Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2001, Blaðsíða 7
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001
7
DV
HEILDARVIÐSKIPTI 1.052 m.kr.
- Hlutabréf 230 m.kr.
- Húsbréf 422 m.kr.
MESTU VIÐSKIPTI
Búnaðarbankinn 41 m.kr.
íslandsbanki 33 m.kr.
Landsbankinn 33 m.kr.
MESTA HÆKKUN
I ©Opin kerfi 3,2%
©Kaupþing 1,7%
; ©Pharmaco 1,6%
MESTA LÆKKUN
;©Islandssími 9,1%
©Olíuféiagiö 4,5%
© Búnaðarbankinn 4,4%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.098 stig
- Breyting O -0,44%
Flugleiðir og
Húsasmiðjan út úr
Úrvalsvísitölunni
Flugleiðir og Húsasmiðjan munu frá
á með næstu áramótum ekki verða
tekin með í Úrvalsvísitölu Verðbréfa-
þings íslands. Þau félög sem koma inn
í staðinn eru Delta og Sjóvá-Almennar.
Valið í vísitöluna fer fram tvisvar á ári
og eru valin fimmtán félög eftir fyrir
fram ákveðnum reglum sem skráð eru
á Aðallista þingssins.
Af þeim 20 félögum á Aðallista
þingsins sem tíðust viðskipti eru með
á þinginu á 12 mánaða tímabili eru það
15 stærstu félögin að markaðsverð-
mæti í lok tímabilsins sem mynda úr-
valsvísitöluna næstu sex mánuði.
Hlutabréfasjóðir eru þó undanskildir
við valið. Úrvalsvísitalan er því sam-
sett af þeim félögum sem hafa hvað
virkasta verðmyndum á þinginu en
val í Úrvalsvisitöluna ber að öðru leyti
ekki að túlka sem gæðastimpil á við-
komandi hlutabréf.
Þau félög sem verða í Úrvalsvísitöl-
unni eru eftirfarandi og er vægi þeirra
sem hér segir: íslandsbanki (16,7%),
Landsbankinn (9,1%), Pharmaco
(8,2%), Búnaðarbankinn (8,2%), Baug-
ur (7,5%), Samheiji (7%), Sjóvá-Al-
mennar (7%), Össur (6,6%), Eimskip
(6,4%), Kaupþing (6,2%), Trygginga-
miðstöðin (4,5%), Olíufélagið (4,5%),
Delta (3,3%), SÍF (2,5%) og Marel
(2,3%).
Atvinnuleysi
eykst í Banda-
ríkjunum
- engu að síður minna en
búist hafði verið við
Atvinnulausum í Bandaríkjunum
fjölagði um 331 þúsund í nóvember
og mælist atvinnuleysi i Bandaríkj-
unum þvi 5,7%. Samanlagt eru upp-
sagnir í október og nóvember þær
mestu frá maí-júní árið 1980 er
mælist atvinnuleysi nú það hæsta
frá ágúst 1995.
„Það að atvinnuleysi skuli vera
að hækka kemur ekki á óvart. En
það að atvinnuleysi skuli vera að
minnka með slíkum hraða kemur
virkilega á óvart,“ segir Anthony
Chan, yfirhagfræðingur hjá Banc
One Investment Adisors.
___________11.12. 2001 kl. 9.15
KAUP SALA
H Dollar 107,780 108,330
S&Pund 154,650 155,440
11*1 Kan. dollar 68,250 68,670
3l>önskkr. 12,9090 12,9800
i^~jNorsk kr 11,9870 12,0530
jJSsænsk kr. 10,2620 10,3180
mark 16,1584 16,2555
_jjFra. franki 14,6463 14,7343
f jBolg. franki 2,3816 2,3959
3 Sviss. franki 64,9200 65,2800
£3hoII. gyllini 43,5962 43,8582
i |Þýskt mark 49,1216 49,4168
11«. lira 0,04962 0,04992
ISQAust. sch. 6,9819 7,0239
DflPoft. oscudo 0,4792 0,4821
I^JSpá. pesoti 0,5774 0,5809
| > |Jap. yon 0,85500 0,86020
jírskt pund 121,988 122,721
SDR 136,2600 137,0800
E3ecu 96,0735 96,6508
Viðskipti
Llmsjón: Vidskiptablaðið
Kauptækifæri í skuldabréfum
- stórfelld lækkun á ávöxtunarkröfu lengstu skuldabréfa fram undan
Sífellt fleiri telja að nú bjóðist
mjög gott kauptækifæri á innlend-
um skuldabréfamarkaði þar sem í
boði eru verðbréf sem bjóða tæp-
lega 6% raunvexti til allt að 40 ára.
Til viðbótar bendir ýmislegt til
þess að ávöxtunarkrafa lengri
skuldabréfa muni lækka fljótlega
sem leiðir þá til hækkunar á verði
bréfanna.
