Dagblaðið Vísir - DV - 11.12.2001, Side 25
ÞRIÐJUDAGUR 11. DESEMBER 2001
29
DV
Tilvera
Bíófréttir
Vinsælustu kvikmyndirnar í Bandaríkjunum:
Stjörnurnar
skiluðu sínu
Ocean’s Eleven
Fór létt með að velta Harry Potter af
toppnum.
Fall Harrys Potters var mikið
þegar hin stjörnum prýdda kvik-
mynd Ocean’s Eleven leit dagsins
ljós. Skilaði hún um það bil fjöru-
tíu milljónum til framleiðenda
sinna en Harry Potter fékk „að-
eins“ fjórtán miiljónir dollara í
sinn hlut á sama tíma. Ocean’s El-
even, sem hefur í aðalhlutverkum
meðal annars George Clooney,
Brad Pitt, Matt Damon, Juliu Ro-
berts og Andy Garcia, sem öll
heiðruðu Leifsstöð með nærveru
sinni á dögunum, fær einnig virki-
lega flna dóma og sá sem fær mest
af hólinu er leikstjórinn Steven
Soderbergh sem þykir enn eina ferð-
ina sýna hversu öflugur leikstjóri
hann er.
Ocean’s Eleven er eina nýja kvik-
myndin sem frumsýnd var um helg-
ina og nú er bara að sjá hvað Tom
Cruise getur gert en nýjasta kvik-
mynd hans, Vamilla Sky, verður
frumsýnd um helgina. Ef hún nær
ekki toppsætinu af Ocean’s Eleven á
hún litla möguleika um þar næstu
helgi því þá verður Lord of the Rings
frumsýnd og er eftirvæntingin ekki
minni en þegar Harry Potter og visku-
steinninn var að hefja göngu sína.
-HK
III IIIIHIII III11 —
FYRRI
SÆTI VIKA TITILL
0 _ Ocean's Eleven
Q 1 Harry Potter.......
Q 2 Behind Enemy Lines
0 4 Monsters Inc.
0 3 Spy Game
Q 5 Black Knight
0 6 Shallow Hal
0 7 Out Cold
0 9 Amelie
0 8 Domenstic Dlsburbance
© 11 Life as a House
0 12 TheWash
0 10 Heist
0 17 13 Ghosts
0 13 The One
0 _ Trainlng Day
0 16 The Man Who Wasn't There
0 14 K-PAX
0 15 Sidewalks of New York
0 18 Serendipity
ALLAR UPPHÆÐIR I ÞUSUNDUM BANDARIKJADOLLARA.
INNKOMA INNKOMA FJÖLDI
HELGIN: ALLS: BÍÓSALA
38.107 38.107 3075
14.737 239.659 3672
8.042 - 31.180 2844
6.597 212.391 2884
4.473 53.946 2770
3.155 27.060 2233
2.57 7 64.784 2218
1.396 12.242 1651
1.005 11.303 221
922 43.722 1471
639 14.846 1068
532 8.725 461
453 22.862 804
411 41.016 463
356 43.646 517
352 75.685 441
340 5.969 259
332 49.76 1 738
306 1.887 224
236 49.143 593
Vinsælustu myndböndin:
Vaðið í tæknibrellum
Það eru engar breytingar á efstu
sætum myndbandalistans. The
Mummy Retums heldur efsta sæt-
inu og Animal og Bridget Jones
halda einnig sínum sætum. The
Mummy Returns er mikið sjónar-
spil sem skilar sér ekki alveg á lít-
inn sjónvarpsskjá en einn af
helstu kostum myndarinnar eru
tæknibrellurnar sem oft eru
undraverðar.
Eina nýja myndin, Get Over It,
nær aðeins að komast í níunda
sætið. Um er að ræða gamanmynd
sem segir frá rómantísku vanda-
máli sem mennirnir
hafa átt við að stríða
allt frá því að fyrsta
parið hætti að vera
saman - hvernig á að
komast af i heimi þar
sem fyrrverandi
kærastan er alltaf til
staðar. Aðalpersónan
er menntaskólanem-
inn Berke Landers
sem á hina fullkomnu
kærustu, hana Alli-
son, sem hann er bú-
inn að elska síðan
þau voru ungbörn.
Þegar Berke kemur í
menntaskóla lýkur
hins vegar samband-
inu og Allison nær
sér fljótlega í aðal-
gaurinn í skólanum.
Vandamálið er að
Berke á í erfíðleikum
með að umgangast
fyrrverandi kærustu
og vini hennar.
Animal
Hvað gera menn þegar dýrseðlið kem-
ur í Ijós.
