Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2001, Side 5
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001
5
DV
Fréttir
Bátar frá Ólafsvík halda til leitar á laugardag
Enn er tveggja skipverja Svanborgarinnar saknaö en víötæk leit á fjörum og sjó hefur staðið yfir frá því skipið fórst á föstudagskvöld.
Fánar blakta í hálfa stöng í Ólafsvík:
Fólk stendur saman
á erfiðum tímum
- segir bæjarstjórinn - Sjóslysamynd var tekin af dagskrá Stöðvar 2
DV-MYND PJ
Flaggaö f hálfa stöng
Fánar blöktu víða í hálfa stöng í Ólafsvík um helgina í kjölfar hins hörmulega
sjóslyss á föstudagskvöid.
„Hér eru allir harmi slegnir eftir
þennan hörmulega atburð og sam-
kennd fólksins er mikil. Hugur fólks
er hjá þeim sem
nú hafa svo mik-
ið misst. Það er
nú kannski einn
af kostum þess að
búa í fámennu
samfélagi úti á
landi að hér
þekkja allir alla
og fólk stendur
saman á erfiðum
tímum sem nú,“
sagði Kristinn Jónasson, bæjar-
stjóri í Snæfellsbæ, 1 samtali við DV
í gær. Fánar blöktu víða i hálfa
stöng í Ólafsvík í gær eftir hið
hörmulega sjóslys á föstudagskvöld-
ið þegar Svanborg SH 404 fórst við
Öndverðarnes og með henni einn
maður. Tveggja manna er enn sakn-
að og leituðu björgunarsveitarmenn
þeirra allan gærdaginn. „En það er
ljós í myrkrinu að einn maður
skyldi bjargast með giftusamlegum
hætti,“ sagði bæjarstjórinn.
Á sunnudagskvöldið var í Ólafs-
víkurkirkju haldin kyrrðarstund
vegna þessara hörmulegu atburða.
Hún var fjölsótt og Kristinn segir að
þar hafi glögglega mátt fmna þann
mikla samhug sem ríki meðal fólks
vestra - og sjálfsagt allrar þjóðar-
innar - nú á þessum erfiðu dögum.
Kristinn segir enn fremur að sjó-
slysið á föstudagskvöldið ýfi vissu-
lega sár margra því þetta sé ekki í
fyrsta sinn sem hafið taki menn á
Snæfellsnesi. Slíkir atburðir reyni
alltaf á fólk og margir upplifi þá í
raun aftur nú.
Frumsýna átti á Stöð 2 á laugar-
dagskvöldið sjóslysamyndina Per-
fect storm, með þekktum leikurum
á borð við George Clooney. Að sögn
Pálma Guðmundssonar, markaðs-
stjóra sjónvarpssviðs Norðurljósa,
var í ljósi aðstæðna vegna hins
hörmulega sjóslyss ákveðið að taka
myndina tímabundið af dagskrá.
„Okkur fannst engan veginn viðeig-
andi að sýna svona mynd á þessum
tímapunkti," segir Pálmi. Að sögn
Kristins bæjarstjóra voru margir
íbúar á Snæfellsnesi sem hann
heyrði í einkar ánægðir með þessa
ákvörðun Stöðvar 2 - og þótti hún
lýsa skilningi og hluttekningu á erf-
iðum tímum.
Sérfræðingar Rauða kross íslands
í áfallahjálp voru í Ólafsvík á
sunnudag og veittu aðstoð þeim sem
þess óskuöu. Alls ræddu þeir við
nærfellt þrjátíu manns, svo sem að-
standendur, björgunarsveitarmenn,
kennara og áhöfn eins báts sem leit-
aði skipverja á Svanborgu. „Ólafs-
vík er staður í sorg og það fólk sem
við ræddum við var misjafnlega á
sig komið tilfinningalega," sagði Jó-
hann Thoroddsen sálfræðingur sem
fór fyrir áfallahjálparhópi Rauða
krossins.
