Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2001, Page 23
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001
27
DV
Tilvera
í 5. til 10. verðlaun eru
Game Boy color leikja-
tölvur frá Bræðrunum
Ormsson sem er 32 bita
lófatölva með stórum
skjá. Vinningur að verð-
mæti 13.900 krón-
ur.
Eitthvað liggur í loft-
inu sem þú áttar þig
ekki fyllilega á. Best
er að bíða og sjá til.
verður fremur rólegt.
þinar eru 8, 15 og 32.
Fiskarnir (19. febr.-20. marsl:
Láttu sem ekkert sé þó
| að þú verðir var við
( baktjaldarmakk. Lík-
legt er að það eigi allt
aðrar orsakir en þú heldur.
Happatölur þínar eru 3, 21 og 29.
Liónið (23. iúli- 22. áeúst);
, Miklar breytingar
verða á lífi þínu á
næstvmni og búferla-
flutningar eru
liklegir. Þú færð óvenjulegar
fréttir í kvöld.
Mevian (23. ágúst-22. sept.i:
Þú ert að skipuleggja
frí og ferðalag ásamt
^^^I>.í3ölskyldu þinni. Það
^ f þarf að mörgu að
hyggja áður en lagt er af stað.
Kvöldið verður rómantiskt.
Vogin (23. sept.-23. okt.):
J Líklegt er að samband
Oy milli ástvina styrkist
\f verulega á næstunni.
r f Þú færö óvænt tæki-
færi upp í hendumar sem
þú ættir að nýta þér.
Snorðdreki (24. okt.-2i. nóv.):
■Gamalt mál, sem þú
varst nærri búin að
gleyma, kemur upp á
yfirborðið á ný og
krefst mikils tíma og veldur
þér áhyggjum.
Bogmaðurinn (22. nóv-21. des.i:
varlega í öllum
viðskiptum þar sem
einhver gæti verið
að reyna að
hlunnfara þig. Leitaðu
ráðleggina ef þú þarft.
Píanistinn í mér hefur
aldrei yfirgefið mig
- segir Haukur Heiðar Ingólfsson heimilislæknir
Haukur Heiðar Ingólfsson
Er að gefa út sína fjóröu plötu..
„Ég byrjaði að spila opinberlega á
námsárunum norður á Akureyri,"
segir Haukur Heiðar Ingólfsson,
heimilislæknir í Hafnarfirði og pí-
anóleikari, sem var að gefa út sinn
fjóröa geisladisk sem nefnist Mána-
skin.
Haukur Heiðar segist hafa byrjað
að spila fimmtán eöa sextán ára
gamall í gagnfræðaskólahljómsveit
á Akureyri en að leikurinn hafi
fljótlega færst út fyrir veggi skólans
og hann farið að spila á danshúsum.
„Við spiluðum fyrir dansi í Alþýðu-
húsinu, Hótel KEA og á sveitaböll-
um.“
Að sögn Hauks hefur ferill hans
sem tónlistarmanns skipst í þrennt
yfir ævina. „Fyrsta hlutanum lauk
þegar ég flutti til Reykjavíkur og
hóf nám í læknisfræði árið 1965.
Skömmu eftir það fór ég að spila
undir hjá Ómari Ragnarssyni og hef
verið undirleikari hjá honum óslitið
síðan. 'Það er annar hlutinn."
Haukur hefur einnig spilað
„dinnermúsík" á Broadway í mörg
ár.
Fjóröa platan til þessa
„Fyrsta platan mín kom út árið
1984 og hét Með suðrænum blæ. Síð-
an liðu ellefu ár þar til ég gaf út
plötuna Suðrænar perlur,“ segir
Haukur og hlær. „Eins og nöfnin
gefa til kynna var ég mikið á suð-
rænum nótum á þessum tíma.“
Haukur segist alltaf hafa verið
fyrir rólega tónlist og árið 1999 gaf
hann út plötuna Á ljúfum nótum.
„Hún er eingöngu „instrumental"
og nafnið lýsir innihaldinu vel.
Nýja platan, Mánaskin, er í sama
stíl og á að minna fólk á rómantík-
ina í lífinu."
Hvíld frá daglegu amstri
Að sögn Hauks eru plöturnar og
dinnermúsíkin hluti af þriðja
kapitulanum í tónlistarferlinum
hans og segist hann ekki sjá fyrir
endann á honum.
Þegar Haukur er spurður hvernig
standi á því að virðulegur heimilis-
læknir spili yfir borðum á skemmti-
stöðum stendur ekki á svari: „Pí-
anistinn í mér hefur aldrei yfirgefið
mig. Það að spila er mér mikil lífs-
fylling, ég slappa vel af á meðan og
mér finnst það líka mjög gaman.
Það er ólíkt að sinna sjúklingi eða
spila á píanó, bæði störfin veita mér
mikla fyllingu en dinnermúsíkin er
hvíld frá daglegu amstri.
Meðleikarar Hauks Heiðars á
Mánaskini eru Árni Scheving, Vil-
hjálmur Guðjónsson, Einar Vaiur
Scheving, Alfreð Alfreðsson og
Birkir Freyr Matthíasson.
