Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2001, Page 10
10
Útlönd
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001
E>V
REUTER-MYND
Forsetar á góöu róli
Bush Bandaríkjaforseti og Pútín
Rússlandsforseti takast í hendur
eftir fund meö fréttamönnum í gær.
Bush fækkar í
kjarnavopnabúri
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagöi í gær að Bandaríkjamenn
myndu fækka kjarnaoddum í
vopnabúri sínu um tvo þriðju á
næstu tíu árum. Vladímír Pútín
Rússlandsforseti, sem er í heimsókn
hjá Bush, lofaði að reyna aö gera
slíkt hið sama.
Forsetamir tveir sögðu þó á
fjórða fundi sínum frá því í júní að
þeir hefðu ekki enn komist að sam-
komulagi sem gerði Bandaríkja-
mönnum kleift að halda áformum
sínum um eldflaugavarnakerfi og
um leið halda í ABM-samninginn
frá 1972. Sá samningur bannar
einmitt þróun slíks kerfls.
„Okkur greinir á um ABM-samn-
inginn," sagði Bush á fundi með
fréttamönnum. Pútín sagði enga
breytingu á þeirri afstöðu Rússa að
haldið yrði í samninginn.
Pútín heldur fyrirlestur í Hou-
ston í dag en heldur siðan á búgarð
forsetans í Texas og snæðir þar
kvöldverð að hætti kúreka.
Stórsókn Norðurbandalagsins heldur áfram:
Upplausn sógð í liði talibana
í höfuðvíginu Kandahar
Sigurreifir hermenn Noröurbandalagsins
Eftir hertöku Kabúl í gærmorgun hafa hersveitir Norðurbandalagsins sótt fram til
Jalalabad í austri og segja nýjustu fréttir í morgun aö borgin hafí þegar veriö
hertekin. Einnig er sótt fram til suöurs, til Kandahar, höfuövígis talibana.
síbúar Kabúl, höfuðborgar
Afganistan, sem hersveitir Norður-
bandalagsins frelsuðu undan yfirráð-
um talibana í gærmorgun, vöknuðu í
morgun til bænahalds við tónlist og
gleði í fyrsta skipti i fimm ár, eða síð-
an talibanar tóku þar völdin og inn-
leiddu stranga bókstafstrú sem bann-
aði svo að segja allt annað en bæna-
hald. íbúarnir eru þó engu nær um
framtíðina og bíða nú spenntir eftir
ákvörðun alþjóðasamfélagsins um
nýja ríkisstjórn og stjórnarhætti í
landinu.
Hertaka Kabúl er í trássi við vilja
Bandaríkjamanna og Breta, sem vildu
mynda starfhæfa rikisstjóm i landinu
fyrir hertöku hennar og setur ný staða
allt samningaferlið í mikið uppnám.
Pakistanar höfðu lagt mikla áherslu á
að borgin yrði ekki hertekin og óttuð-
ust mjög afleiðingar þess að Norður-
bandalagið næði henni á sitt vald og
mynduðu þar eigin ríkisstjóm. Margir
Pakistanar lita á hertökuna sem svik
Bandaríkjamanna við gefin loforð og
leggja nú mikla áherslu á að þeir grípi
í taumana og að Sameinuðu þjóðun-
um verði þegar fengið það hlutverk að
taka við stjóminni.
Donald Rumsfeld, varnarmálaráð-
herra Bandarikjanna, sagði í kjölfar
hertökunnar að bandarískar sérsveit-
ir væm þegar að störfum í suðurhluta
landsins og einnig í Kabúl. Þeirra
verkefni væri að halda áfram að að-
stoöa Norðurbandalagið í sókninni
gegn talibönum, en taldi þær ekki í
stakk búnar til að halda uppi lögum
og reglu í Kabúl.
Abdullah Abdullah, utanríkisráð-
herra Norðurbandalagsins, ætti þó að
hafa slegið nokkuð á ótta manna í
ávarpi sínu í gærdag eftir hertökuna,
þegar hann sagði að höfuðborgin
hefði aðeins verið tekin til að gæta ör-
yggis eftir að talibanar yfirgáfu hana
óvænt á mánudagsmorgun. „Við bjóð-
um alla aðra velkomna til Kabúl,
nema talibana, til aö taka þátt í mynd-
un nýrrar ríkisstjórnar landsins,"
sagði Abdullah og bætti við að sóknin
myndi halda áfram.
Mary Robinson, mannréttindafull-
trúi Sameinuðu þjóðanna, sagðist í
gær óttast ástandið í Kabúl eftir her-
tökuna. „Það hefur sýnt sig í gegnum
árin að þegar völdin færast milli
valdahópa í Afganistan, að því fylgir
yfirleitt hræðileg meðferð og morð á
óbreyttum borgurum. Þetta verðum
við að koma í veg fyrir,“ sagði Mary.
Lakhdar Brahimi, aðalfulltrúi Sam-
einuðu þjóðanna um málefni
Afganistans, hefur þegar lagt fram til-
lögur um næstu framtíð Afganistans í
kjölfar hertökunnar og sagðist í
ávarpi til öryggisráðsins leggja til að
þegar yrði mynduð bráðabirgðaríkis-
stjórn til tveggja ára, skipuð Afgön-
um, og nyti hún hún aðstoðar öryggis-
sveita SÞ. „Ég tel það gæfulegra held-
ur en að fela fulltrúum SÞ stjórnun
landsins," sagði Brahimi.
Eftir hertöku Kabúl hefur Norður-
bandalagið einbeitt sér að frekari
sókn til suðurs að höfuðvígi talibana í
Kandahar, þar sem þeir segja að
ástandið sé svipað og var í Kabúl.
Borgin sé stjómlaus og mikil upp-
lausn í liði talibana. Einnig hefur ver-
ið sótt fram til austurs, til borgarinn-
ar Jalalabad í nágrenni Kabúl, og
héldu bandarískar orrustuþotur uppi
árásum á borgina í aOa nótt, en tali-
banar halda enn aðalsamgönguleið-
inni frá Kabúl tU Pakistans, sem ligg-
ur um Jalalabad. Árásunum í nótt var
aðaUega beint að flugvelli borgarinn-
ar, en þar eru aðalbækistöðvar tali-
banahersins á svæðinu. í nágrenni
borgarinnar er einnig fjöldi æfinga-
búða al-Qaeda-samtaka bin Ladens og
einnig pakistanskra hersveita sem
einbeitt hafa sér að átökunum gegn
Indverjum í Kasmír.
|ÓLACjAFAHAnDBÓK^D V
hefuro/ekið omissAnDi við ^
lyriDÍKBÚniriG jÓLAnnA og val
f jÓLAGjAFA í YFÍRjZO ÁR^ ^
'Víð viLjum minnA auglýsehduk_
Á að tEKÍÐ erj/íð pöntunum %
k 21. nóvEmBER^ ^
Wk, ITIeÐ jÓLAKYEÐju.
ff ÖUGLÝSÍnGADEÍLD
Éí. sími 550 500
Hin eina SAnnA
| Ó L A C j A F A H A n D B Ó K^D V
KjmUR^OtS* DESEMBER*