Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2001, Page 24
28
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001
Tilvera
I>V
1 í f i ö
Landsvirkjun og
Landsbanki
syngja saman
Landsvirkjunarkórinn og
Landsbankakórinn halda
sameiginlega aðventutónleika í
Grensáskirkju í kvöld kl. 20.30.
Einsöngvarar eru Þuríður G.
Sigurðardóttir og Þorgeir J.
Andrésson. Hljóðfæraleikarar
eru Jón Bjarnason á píanó og
Guðni A. Þorsteinsson á
harmoníku. Stjórnendur
kóranna eru Páll Helgason og
Björn Thorarensen. Aðgangur að
tónleikunum er ókeypis.
Krár
■ STEFNUMOT A GAUKNUM
Stefnumót bjóða upp á stjörnur
morgundagsins á Gauki á Stöng.
Síðustu forvöð
■ STEINUNN I SMIÐAR OG SKART
Myndlistarkonan Steinunn Einars-
dóttir lýkur sýningu sinni í Gallerí
Smíöar og skart, Skólavörðustíg
16A. Á sýningunni eru 18 verk unnin
meö ol!u á striga og vatnslitum.
Verkin eru öll unnin á þessu ári.
Opið er á verslunartíma.
Fundir
■ ÚÓP Á SUFÍSfÁNlÍM Lesíó veró-
ur úr nýútkomnu Ijóöasafni ungra
skálda á Súfistanum í kvöld kl. 20.
■ MÁLÞING UM BÖRN OG MANN-
RETTINDI Islandsdeild Amnesty
International efnir til málþings um
börn og mannréttindi. Málþingið
veröur haldiö í Borgarleikhúsinu og
hefst kl. 20. Dagskrá málþingsins
veröur eftirfarandi: Þórhiidur Líndai,
umboðsmaöur barna: Hlutverk og
störf umboðsmanns barna, Kristín
Jónasdóttir, framkvæmdastjóri
Barnaheilla: Tilurð Barnasáttmálans
og saga Save the Children, Jóhanna
K. Eyjólfsdóttir, framkvæmdastjóri
íslandsdeildar Amnesty
International: Hin falda skömm,
börn og mannréttindabrot, og Jónína
Einarsdóttir mannfræöingur: Börn í
heimi fullorðinna.Aðgangur er ókeyp-
is og öllum heimill.
Myndlist
■ MARGIR SÝNA i I8 Í Í8 er sýning
með verkum margra
myndlistarmanna. Þeir eru: Anna
Líndal, Birgir Andrésson, Bjarni
Þórarinsson, Eggert Pétursson,
Guörún Einardóttir, Helgi Þorgils
Friöjónsson, Höröur Ágústsson,
Kristinn G. Haröarson, Kristján
Guömundsson, Russel Maltz, Roni
Horn, Ragna Róbertsdóttir,
Sigurður Guömundsson, Thomas
Ruppel og Þorvaldur Þorsteinsson.
i8 er á Klapparstíg 33 í Reykjavík
og er opiö frá 1-5.
■ SÖLUSÝNING Sölusvnine á
listmunum er í Handverki og hönnun
í Aðalstræti 12, Reykjavík. Þar eru
munir eftir fjölmarga listamenn.
■ 2001 NÓTT íris Jónsdóttir og
Kolla eru með sýningu í Gallery
Hringlist, Hafnargötu 29,
Reykjanesbæ. Sýningin ber heitiö
2001 nótt og er meö ævintýrablæ.
Happdrætti
Bókatíðinda
Vinningsnúmer 11. desember:
36431
Sjá nánar: Lífiö eftir vinnu á Vísi.is
A leið í skólann
410 börn á Indlandi eru studd til náms og dvalar á heimavist á vegum
Hjálparstarfs kirkjunnar, auk hundraöa barna sem fá ýmiss konar stuðn■
ing til menntunar. Þessi börn eru í skóta þar sem eingöngu er kennt á
ensku. Foreldrarnir telja aö börnin eigi þannig meiri möguieika á góöri
vinnu.
Hjálparstarfi ö
Þaö styöur heitsugæsiu í Mósambík og Eþíópíu, einnig vatnsöftun og
skólahald.
Jólasöfnun Hjálparstofnunar kirkjunnar:
Við erum öryggisnet
- segir Anna Ólafsdóttir upplýsingafulltrúi
Upplýsingafuiltrúinn
„Söfnunin á aöventunni er okkar aöatsöfn-
un. Árangur okkar vettur því mikiö á henni, “
segir Anna Ólafsdóttir.