FYRRI VIKUR
SÆTI VIKA TITILL (DREIFINGARAÐIU) ÁUSTA
O 1 The Mummy Returns isam-myndbóndi 2
o 2 The Animal imyndforni) 3
0 3 Bridget Jones's Diary isam myndbónd) 4
o 4 Crimson Rivers cskífani 4
0 5 Dr. Doolittie 2 (skífani 2
O 6 Antitrust isam myndböndi 3
o 8 Double Take isam myndböndj 3
0 7 Pearl Harbor isam myndbónd) 5
0 _ Get Over It (skífani 1
© 17 Sweet November (myndformi 2
© 12 The Grinch (sam myndbönd) 9
0 9 The Tailor of Panama isam myndbönd) 5
0 10 Blow (MYNDF0RM) 6
© 11 The Virgin Suicides (bergvíki 4
0 13 Dracula 2001 iskífani 3
0 14 Bais-mol igöðar stundiri 4
© 16 One Night at McCool's (skífanj 6
© 15 Brother (sam myndböndi 5
© 19 The Mexican isam myndböndi 8
© 18 Exit Wounds (sam myndböndi 8
Góð heimsókn
Slysavarnafélagið Landsbjörg hefur nýlega látið gera vegleg endurskinsmerki og dreift þeim víða í grunnskólum
og leikskólum landsins. Nú fyrir stuttu heimsóttu tveir félagar úr Björgunarsveitinni Björgu á Suðureyri leikskól-
ann Tjarnarbæ og afhentu nemendum þar endurskinsmerki og blöðrur. Var þeim vel fagnað og ekki að efa að
átakið þæti öryggið í umferöinni á Súgandafirði.
Síf ræna Jólatréð
— eoolfaé áw eÆw dw
Sígraent eðaltré í hæsta gæðaflokki frá
skátunum prýðir nú þúsundir íslenskra heimila.
10 ára ábyrgð í*. Eldtraust
12 stærðir, 90 - 500 cm n Þarf ekki að vökva
t* Stálfótur fytgir t* íslenskar ieiðbeiningar
i* Ekkert barr að ryksuga i*- Traustur söluaðili
fe Truflar ekki stofublómin f*.- Skynsamleg fjárfesting
Smárelind, 1. h§§® vlS
Bandolag fslenskra skáfa
Skólabörn í Árskógarskóla á Dalvík:
Eiga tvö týnd fósturbörn í Úganda
Hver tók ostinn minn?
Hvernig bregst fólk við breytingum
Undanfarin ár hafa nemendur 5.-9.
bekkjar Árskógarskóla í Dalvíkur-
byggð haft tvö svokölluð „fósturbörn”
í Úganda. Um er að ræða verkefni á
vegum ABC hjálparstarfsins. Verkefn-
ið er fólgið í því að nemendur Árskóg-
arskóla safna peningum og greiða
með þeim fyrir menntun fósturbarn-
anna, sem eru reyndar týnd í því um-
róti sem er i landi þeirra.
Kristján Sigurðsson skólastjóri seg-
ir að til að fjármagna verkefnið safni
nemendur gosdrykkjaumbúðum
heima hjá sér og á ættarmótum sem
vinsælt er að halda í Árskógarskóla,
sem og á öðrum viðburðum sem þar
eru haldnir. Er öllum einnota umbúð-
um safnað saman og sett í verkefnið.
Kristján segir að markmiðið með
verkefninu sé að sýna nemendum
fram á að ekki hafi allir það jafn gott
og jafnframt að kynna þeim aðra
menningarheima.
Fósturbörnin eru frá Laliya í Norð-
ur-Úganda, og heita Grace og Denis.
Grace er á tíunda ári en Denis ellefu
ára. Móðir Grace lést úr malaríu en
pabbi Denis úr eyðni. Denis dreymir
um að verða læknir en Grace um að
verða hjúkrunarkona.
Að vísu er komið upp vandamál
núna. Sifelldar róstur eru i Úganda og
hafa fjölskyldur fósturbarnanna
DV-MYND HALLDÓR INGI ÁSGEIRSSON
Dósir og gter fyrir bömin i Úganda
Nemendur 5. bekkjar Árskógarskóla flokka gler og dósir til endurvinnslu
ásamt Kristjáni skólastjóra. Peningurinn fyrir umbúðirnar rennur í fóstur-
barnasjóöinn.
beggja flutt búferlum og ekki hefur böm eða bíða og sjá hvort tekst að
tekist að hafa uppi á þeim enn þá. hafa uppi á þeim Grace og Denis.
Kristján segir að uppi séu vangavelt- -hiá
ur um hvort taka eigi önnur fóstur-
í bókinni Hver tók ostinn minn?
eftir bandaríska rithöfundinn dr.
Spencer Johnson, er osturinn notaður
sem myndlíking fyrir lífsgæði sem
fólk sækist eftir. Sagan er dæmisaga
sem fjallar um breytingar í lífi fjög-
urra einstaklinga sem lifa í vellysting-
um í völundarhúsi. Einn góðan veður-
dag er allur osturinn upp urinn og les-
andinn fylgist með viðbrögðum
þeirra.
Einstaklingarnir fjórir eru fulltrú-
ar íjögurra höfuðþátta í fari fólks.
Einn þefar upp tækifæri, annar þeyt-
ist um í leit að tækifærum, sá þriðji
bregst við þegar hann skynjar að líf
hans breytist til hins betra en sá
fjórði lokar á allar breytingar.
Bókin hefur notið mikilla vinsælda
víða um heim og selst í miklu upplagi.
Þýðandi bókarinnar er Hallur Halls-
son og útgefandi er Pro Public
Relations á íslandi og íslenska leik-
húsgrúppan.
Dæmisaga um breytingar
Þýöandi bókarinnar er Hallur Halls-
son og útgefandi er Pro Public
Relations á íslandi og Islenska
leikhúsgrúppan.