Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Blaðsíða 12
12
Viðskipti__________
Umsjón: Viðskíptablaðið
Bauglir, Vífilfell og
VÍS semja við TAL
í síðasta mánuði nýliðins árs sömdu
m.a. þrjú stór fyrirtæki, Baugur hf„ Víf-
ilfell hf. og VÍS hf., við Tal hf. um alla
GSM-farsímaþjónustu fyrir félögin.
I frétt frá Tali kemur fram að það sé
til marks um athyglisverða þróun á fiar-
skiptamarkaðinum að í stað þess að
velja heildarlausnir hjá einu fýrirtæki
velji Baugur, í samræmi við öfluga inn-
kaupastefnu sína, að púsla saman bestu
sérfræðilausnunum á markaðnum og
stiila þannig saman þjónustu fleiri en
eins aðila. Baugur er alþjóðlegt félag og
stærsta fyrirtæki landsins, með 48 versl-
anir og margar þekktustu verslunar-
keðjur landsins innan sinna vébanda.
Fram kemur að þar sem Baugur sé al-
þjóðlegt félag og stærsta fyrirtæki lands-
Gjaldeyrisforöinn
dróst saman í
desember
- aldrei meiri seðlar
og mynt í umferð
Gjaldeyrisforði Seðlabankans dróst
saman um 0,4 milljarða króna í desem-
ber og nam 36,6 milljörðum króna í lok
mánaðarins, jafnvirði 355 milljóna
Bandaríkjadala á gengi í mánaðarlok,
að því er fram kemur í bráðabirgðaupp-
gjöri bankans sem birt var í gær. Jafn-
framt kom fram að gengi islensku krón-
unnar hefði styrkst um 4,3% í mánuðin-
um, miðaö við vísitölu gengisskráning-
ar, og að seðlar og mynt í umferð hefðu
í fyrsta sinn farið yfir 9 miiljarða króna
og þar með vaxið um 500 milljónir frá
síðustu áramótum.
í mánuðinum seldi Seðlabankinn
gjaldeyri utan innlends gjaldeyrismark-
aðar fyrir 5 milljarða króna og gerði
gjaldmiðlaskiptasamning fyrir 4 millj-
arða króna. Erlend skammtímalán
bankans hækkuðu um 2 milljarða króna
í mánuðinum og námu 15 milljörðum
króna í lok hans.
Markaðsskráð verðbréf í eigu bank-
ans námu 5,1 milljarði króna í desem-
berlok miðað við markaðsverð. Mark-
aðsskráð verðbréf ríkissjóðs i eigu
bankans námu 2,1 milljarði króna.
Kröfur Seðlabankans á innlánsstofn-
anir lækkuðu um 0,3 milljarða króna í
desember og námu 54,1 milljarði króna
í lok mánaðarins. Kröfur á aðrar fjár-
málastofnanir lækkuðu um 3,3 milljarða
króna í mánuðinum og voru 22,8 millj-
arðar króna í lok hans. Nettókröfur
Seðlabankans á ríkissjóð og ríkisstofn-
anir hækkuðu um 8,3 milljarða króna í
desember og voru neikvæðar um 30,9
milljarða króna i lok mánaðarins, þ.e.
nettóinnstæður rikissjóðs námu 30,9
miUjörðum króna.
Grunnfé bankans dróst saman í des-
ember um 4,5 milljarða króna og nam
27,8 milljörðum króna í lok mánaðarins.
Kaupþing fimmti
stærsti hluthafi
íslandsbanka
Kaupþing Luxemborg er orðið
fimmti stærsti hluthafi íslandsbanka
með um 4,5% eignarhlut eftir mikil
kaup á hlutabréfum íslandsbanka í lok
síðasta árs. í Viðskiptablaðinu, sem út
kom í gær, kemur fram að kaupin eru
jafnvel talin tengjast þeim átökum sem
nú eiga sér stað milli einstakra hlut-
hafa íslandsbanka.
í úttekt Viðskiptablaðsins um átök-
in innan Islandsbanka kemur fram að
mjög skiptar skoðanir eru um hvort
líta beri á tilboð erlendra fiárfesta í
eignarhluti Orca-hópsins í íslands-
banka sem alvöru tilboð. Svo virðist
sem Jón Ásgeir Jóhannesson, forstjóri
Baugs, leggist aifarið gegn sölu á bréf-
um Orca, jafnvel þótt um „alvöru" til-
boð væri að ræða.
Samnlngur í höfn
Ásgrímur H. Helgason og Guðjón Karl Reynisson hjá Tali og Kristinn Eiríksson
hjá Baugi eftir undirritun samningsins um farsímaþjónustu.
ins, með um 50 verslanir innan sinna ir fiarskiptaþjónustu séu afar miklar og
vébanda, sé Ijóst að þarfir félagsins fyr- fiölbreyttar. Samningurinn hafi verið
gerður i kjölfar útboðs Baugs á fiar-
skiptaþjónustu sinni og dótturfélaga, og
hafi félagið ákveðið að beina viðskiptun-
um til Tals eftir vandlega athugun á
fjarskiptamarkaðinum.