„í litlu samfélagi snertir svona at-
burður hvern einasta íbúa með ein-
hverjum hætti. Það er því mjög nauð-
synlegt að veita fólki þá sálrænu að-
stoð sem það þarf. Á næstu dögum
verður metið hvort við förum aftur
vestur, núna er hin sálræna hjálp í
höndum sóknarpresta og þess fag-
fólks vestra sem tO næst. Staðreyndin
er sú að oft líður mislangur tími frá
áfalli þar til fólk hefur frumkvæði að
því sjálft að leita sér sálrænnar hjálp-
ar,“ sagði Jóhann Thoroddsen. -sbs
Undirritun samningsins
Með samningnum við Símann næi
íslenska sjónvarpsfélagið mikilvæg-
um áfanga i rekstrinum.
Stærstu kaup-
staðirnir sjá
SkjáEinn fyrir jól
Siminn og íslenska sjónvarpsfélagið,
sem m.a. rekur SkjáEinn, hafa gert
með sér samning um dreifmgu á sjón-
varpsmerki Skjásins um allt land í
gegnum ljósleiðara og aðstöðu íyrir
senda og loftnet í húsnæði Símans.
Meö samningnum verður lands-
byggðinni tryggður aðgangur að stöð-
inni á næstu árum og gert er ráð fyrir
að stærstu þéttbýlisstaðimir fái að-
gang fyrir jól. Auk höfuðborgarsvæðis-
ins hefur SkjárEinn náð til Akureyrar,
Selfoss, Hveragerðis, ísafjarðar og
Sigluíjarðar.
Nýi samningurinn gerir ráð fyrir að
dreifikerfið verði byggt upp í þremur
áfongum og að fyrsta áfanga loknum í
næstu viku munu sjónvarpsáhorfendur
í Vestmannaeyjum, Höfn, Egilsstöðum,
Húsavík, Reyðarfirði og í Borgamesi sjá
dagskrá stöðvarinnar. Á komandi vik-
um munu svo fleiri þéttbýlisstaðir víða
um land bætast í hópinn. -aþ
Mývetningar láta framkvæma skoöanakönnun upp á eigin spýtur:
Sameining við önnur
sveitarfélög skoðuð
- sveitarstjóri telur fyrri könnun fyrst og fremst höfnun sameiningar við Húsavík
Nýlokið er skoðanakönnun með-
al ibúa Mývatnsveitar um hvort
farið verður út í sameiningarvið-
ræður við nágrannasveitarfélög.
Mývetningum
var boðið upp á
fjóra kosti í bréfi
sem sent var öll-
um íbúum
hreppsins. í
fyrsta lagi er
boðiö upp á
óbreytt ástand, í
öðru lagi sam-
einingu við Að-
aldælahrepp og
Reykjahrepp ' í
þriðja lagi sameiningu við Aðal-
dælahrepp, Reykjahrepp og Keldu-
neshrepp í N-Þingeyjarsýslu. í
Qórða lagi er spurt um aðra kosti
og þá hverja.
Ekki er langt síðan Mývetning-
ar, sem og mikill meirihluti ibúa í
Norður- og Suöur-Þingeyjarsýslu,
höfnuðu sameiningu sjö sveitarfé-
laga en Sigbjörn Gunnarsson,
sem Mývetningum gefst kostur á
að styðja í sameiningarlegu tilliti.
sveitarstjóri i Mývatnssveit, sagði
í samtali við DV að hans tilfinning
væri að menn hefðu einkum verið
að hafna sameiningu við Húsavik i
þeirri kosningu. Hann sagði að
niðurstöður úr þessari könnun
yrðu ekki birtar fyrr en á fimmtu-
dag. „Það eru skiptar skoðanir um
þetta en ég tel mjög æskilegt að
stækka sveitarfélög. Þarna er boð-
ið upp á einhverja möguleika sem
ég tel ágætis byrjun. Það gæti ver-
ið heppilegt að fá sveitarfélag með
um 800 íbúa,“ sagði Sigbjörn.
Það vekur ef til vill sérstaka at-
hygli að Kelduneshreppur skuli
nefndur í þreiflngunum en sam-
kvæmt skýringum frá sveitar-
stjóm Skútustaðahrepps er ástæð-
an sú að Kelduneshreppur liggur
að Skútustaðahreppi og auk þess
eru líkur á að vegasamband kom-
ist á milli þessara hreppa verði
Dettifossvegur lagður vestan ár.
