Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2001, Blaðsíða 10
10
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001
Útlönd
REUTER-MYND
Ráöherrar spjalla
Utanríkisráöherrar Rússlands og
Bandaríkjanna, ígor ívanov og Colin
Powell, hittust í Moskvu í gær og
ræddu afvopnun og fleirí mál.
Vonast eftir nýj-
um samningi um
afvopnun 2002
Stjórnvöld í Rússlandi og Banda-
rikjunum sögðu í gær að þau byndu
vonir við að geta gengið frá nýjum
samningi um fækkun kjarnorku-
vopna áður en George W. Bush
Bandaríkjaforseti kemur i heim-
sókn til Moskvu um mitt næsta ár.
Colin Powell, utanrikisráðherra
Bandaríkjanna, hitti Vladimír
Pútín Rússlandsforseta í Moskvu í
gær og sagði að þeim fundi loknum
að löndin tvö væru nær því en áður
að koma sér saman um hversu mik-
ið þyrfti að fækka kjarnaoddum í
vopnabúri þeirra.
Samskipti landanna eru með
besta móti um þessar mundir þar
sem þau hafa ákveðið að snúa bök-
um saman í baráttunni við hryðju-
verkamenn og samtök þeirra.
Motzfeldt mynd-
ar nýja stjórn
Jonathan Motzfeldt og jafnaðar-
mannaflokkur hans mynduðu um
helgina nýja heimastjórn á Græn-
landi með helsta andstæðingi sín-
um, hægri flokknum Atassut.
Flokkamir ákváðu að mynda
stjórn saman til að koma í veg fyrir
að þurfa að boða til kosninga.
Helsta málið í þeirri kosningabar-
áttu hefði orðið gífurleg launahækk-
un sem grænlenskir þingmenn
skömmtuðu sér en urðu að aftur-
kalla vegna mikilla mótmæla al-
mennings. Tíu þúsund manns skrif-
uðu meðal annars undir kröfu um
að boðað yrði til nýrra kosninga.
Óvist þykir að stjórnin sitji lengi
þar sem varaformaður Atassut hef-
ur gagnrýnt stjórnarsáttmálann.
REUTER-MYND
Silvio Berlusconi
ítalski forsætisráðherrann ætlar að
ná sáttum við félaga sína í ESB um
handtökuheimildir.
Handtökudeilan
leyst fyrir helgi
ítölsk stjórnvöld sögðu í gær að
deila þeirra við félaga sína innan
Evrópusambandsins um að heimilt
verði að gefa út handtökuheimildir
sem gildi um allt sambandið verði
leyst fyrir leiðtogafund um helgina.
ESB vill fá þessa heimild til að
berjast gegn hryðjuverkum og öðr-
um alvarlegum glæpum, meðal ann-
ars glæpum sem SUvio Berlusconi,
forsætisráðherra Ítalíu, hefur verið
sakaður um. En ítalir segja að með
því fái útlendingar of mikil áhrif til
að blanda sér í málefni þeirra.
Gjöreyðingarsprengjunni „Daisy Cutter“ beitt í Tora Bora:
Leitin að bin
gæti staðið
Mohammed Amin, talsmaður her-
sveita Norðurbandalagsins á Tora
Bora-svæðinu, sagði í morgun að her-
sveitir þeirra hefðu í gær hertekið
helstu birgðastöð hersveita bin
Ladens í Uallabirgjum Tora Bora. Það
mun hafa gerst í kjölfar öflugra loft-
árása Bandaríkjamanna á svæðið í
gærmorgun en þá varpaði B-52
sprengjuvél bandaríska hersins svo-
kallaðri „Daisy Cutter“ sprengju á
svæðið en hún veldur miklum skaða á
yfirborðinu og eyðir svo að segja öllu
lífi á svæði sem hefur sex hundruð
metra radíus, með því að éta upp allt
súrefni úr andrúmsloftinu. Þessum
sprengjum hefur aðeins tvisvar eða
þrisvar sinnum áður verið beitt i
Afganistan og var í þetta skipti varp-
að að aðalhellasvæðinu í Tora Bora.
„Við höfum náð á okkar vald helstu
birgðastöð þeirra í hellabirgjunum og
einnig tveimur aðalbækistöðvum al-
Qaeda í flöllunum," sagði Mohammed
sem var bjartsýnn á að hersveitum
Osama bin Laden
Bin Laden er sagður hafa sést á Tora
Bora svæðinu fyrir fjórum dögum.
Laden
lengi
Norðurbandalagsins tækist að ná öllu
svæðinu fyrir miðja vikuna. „Við er-
um þegar búnir að ná á okkar vald
hernaðarlega mikilvægum svæðum
hæst í fjöllunum auk þess sem héruð-
in Melawa Palanai og Anzare Sar eru
nú á okkar valdi. Við höfum líka
áreiðanlegar heimildir fyrir því að
bin Laden hafl verið hér á svæðinu
fyrir íjórum dögum og því munum við
halda stöðugt áfram þar til við náum
honum,“ sagði Mohammed.
Paul Wolfawitz, aðstoðarvarna-
málaráðherra Bandaríkjanna, vildi þó
ekkert staðfesta um hugsanlegan
verustað bin Ladens og bætti við að
leitin að honum ætti hugsanlega eftir
að standa lengi. „Það gæti tekið vikur
eða mánuði að uppræta al-Qaeda sam-
tökin við þessar aðstæður í íjöllunum.
Bin Laden er á flótta og margir sem
vilja klófesta hann fyrir það gjald sem
sett er honum til höfuðs. Hann mun
því örugglega láta lítið fyrir sér fara,“
sagði Wolfowitz.
