Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Blaðsíða 7

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Blaðsíða 7
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002 1>V 7 Fréttir Útvarpsráð samþykkir flutning Rásar 2 til Akureyrar: Verið að móta nýja hugmyndafræði - segir Jóhann Hauksson, forstöðumaöur RÚV á Egilsstöðum í útvarpinu Ef dagskrá Rásar 2 missir sérstööu tapar hún tilverugrundvelii sínum. Þetta segir forstööumaður Rikisútvarpsins á Egilsstööum. Ef dagskrá Rásar 2 missir sér- stöðu og verður keimlík tíu öðrum útvarpsstöðvum á höfuðborgar- svæðinu og berst við þær um aug- lýsingar og kostun, þá missir hún tilverugrundvöll sinn sem ríkisút- varp. Því er mikilvægt að fá henni nýtt hlutverk. Þetta segir Jóhann Hauksson, forstöðumaður Rikisút- varpsins á Egilsstöðum, sem fagnar samþykkt útvarpsráðs frá í fyrra- dag um að flytja höfuðstöðvar rásar- innar norður. „Það er eftirtektar- vert hve fljótt útvarpsráð afgreiddi málið,“ segir Jóhann. Samþykkt ráðsins grundvallast á tillögum sem þriggja manna starfs- hópur vann, en Jóhann var meðal þeirra sem þar áttu sæti. Meginstef þeirra er að höfuðstöðvar Rásar 2 verði á Akureyri og að starfsemi Ríkisútvarpsins þar verði efld - sem og hinna svæðisstöðvanna sem eru á ísafirði og Egilsstöðum. Myndu út- varpsmenn á þessum stöðum og víð- ar vinna efni fyrir rásina - en með því móti er ætlunin að sanna í raun að Ríkisútvarpið þjónar landinu öllu. Á útvarpsráðsfundinum í fyrra- dag sat Mörður Árnason, útvarps- ráðsfulltrúi Samfylkingar, hjá við atkvæðagreiðslu um tillöguna um flutninginn norður.' Hann lét bóka meðal annars að óeðlilegt væri að dagskrárstjóri Rásar 2 væri bund- inn vistarböndum um að sitja nyrðra. Það atriði segir Jóhann að geti í raun verið laust og bundið. Staðsetning dagskrárstjóra á Akur- eyri sé áhugavert en ekki heilagt at- riði, rétt eins og að útvarp þurfi ekki endilega að vera innan fjög- urra veggja í Efstaleiti. Það sé í eðli sínu nokkuð landamæralaust. „Því er ekki að leyna að meðal starfsmanna í Efstaleitinu í Reykja- vík eru skiptar skoðanir á þessum fyrirætlunum. En ég vænti þess að með tímanum öðlist fólk skilning á því að hér er verið að móta nýja stefnu og hugmyndafræði fyrir þessa rás, sem ég tel raunar mjög mikilvægt að gerist. Menn ættu að anda rólega þótt hluti starfseminnar sé fluttur milli staða. Þótt þriggja tíma tónlistardagskrá sé send út frá Akureyri má benda á að það eru líka 24 klukkustundir í sólarhring á Rás 2. Liklegt er að koma yrði upp öðru hljóðveri Ríkisútvarpsins norðan heiða fyrir svo langa útsend- ingu á virkum dögum. Er það mál í farvatninu samhliða hugsanlegum flutningum á starfsemi stofnunar- innar í bænum, úr Glerárhverfi í miðbæinn. -sbs Grútur Gömul fita sem safnast hefur undir bryggu og berst þaöan út á sjö. Seyðisfjörður: Mengun ekki frá grútar- kúlum - segir Hollustuvernd Mengun sem vart hefur orðið í Seyöisfjarðarhöfn síðustu daga er væntanlega ekki til komin vegna grútarkúlna með kemískum efnum. Fyrsta skoðun hjá Hollustuvernd ríksins bendir til þess og þar kom fram að ekki er um bráða mengun- arhættu frá verksmiðju SR-Mjöls að ræða. Flekkir hafa verið á firðinum síðustu daga og