Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2001, Blaðsíða 16
20
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001
Skoðun
I
Réttlætanlegur
verðmunur?
A Keflavíkurflugvelli
Flugfargiöld eru lægri utan háannatímans um jólin.
Spurning dagsins
Hvaða jólagjöf er þér
erfiðust?
Þórdís Hauksdóttir, verðandi móðir:
Þaö er erfiöast aö velja fyrir kallinn.
Þaö er eina giöfin sem ég á eftir.
Gunnar Halldórsson bifvélavirki:
Þaö er gjöfin handa pabba, hann er
svo erfiöur. Ég á þá gjöf eftir.
Ásgeir Óskarsson tónlistarmaður:
Þaö getur veriö erfitt aö vetja
fyrir konuna.
Ingvar Valgeirsson smápoppari:
Hrikalegt aö velja fyrir son minn.
Hann á afmæli 27. desember svo
þetta er alltaf tvöföld ánægja.
Guðmundur Reynisson vörubílstjóri:
Þaö er mjög erfitt aö velja fyrir kon-
una. Hún á einhvern veginn allt sem
mér dettur í hug.
Árni Ægisson afgreiöslumaður:
Yfirleitt er þaö kærastan en þaö var
ekkert mál í ár, ég er löngu þúinn
aö kaupa þá gjöf.
Þórður Gistason
skrifar:
Enn og aftur undrast maður verð-
lagningu Flugleiða í farmiðasölu til
íslands fyrir hátíðarnar. Farmiði
frá Orlando til Keflavikur kostar $
1005 fyrir tímabilið 22. des. 1. til 4.
jan. ‘02. Miði frá Orlando til London
-með millilendingu í Keflavík - á
sama tima i sömu flugvél - kostar $
433 (þú mátt ekki sleppa London-
leggnum!). Óska ég eftir skýringu
frá Flugleiðum á þessum mikla mis-
mun upp á $ 572.
Til samanburðar má geta þess að
með British Airways kostar $ 500
frá Orlando til London sömu dag-
setningar og til að komast til ís-
lands þarf þá að bæta við $ 650 fyr-
ir miða frá London til Keflavíkur
með Flugleiðum. - Landið er því
„vel varið“ af Flugleiðum!
Hinn 6. janúar 2002, örfáum dögum
síðar, kostar einungis $ 299 frá Or-
lando til Keflavíkur með Flugleiðum.
Þar munar $706 á desember- og janú-
arverði. Læðist að manni sá grunur
að þessu verði sé beint að fólki sem
vill verja jólunum á íslandi sem í
mörgum tilfellum eru íslendingar að
heimsækja fjölskyldur sínar.
Svar frá Flugleiðum hf.
Guðjón Arngrímsson
upplýsingafulltrúi skrifar:
Því er til að svara að millilanda-
flugið er frjáls starfsemi, harður
samkeppnisheimur sem gengur út á
framboð og eftirspurn. Flugfélögum
er frjálst að fljúga milli íslands og
Orlando, en ekkert þeirra „þarf'
þess. Markaðurinn ræður.
Verðlag er frjálst og allir vilja
Ragnheiður Sigurðardóttir
skrifar:
Það er kannski af því að við erum
svo fámenn þjóð að það er mjög fá-
mennur hópur sem er í viðtölum ís-
lenskra fjölmiðla. Og fréttir eru
skreyttar viðtölum við fólk sem við
erum farin að venjast sem tals-
mönnum verkefnanna, átakanna
eða þrýstihópanna sem eru svo fyr-
irferðarmiklir hér. Marga hef ég
heyrt taka undir með honum Sigur-
dóri Sigurdórssyni blaðamanni sem
hafði það eftir kunningja sínum, að
hér á landi hlytu að búa mun fleiri
en manntal greinir frá - jafnvel um
500 þúsund manns. Þess vegna væri
því hægt að sækja á mun víðari
lendur þegar leita þarf álits lands-
manna.
„Millilandaflugið er frjdls
starfsemi, harður samkeppn-
isheimur sem gengur út á
framboð og eftirspurn. Flug-
félögum er frjálst að fljúga
milli íslands og Orlando, en
ekkert þeirra „þarf“ þess.
Markaðurinn rceður.“
bjóða lágt verð til að fá sem flesta
farþega - en hafa jafnframt fyrir út-
lögðum kostnaði. Flugleiðir bjóða
þjónustu á mörgum mörkuðum. Við
verðákvarðanir er horft til efna-
hagsástands á hverjum stað, til árs-
tíma og samkeppnisaðstæðna og
reynt er að hafa mikla breidd í
verði og þjónustu. Markaðsfólk okk-
ar í Bandaríkjunum metur stöðuna
e.t.v. svo að á ákveðnum tíma sé
nauðsynlegt að lækka verö til
London, en ekki til Kaupmanna-
„Marga hef ég heyrt taka
undir með honum Sigurdóri
Sigurdórssyni blaðamanni
sem hafði það eftir kunningja
sínum að hér á landi hlytu að
búa mun fleiri en manntal
greinir frá ... jafnvel um 500
þúsund manns.“
Það eru ekki oft viðtöl við Pétur
og Pál úr röðum kaupmanna,
bænda, verkamanna, iðnaðar-
manna, bílstjóra, húsmæðra, versl-
unarfólks, já hinna almennu neyt-
enda, o.s.frv. Hins vegar sé ég og
heyri mikið frá „talsmönnum" þess-
ara stétta; formanni Neytendasam-
hafnar eða íslands. Önnur sjónar-
mið geta gilt í Evrópu.