REUTER-MYND
Jólastemning í Hvíta húsinu
George W. Bush Bandaríkjaforseti og Laura, eiginkona hans, eru að komast í jólaskap þótt ástandið í heimsmálunum
sé ekki beint hátíðlegt um þessar mundir. Forsetinn gaf sér þó tíma frá önnum dagsins i gær og fylgdist með þegar
Laura las fyrir um fimmtíu börn úr grunnskóla í Arlington í Virginíu sem heimsóttu Hvíta húsið. Bókin sem Laura Bush
las úr fjallar um mús sem fer í bíó.
Nýtt myndband sannar
að bin Laden er sekur
- segir George W. Bush Bandaríkjaforseti
George W. Bush Bandaríkjafor-
seti sagöi á fréttamannafundi i gær
að fjörutíu mínútna myndbandsupp-
taka með Osama bin Laden, sem ný-
lega fannst í Jalalabad í Afganistan,
sanni það að bin Laden hafi staðið á
bak við hryðjuverkaárásirnar í
Bandaríkjunum þann 11. september
sl. Upptökumar hafa ekki enn verið
sýndar opinberlega en að sögn tals-
manna Hvíta hússins mun það
hugsanlega verða gert síðar í vik-
unni, eftir að Bush hefur ráðfært
sig við ráðgjafa sína.
„Þeir sem sjá þessa upptöku
sannfærast ekki aðeins um það að
bin Laden sé sekur um hræðilega
glæpi heldur líka að hann sé algjör-
lega samvisku- og sálarlaus og full-
trúi þess versta sem þekkist i heim-
inum,“ sagði Bush,.
Dick Cheney lýsti bin Laden eins
George W. Bush
Bush Bandarikjaforseti segir myndband-
ið sanna að bin Laden sé sekur um
hryðjuverkaárásirnar í Bandaríkjunum.
og manni sem stendur yflr líki með
rjúkandi byssu þar sem enginn vafi
sé á að hann sé sekur um hryðju-
verkin.
Bin Laden hefur ítrekað neitað
því að vera viðriöinn hryðjuverka-
árásirnar á Bandaríkin, þó svo að
hann hafi lofað þær. Að sögn banda-
rískra embættismanna kemur fram
í máli hans á upptökunum hve
ánægður hann hafi verið með ár-
angurinn af árásunum og hann
gorti jafnvel af því að hafa varað við
þeim löngu áður. Einnig komi fram
að hann hafi sagt þeim sem sátu
með honum og fylgdust með beinni
útsendingu frá atburðunum að
meira ætti eftir að gerast eftir að
fyrsta vélin hafði lent á World Tra-
de Center. Þar komi einnig fram að
sumir flugræningjanna hafi aðeins
vitað aö fremja ætti flugrán.
Bretar móttækilegir
Jack Straw, utan-
ríkisráðherra Bret-
lands, sagði í ræðu
sem hann flutti í
dag að hægt væri
að fá breskan al-
menning, sem er
fullur efasemda um
Evrópusambandið,
til að skipta um skoðun og sjá ágæti
þess að vera í hjarta valdablokkar-
innar sem er við þrep hans.
Göng opnuð fyrir jól
Til stendur að opna Sankti Gott-
hards-jarðgöngin undir Alpafjöllin
21. desember. Ellefu fórust í elds-
voða í göngunum í október og hafa
þau verið lokið síðan.
Ebóla-svæði einangrað
Stjórnvöld í Afríkuríkinu Gabon
hafa einangrað afskekkt þorp til að
stöðva útbreiðslu hinnar banvænu
ebóla-veiru sem er talin hafa orðið
tiu manns að bana.
Gengu út af þingi
Nýkjörið þing allra þjóðarbrota í
Kosovo hélt fyrsta fund sinn í gær
en það varpaði skugga á gleðina að
þingmenn næststærsta flokksins
gengu af fundi og tafir urðu á kosn-
ingu forseta.
Sendinefnd til Kúrda
Bandarísk stjórnvöld hafa sent
nefnd fulltrúa sinna til héraða
Kúrda í norðurhluta fraks til við-
ræðna við hópa Kúrda, að sögn yflr-
valda vestra.
Ráðherrar segja af sér
Ríkisstjórn Sýr-
lands sagði af sér í
gær og er það talið
til marks um að
Bashar al-Assad
forseti ætli að
hrinda í fram-
kvæmd umbótum á
efnahagslífi lands-
ins með myndun nýrrar ríkisstjórn-
ar. Fráfarandi forsætisráðherra,
Nustafa Mero, var beðinn um að
mynda nýju stjórnina.
Níu voru Tyrkir
írska lögreglan sagði í gær að niu
af þrettán flóttamönnum sem fund-
ust í gámi um helgina hefðu verið
Tyrkir. Átta flóttamannanna voru
látnir þegar þeir fundust.
Frakkar hughreysta
Lionel Jospin,
forsætisráðherra
Frakklands, full-
vissaði leiðtoga Pól-
lands og Ungverja-
lands í París í gær
um að Frakkar
styddu tilraunir
þeirra til að ganga í
Evrópusambandið. Þá vísaði Jospin
á bug fréttum um að Frakkar
reyndu að tefja fyrir stækkun ESB
til austurs.
Bretar skipuleggja lið
Bretar hafa fallist á að skipu-
leggja og leiða fjölþjóðlegt gæslulið í
Afganistan sem búist er við að SÞ
samþykki í vikulok. .
CIA-liði jarðsettur
Bandaríski leyniþjónustumaður-
inn sem lét lífið í uppreisn fanga úr
röðum talibana og hryðjuverka-
manna í Afganistan var jarðsettur i
gær og kallaður hetja.