Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Blaðsíða 15

Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Blaðsíða 15
14 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002 FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002 27 Útgáfufélag: Útgáfufélagiö DV ehf. Framkvæmdastjóri: Hjalti Jónsson Ritstjóri: Óli Björn Kárason Aöstoöarritstjórar: Jónas Haraldsson og Sigmundur Ernir Rúnarsson Fréttastjórí: Birgir Guömundsson Ritstjórn. skrifstofur, auglýsingar, smáauglýsingar, blaöaafgreiösla, áskrift: Þverholti 11,105 Rvík, sími: 550 5000 Fax: Auglýsingar: 550 5727 - Ritstjórn: 550 5020 - Aörar deildir: 550 5999 Græn númer: Auglýsingar: 800 5550. Áskrift: 800 5777 Ritstjórn: ritstjorn@dv.is - Auglýsingar: auglysingar@dv.is. - Dreifing: dreifing@dv.is Akureyri: Strandgata 31, sími: 460 6100, fax: 460 6171 Setning og umbrot: Útgáfufélagiö DV ehf. Plötugerö: ísafoldarprensmiðja hf. Prentun: Árvakur hf. DV áskilur sér rétt til að birta aösent efni blaösins í stafrænu formi og i gagnabönkum án endurgjalds. DV greiöir ekki viðmælendum fyrir viðtöl við þá eöa fyrir myndbirtingar af þeim. Útrásin heldur áfram Útrás íslenskra fyrirtækja heldur áfram og ekki er hægt aö sjá aö sjálfstraust skorti eöa sérstakar áhyggjur séu meö- al eigenda og stjórnenda um framtíðina. Þvert á móti virðist gæta ákveöinnar bjartsýni og bjartsýni fylgir sjálfstraust og öryggi til að kljást viö ný verkefni. DeCODE genetics, móðurfélag íslenskrar erföagreiningar, hefur fest kaup á bandaríska lyfjaþróunarfyrirtækinu MediChem Life Sciences. Kaupveröiö er 8,4 milljarðar króna. DeCODE hefur átt nokkuö á brattann að sækja á undan- fómum mánuöum, líkt og önnur fyrirtæki í líftækni. Hluta- bréf hafa lækkað verulega í verði þó bjartara hafi verið yfir síöustu vikur en fyrri hluta liðins árs. Og hér heima hefur umræöa um íslenska erfðagreiningu oft veriö neikvæð og óvægin, meðal annars á síöum þessa blaðs. En hvað svo sem því líður er ljóst að framsókn deCODE heldur áfram af stór- hug og áræði. Þar stendur Kári Stefánsson fremstur í stór- um hópi vísindamanna sem hafa byggt upp glæsilegt fyrir- tæki sem getur haft gríðarleg áhrif á íslenskt efnahagslíf. Kaupin á MediChem eiga vonandi eftir að reynast deCode arðvænleg fjárfesting og ljóst er að sérfræðingar á erlendum hlutabréfamörkuðum álita kaupin af hinu góða, enda skjóta þau enn frekari stoðum undir framtíð fyrirtækisins. í gær greindi DV frá því að Kaupþing hefði undirritað samning um kaup á einu þekktasta verðbréfafyrirtæki Sví- þjóðar, Aragon. Endanleg niðurstaða um kaupin fæst innan skamms en samkvæmt því sem fram kom hér í blaðinu verð- ur a.m.k. hluti kaupverðsins greiddur með hlutabréfum í Kaupþingi. Þetta er í annað sinn á skömmum tíma sem ís- lenskt fyrirtæki kaupir erlent fyrirtæki og greiðir fyrir með eigin hlutabréfum. Fjárfestingar af þessu tagi sýna trú er- lendra íjárfesta á íslensku atvinnulífi og gefa til kynna að ís- lenskir stjómendur hafi aflað sér trausts á erlendum mörk- uðum. Kaupþing hefur á undanfórnum árum verið leiðandi í framsókn íslenskra fjármálafyrirtækja á erlendum mörkuð- um og kaupin á Aragon undirstrika hve langt fyrirtækin hafa náð á örfáum árum frá því að frelsi fékkst á innlendum fjármálamarkaði. Kaup deCODE og Kaupþings undirstrika útrás íslenskra fyrirtækja sem hófst fyrir nokkrum árum. Baugur hefur þeg- ar haslað sér völl í Bandaríkjunum og stendur í viðræðum um yfirtöku á Arcadia, stórri breskri verslunarkeðju. Bakkavör hefur nýlega gengið frá umfangsmestu fjárfestingu íslensks fyrirtækis á erlendri