segir í tilkynningu frá stofnuninni að þetta sé gömul fita sem safnast hafi undir bryggju, sem borist hafi þaðan í ofsaveðri í sl. viku. í starfsleyfi verksmiðjunnar er krafa um fituskilju í frárennsli. Framkvæmdir við að koma henni upp hafa verið í fullum gangi sið- ustu daga. Vilmundur Þorgrímsson á Seyðisfirði hefur kært grútar- mengun í firðinum til lögreglu, en hann telur hana að hluta til stafa af því að eiturefnum frá SR hafi verið veitt í sjó fram. -sbs Gistinóttum fækkar: 18% fækkun á lands- Menntamálaráðherra ánægður með niðurstöðu útvarpsráðs: Vel unnið í Rásar 2 málinu „Ég tel að innan Ríkisútvarpsins hafi menn unnið vel og skipulega að þessu máli,“ segir Bjöm Bjarnason menntamálaráðherra vegna tillagna starfshóps um stóraukin umsvif landsbyggðarinnar í dagskrárgerð Rásar 2. Björn var sjálfur í þing- ræðu upphafsmaður að flutningi Rásar 2 út á land og nú hefur út- varpsráð samþykkt tillögur starfs- hópsins. Þær ganga út á að 5-7 störf færist út á land auk þess sem dag- skrárstjóri Rásar 2 verði búsettur á Minni síld, meiri kolmunni: Talsvert minni heildarafli Heildarafli fyrstu 11 mánuði ársins var 1.877.297 tonn sem er nokkru minni afli en á sama tíma í fyrra þeg- ar 1.922.379 tonn höfðu veiðst. Munur- inn er 45.000 tonn og munar mestu um minnkandi síldveiði, tæplega 119.000 tonn og nærri 30.000 tonna samdrátt í afla botnfiskstegunda. Kolmunnaaflinn er hins vegar mun betri i ár og munar þar um 96.000 tonnum á milli ára. Fiskaflinn í nýliðnum nóvember- mánuði var 96.099 tonn samanborið við 97.115 tonn í nóvembermánuði árið 2000. Botnfisksaflinn var 335 tonnum minni í nóvember í ár, karfa- afli tæpum 1.300 tonnum minni og grálúðuafli rúmum 800 tonnum minni. Þorskaflinn jókst hins vegar um 3.400 tonn á milli ára. Heildarafli uppsjávartegunda í nóvember breyttist lítið milli ára en samsetningin er ólík. Kolmunnaafli var tæpum 14.000 tonnum meiri í ár og síldaraflinn tæpum 6.400 tonnum meiri. Hins vegar veiddist engin loðna síðastliðinn nóvember, saman- borið við rúm 20.000 tonn í nóvember í fyrra skv. tölum Hagstofunnar. -BÞ Akureyri. Skiptar skoð- anir eru hins vegar um málið og hafa t.d. ungir framsóknarmenn lýst óánægju. Þeir segja að um kostnaðarsama breytingu verði að ræða og óttast að þetta verði fyrsta skrefið í að leggja rásina niður. Þingmenn Flugfélagið LTU hefur ákveðið að hefja vikulegt áætlunarflug á milli Dússeldorf og Egilsstaða. Að sögn Antons Antonssonar, forstjóra Terra Nova-Sólar, sem er umboðsmaður LTU hér á landi, eru menn bjartsýnir á að þessi nýjung muni hafa í för með sér mikla veltuaukningu. Hann segir að í samvinnu við Terra Nova-Sól hafi LTU flogið hingað til lands með góðum árangri frá árinu 1995 og þessi ákvörðun sé liður í þeim áformum að fjölga enn frekar ferðum á milli ís- lands og Þýskalands og auka mögu- leika á ferðum íslendinga til Þýska- lands og öfugt. Flugið var formlega kynnt á fundi á Egilsstöðum í gær og við sama tæki- færi undirritaði LTU og aðilar í ferða- málum á íslandi samkomulag sem fel- stjórnarandstöðu í Reykjavík hafa lýst sömu skoð- un, s.s. Kolbrún Halldórsdóttir, Vinstri grænum. DV spurði menntamálaráð- herra um kostn- aðinn og hvort líklegt væri að