Ávöxtunarkrafa lengstu skulda-
bréfa með ábyrgð ríkisins hefur
hækkað mikið siðustu daga.
Þannig er ávöxtunarkrafa hús- og
húsnæðisbréfa um 6% nú. Hér er
um verðtryggða vexti að ræða og
má segja að þessi hækkun sé hálf-
öfugsnúin I ljósi þess að samdrátt-
ur í efnahagslífi er fram undan og
verðbólga enn allhá. Vextir hafa
verið að lækka í viðskiptalöndum
og er nú svo komið að verðtryggð-
ir vexti á íslandi eru um 1-2% Hækkun ávöxtunarkröfu er helst
hærri en óverðtryggðir vextir í rakin til þrenginga á millibanka-
viðskiptalöndunum. markaði sem gjarnan er árstíða-
bundin en ástandið er óvenjuslæmt
þetta árið þar sem um hefur þrengst
á innlendum lánamarkaði og fjár-
magn í umferð dregist saman.
Til viðbótar er bent á að á næstu
dögum er von á stórum greiðslum til
fjárfesta frá íbúðalánasjóði þar sem
útdráttur húsbréfa upp á 2,5 milljarða
er áætlaður 17. desember næstkom-
andi og afborgun húsnæðisbréfa er
um 3,5 milljarðar 1. janúar. Megin-
hlutinn af húsbréfum er í eigu lifeyr-
issjóða, verðbréfasjóða og banka.
Gera má ráð fyrir að meginhluti
þeirra fjármuna sem nú eru á gjald-
daga muni leita á ný í bréf með ríkis-
ábyrgð og gæti því stórfelld lækkun
ávöxtunarkröfu verið fram undan.
Rök á móti því er óvænt áætluð aukn-
ing útgáfu íbúðalánasjóðs á næsta ári
samkvæmt nýrri áætlun en við þau
tíðindi hækkaði krafan mjög.
Fyrirsjáanleg verð-
lækkun á saltfiski
Verð á saltfiski hefur hækkað
mikið síðustu misserin á erlendum
mörkuðum og hafa fyrirtæki eins
og SÍF notið góðs af þvi sem og
veikingu krónunnar. Að sögn
Greiningardeildar Kaupþings er
hins vegar nú svo komið að ákveð-
in pattstaða virðist vera komin
upp þar sem kaupendur eru famir
að halda að sér höndum vegna þess
hve verð er hátt. Vísar Greiningar-
deildin til þess að í vefriti Intrafish
kemur fram að sumir markaösaðil-
ar vflja jafnvel ganga svo langt að
kalla markaðinn dauðan. Það verð-
ur því að teljast óhjákvæmflegt að
verð taki að lækka á ný.
Frestur tO þess að skila inn lokatO-
boðum í kjölfestuhlut Landssíma ís-
lands rann út á fóstudaginn og voru
þrír aðOar valdir á grundvelli óbind-
andi tilboða til að taka þátt i þessum
síðasta hluta söluferOsins. Tvö tilboð
bárust: Frá TeleDanmark í Dan-
mörku og bandaríska ijárfestingar-
sjóðnum Providence sem er m.a.
stærsti hluthafi Eircom á írlandi.
Það sem af er ári hafa vanskil hjá
innlánsstofnunum aukist úr 12,9
milljörðum króna i 22,4 mOljarða
eða um 74%. Lítill munur er á þró-
uninni, hvort heldur sem litið er á
fyrirtæki eða einstaklinga.
Þetta má lesa út úr ársfjórðungsleg-
um tölum sem Fjármálaeftirlitið hef-
ur tekið saman um þróun vanskOa
innlánsstofnana frá árslokum 2000 tO
Innflutningsaöilar hafa keypt
upp eins mikið magn og þeir
mögiOega geta en þeir virðast ekki
geta selt neitt nú, ekki einu sinni
besta og stærsta fiskinn. Þeir virð-
ast ekki tObúnir að ræða verð-
breytingar, að því er segir í Morg-
unpunktum Kaupþings. Verð á
smáum þorski er nú þrisvar tO
fjórum sinnum hærra en á
kjúklingi. Sjálfhelda virðist rikja á
flestum mörkuðum þrátt fyrir að
þessi tími fram að jólum sé að öllu
jöfnu góður sölutími. Á þetta eink-
um við Ítalíu en þar er yfirleitt
besti sölutíminn um og í kringum
jólin en ekki hefur verið jafnmikO
TOboðin fela í sér þrjá efnisþætti:
Verð, lýsingu á áformum um áhersl-
ur í rekstri og mögulega kosti sam-
legðaráhrifa í samstarfi Símans við
önnur símafyrirtæki. Frekari upp-
lýsingar um innihald tilboðanna
verða ekki veittar fyrr en að lokn-
um viðræðum við bjóðendur, segir í
fréttatilkynningu frá Framkvæmda-
nefnd um einkavæðingu.