Nú erum við á íslandi t.d. með
jólapakkatilboð til Evrópuborga eft-
ir áramót upp á 19.900 kr.
Þvi bjóða Flugleiðir, líkt og önnur
flugfélög, ódýrari kosti utan há-
annatímans um jólin, m.a. til að
nýta betur flugvélarnar á þeim
tíma. Fyrir 15. des. er fargjaldið Or-
lando-Reykjavík-Orlando $470, það
er $945 rétt fyrir hátíðar þegar eftir-
spurnin er meiri en framboðið og
svo lækkar það aftur. Sambærilegt
verð yfir háannatímann til Kaup-
mannahafnar er $980 og til London
$778. Tilboð það til London sem
Þórður nefnir ($433) mun ekki gilda
á þessum tíma. Á íslandi er verðið
$613, eða allnokkru lægra.
Gífurleg fjölgun ferðamanna til
íslands á undanförnum árum, eink-
um á veturna, bendir hins vegar
ekki til þess að verð hjá Flugleiðum
sé of hátt.
takanna, formanni ASÍ, formanni
bændasamtakana, auk allra ann-
arra formanna og talsmanna.
Ég er líka orðin leið á skáldun-
um, listamönnunum og þingmönn-
unum sem sífellt koma sem „gestir
þáttarins" í dagskrárliðum RÚV og
víðar. Ég nefni Diddú, Ómar, Þórð í
Þjóðhagsstofnun, Grétar í ASÍ,
Matthías og Ólaf Jóhann stórskáld,
Sigga Hall, Samherjabræður, Magn-
ús í Ferðamála og þá Flugleiða-
menn. Og svo einsleita hópinn í
þættinum í vikulokin þar sem hæfi-
leg blanda af „gagnkynhneigðum"
(les: konum og körlum) er ávallt til
taks og sumir eru þar orðnir fastir
liðir eins og venjulega. - Já, ég
þreytist á þessum andlitum og rödd-
unum sem úr þeim koma.
Ofnotaöir í fjölmiölum
• •
Orvæntið
Guðni Ágústson var í nánast öllum fjölmiðlum
um helgina að ræða um nauðsyn þess að stokka
upp í ríkisstjórnarsamstarfmu og skilst Garra að
sú uppstokkun eigi að sýna að full alvara sé í
því að ríkisstjórnin sitji út kjörtímabilið. „Það
væri mjög heppilegt núna að reisa sig til nýrrar
sóknar á síðari hluta kjörtímabilsins með því að
endurskipuleggja stjórnarráðið með ákveðnum
hætti og sýna með þeim hætti að menn ætli að
halda dampi og halda áfram að efla lífskjörin og
engin ástæða sé til að örvænta." Þannig fórust
Suðurlandsgoðanum orð um framtíðina í ríkis-
stjórninni og Garri hefur um helgina fagnað því
að hann sem vesæll launamaður þurfi ekki að
örvænta yfir framtíðinni. Ráðherrar muni vaka
yfir honum eins og kerúbar og serúfar með end-
urnýjaðan þrótt eftir að hafa farið einn hring í
uppstokkunarhringekjunni.
Allt fer vel
Og það hefur líka glatt Garra að sjá að hann
er ekki einn í heiminum þegar kemur að þeirri
öryggistilfinningu sem hin vængjuðu orð land-
búnaðarráðherra veittu honum. Þannig fagna t.d
ungir framsóknarmenn þessum orðum ákaflega
á heimasiðu sinni, Maddömunni, í gær og ekki
eigi
er að efa að fleiri munu bæt-
ast í hópinn samfara því að
þessi gleðifrétt berst út um
heimsbyggðina. Ríkisstjórnin
ætlar sem sé að stýra þjóðar-
skútunni styrkri hendi til
hafnar, út úr þeiri efnahags-
brælu sem nú hefur ýft öldu-
toppa og framkallað vott af
sjóveiki hjá landsmönnum.
Allt mun því fara vel - eins
og doktor Altúnga sagði iðu-
lega í sögunni af Birtingi.
Kannast ekki víð
spádóminn
Og nú bíður Garri einfald-
lega eftir hinni miklu upp-
stokkun í ríkisstjórninni -
eftir hinu nánast trúarlega
tákni sem mun styrkja sann-
færingu hans og staðfesta að allt muni fara vel.
Enn er ekki kominn tími til að örvænta því
varla gerast hlutirnir það hratt að uppstokkunin
komi strax daginn eftir yfirlýsingu Guðna goða
eða jafnvel næstu daga eftir hana. Hins vegar er
annað sem veldur
Garra ugg og veldur
honum efasemdum
um að spádómur
Guðna um hina
björtu framtíð sé
réttur. Það eru við-
brögð Geirs Haarde
við ummælunum.