greiða yröi biðlaun ef starfsmenn i Reykjavík vildu ekki flytjast út á Samkomulagið undirritaö Nýja flugleiöin var formlega kynnt á fundi á Egilsstöðum í gær ur í sér að þessir aðilar muni, í allt að þrjú ár, vinna að því að festa í sessi millilandaflug á Egilsstaðaflugvöll. Þá skuldbindur LTU sig til að mark- aðssetja hina nýju flugleið fyrir að lágmarki tíu milljónir króna og hefur Markaðsráð ferðaþjónustunnar sam- land. Hann sagðist ekki geta tjáð sig um um einsök framkvæmdaatriði. Það væri stjórnenda RÚV að svara fyrir slíkt. Markús Öm Antonsson útvarps- stjóri er í leyfi og kemur ekki aftur til starfa fyrr en undir lok mánaðarins. Hann mun hafa úrslitavald í ákvarð- anatöku er ólíklegt er talið að hann standi gegn málinu. Forstöðumaður svæðisstöðvar RÚV á Akureyri hefur t.d. sagt að hann telji málið í höfn.-BÞ þykkt tíu milljóna króna framlag tii kynningar í Þýskalandi. Flugið hefst þann 7. júní næstkom- andi og verður flogið alla föstudaga til 30. ágúst með Airbus A320, 180 sæta farþegaþotu. Millilent verður í Keflavík á leiðinni út til að farþegar geti nýtt sér þjónustu Fríhafnarinnar. Einnig verður hægt að fljúga til baka frá Keflavík til Dússeldorf eða Múnchen á öðrum dögum. Auk áætlunarflugsins milli Dússeldorf og Egilsstaða í sumar er áformað að bæta við flugi frá Múnchen til Egilsstaða árið 2003, hefja flug frá Dússeldorf til Akureyr- ar árið 2004 og frá Múnchen til Akur- eyrar árið 2005. Lenging flugtímabils LTU til íslands er síðan markmiðið frá 2006 til 2010. -MA byggö Gistinóttum á hótelum fækkaði um rúm 6% síðastliðinn nóvember- mánuð miðað við sama mánuð í fyrra skv. nýjum tölum Hagstofunn- ar. Heildarfjöldi gistinátta á hótel- um í nóvember árið 2001 nam 45.666 nóttum en árið 2000 nam hann 48.813 nóttum. Gestakomum fækk- aði hlutfallslega jafnmikið en þær voru 20.762 i nóvember síðastliðn- um á móti 22.237 gestakomum í nóv- ember árið 2000. Mestur er sam- drátturinn á landsbyggðinni eða um 18%. DV hefur greint frá því að ein- staka hótel þurftu að líða 50% sam- drátt í þessum mánuði. Líkt og verið hefur aðra mánuði ársins fækkaði gistinóttum íslend- inga á hótelum síðastliðinn nóvem- ber, þá voru þær 13.392 á móti 14.686 nóttum í nóvember í fyrra, sem þýð- ir rétt tæplega 9% fækkun. Gesta- komum íslendinga fækkaði að sama skapi einnig milli áranna, úr 9.599 gestakomum í nóvember árið 2000 í 8.837 gestakomur í sama mánuði árið 2001. -BÞ Brotist inn í MR Brotist var inn í Menntaskólann í Reykjavík aðfaranótt miðvikudags og þaðan stolið hljómflutningstækjum sem voru i íþróttasal. Þjófamir brutu rúðu í skólanum til að komast inn og skemmdu nokkrar hurðir á leið sinni um skólann. Málið er í rannsókn lög- reglunnar í Reykjavík. -MA Björn Bjarnason. Egilsstaðaflugvöllur: Millilandaflug hefst í júní Markús Örn. ICemiÖfsala - Dúndurtilboð Daxara 107 verð áður m ZMwncr. égL'iL- Verð nú fST & 29.900 KR. ósamsett Aukahlutir á 15-40% afsl Daxara157 « verð aður ~j * Allar kerrurnar eru galvaniseraðar “T og hafa dempara og sturtubúnað. Verd nu Einnig hjá: 69.900 KR. Bílasölu Akureyrar s: 461 2533. Evró ehf. Skeifunni sími: 533 14 14 www.evro.is evro

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.