Svipuð viðhorf móti ákvarðanir Vífil-
fells og VÍS um að nýta sér farsímaþjón-
ustu Tals.
„Tal sérhæfir sig i þráðlausum fiar-
skiptum og hefur þróað lausnir sem
tengja saman farsímanotkun fyrirtækja
og hefðbundna símaumferð“, segir Guð-
jón Karl Reynisson, framkvæmdastjóri
sölusviðs Tals. „Okkar lausnir tryggja
fyrirtækjum betri nýtingu á tíma starfs-
manna sem með okkar þjónustu geta átt
samskipti hvar og hvenær sem er á
lægra verði en áður. Þessir samningar
við þrjú af öflugustu fyrirtækjum lands-
ins eru, eins og fiölmargir aðrir samn-
ingar að undanfómu, ánægjuleg stað-
festing á því að við séum á réttri leið,
m.a. með HópTal og aðrar nýjungar sem
í boði em til fyrirtækja."
Marel stofnar dottur-
félag í Ástralíu
Marel hf. hefur stofnað nýtt dótt-
urfélag í Ástralíu og tekur það til
starfa nú í janúar. Marel Ástralía
mun sjá um sölu, markaðssetningu
og þjónustu við viðskiptavini í Eyja-
álfu. Skrifstofur nýja fyrirtækisins
eru staðsettar í Brisbane en mikið
af viðskiptcunönnum Marel er á því
svæði, ekki síst í kjötiðnaðinum en
Ástralir eru mestu útflytjendur
nautakjöts i heiminum, segir í
fréttatilkynningu frá félaginu.
Framkvæmdastjóri nýja dóttur-
fyrirtækisins er Sigsteinn Páll Grét-
arsson sem hefur starfað hjá Marel
undanfarin fimm ár. Hann er með
meistarapróf í vélaverkfræði frá
Bandaríkjunum ásamt því að hafa
Brisbane
Mikið af viköskiptum Marels eru í
svæði nærri Brisbane
Marel í Eyjaálfu
Egill Lárusson rafvirki og Sigsteinn Páti Grétarsson framkvæmdastjóri Marel
Ástralía verða í forystu hins nýja fyrirtækis. '
unnið um árabil í Þýskalandi. Und-
anfarin tvö ár hefur Sigsteinn verið
sölustjóri Marel fyrir kjúklinga- og
kjötiðnað og náð miklum árangri á
þeim tíma við að byggja upp mark-
aði í Evrópu.
Egill Lárusson rafvirki mun stýra
þjónustudeild nýja fyrirtækisins.
Hann hefur starfað hjá Marel í sjö
ár og nú síðast sem svæðissölustjóri
Marel fyrir Ástralíu.
Marel hefur undanfarin 13 ár selt
fyrirtækjum í Ástralíu búnað til mat-
vælavinnslu og náð góðri fótfestu á
ástralska markaðinum í gegnum um-
boðsaðila sína þar. Nýtt dótturfélag
er liður í að sinna stækkandi mark-
Höfuöstöövar
Skrifstofu Marels í Ástralíu
aöi fyrirtækisins og bæta aðgengi við-
skiptavina að ráðgjöf og þjónustu.
Með stækkuðu sölu- og þjónustuneti
mun Marel styrkja stöðu sína á al-
þjóðamarkaði.
Viðræður Baugs og
Arcadia halda áfram
- góð jólasala hjá Arcadia
Undanfamar 19 vikur hefur sala fyr-
ir helstu vörumerki Arcadia aukist
um 9,4% og sala á fermetra hefur auk-
ist um 11,8% að því er segir í frétt frá
Arcadia en félagið sendi i morgun frá
sér upplýsingar um sölu fyrir fyrstu 19
vikur yfirstandandi fiarhagsárs, fram
til 5. janúar 2002.
Vörumerkin sem um ræðir eru
Dorothy Perkins, Burton Menswear,
Evans, Wallis, Topshop og Miss Self-
ridge. Heildarsala fyrir helstu vöru-
merki fyrir tímabilið hefúr aukist um
8% en sölurými hefur verið dregið
saman um 3,5%. Framlegð hefúr auk-
ist um 1,1 prósentustig.
I frétt Árcadia er haft eftir Stuart
Rose, framkvæmdastjóra Arcadia
Group, að: „Rekstrarárangur félagsins
fyrstu 19 vikur ársins, og sérstaklega
jólasalan, endurspeglar endurbætur
sem gerðar hafa verið á rekstrinum
undanfarið ár. Við höfum náð umtals-
verðum árangri i vöruþróun og mark-
aðssetningu, aukið hagkvæmni í vöru-
öflun og lækkað skuldir félagsins.