Jólasöfnun Hjálparstofnunar kirkj-
unnar er hafin og gíróseðlar og bauk-
ar að berast inn á heimilin í landinu.
Að þessu sinni gefst viðtakendum
gíróseðla tækifæri til að tilgreina
hvaða þátt hjálparstarfsins þeir kjósa
helst að styðja. Öll vitum við að stofn-
unin vinnur fyrir fólk sem býr við ör-
birgð og kúgun. En hver eru helstu
einstöku verkefnin nú um stundir?
Anna Ólafsdóttir, upplýsingafulltrúi
stofnunarinnar, lýsir því: „Sú neyðar-
aðstoð sem við veitum einstaklingum
hér innanlands hefur aukist mikið á
síðustu 10 árum og hún verður efld á
næstunni með ráðningu félagsfræð-
ings sem tekur til starfa 1. febrúar.
Hann á að sinna langtímaaðstoð betur
en gert hefur verið og þá í samstarfi
við aðrar stofnanir og félög. Við fáum
í þetta manneskju sem þekkir inn á
kerfið og veit hvar helst er hægt að
leita lausna. Hún mun halda saman
þeim upplýsingum sem við búum yfir
og verða talsmaður þess hóps sem
minnst má sín. Við erum öryggisnet
fyrir þá sem falla á milli kerfa. Fólk
sem er að flytja til íslands er ekki í al-
mannatryggingakerfinu fyrstu sex
mánuðina og það getur lent í vand-
ræðum. Fólk i forsjárdeilu fær ekki
meðlag af því að deilan er ekki til
lykta leidd og lendir í kröggum.Ýmis-
legt svona kemur upp og þarna getum
við komið til hjálpar á meðan fólk bíð-
ur aðstoðar hins opinbera."
Pakki með hversdagsmat
Anna segir hjálparstofnunina taka
við hjálparbeiðnum frá prestum um
allt land, auk þess sem fólk sæki um
aðstoð beint til skrifstofunnar. Um
60% skjólstæðinganna yfir árið segir
hún vera öryrkja en í desember bæt-
ist fleiri tekjulágir hópar við sem eigi
erfitt með að kljúfa þann mánuð.
í ár verður jólaaðstoðin fólgin í
pakka með hversdagsmat og
Anna býst við hátt f eitt þúsund
umsóknum eins og í fyrra. „Auð-
vitað eru það heilu fjölskyldurn-
ar sem njóta góðs af,“ segir hún.
Veita börnum dálitla
stuðningskennslu
Talið berst að erlendum verk-
efnum. „Við erum með mjög
mikið starf, bæði í Indlandi og
Mósambik, auk alls konar
smærri verkefna, svo sem
berklaverkefnis í Argentínu, að-
stoð í Bosníu, Rússlandi og víð-
ar,“ segir Anna og heldur áfram:
„Á Indlandi er fjölbreyttasta
starfið. Það snýr að mannrétt-
indum og menntun. Þar er hópur
sem kallaður er er dalítar og
samkvæmt hugmyndum Ind-
verja eru dalítar ekki fæddir af
neinum guði. Því teljast þeir
stéttleysingjar og þeim tilheyra
störf sem engir aðrir vilja sinna,
eins og að þrífa kamra, þvo
þvotta, verka húðir og fleiri skít-
verk. Börn í þessari stétt njóta sér-
stakrar umhyggju okkar. Með því að
veita þeim menntun af einhverju tagi
þá fá þau tækifæri til að vinna eitt-
hvað annað en það ,sem hefðirnar
bjóða. í sumar voru opnaðir litlir
skólar í 50 þorpum og fengnir kennar-
ar til að veita börnum dálitla stuðn-
ingskennslu. Þeim var hjálpað með
heimanámið, undirbúning undir próf
og ýmis atriði sem foreldrar ráða ekki
við þar sem engin hefð er fyrir mennt-
un á heimilinu.
Anna nefnir líka svokallað þræla-
barnaverkefni í Indlandi sem Hjálpar-
stofnun kirkjunnar hefur stutt síð-
ustu fjögur árin og felst í að frelsa
þrælaböm úr ánauð. „Það þurfti að
fara hægt af stað því okkar stefna fer
auðvitað þvert á það sem ýmsar ráð-
andi stéttir í landinu vilja. En samt
hefur það gengið mjög vel,“ segir hún.
