Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Blaðsíða 2
2 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002 Fréttir DV Byggðastofnun veitti byggðakvóta gegn vilja hreppsnefndar á Fáskrúðsfirði: Samningur um byggða- kvóta sagður brotinn - óskiljanlegt, segir oddviti. Jaðrar við ofsóknir, segir þiggjandi kvótans Eigendur fisk- vinnslufyrirtækis- ins Vaðhoms ehf. á Fáskrúðsfirði, sem fékk úthlutað byggðakvóta síð- ustu þrjú fisk- veiðiár, eru sagðir hafa brotið samn- ing við Byggða- stofnun sem kvað á um að kvótan- um og nær tvöfaldri viðbót, alls 300 tonnum, skyldi landað í byggðarlag- inu. Eigendur fyrirtækisins sem ekki á kvóta eru bornir þeim sökum að hafa selt óunninn fisk úr landi og hafa sprottið af þeim ásökunum lögreglumál. Logandi deilur hafa staðið á Fáskrúðsfirði vegna þessa. Vaðhorn er fiskvinnslufyrirtæki sem stofnað var árið 1999 utan um byggðakvóta sem stjórn Byggða- stofnunar samþykkti að veita fyrir- tækinu. Einn eigenda þess og stjóm- armaður er Þóra Kristjánsdóttir sem jafnframt á sæti í minnihluta hreppsnefndar Búðahrepps. 1 eigu Þóru og eiginmanns hennar er einnig útgerðarfyrirtækið Sólborg. Byggðakvóti Fáskrúðsfirðinga nemur 113 tonnum og hefur fyrir- tækið nú fengið hann þriðja árið i röð. Tilskilið er að kvótaþegar leggi til afla á móti kvótanum til vinnslu á staðnum. I samningi milli Vað- horns og Byggðastofnunar er kveðið á um það í þriðju grein að fyrirtæk- ið tryggi að allt að 300 tonn komi til vinnslu á Fáskrúðsfirði vegna byggðakvótans. Um þetta ákvæði er deilt og stendur meirihlutinn á því að þarna hafi orðið misbrestur. Átakafundur Hreppsnefnd Búðahrepps hélt átakafund í október þar sem sam- þykkt var að leggjast gegn úthlutun- inni og var Byggðastofnun sent er- indi þar að lútandi. Minnihluti hreppsnefndar vildi að Vaðhorn fengi úthlutun sem fyrr. Þóra Krist- jánsdóttir vék sæti þegar máliö var tekið á dagskrá. Þrátt fyrir tilmæli hreppsnefndar ákvað stjórn Byggða- stofnunar að úthluta Vaðhorni ehf. kvótanum enn einu sinni. Sú ákvörðun hefur verið kynnt eigend- um munnlega og búið er að bókfæra kvótann á skip sem tengt er Vaf- horni. Kristinn H. Gunnarsson, formað- ur stjórnar Byggðastofnunar, vildi ekki staðfesta hvort umrætt fyrir- tæki ætti í hlut en sagði að eitt fyr- irtæki hefði ekki staðið við skilmála Byggðastofnunar um byggðakvót- ann. „Stjórnin ákvað samt sem áður að gefa viðkomandi tækifæri einu sinni enn,“ sagði Kristinn. Ólafur Níels Eiríksson, oddviti meirihluta Framsóknarflokksins og Óskalistans, sagði í samtali við DV í gær að enn hefði hrepps- nefnd ekki heyrt neitt frá Byggða- stofnun. Hreppsnefndarmenn hefðu þó heyrt því fleygt að þrátt fyrir mótmælin hefði Vafhorn fengið úthlutað kvótanum. „Meirihluti hreppsnefndar lagð- ist gegn því að kvótanum yrði enn einu sinni úthlutað til Vaðhorns. Ekkert formlegt svar hefur borist frá Byggðastofnun og ég er að bíða skýringa stofnunarinnar. Ef svo fer að fyrirtækið fái enn kvót- ann þá er það óskiljanlegt. I samningnum stendur að sé brotið gegn honum fari fram fyrirvara- laus riftun" segir Ólafur Níels. Byggðakvóti Fáskúðsfirðinga nemur 113 tonnum, að verðmæti um 10 milljónir króna árlega ef miðað er við aö leiguverð á hverju þorskígildiskílói sé 160 krónur. Alls hefur viðkomandi fengið úthlutað byggðakvóta að upphæð sem nemur 30 milljónum króna undanförnum árum. Þóra Kristjánsdóttir, stjórnar- maður og einn eigenda Vaðhorns, segir að ranglega sé sagt í samn- ingnum við