Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2001, Blaðsíða 6
6
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001
Fréttir
DV
Kynning tillögu að nýju aðalskipulagi Reykjavíkur:
Borgarlandið ríflega
tvöfaldast á fáum árum
- gert ráð fyrir byggingu 16.600 nýrra íbúða til 2024
Tillaga að Aðalskipulagi
Reykjavíkur 2001-2024, sem nú er
til sýnis, gerir ráð fyrir umtals-
verðum breytingum og vexti borg-
arinnar og að íbúum fjölgi um 24
þúsund. Lögsagnarumdæmi
Reykjavíkur nær nú yfir 275 fer-
kílómetra landsvæði. Hefur það
meira en tvöfaldast frá aðalskipu-
lagi sem kynnt var 1984, eða úr
114 ferkílómetrum eða 11.400
hekturum í 27.500 hektara nú.
Árið 1786 var Reykjavík varla
miklu meira en fimm til tíu hekt-
arar.
Hægt er að skoða helstu
áhersluatriði aðalskipulagstillög-
unnar á 23 kynningarskiltum í
Borgarbókasafninu til 21. desem-
ber nk. Þarna er þó ekki um end-
anlega kynningu að ræða með til-
heyrandi kærufresti. Skipulagið
er nú til fyrri umræðu í borgar-
stjórn en stefnt er að þvi að aðal-
skipulagstillagan verði tekin til
seinni umræðu í borgarstjóm 20.
desember nk. Að lokinni þeirri
umræðu verður skipulagstillagan
auglýst og borgarbúum gefinn
kostur á að gera athugasemdir
innan tilskilins tíma. Ráðgert er
að sú kynning fari fram eftir ára-
mótin.
Aðalskipulagið 2001-2024 er hið
fyrsta eftir sameiningu Reykja-
víkur og Kjalarneshrepps og inn-
siglar endanlega sameiningu þess-
ara sveitarfélaga. Við gildistöku
nýs skipulags falla úr gildi Aðal-
skipulag Reykjavíkur 1996-2016
og Aðalskipulag Kjalamess
1990-2010.
Alþjóðleg borg
Framtíðarsýn aðalskipulagsins
sem nú er kynnt er sú að Reykja-
vík styrki ímynd sína sem höfuð-
borg og að miðborgin verði efld
sem aösetur stjórnsýslu, við-
skipta-, atvinnulífs og menningar.
Einnig er gert ráð fyrir að Reykja-
vík verði efld í vaxandi alþjóð-
legri samkeppni borga um fyrir-
tæki, vinnuafl og ferðamenn. Þá
er gert ráð fyrir að skipulag
byggðar og umhverfis stuðli að
sjálfbærri þróun með bættum lífs-
gæðum.
Flugvöllur undir byggð
Meginbreyting skipulagsins er
að gert er ráð fyrir þéttari byggð
en miðað er við í gildandi skipu-
lagi. Samkvæmt íbúaspá er áætl-
uð þörf fyrir 16.600 nýjar íbúðir í
Reykjavík til 2024. Þar af yrðu um
12 þúsund á svæðinu austan Ell-
liðaáa en um 4.600 vestan Elliða-
áa.
Stefnt er að þvi að flugvallar-
svæðið í Vatnsmýri verði allt tek-
ið undir byggð - fyrst þar sem
Aöalskipulag Reykjavlkur
2001 - 2024
Sveitarfélagsuppdráttu
Tillaga
12. nóvember2Q01
Vatnsvemd»r»v«öt fjarsvasði A
Vatnsverndanvœöi, fjanvaeði B
Stofnvegtr
Sveitarfélagsmork
Aöalskipulag Reykjavtkur
2001-2024
Þessi tillaga veröur væntanlega
lögö fram til endanlegrar kynn-
ingar eftir áramót.
Komdu og njóttu hátíðarstemningarinnar
í Smáralind þar sem jólasveinarnir og yfir 70 verslanir
og þjónustuaðilar bjóða alla velkomna.
Jóladagskráin i Vetrargarðinum í dag!
16:30 og 17:30 JÓlasagan lesin.
17:00 og 18:00 JÓlaSVeínar skemmta.
Ævintýraheimur barnanna íJÓlalandÍnii í allan dag.
Veröldin okkar er full af lífi og fjöri í dag og það sama
á við um göngugötuna þar sem tónlist harmonikku-
leikara skapar rétta jólaandann.
Smáralind
\ -RÉTTI JÓLAANDINN
Verslanir opnar f dag milli klukkan 11:00 og 20:00 • www.smaralmd.is
Þróun Reykjavíkur
Reykjavík 1786, 1900, 1920, 1940, 1960 og 1986. Reykjavík hefur á þess-
um tíma breyst frá því aö vera þyrping fáeinna húsa viö noröurenda Tjarnar-
innar í þaö aö verða alvöru-höfuöborg. Enn er gert ráö fyrir miklum vexti borg-
arinnar. Lögsagnarumdæmi Reykjavíkur nær nú yfir 275 ferkílómetra iand-
svæöi. Hefur þaö meira en tvöfaldast frá aðalskipulagi sem kynnt var 1984,
úr 114 ferkílómetrum, eöa 11.400 hekturum, í 275 ferkílómetra eöa
27.500 hektara nú. Áriö 1786 var Reykjavík varla miklu meira en fimm til tíu
hektarar. Gert er ráö fyrir aö íbúum f/ölgi úr 110 þúsund áriö 2001 í 134
þúsund áriö 2024.