grundu. Össur, Marel, Grandi, Þormóður rammi, íslandsbanki, Landsbanki, Búnaðarbanki, og svo mætti lengi telja, hafa tekið þátt í þeirri gleðilegu framsókn íslenskra fyrirtækja á erlendum mörkuðum sem við höfum orðið vitni að á undanfórnum árum - útrás sem almenningur hér á landi mun njóta. Alþjóðavceðing og krónan Alþjóðavæðing íslensks viðskiptalífs birtist í mörgum myndum. í viðskiptaráðuneytinu er í undirbúningi frum- varp til laga þar sem íslenskum fyrirtækjum er heimilt að skrá hlutafé í erlendum gjaldmiðlum. Stefna viðskiptaráð- herra í þessu málum er skynsamleg og i samræmi við ann- að sem hefur verið að gerast á undanfómum mánuðum og misserum. í markaðsyfirliti íslandsbanka í vikunni er bent á að nái frumvarpið fram að ganga megi ætla að það hefði jákvæð áhrif á stöðu íslensku krónunnar. Að öðru óbreyttu ætti krónan að styrkjast þar sem eftirspurn eftir henni eykst. En það sem skiptir mestu er auðvitað að ársreikningar ís- lenskra fyrirtækja verða „skiljanlegri“ fyrir erlenda fjárfesta og þar með ætti áhugi þeirra á fjárfestingum hér á landi að aukast. Og það skiptir mestu. Óli Bjöm Kárason DV Uppgjör við nóbelsskáldið Skömmu fyrir hátíðir birti Hannes Hólmsteinn Gissurarson digra grein í Mbl. (16/12) undir heitinu Um höfund íslands. Þar ger- ir hann bók Hallgríms Helgasonar að umtalsefni. Bókin er þó fremur tilefni greinarinnar en viðfang. Það sem Hannesi raunveru- lega virðist liggja á hjarta er uppgjör sem hann telur að þjóðin verði að eiga við nóbelsskáldið. Tvær spurningar Þegar þess er gætt hversu mjög Laxness mótaði og túlkaði íslenska sjálfsmynd og menningu lungann úr 20. öldinni er ljóst að þjóðin verður að gera upp við arfinn frá honum. Það verður þó ekki gert I eitt skipti fyrir öll. Hver ný kynslóð verður að taka afstöðu í þessu efni meðan eitt- hvað eimir eftir af samhengi við ís- lenska menningu í tíð Laxness. Það eru einkum tvær spurningar sem brenna á Hannesi: Hvers vegna sagði Laxness þjóöinni ósatt um það sem hann varð vitni að í Sovétrikj- unum í tíð Stalíns (1932 og 1938)? Og hvers vegna studdi hann Sósíalistaflokk- inn íslenska þrátt fyrir þessa reynslu? Aðeins mennskur maður Hvað fyrri spurninguna áhrærir virðist Hannesi yf- irsjást þau alkunnu sann- indi að sá sem stendur i miöri atburðarás hefur aldrei sömu yfirsýn og hinn sem getur litið yfir sviðið mörgum áratugum síðar og metið at- burðina utan frá þegar afleiðingar þeirra blasa við. Sá sem spilar með hefur aldrei öll spil á hendi og sjón- arvottur sér sjaldnast nema lítið brot af raunveruleikanum. Þetta gildir sérstaklega þegar valdhöfum er í lófa lagið að leikstýra veruleikanum líkt og gerðist i þann tíð sem Laxness sótti Sovétið heim. Það er því langt í frá augljóst að Laxness hafi sagt ósatt í einhverri venjulegri merkingu þeirra orða. Við verðum líklega einfaldlega að bíta í það súra epli að nóbelsskáld vort var Hjalti Hugason prófessor þó aðeins mennskur maður og fangi samtíðar sinnar likt og við Hann- es erum báðir börn okk- ar tíma. Ætli Laxness fari ekki nærri sannleik- anum er hann segir að sér detti ekki í hug að trúnaðarmenn sínir í austurvegi „hafi haft nokkra ljósa hugmynd um það sem gerðist að baki lofdýrðarfullum" áróðursborðum Stalíns fyrr en eftir atburðina í ágúst 1939? (Skáldatími, 2. útg. 1991, 295) Afstöðu verður að taka Síðari spurningunni svarar Hannes svo að Laxness hafi, líkt og margir aðrir rithöfund- ar, stutt sósíalismann af þrá eftir röð og reglu er þeir hafi talið að kæmist ekki á öðruvísi en með valdboði, auk þess sem persónuleg ávinningsvon hafi vegið þungt. Það og þráð jafnrétti og bærðralag. Hannes reiknar heldur ekki með að þeir hafi talið að frelsi kapítalismans væri ekki allra. Um tekjuskiptinguna í skipulagi frjálsra við- skipta segir hann: „... menn fá (þar) eins og þeir eru valdir ...