Dagblaðið Vísir - DV - 14.11.2001, Page 11
MIÐVIKUDAGUR 14. NÓVEMBER 2001
DV
Utlönd
11
Vill fá blessun þingsins
Gerhard
Schröder Þýska-
landskanslari ætlar
að sækjast eftir
traustsyfirlýsingu
þingsins á föstudag,
að því er þing-
flokksformaður
jafnaðarmanna-
flokks hans tilkynnti í gær. At-
kvæðagreiðslan gæti orðið banabiti
stjórnar Schröders þar sem ákvörð-
un um að senda hermenn til
Afganistans er spyrt við hana og
samstarfsflokkurinn í ríkisstjórn,
Græningjar, er andvígur þvi.
Vilja lægri skatta
Mörg stærstu fyrirtæki Danmerk-
ur, meö Danfoss í broddi fylkingar,
hafa krafist þess að stjórnvöld
lækki skatta til að styrkja sam-
keppnisstöðuna.
Þorpsbúar vopnast
Þorpsbúar af albönskum uppruna
í Makedóníu hafa stofnað vopnaðar
varðsveitir sem reyna að koma í veg
fyrir að makedónskir hermenn
komist inn í þorpin í leit að morð-
ingjum þriggja lögregluþjóna.
Bjartara fyrir konur
Fall talibanastjórnarinnar í
Afganistan veitir konum í landinu
nýja von um að geta menntað sig og
tekið þátt i atvinnulifinu, ef mis-
mununin gegn þeim verður stöðv-
uð, að sögn bandarískra kvenrétt-
indafrömuða.
Tala látinna hækkar
Tala látinna eftir verstu flóð í Al-
sír í 40 ár er nú komin yfir 600 og
létust flestir í höfuðborginni.
Dregnir fyrir herrétt
George W. Bush
Bandaríkjaforseti
undirritaði í gær
tilskipun sem heim-
ilar bandaríska
hernum að setja á
laggimar sérstaka
dómstóla til að
rétta yfir útlending-
um sem verða ákærðir fyrir hryðju-
verkaárásirnar 11. september og
svipaða verknaði.
Áfram drepið
Palestínsk kona lét lífið í átökum
við Israela á Vesturbakkanum í
gær. Ekkert fararsnið er á ísraelsk-
mn hersveitum frá tveimur bæjum
Palestinumanna þótt stórveldin hafi
krafist þess að þeir færu á brott.
Jospin bjartsýnn
Lionel Jospin,
forsætisráðherra
Frakklands, sagði í
gær að sósíalista-
flokkur hans ætti
raunhæfan mögu-
leika á að fara með
sigur af hólmi í
þingkosningunum í
landinu á næsta ári, ef tekið væri
mið af afrekum þeirra frá því þeir
komust til valda árið 1997. Frakkar
kjósa sér einnig forseta á næsta ári.
Stækkun ESB á áætlun
Romano Prodi, forseti fram-
kvæmdastjómar Evrópusambands-
ins, sagði í gær að stækkunaráform-
in til austurs væru á áætlun og mun
viðræðum við tíu umsóknarlönd
ljúka á næsta ári. Umsækjendur
fögnuðu orðum Prodis ákaft.
Bæði „svörtu boxin“ úr Airbus-vélinni fundin:
Skrölthljóð heyrist
á hljóðupptökum
Nákvæm rannsókn fer nú fram á
gögnum „svörtu boxanna", sem
bæði hafa fundist í braki Airbus-
vélarinnar sem fórst skömmu eftir
flugtak frá Kennedy-flugvelli í New
York í mánudagsmorgun en vélin
fórst með þeim afleiðingum að allir
innanborðs, samtals 260 manns, og
nokkrir íbúar Queens-hverfisins
fórust þegar hún steyptist niður í
íbúðahverflð.
Rannsóknir á upptökum hljóðrita
hafa staðfest að öll samskipti flug-
stjórnar og flugmanna voru með
eðlilegum hætti við flugtakið, en
ljóst að einhver tæknileg bilun varð
rétt eftir að vélin var komin á loft.
Greint hefur verið skrölthljóð í upp-
tökunum og síðan aukinn hávaði
rétt áður en flugmennirnir tilkynna
að þeir hafi misst stjórn á vélinni,
tæpum tveimur mínútum eftir flug-
tak.
Nú er verið að bera saman upp-
tökur af hljóðrita við flugrita, sem
Rugslysiö í New York
Einn hinna slösuðu úr Queens-hverf-
inu fluttur á brott úr rústum íbúða-
hverfislns þar sem Airbus-þotan
hrapaði í gærmorgun.
ætti að staðfesta hvort vélarbilun
hafi orsakað slysið, eins og frum-
rannsókn bendir til, eða hvort um
hryðjuverk hafi verið að ræða, sem
rannsóknaraðilar telja ólíklegt.