-Kip
Roberts talin
áhrifamesta
leikkonan
Leikkonan Julia Roberts hefur
verið tilnefnd áhrifamesta leikkon-
an í Hollywood, eftir að hafa lent í
þriðja sæti yfir áhrifamestu kon-
urnar í kvikmyndaborginni í ný-
legri fjölmiðlakönnun.
Efst á listanum er Stacey Snider,
stjórnarformaður Universal Pict-
ures, og i öðru sætinu á undan Ro-
berts er Sherry Lansing, stjórnar-
formaður og framkvæmdastjóri
Paramount Pictures.
Roberts er eina leikkonan sem
kemst inn á „topp-25 listann", en
spjallþáttastjórnandinn Oprah Win-
frey er í áttunda sætinu. Hún á þó
langt í land með að nálgast Roberts,
sem stendur upp úr vegna frábærr-
ar frammistöðu sinnar í myndinni
um Erin Brockovich, auk þess sem
hún hefur himinháar tekjur og get-
ur leyft sér að velja og hafna hlut-
verkum.
Aðrar konur í toppsætum listans
eru allar áhrifamiklar hjá kvik-
myndaverum borgarinnar, sem for-
stjórar eða framkvæmdastjórar, en
mest kemur á óvart að JK Rowling,
höfundur Harry Potter-bókanna,
nær ekki nema 56. sætinu, rétt á
undan Madonnu.
Jolagetraun
1
/
5. hluti Svarseðill
Við hvern er
jólasveinninn að tala?
Vmningar í jólagetraun DV eru glcesilegir að
vanda og til mikils að vinna með því að taka þátt
í henni.
Vinningarnir eru frá Sjónvarpsmiðstöðinni,
Brœðrunum Ormsson og Aco-Tœknivali.
Game boy
leikjatölvur
10
verðlaun
DV-jólasveinninn er forvitinn eins og
blaðamenn DV. Á næstu dögum verður
hann á ferð og flugi og ætlar að taka þjóð-
þekkta íslendinga tali. Hann er ekki alveg
viss um hvað fólkið heitir og ætlar því að
biðja ykkur að hjálpa sér. Til að auðvelda
valið eru gefnir þrír svarmöguleikar.
Ef þið vitið svarið eigið þið að krossa við
rétt nafn, klippa seðilinn út og geyma
hann á öruggum stað. Þegar þið hafið safn-
að saman öllum tíu svarseðlunum eigið
þið að senda þá á DV, Þverholti 11, 105
Reykjavík, eða koma með þá á afgreiðslu
blaðsins í umslagi, merktu „Jólagetraun
DV 2001“.
Munið að senda ekki inn lausnir fyrr
en allar þrautirnar hafa birst.
.
Alexander Solzhenitsyn 83 ára
Rússneska nóbels- J&f
skáldið Alexander p
Solzhenitsyn á af-
mæli í dag.
Solzhenitsyn var þrjú
ár í Rauða hemum
og var orðinn foringi
þegar hann hafði orð
á því að eitthvað væri athugavert við
Stalin og var sviptur foringjatigninni.
Solzhenitsyn var harðastur allra í
ádeilu á Sovétríkin og sat um tíma í
fangelsi fyrir skoðanir sínar. Þegar
hann var gerður brottrækur fra Sovét-
ríkjunum 1974 flutti hann til Banda-
ríkjanna. Eftir að Sovétblokkin
sprakk sneri hann aftur til Rússlands
árið 1994. __________
Gildir fyrir mibvikudaginn 12. desember
Vatnsberinn (20. ian.-ifi. fehr.r
Þú verður fyrir óvæntu
í fjármálum á
næstunni. Hafðu augun
opin fyrir nýjum tæki-
er ekki átt við tæki-
færi varðandi peninga.
Hrúturinn (21. mars-19. anríli:
. Þú virðist vera í til-
I flnningalegu ójafnvægi
og sjálfstraust þitt er
með minnsta móti.
Þetta ástand varir þó ekki lengi.
Happatölur þínar eru 4, 8 og 26.
Nautið (20. apríl-20. mail:
Hætta er á mistökum
og ónákvæmni í
vinnubrögðum ef þú
gætir ekki sérstaklega
að þér. Kunningjahópurinn
fer stækkandi.
nauuu uu.
x„
að þér. Kun
Tvíburarnir (21. maí-21. iúnír
V Það er mikið um að
vera í félagslífinu hjá
_ / / þér um þessar mundir
og þér flnnst reyndar
nóg um. Einhver öfundar þig.
Happatölur þínar eru 1, 17 og 34.
Krabbinn (22. iúní-22. iúm:
Jólagetraun DV - 5. hluti
□ Guðni Ágústsson □ Jón Sigurðsson □ Þorbjöm Jensson
Nafn:___________________________________________________________________
Heimilisfang:___________________________________________________________
Staður:_________________________________________________________________
Sími:___________________________________________________________________
Sendist til: DV, Þverholti 11, 105 Reykjavík.
Merkt: Jólagetraun DV
Steingeitin (22. des.-19. ian.l:
Nú er mikilvægt að
halda vel á spöðunum
því að nóg verður við
að fást á næstunni.
Vinir standa vel saman um
þessar mundir.