Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Blaðsíða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Blaðsíða 8
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002 DV Fréttir íþróttafélagið Leiftur á Ólafsfirði í gjaldþrot: Nauðasamninga leitað bæjarstjórnin tilbúin að leggja 14,2 milljónir í samningana Guöbjörn Arngrímsson. íþróttafélagið Leiftur í Ólafs- firði verður tekið til gjaldþrota- skipta hjá Héraðs- dómi Norður- lands eystra á fostudag að kröfu sýslumannsins í Ólafsfirði. Reynd- ar er ekki víst að til gjaldþrota- skipta komi þar sem farið verður fram á nauðasamninga og sam- þykkti meirihlutinn í bæjarstjórn- inni í gær tillögu bæjarstjóra að leggja fram 14,2 milljónir króna til nauðasamninganna. Fjárhagserfiðleika Leifturs má rekja til reksturs knattspymudeild- ar félagsins um árabil en skiðadeild félagsins er með öll sín fjármál í skilum. Leiftur lék um árabil í efstu deild knattspymunnar og var liðið Frá Olafsfiröi. að langmestu leyti skipað atvinnu- ná árangri og ljóst að boginn hefur mönnum, bæði innlendum og er- verið of hátt spenntur hvað viðkom lendum. Var ekkert til sparað til að peningahliðinni. Menn greinir á um hversu miklar skuldir félagsins eru og sennilega mun það ekki skýrast að fullu fyrr en kröfuhafar hafa gefið sig fram. Sú tala sem oftast er slegið fram sem heildarskuldum er 60 milljónir króna en aðrir nefna 40 milljónir. Miðað við framlag Ólafsfjarðarbæj- ar má reikna með að boðið verði að greiða 20-25% skulda komi til nauðasamninga og þá þurfa 75-80% kröfuhafa að samþykkja að til nauðasamninga verði gengið. „Auðvitað er hiti i sumu fólki út af þessu máli, það er ósköp eðli- legt,“ segir Guðbjöm Amgrímsson bæjarfulltrúi Ó-listans sem er í minnihluta í bæjarstjórn. „íþrótta- félagið okkar varð 70 ára á síðasta ári og er nú á leiðinni í gjaldþrot. Það er auðvitað eitthvað sem menn eiga erfitt með að sætta sig við,“ sagði Guðbjörn. -gk Holtavörðuheiði: Fimm stelpur í bílveltu Fimm ungar stúlkur voru í bíl sem valt á Holtavörðuheiði í fyrradag, en talið er að bíllinn hafi beinlínis fokið út af veginum i miklu hvassviðri sem þar var. Bíllinn hafnaði á hliðinni og var talsvert „krumpaður". Hann var þó ekki meira skemmdur en svo aö eftir að búið var að koma honum á réttan kjöl og skiptn um dekk sem sprungið hafði gátu stúlkurnar haldið áfram ferð sinni en þær voru skólastúlkur á leið til Akureyrar. -gk Samruni Forsvarsmenn deCODE genetics kynna samrunann á blaöa- mannafundi. íslensk erfðagreining Samruni tveggja stórfyrirtækja deCODE genetics, móðurfélag ís- lenskrar erfðagreiningar, og Medi- Chem Life Sciences, Inc., sem er brautryðjandi i lyfjaþróun og þjón- usturannsóknum fyrir líftækni- og lyfiaiðnaðinn, greindu frá því í vikunni að skrifað hefði verið undir samning um samruna fyrirtækj- anna. Samkvæmt samningnum mun deCODE kaupa MediChem og greiða fyrir með útgáfu nýrra hluta. Samruninn hefur verið samþykktur af stjórnum beggja félaga. Með kaupunum aukast til muna mögu- leikar íslenskrar erfðagreiningar á að fylgja eftir uppgötvunum sínum í erfðafræði með frekari rannsóknum í efnafræði og lífefnafræði, með það að markmiði að koma nýjum lyfium á markað. Samkvæmt samningnum um samrunann munu hluthafar Medi- Chem fá hluti i deCODE í skiptum fyrir hlut í MediChem. Ef miðað er við verð á hverjum almennum hlut í deCODE í fyrradag, samsvarar þetta því að hver hlutur í Medi- Chem sé keyptur á 3,04 Bandaríkja- dali og að kaupin séu gerð á samtals 8,4 milljarða íslenskra króna. Að teknu tilliti til umbreytingar forgangshluta í almenna hluti eiga hluthafar MediChem þá um 15,7% í sameinuöu fyrirtæki. -BG Karlmaður var handtekinn þegar hann reyndi að ræna vörum úr raf- tækjaverslun í Smáralind seinni- partinn í gær. Kallað var á lögreglu þegar upp komst um þjófnaðinn og kom hún á vettvang skömmu síðar. Maðurinn veitti mótþróa