Byggðastofnun að fyr- irtækið muni vinna allt að 300 tonn á staðnum. „Við buðum aldrei nema tvö- földun en vegna mistaka starfs- manns Atvinnuþróunarfélags Austurlands, sem gerði samning- inn, voru þessi 300 tonn inni. Hann hefur sjálfur gert hrepps- nefnd grein fyrir því í bréfi. Vandamálið er meirihlutinn sem er að reyna að gera fyrirtæki mitt tortryggilegt meö öllum ráðum. Það jaðrar við að þetta séu of- sóknir," segir Þóra. Hún segir hluta vandans við að vinna upp i byggðarkvóta vera þær tafir sem orðið hafi á úthlut- un. Þannig hafi síðustu tvö fisk- veiðiár verið langt liðið á- þau þegar kvótanum var úthlutað. Á tveimur árum hafi úthlutunin alls staðið í 10 og hálfan mánuö. „Við erum af heilindum í þess- um rekstri. Ef við fáum frið og eðlilegan tíma við að vinna þetta þá væri ekki óeðlilegt að við gæt- um þrefaldað byggðakvótann," segir Þóra. -rt Kristinn H. Gunnarsson. Hvalurinn Keikó Fer hann til Stykkishólms eöa veröur hann áfram í Eyjum? Keikó áfram í Eyjum? „Það hefur ekki verið tekin end- anleg ákvörðun í málinu og þvi óvíst um framtíðarheimkynni Keikós,“ segir Hallur Hallsson, tals- maður Keikósamtakanna hér á landi, en enn hefur dregist að taka um það ákvörðun hvar frægasti há- hyrningur sögunnar mun dvelja í framtíðinni. Lengi vel var talað um að farið yrði með Keikó frá Eyjum, enda ljóst að frá og með næsta sumri verður hvalurinn að fara úr Kletts- víkinni vegna fyrirhugaðs fiskeldis þar. í fyrstu var rætt um að Húsa- vík eða Keflavík yrði framtíðar- heimili hvalsins en þessir staðir eru ekki lengur taldir koma til greina, Keflavik vegna of mikils kostnaðar og Húsavík vegna erfiðleika með að- stöðu yfir vetrarmánuðina. Seint á síðasta ári var það svo allt að því fullyrt að Keikó færi til Stykkishólms og ljóst að áhugi heimamanna á því er mjög mikill. Þá gerðist það einnig að bæjaryfir- völd í Vestmannaeyjum fóru fram á viðræður um möguleika á að Keikó yrði þar áfram þótt þaö yrði ekki í Klettsvíkinni. Viðræður um það hafa ekki farið fram og staða máls- ins er því sú að Keikó verður ann- aðhvort áfram í Eyjum eða fer i Stykkishólm. -gk DV-MYND NJÖRÐUR HELGASON Vorverk að vetrarlagi Þaö er tekiö til hendinni viö hellulagnir nú á miöjum vetri á Selfossi. Bæjarstarfsmenn í Árborg voru í óöaönn aö helluleggja fyrir utan leikskólann Álfheima á Selfossi í gærdag. Þaö sem skyggöi á þíöuna var regniö og Ijósleysiö sögöu kaliarnir en annars voru þeir hinir ánægöustu aö geta sinnt vorverkum í mörsugi frekar en aö salta götur og moka snjó. Meintur áhugi útlendinga á íslandsbanka: Beðið eftir ársuppgjöri Engar frekari upplýsing- ar hafa borist bankaráði Is- landsbanka vegna meints erlends tilboðs sem Jón Ólafsson kveðst geta haft milligöngu um í bréf Orca- hópsins svokallaða. Þetta segir Kristján Ragnarsson, formaður bankaráðs ís- landsbanka, en vill ekki að öðru leyti tjá sig um málið. Samkvæmt heimildum DV hafa engin formleg samskipti verið síðustu daga milli bankaráðs- manna og Jóns Ólafssonar sem einnig situr í bankaráði. Heimildir DV herma að með hverjum degi sem líður án þess aö nánari úpplýsingar berist um áhuga erlendu fjár- festanna minnki lík- urnar á að hluuti bankans verði seld- ur út fyrir land- steinana. Ágreining- ur er meðal að- standenda Orca- hópsins um hvort selja skuli og virðist sem Jón Ásgeir Jó- hannesson og Þor- steinn Már Baldvinsson séu ósam- mála Jóni um það mál. Ársuppgjör íslandsbanka verður kynnt 29. þessa mánaðar og gæti niðurstaða þess hleypt