, 1920
. 1960
suðvestur-norðausturbrautin ligg-
ur nú. Eftir 2016 er gert ráð fyrir
að taka einnig svæðið þar sem
norður-suðurbrautin er undir
byggð.
I Gufunesi er gert ráð fyrir að
reisa hverfi með blandaöri byggð
með bryggjuhverfi. Þar er m.a.
gert ráð fyrir göngubrú út í Við-
ey.
í Geldinganesi er nú gert ráð
fyrir að vestan stofnbrautar aust-
ast á nesinu verði í stað blandaðr-
ar byggðar í núverandi skipulagi
reist hafnar- og athafnasvæöi.
í Ánanaustum er gert ráð fyrir
miklum uppfyllingum þar sem
komið yrði fyrir blandaðri byggða
íbúða, atvinnustarfsemi og skóla.
í Hamrahlíðarlöndum í Úlf-
arsárdal við Úlfarsfell, á landa-
mörkum Reykjavíkur og Mosfells-
bæjar, er gert ráð fyrir blandaðri
byggð.
í Viðey er gert ráð fyrir tak-
markaðri uppbyggingu sérstakrar
starfsemi en án fastrar búsetu.
Álfsnes kemur ekki til bygging-
ar á skipulagstímanum og ekki
heldur fyrirhugað íbúðasvæði við
Rauðavatn. Það svæði er í nýja
skipulaginu skilgreint sem eitt af
þremur meginatvinnusvæðum
borgarinnar. Hin svæðin eru
Geldinganes og Esjumelar á Kjal-
arnesi. -HKr.
Umsjón: Birgir Guðmundsson
netfang: birgir@dv.is
Þrýstingur á Arna
Brotthvarf Guðjóns Hjörleifs-
sonar úr bæjarstjórastóli og úr póli-
tík í Vestmannaeyjum veldur ýms-
um sjálfstæðismönum í Eyjum
áhyggjum. Ýmsir
höfðu horft til
Guðjóns sem
næsta þing-
mannsefnis Eyj-
anna eftir að
Árni Johnsen
gekk úr skaftinu
fyrr í sumar. í
pottinum er talið
að við þessa til-
kynningu Guðjóns muni nú þrýst-
ingur aukast til mikilla muna á
Eyjapeyjann Árna Sigfússon um að
gefa kost á sér til forustu í Suður-
kjördæmi fyrir Sjálfstæðisflokkinn
og tryggja þannig áhrif Vestmanna-
eyja á landstjórnina á Alþingi...
Sýslumannskapall
Gríðarleg umræða á sér nú stað
um sýslumannsembættin þrjú sem
auglýst hafa verið laus til umsókn-
ar. Sem kunnugt er bárust tæplega
fimm tugir um-
sókna um emb-
: ættin, flest um
embættið á
Hvolsvelli, en
álíka margar
umsóknir bárust
svo um embættin
á Selfossi og í
Búðardal. í pott-
inum heyra menn
ýmsar kenningar um þessar veit-
ingar, m.a. þær að starfandi sýslu-
menn séu í góðri aðstöðu til að fá
embætti og þó nokkrir slíkir eru í
hópi umsækjenda. En ílokkspóli-
tísk sjónarmið skipta ekki síður
máli og þótt sýslumennirnir séu
flestir eða allir sjálfstæðismenn
mun það þykja nokkuð bratt ef ráð-
herra skipar þrjá nýja sýslumenn,
sem allir eru flokksbræður hans.
Því er talið líklegt að a.m.k. einn
framsóknarmaður verði skipaður -
og berast böndin þá strax aö Leó
Löve hrl. sem sótti um öll þrjú
embættin. í pottinum minnast
menn þess aö á Hvolsvelli hafa
jafnan setið framsóknarmenn á
sýslumannsstóli og spurning hvort
framhald verður þar á? ...
Eldhafiö
Það fer ekki á milli mála að
bruninn í geymsluhúsnæði Síldar-
vinnslunar í Neskaupstað, sem
varð þegar verið var að ljúka tök-
um á myndinni
Hafið, var mikið
áfall fyrir að-
standendur
myndarinnar.
„Þetta er skelfi-
legt áfall. Fyrst
komu bara neist-
ar en þetta end-
aði með því að 10
metra eldtungur
stóðu upp í loftið," sagði Baltasar
Kormákur, leikstjóri kvikmyndar-
innar, í DV í gær og var greinilega
brugðið. En engin slys urðu á fólki
sem skiptir auðvitað mestu og það
er stutt í kímnina hjá Norðfirðing-
um, sem í samtölum sin á milli eru
nú búnir að breyta nafni myndar-
innar úr Hafið yfir í Eldhafið! ...
Mild í samanburði við ísland
í danska síðdegisblaðinu BT voru
vegfarendur á dögunum spurðir álits
á málflutningi Anders Fogh
Rasmussens, nýs forsætisráðherra
Dana. Tveir
kunnir ís-
lendingar
lentu í
þessu úr-
taki, hjónin
Jónatan
Þórmunds-
son og Sólveig Ólafsdóttir, og eru
þau bæði nokkuð ánægð með
Rasmussen. Jónatan segir að þótt
Fogh Rasmussen hafi sætt gagnrýni
fyrir innflytjendastefnu sína þá sé
hún nú mild í samanburði við þá
innflytjendastefnu sem hægristjómin
á íslandi reki!...