Geir virðist ekkert
kannast við upp-
stokkun og ef Geir
kannast ekki við
hana þá er eins víst
að enginn annar ráð-
herra kannist við
hana heldur. Efa-
semdirnar sækja því
á: Getur verið menn
ætli ekki að „halda
dampi og efla lífs-
kjörin“? Er kannski
ástæða til að ör-
vænta? Því lengur
sem uppstokkunin
dregst því háværari
verða efasemdirnar. Garri vonar bara að upp-
stokkunin komi fljótt, því efinn nagar og mun
bráðlega fara að varða sálarheill hans. Staöfest-
ing spádómsins er því ekkert
annað en lífsspursmál! C\Xffi
Erlendur gjaldeyrir
Jafnt eftirsóttur sem langsóttur.
Gjaldeyrinn heim
EirTkur Sigurðsson skrifar:
Það hefur komið fram upp á
síðkastið í greinaskrifum og í máli
manna í millum að talsverð brögð séu
að því að sá gjaldeyrir sem í raun
ætti að berast inn í íslenskt þjóðarbú,
t.d. vegna hækkaðs verðs útflutnings-
afurða, eða af beinni sölu fiskiskipa,
skilii sér ekki sem skyldi. Þetta er
auðvitað i höndum þar til bærra yfir-
valda í Seðlabankanum eða í við-
skipta- eða fjármálaráðuneytinu. Þori
ekki að fullyrða frekar um það. Hitt
er rannsóknarvert, hvort einkaaðilar
eða heilu fyrirtækin fá að ráðstafa
gjaldeyri erlendis, kannski til að
grynnka á erlendum skuldum t.d.
fiskiskipa, og geta þá jafnvel lagt inn
á einkareikninga umtalsverðar upp-
hæðir. Fróðlegt væri að fiölmiðlar
fræddu lesendur sína og áheyrendur
frekar um þetta.
Fjárhundurinn fannst
Júlíana Sverrisdóttir, Vogjjm. Hofsósi skrifar:
Fjárhundurinn Spori frá Vogum í
Skagafirði fannst dáinn við Siglu-
fiarðarveg fyrir ofan bæinn Voga.
Líklegt er að hann hafi orðið fyrir bíl.
Fjölskyldan í Vogum auglýsti í frétta-
blaðinu Feyki eftir hundinum og úr
því urðu miklar fréttir, og ekki allar
góðar eða sannar. Fjölskyldan í Vog-
um skrifaði ekki þær greinar og hef-
ur ekki kennt hundum eða mönnum
um hundshvarfið. Við höfum ekki
annað en gott af sleðahundunum og
kvikmyndatökufólkinu öllu að segja,
og var allt skrifað án okkar samþykk-
is. Þá viljum við leiðrétta að Spori
var hreinræktaður, en ekki blending-
ur eins og fram kom í fréttum.
Sviösmynd úr „Hægöunum"
Allt gott nema teikurinn?
Gott leikrit Auðar
Halldóra Gunnarsdóttir hringdi:
Mig langar til að hrósa Sjónvarps-
leikritinu Góðar hægðir eftir Auði
Haralds sem var á dagskrá sl. þriðju-
dag. Efnið var nefnilega aldeilis i takt
við tímann. Frekjunni og tilætlunar-
seminni í „blessuðum börnunum"
voru þarna gerð góð skil og gátu
áreiðanlega margir þekkt sig þarna i
flestum hlutverkunum. Ég er hins
vegar sammála Eiríki sem skrifar um
leikritið i sl. viku, að það var ekki
nægilega vel leikið. Þessar grettur og
geiflur tilheyra liðnum tíma. Svona
góðir listamenn hafa kannski ekki
notið sín á þessum stað í borginni. -
En allar götur, gott samt og þökk fyr-
ir skemmtunina.
Tíðar stórsektir
Torfi skrifar:
Það er kannski ekki úr háum söðli
að detta fyrir okkur íslendinga, hvað
varðar lögbrotin og dómana, þeir eru
og hafa ávallt verið tíðir hjá okkur í
þessu þó litla og fámenna þjóðfélagi,
Mér finnst þó keyra um þverbak þess-
ar vikurnar. Það linnir ekki á dómun-
um; stórsektir, fangelsanir og svipting-
ar hvers konar eru daglegar fréttir
fjölmiðlanna. Og undirrótin virðist í
flestum tilvikum af sama meiði;
græðgin og óstjórnlegt hömluleysi. ís-
lendingar eiga litið erindi i „bisness-
inn“ eða í fiármálin yfirleitt. Ég tel
víst að dómgreindarleysið ríði þjóð-
inni að fullu innan skamms.
sna
Lesendur geta hringt allan sólarhring-
inn í síma: 550 5035.
Eða sent tölvupóst á netfangið:
gra@dv.is
Eða sent bréf til: Lesendasíöa DV,
ÞverhoHi 11, 105 Reykjavík.
Lesendur eru hvattir til að senda mynd
af sér til birtingar meö bréfunum á
sama póstfang.