Kanada og Úrúgvæ. Auk þess er
1*1 starfandi aðalræðisskrifstofa í
»— Winnipeg með tveimur
— starfsmönnum.
Aðalrœðismaður. Eiður Guðnason
sendiherra
Sendiráöiö í Peking
Sendiherra: Ólafur Egilsson
Starfsmenn: 6
Lönd: Kína, Ástralía, Nýja-Sjáland,
■81 Indónesía, Mongólía, Norður-
Kórea, Suður-Kórea, Taíland og
82“* Víetnam
Sendiráöiö í Tokyo •
Sendiherra: Ingimundur Sigfússon
Starfsmenn: 6
Lönd: Japan
Sendiráöiö í Maputo í Mósambík
Sendiherra: Björn Dagbjartsson
Starfsmenn: 1
Lönd: Mósambík, Suöur-Afríka, Namibía
Sendiráöiö í Ósló
Sendiherra: Kristinn F. Ámason
Starfsmenn: 4
Lönd: Noregur, Egyptaland, Makedónía,
•■““Pólland, Slóvenía og Tékkland
Sendiráöiö í Moskvu
Sendiherra: Benedikt Jónsson
Starfsmenn: 4
Lönd: Rússland, Armenía, Aserbaídsjan,
52 Georgía, Moldavia, Túrkmenistan
jji~ og Usbekistan
Alþjóöastofnanir í Gonf
FastafuUtrúi: Stefán Haukur Jóhannesson
Starfsmenn: 5
Verkefim Fastanefnd hjá alþjóðastofnunum
í Genf, m.a. Alþjóðaviðskipta-
stofnuninni (WTO) og EFTA
Sendiráö í Stokkhólml
Sendiherra: Svavar Gestsson
Starfsmenn: 4
Lönd: Svíþjóð, Albania, Bangladesh,
15* Búlgaría, Júgóslavía, Kýpur,
■“ Pakistan og Slóvenía
Sendlráö í Berlín1
Sendiherra: Jón Egill Egilsson
Starfsmenn: 5
Lönd: Þýskaland, Ungverjaland, Króatia
og Sviss