George Black, talsmaður rann-
sóknarnefndar flugslysa, sagði í gær
að einng væri verið að rannsaka
hvort hugsanlegur loftórói frá vél
sem hóf sig til flugs rétt á undan
Airbus- vélinni hefði getað átt þátt í
slysinu, en þar var um að ræða
Boeing 747 vél frá Japan Airways.
„Skrölthljóðið heyrist greinilega
rétt eftir flugtak og tíu sekúndum
seinna, þegar vélin hefur verið 114
sekúndur á lofti, heyrist flugmaður-
inn tilkynna um aukinn loftóróa,
hugsanlega frá japönsku vélinni
sem fór í loftið rétt á undan. Upp-
takan endar sautján sekúndum síð-
ar, aðeins 37 sekúndum eftir að
skrölthljóðið heyrist fyrst og aðeins
tveimur og hálfri mínútu frá upp-
hafl flugtaks," sagði Black.
REUTER-MYND
Múmía á hrekkjavöku í Hong Kong
Maður nokkur dulbúinn sem múmía skemmtir sér á hrekkjavöku þeirra í Hong Kong. Myndin var tekin fyrir utan
knæpu í helsta skemmtanahverfi Hong Kong, Lan Kwai Fong. Versnandi efnahagshorfur hafa komið niður á þessum
vinsæla skemmtistað nátthrafna úr röðum fjármálamanna og útlendinga sem lifa og starfa í borginni.
Indverjar létu sér segjast í Katar í morgun:
Skapvonska og þreyta á
lokapsretti fundar WTO
Þótt ráðherrar á fundi Heimsvið-
skiptastofnunarinnar (WTO) í arab-
íska furstadæminu Katar væru
orðnir bæði skapstyggir og örþreytt-
ir tókst þeim þó í nótt að þokast
nær samkomulagi um aö hefja við-
ræður um verslun og viðskipti, að
því er embættismenn greindu frá.
Indverjar gáfu til kynna í morgun
að þeir myndu fallast á nýja tillögu
aö samkomulagi sem fylgismenn
segja að muni verða kærkomin lyfti-
stöng fyrir efnahagslíf heimsins og
auka hagvöxtinn, milljónum fá-
tækra um heim allan til hagsbóta.
Þá segja stuðningsmenn að sam-
komulag muni bæta fyrir klúðrið í
Seattle fyrir tveimur árum, þegar
WTO mistókst að koma af stað nýj-
um viðræðum um aukið frelsi í
REUTER-MYND
Fundað í alla nótt
Ráðherrar aðildarlanda Heimsvið-
skiptastofnunarinnar luku ekki fundi
sínum í Katar í gær, eins og áform-
að var, vegna ósamkomulags um
lokasamþykktina. Unnið var að því í
alla nótt að finna lausn á deilunni.
heimsviðskiptum.
Háttsettur sendiherra frá Asíu
sagði í nótt að flest ríkin gætu sætt
sig við samningsdrögin, þótt mikil
óánægja væri með mörg atriði.
„Það er mikill þrýstingur á að
boða til viðræðna," sagði fulltrúi frá
Rómönsku Ameríku.
í endurskoðuðum texta sem full-
trúarnir fengu í hendumar klukkan
tvö í nótt að íslenskum tíma voru
breytingar sem ætlað var að draga
úr áhyggjum Evrópusambandsins
um afnám útflutningsstyrkja til
landbúnaðarins. Þá var komið til
móts við kröfu Evrópusambandsins
um að efna til viðræðna um að
tengja viöskipti og umhverfísstaðla.
Indverjar voru hræddir við það
ákvæði en létu sér segjast.
Notaðir bílar hjá
Suzuki bílum hf.
Suzuki Baleno GLX, 4 d., 4x4,
Suzuki Baleno Wagon, ssk.,
skr. 6/99, ek. 26 þús.
Verð kr. 1270 þús.
Toyota Avensis, 4 d., bsk.,
skr. 6/99, ek. 31 þús.
Verð kr. 1220 þús.
Subaru Impreza 2,0
skr. 11/99, ek. 31 þús.
Verð kr. 1580 þús.
Renauit Mégane Berline,
bsk., skr. 10/00, ek. 9 þús.
Verð kr. 1490
Daewoo Lanos, 4 d„ ssk.,
skr. 11/99, ek. 45 þús.
Verð kr. 990 þús.
TILBOÐ kr. 890 þús.
Suzuki Vitara JLX, 5 d„ bsk„
skr. 5/97, ek. 109 þús.
Verð kr. 990 þús.
TILBOÐ kr. 840 þús.
tra station, ssk„
SKr. 3/98, ek. 33 þús.
Verðkr. 1130 þús.
TILBOÐ kr. 950
Daihatsu
skr. 10/99, ek.
Verð kr. 1
TILBOÐ kr.
Sjáðu fleiri á suzukibilar.is
$ SUZUKI
---//M..-.—- .....
SUZUKI BÍLAR HF.
Skeifunni 17, simi 568-5100