Þrátt fyrir að niðurstaða fyrstu fiög-
urra mánaða ársins lofi góðu veltur
lokaniðurstaða fiárhagsársins, sem
lýkur i ágúst 2002, á markaðsaðstæð-
um það sem eftir er árs.“
Viðræður við Baug hf. varðandi
hugsanlegt yfirtökutilboð í félagið
haida áfram. Arcadia Group gerir ekki
ráð fyrir að þessum viðræðum ljúki
fyrir lok janúar.
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002
DV
Þetta heist
HEILDARVIÐSKIPTI 4.843 m.kr.
- Hlutabréf 1.339 m.kr.
- Húsbréf 1.289 m.kr.
MESTU VIÐSKIPTI
Baugur 247 m.kr.
Samherji 173 m.kr.
iy Pharmaco 152 m.kr.
MESTA HÆKKUN
O Kögun 12,7%
© Íslandssími 10,7%
© Opin kerfi 7,1%
MESTA LÆKKUN
O Búnaðarbankinn 3,6%
O Marel 2,1%
© Sjóvá-Almennar 1,8%
ÚRVALSVÍSITALAN 1.189 stig
- Breyting O +1,06%
Alcoa gerir
tilboð
í Elkem
Bandaríska álfyrirtækið Alcoa,
sem er stærsti álframleiðandi
heims, tilkynnti í gær að það hefði
aukið hlut sinn í norska fyrirtæk-
inu Elkem ASA og muni leggja fram
yfirtökutilboð sem hljóði upp á 7,6
milljarða norskra króna, eða um 85
milljarða íslenskra króna. Elkem er
stærsti framleiðandi kísiljárns í
heiminum og er, eins og kunnugt
er, stærsti hluthafi í íslenska járn-
blendifélaginu sem rekur járn-
blendiverksmiðjuna á Grundar-
tanga.
Samkvæmt yfirlýsingu frá Alcoa
til norska verðbréfaþingsins hefur
Alcoa aukið hlut sinn í Elkem í 40%
og býðst til að kaupa hin 60 prósent-
in en samkvæmt norskum lögum
verða fyrirtæki að leggja fram yfir-
tökutilboð eignist þau 40% eða
meira í öðrum félögum. Býður
Alcoa 155 norskar krónur í hvern
hlut. Gengi bréfa Elkem hækkuðu
við þessar fréttir en sérfræðingar
töldu þó að kauptilboðið væri lágt
og hugsanlega kæmi fram gagntil-
boð.
Norska fyrirtækið Orkla hefur
einnig verið að kaupa hlutabréf í El-
kem og á nú rúmlega 30% þeirra.
Alcoa hefur átt hlut í Elkem frá ár-
inu 1998 og fyrirtækin tvö hafa stað-
ið fyrir nokkrum sameiginlegum
verkefnum. Alcoa jók hlut sinn í
39,5% í október.
Aðlögun gjald-
miðla að evru
Um síðustu áramót hófst almenn
notkun á evrunni og er ljóst að lönd
innan Evrusvæðisins munu þurfa
að aðlaga sinn gjaldmiðil að gjald-
miðlinum og hefur það sýnt sig að
það getur orðið verðbólguhvetjandi.
Ástæða þess er að þegar nýr gjald-
miðill er tekinn upp er verð í eldri
aaldmiðli landsins rúnað að þeim
nýja, þannig að gera má ráð fyrir að
verð muni hækka þegar það er fært
yfir í evrur, þar sem rúnunin er í
flestöllum tilfellum upp á við. Þetta
kom fram í Morgunpunktum Kaup-
þings í gær.
Til útskýringar er tekið dæmi um
vatnsflösku á Spáni. Kosti hún í dag
115 spænska peseta jafngildir það
0,6912 evrum. Það má þá gera ráð fyr-
ir að flaskan muni kosta 0,7 evrur eft-
ir að gjaldmiðillinn verður tekinn
upp. Þó að þetta sé lítið dæmi er ljóst
að margt smátt gerir eitt stórt og því
er ekki óvarlegt að áætla að verð-
bólga muni taka við sér fyrst eftir að
notkun evrunnar hefst.
10.01. 2002 M. 9.15
L 1 fl KAUP SÁLA
jRhjPollar 101,520 102,040
SÍsjPund 146,480 147,220
8*1 Kan. dollar 63,550 63,950
ÍDönsk kr. 12,1950 12,2620
fjj“Norsk kr 11,3940 11,4560
E 3 Sænsk kr. 9,7990 9,8530
n Sviss. franki 61,1300 61,4700
|[*]jap.yen 0,7667 0,7713
0ECU 90,6283 91,1729
j SDR 127,6700 128,4300