Alls eru íbúatölur þessara svæða
þannig að 443 búa í Mývatnssveit,
288 í Aðaldal, 107 í Reykjahreppi og
99 í Kelduneshreppi.
-BÞ
Héraðsdómur:
Málshöfðun
hjá vitlausu
varnarþingi
Héraðsdómur Norðurlands eystra
hefur vísað frá dómi málsókn á
hendur Bændasamtökum íslands.
Fyrrverandi bóndi í Eyjafjarðar-
sveit höfðaði málið en lögmenn
Bændasamtakanna kröfðust frávís-
unar þar sem málið væri höfðað á
röngu vatnarþingi. Á það fellst
dómurinn og gerir bóndanum fyrr-
verandi að greiða Bændasamtökun-
um kr. 50.000 í málskostnað.
Málið snýst um hvort bóndinn
eigi rétt á skaðabótum eftir að hann
seldi mjólkurkvóta sinn fyrir
nokkru. Hann krafðist 1.785.080
króna skaðabóta með dráttarvöxt-
um eftir að hafa selt 44.627 lítra af
kvóta jarðar sinnar og heldur fram
að Bændasamtökin hafi vanrækt
skyldur sínar við söluna sem aftur
hafi rýrt fjárhagsafkomu hans.
Væntanlega verður málið tekið
aftur upp í Reykjavík því Héraðs-
dómur telur óumdeilt að starfsstöð
stefndu sé í Reykjavík og því eigi að
höfða málið þar. -BÞ
Frá Raufarhöfn.
Raufarhöfn:
Fá fund með
ríkisstjórn
„Ríkisstjórnin hefur samþykkt að
halda fund með okkur en það er ekki
vitað ennþá hvenær sá fundur verður
haldinn,“ segir Reynir Þorsteinsson,
sveitarstjóri á Raufarhöfn, en ríkis-
stjórnin hefur ákveðið að verða við
tilmælum sveitarstjórnar Raufarhafn-
arhrepps um fund og fara þar yfir
ýmis nauðsynjamál sem hvíla þungt á
heimamönnum.
Reynir nefnir sem dæmi að hrepp-
urinn muni fara fram á 10 þúsund
tonna loðnukvóta í byggðakvóta. „Við
sjáum engan einasta mun á því að við
fáum slíkan kvóta og því að Vestfirð-
ingar hafa fengið byggðakvóta í bol-
fiski, það er enginn munur á þessu
tvennu," segir Reynir.
Hann segir ýmis önnur mál verða
rædd, s.s. dýpkun hafnarinnar og inn-
siglingarinnar í hana sem sé geysilegt
nauðsynjamál að hraðað verði sem
allra mest. Og Reynir segir að ekki
megi gleyma samgöngumálunum en
þau séu mál málanna eigi byggð að
haldast á svæðinu í framtíðinni. -gk
Kópavogur:
Próflausir
undir stýri
Lögreglan í Kópavogi þurfti um
helgina að hafa afskipti af tveimur
ungmennum sem ekki höfðu ökurétt-
indi. í fyrra tilvikinu var um að ræða
tvær 16 ára vinkonur sem tekið höfðu
bíl móður annarrar ófrjálsri hendi og
keyrt hann tO Reykjavíkur til þess að
ná í þriðju vinkonuna. Stúlkurnar
þrjár voru stöðvar af lögreglunni á
leið sinni til baka í Kópavoginn en
hvorki bílnum né stúlkunum varð
meint af ökuferðinni. Sömu sögu er
ekki að segja af jafnöldrum þeirra,
þremur piltum sem lögreglan veitti
eftirfór snemma á sunnudagsmorgun-
inn þar sem þeir sáust keyra um göt-
ur bæjarins á ofsahraða. Ökuferðin
endaði inni í húsagarði við Hlíðarveg
og kom þá í ljós að sá sem var undir
stýri hafði ekki tilskilin ökuréttindi.
Bílnum sem piltamir voru á höfðu
þeir stolið í Grafarvogi og skemmdist
hann töluvert, sem og garðurinn sem
þeir enduðu inni í. -snæ