lífi í nýja viðskiptaat- burðarás að mati heimildarmanna DV. Þrátt fyrir ítrekaðar til- raunir hefur blaðið hvorki náð tali af Jóni Ólafssyni né Jóni Ásgeiri vegna málsins. Þrálátur orðrómur hefur verið á kreiki um að Fjár- málaeftirlitið sé að skoða þetta ferli allt saman en sam- kvæmt 38. gr. laga um verð- bréfaviðskipti er að finna ýmis ákvæði sem takmarka heimildir hluthafa í félögum til að hafa áhrif á verð bréfa. Páll Gunnar Pálsson, forstöðumaður Fjármálaeftirlitsins, vill hins vegar hvorki staðfesta að slík athugun sé í gangi né vísa því á bug, og vísar til þess að stofnunin tjái sig ekki um einstök mál. -BÞ/BG Kristján Ragnarsson. Páll Gunnar Pálsson. Magnús hættir Magnús L. Sveins- son tilkynnti á fundi stjórnar Verslunar- mannafélags Reykja- víkur í gærkvöldi að hann hygðist láta af störfum sem formað- ur félagsins á aðal- fundi í mars. Gengið hefur verið frá tillögu um Gunnar Pál Pálsson, forstöðumann hagdeildar VR, sem formannskandídat. Mbl. greindi frá. Vilja kaupa Norðurmjólk Fulltrúar mjólkurvinnslustöðv- anna í landinu funduðu á Akureyri í gær um hugsanleg kaup þeirra á 68% hlut KEA í Norðurmjólk. Auðhumla, sem er félag mjólkurbænda á Norður- landi eystra, sýnir einnig áhuga á kaupum á hlutnum sem virtur er á 300 milljónir kr. að nafnvirði, segir Mbl. Lúðvík gagnrýnir Lúðvík Bergvins- son alþingismaður segir samgönguráð- herra beita vald- níðslu því hann hafi ekki haft heimild til að láta mál flug- stjóra, sem ekki fékk heilbrigðisvottorð, til sína taka eftir að nefnd þriggja sér- fræðinga fjallaði um það. Hann segir úrskurð nefndarinnar endanlegan. Sjónvarpið greindi frá. Skólastjóri hættir Jón Árni Rúnarsson, skólastjóri VT-skólans og Rafiðnaðarskólans, er hættur störfum. Hann stýrði einnig Margmiðlunarskólanum og hverfur sömuleiðis úr því starfi. Unnið er að enduríjármögnun skólakerfis rafiðn- aðarmanna, segir á vef RSÍ. Ný ferðaskrifstofa Unnið er að stofnun nýrrar ferða- skrifstofu og stofnað hefur verið hlutafélagið Stúdentaferðir. Nýja ferðaskrifstofan mun sækja inn á sama markað og Ferðaskrifstofa stúd- enta gerði - en hún var dótturfyrir- tæki Samvinnuferða-Landsýnar og hætti rekstri þegar móðurskipið sökk. Vísir.is segir frá. Goði greiðir skuldir Kjötumboð- ið, áður Goði, stefnir að því að greiða 61% krafna skv. frumvarpi til nauðasamninga. Alls 36% verða greidd með peningum en 25% með hlutabréfum í Norð- lenska. Ekki er fallist á að útflutn- ingsgjald sem fyrirtækið hefur ekki greitt sé forgangskrafa. Mbl. greindi frá. Hækkanir átaldar Hækkanir opinberra gjalda og þjónustu að undanfórnu eru átaldar harðlega í ályktun stjómar Starfs- greinasambandsins frá í gær. Sagt er að með þessum hækkunum sé verið að stefna í tvísýnu markmiðum aðila vinnumarkaðarins um nýja þjóðar- sátt f ókus EEm Á MORGUN Mikael Torfason prýðir forsíðu Fók- uss á morgun en kappinn er að fara að frumsýna kvikmyndina Gemsa um mánaðamótin. Mikael er kjaftfor að vanda og lætur alla heyra það, allt frá Ólafl Jóhanni upp i Dorrit Moussaieff. Við skoðum ungu kynslóðina í dag og frnnum út hverjir komi til með að taka við af hinni ríkjandi ‘68-kynslóð eftir 20 ár og Harpa Amardóttir leikkona rennir yflr ferilinn og margt fleira. Þá færðu góð ráð til að berjast gegn þynnku og eins hvað þú átt að gera til að halda lífi ef þú dettur fram af brú. I Lífinu eftir vinnu er svo allt um helg- ina að finna, djamm, memiingu og allt það. -sbsAhdm

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.