Árangurinn veltur á
aöventusöfnuninni
Anna segir Hjálparstofnun kirkj-
unnar ekki vera með fólk að störfum
erlendis heldur leggi hún fé til verk-
efnanna. „Við vinnum ýmist í gegnum
alþjóðasamtök, eins og Lútherska
heimssambandið, eða innanlandssam-
tök í löndunum. Við erum til dæmis í
samvinnu við tvenn slík samtök í Ind-
landi. Svo förum við í heimsóknir og
fáum alltaf reglulega skýrslur yfír ár-
angurinn. Þetta hefur gefíst mjög vel.“
Anna segir dugnað stofnunarinnar
vera í beinu samhengi við það tjár-
magn sem hún fái til verkefnanna.
„Söfnunin á aðventunni er okkar að-
alsöfnun. Árangur okkar veltur því
mikið á henni, „ segir hún að lokum.
-Gun.
Maður lífandi
Nokia misnotar jólasveininn
Kolbrún
Bergþórsdóttir
skrifar.
Stórfyrirtækin eru óhrædd við að
taka jólasveininn í þjónustu sína.
Ekki skal amast við því. Maður fær
aldrei nóg af jólasveininum. En
hann verður þá að vera almennileg-
ur, jafn kátur og vinalegur og kóka
kóla jólasveinninn. Einn jólasveinn
hefur þegar komið nokkru róti á til-
veru mína og ég er ekki frá því að
hann hafl nokkuð dregið úr jóla-
gleði minni. Sá birtist í auglýsingu
frá Nokia. í nokkurn tíma hefur
mér verið hlýtt til Nokia, eða allt
frá því ég keypti farsíma frá fyrir-
tækinu. Svona ljómandi netta
Nokiu sem fylgir mér hvert sem ég
fer og hefur auðgað tilveru mína.
Fyrir mér er Nokia meira en tæki,
hún er vinkona mín. Það hefur hins
vegar reynt nokkuð á vináttu okkar
eftir að framleiðendur hennar
sendu frá sér jólaauglýsinguna.
Auglýsingin sýnir miðaldra
mann með jólasveinahúfu sem seg-
ist vera jólasveinninn. Það sem ger-
ir orð hans tortryggileg er að hvergi
sést í hvítt skegg og hann lítur ekki
út fyrir að vera sérstakur barnavin-
ur. Svo kynnir hann eiginkonu sína
sem er að minnsta kosti fjörutíu
árum yngri en hann, ljóshærð,
barmmikil og berlæruð. Hann horf-
ir á hana með lostasvip og verður
fyrir vikið næstum aumkunarlegur,
svona eins og gamlir kallar verða
þegar þeir halda sig eiga sjens í
stelpur sem gætu verið bamaböm
þeirra. Og hún lætur eins og hann
sé draumaprins, brosir
flennulega og dillar sér.
Þetta var eins og jólaaug:
lýsing frá Playboy með
Hugh Hefner í hlutverki
jólasveinsins.
Það var verið að auglýsa
Nokiu 3310. Ég þreif Noki-
una mína, kannski óþarf-
lega hryssingslega, og
sneri henni á alla kanta til
að leita að númeri. Sem
betur fer er Nokian mín
ekki númeruð. Ef hún væri
númer 3310 myndi aldrei
gróa um heilt milli okkar.
Mér er hins vegar orðið
ljóst að Nokia er ekki af
sérlega góðum ættum. Þeir
sem sköpuðu hana eiga
sand af seðlum en hafa engan stíl.
Ég ætla samt ekki að láta syndir
feðranna bitna á afkvæminu. Ég hef
þá trú að Nokian mín taki mið af
eiganda sínum og tileinki sér lífs-
skoðanir hans. Hún hefur lika verið
dauf upp á síðkastið og ekki látið
jafn mikið i sér heyra og áður. Ég lít
á það sem vísbendingu um að henni
„Maöur fær aldrei nóg af
jólasveininum. En hann
verður þá að vera almenni-
legur, jafn kátur og vinaleg-
ur og kóka kóla jólasveinn-
inn. Einn jólasveinn hefur
þegar komið nokkru róti á
tilveru mína og ég er ekki
frá því að hann hafi nokk-
uð dregið úr jólagleði
minni. Sá birtist í auglýs-
ingu frá Nokia. “
sé brugðið.
Það líður að jólum og ég veit allt
um kristilegan fyrirgefningaranda.
Það hljóta samt að vera takmörk
fyrir þvl hvað hægt er að umbera.
Og ég sé enga ástæðu til að fyrirgefa
stórfyrirtæki sem gerir jólasveininn
að saurlífisgradda.