30. september 2001. Talnaefnið nær til
vanskila sem staðið hafa lengur en
einn mánuð og nær tO allra við-
skiptabankanna og 20 sparisjóða og
nær úrtakið til 99% af heOdareignum
allra innlánsstofnana.
VanskO lengri en einn mánuð
námu 12,9 miOjörðum króna eða
2,1% af útlánum í árslok 2000 en eru
komin í 22,4 miOjarða eða 3,2% í lok
eftirspurn þar og vanalega, fyrst
og fremst vegna þess hve verðið er
hátt. Portúgalski markaðurinn
hefur einnig verið óvenjudaufur
og einnig hefur verið rólegt yfir
Spánarmarkaði. Ástandið er sér í
lagi slæmt hvað stærri fiskinn
varðar en verð hefur hækkað
meira i þeim flokkum en í smáum
og mfllistórum fiski. Verð er mjög
hátt í sögulegu samhengi, bæði í
evrum og í íslenskum krónum, og
því er ekki ólíklegt að það komi tO
leiðréttingar á verði til lækkunar
eftir jafnskarpa verðhækkun eins
og átt hefur sér stað síðustu mán-
uði.
DHL og Flug-
þjónustan í
samstarf
DHL á Islandi og Flugþjónustan
KeflavíkurflugveUi hafa skrifað undir
samning sem felur í sér að DHL flytur
aðalvörudreifmgar- og móttökustöð
sína frá Reykjavík í Fraktmiðstöð
Flugþjónustunnar á Keflavíkurflug-
veUi og opnar skrifstofu í Fraktmið-
stöðinni. Þó verður áfram vöruaf-
greiðsla í Reykjavík auk aðalskrif-
stofu.
í tilkynningu sem félögin sendu frá
sér vegna þessa segir Þórður Kolbeins-
son, framkvæmdastjóri DHL á íslandi,
að framvegis verði hægt að bjóða hrað-
ari þjónustu en áður enda færu send-
ingar beint í dreifmgu tU móttakanda
frá Fraktmiðstöðinni á Keflavikurflug-
veUi án viðkomu i öðru vöruhúsi í
Reykjavík eins og áður var. Þetta spar-
aði viðskiptavinum DHL tima og byði
upp á betri og öruggari vörumeðferð.
Þessi breyting geri DHL einnig
mögulegt að bjóða upp á nýja virðis-
aukandi þjónustuþætti, tU dæmis svo-
nefnda TDD-þjónustu sem felur í sér
tvo þjónustumöguleika, þ.e öruggar af-
hendingar fyrir klukkan 9 eða fyrir kl.
12 daginn eftir í helstu löndum Evrópu
og stæði tU að innleiða þá þjónustu í
byrjun næsta árs.
september 2001. Sambærilegar tölur
yfir vanskil fyrirtækja voru 7,3
mOljarðar króna eða 1,6% af útlán-
um til fyrirtækja í árslok 2000 en
12.7 miUjarðar eða 2,5% í lok sept-
ember 2001 og vanskil einstaklinga
5.7 miUjarðar króna eða 3,4% af út-
lánum til einstaklinga í árslok 2000
en 9,7 mUljarðar eða 5,5% í lok sept-
ember 2001.
Framkvæmda-
stjóraskipti hjá
Kaupthing New
York Inc.
Hreiðar Már
Sigurðsson,
framkvæmda-
stjóri Kaup-
thing New
York Inc.,
mun flytjast
um áramótin frá New York og hefja
störf að nýju í höfuðstöðvum Kaup-
þings í Reykjavík þar sem hann
mun gegna áfram starfi aðstoðarfor-
stjóra Kaupþings.
Við staríi Hreiðars Más sem
framkvæmdastjóri Kaupthing New
York Inc. tekur Robert Gibbons. í
frétt frá Kaupþingi kemur fram að
Robert hefur starfað hjá Kaupþingi
síðan á fyrri helmingi þessa árs sem
forstöðumaður fyrirtækjaþjónustu í
New York. Áður en Robert kom tO
starfa hjá Kaupþingi starfaði hann
hjá American Corporate Services
(ACS) sem framkvæmdastjóri á fyr-
irtækjaþjónustusviði en ACS sér-
hæfir sig í ráðgjöf við samruna og
yfírtökur félaga á milli landa. Þar
áður hafði hann starfað hjá Lehman
Brothers og AIG Trading. Robert
lauk MBA-námi frá Stern-háskólan-
um í New York og BS-gráðu í fjár-
málum og markaðsfræðum frá
Muhlenberg CoOege.
:ssw<
Tveggja laga spunatækni
flytur rakann frá líkama-
num og heldur þér heitum
og þurrum.
Sportvörugeröin
Skipholti 5, s. 562 8383
Kjölfestufjárfest-
arnir komnir í Ijós
- tvö tilboð bárust í Símann
Mikil aukning vanskila