við hand- tökuna en var fluttur á lögreglustöð- ina. Að sögn lögreglunnar í Kópavogi liggur við að daglega sé tilkynnt um þjófnaði í Smáralind og þegar mest er geti tilkynningarnar farið upp í fimm eða sex á einum degi. Annað- hvort er viðkomandi þjófur færður á lögreglustöðina til skýrslugerðar eða gengið frá málinu á staðnum, en það er yfirleitt gert ef um ólögráða einstaklinga er að ræða. -MA Grafarvogssókn stærst: Fækkar í þjóð- kirkjunni Alls 87,1% landsmanna, eða 249.256, eru skráðir í þjóðkirkjuna, skv. íbúaskrá þjóðskrár frá 1. des- ember síðastliðnum. Á þessum sama tíma voru 4,1% landsmanna í fríkirkjusöfnuðum landsins, eða 11.622. Rétt fjögur prósent voru í öðrum skráðum trúfélögum og 2,6% í óskráðum trúfélögum og með ótil- greind trúarbrögð. Alls 2,3% standa utan trúfélaga. Hlutfall sóknar- bama í þjóðkirkjunni hefur lækkað um 0,7% frá því 1. desember 2000, en þá var það 87,8%. Fækkun þjóðkirkjufólks er ekki endilega til marks um dvínandi trú- arlegar kenndir þjóðarinnar, segir sr. Pétur Þorsteinsson, prestur við Óháða söfnuðinn í Reykjavik. Harrn segist þvert á móti hafa orðið var við hið gagnstæða, einkum eftir hörmungamar í Bandaríkjunum i september. „Einnig skulum við hafa í huga að 55 þúsund íslendingar flytja á ári hverju og mörgum finnst efalítið betra að vera skráðir í fri- kirkjusöfnuð í stað þess að þurfa fara í nýjan söfnuð og kynnast nýrri Frá Grafarvogskirkju Stærsta sókn landsins er Grafar- vogssókn meö tæplega tíu þúsund manns. kirkju og sóknarpresti þótt flutt sé á milli bæjarhverfa," sagði sr. Pétur Þorsteinsson. Á síðasta ári var eitt nýtt trúfélag skráð á landinu en það er rússneska rétttrúnaðarkirkjan sem kallast, Söfnuður Moskvu patriarkans í Reykjavík. Þá var trúfélagið Klett- urinn - kristið samfélag lagt niður. Innan þjóðkirkjurnar er Grafar- vogssókn stærsta sókn landsins með 10.528 sóknarböm sem eru sextán ára og eldri en minnsti söfnuður landsins er Sæbólssókn sem heyrir undir Þingeyrarprestakall í ísa- fiarðarprófastsdæmi en þar eru þrjú sóknarböm sem eru sextán ára og eldri. -MA/sbs DV-MYNDIR LÖGREGLAN Marijúanaplöntur af Njálsgötu Myndin af plöntunum eru tekin í húsnæöi lögreglunnar viö Hverfisgötu. Ptönturnar fundust hins vegar á Njálsgötu í Reykjavík í fyrrakvöld. Smáralind: Þjófnaðir næst- um daglega Nýtt framboð skipar talsmann: Þrælsóttinn gerir lýðræðið óvirkt Ráðhús Reykjavíkur. legra borgara við reiði og hefnd for- ingjans, flokksins og yfirmannsins. Þessi ótti hefur magnast og margeflst síðustu 10 til 15 árin og er orðinn sýnilegur sem heilbrigðis- vandamál," segir Örn. Framboð flugvallarandstæðing- anna er þriðja yfirlýsta framboðið en ljóst er að Sjálfstæðisflokkurinn og Reykjavíkurlistinn munu bjóða fram. Áform eru meðal öryrkja og aldraðra, Frjálslynda flokksins og stuðningsmanna Ólafs F. Magnús- sonar að bjóða fram. Það stefnir því í fiögur til sex framboð til borgar- stjómar. Öm segir tugi manna standa að stofnhópnum sem ekki hafi rætt viö Ólaf F. Magnússon. Hann segist ekki vera í sambandi við neina at- vinnupólitíkusa og slíkt sé ekki ætl- unin. -rt Orn Sigurösson. Örn Sigurðs- son, arkitekt og baráttumaður gegn áframhald- andi veru flug- vallarins i Vatns- mýrinni, verður talsmaður nýs framboðs til borg- arstjómar Reykjavíkur. Hið nýja afl setur skipulagsmálin í Reykjavík á oddinn og andstaðan við flugvöllinn í Vatnsmýrinni er algjör. Að sögn Arnar er stofnhópur þegar að störfum og á næstu vikum verður unnið að því að setja saman málefnaskrá og skipa á lista. „Framboðinu er ætlað að byggja á málefnum en ekki sterkum kandídöt- um,“ segir örn sem segir samtökin vilja stuðla að breiðri þátttöku borg- aranna í stjómmálastarfi. Hann segir stofnhópinn verða varan við þrælsótta í samfélaginu og að margir óttist hefnd. „Þetta er ótti fiölmargra venju-

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.