“ Að- stöðumunur þeirra sem velja og hinna sem eru valdir olli e.t.v. mestu um að margir leituðu annað. Fyrir því þurfa ekki að hafa legið eigin- gjarnar hvatir. Hannes hefur á réttu að standa um það að þjóðin verður að taka af- stöðu til arfleifðarinnar frá nóbelssskáldinu. Sú afstaða verður þó að vera mótuð af sanngirni og sögulegri sýn á sam- band einstaklings og um- hverfis. - Á slíkt virðist nokkuð skorta i grein Hannesar. Hjalti Hugason Hannes Hólmsteinn Gissurarson prófessor. Halldór Laxness rithöfundur. - „Hannes hefur á réttu að standa um það, að þjóðin verður að taka afstöðu til arfleifðarinnar frá nóbelsskáldinu. Sú afstaða verður þó að vera mótuð af sanngimi og sögulegri sýn á samband einstaklings og umhverfis. - Á slíkt virðist nokkuð skorta ígrein Hannesar.“ er athyglisvert að hann reiknar ekki með að þessir menn hafi átt hugsjón Fiskveiðistjórn - ágreiningur Fiskveiðar við ísland byggjast í reynd á eignarrétti útgerðarinnar á miðunum. Þótt þetta sé þvert á ákvæði laga um að fiskimiðin séu þjóðareign, er þetta raunveruleik- inn, útgerðin kaupir og selur fisk- veiðirétt sem um eign sé að ræða. Ekkert hefur verið gert með tillögu Auðlindanefndar um að breyta stjórnarskrá til þess að tryggja þjóð- areign á fiskimiðunum. Hér er um grundvallaratriði að ræða í ágreiningnum um fiskveiði- stjórnina. Annars vegar eru þeir sem telja að einkavæða eigi allt og fiski- miðin séu best komin í eign einkaað- ila sem höndli með þau eins og nú er gert, hins vegar eru þeir sem telja að miðin eigi að vera almenningseign og arður af þeim að renna til þjóðarinnar. A.m.k. tveir nóbelshafar í hagfræði hafa tjáð sig um þetta mál. Becker og Stigl- itz hafa báðir sagt að þegar um takmarkaða auðlind sé aö ræða renni arðurinn takmarkað út í þjóðfélagið ef ákveðnum aðilum sé gef- inn aðgöngumiði að auð- lindinni. Hins vegar er ljóst að ef um er að ræða markað þar sem menn kaupa aðgang að kvóta Guðmiiitdur G. Þórarinsson verkfræöingur þessa menn rennur arðurinn út i þjóðfé- lagið. Hér er komið að grundvallaratriði sem ís- lendingar verða að gera upp við sig. Skipulag þessara mála mun -ekki hafa lítil áhrif á þjóðfélag okkar í framtiöinni. Bandarískir skógar Bandarísk skógvinnslu- fyrirtæki kaupa aðgang að alríkisskógunum á markaði. Þar er ekki talið koma til • greina að fyrirtækin eignist takmörkuðu auðlind. Norð- semja við olíufélög um nýt- „Þrátt fyrir skráningu hér mundi arðmiðstöðin verða erlendis og arðurinn rynni úr landi. Eftir inngöngu í Evrópubandalagið mundi styttast í að á skipunum yrðu er- lendir sjómenn og fiskurinn yrði veiddur hér en fluttur út beint án viðkomu hér á landi. Jafnvel vinnulaunin fœru úr landi. “ ingu olíulindanna sem líklega mætti kalla leigu. Ekki kemur til greina að olíufélögin eigi olíulindirnar. íslend- ingar selja hinn takmarkaða rétt til að flytja inn landbúnaðarvörur. Að- gangur að útvarps-, sjónvarps- og símarásum er orðin takmörkuð auð- lind og tæknin mun opna fleiri slík svið takmarkaðra auðlinda. Eina leiöin til þess að úthluta takmark- aðri auðlind þegar eftirspurn er mik- il er markaðurinn. Evrópubandalagið Að mínu viti er ekki unnt að ræða um aðild að Evrópubandalaginu nema breyta fiskveiðistjórninni. Nú- verandi fyrirkomuiag mundi gera er- lendum aðilum, e.t.v. með aðsetur hér, kleift að eignast útgerðarfyrir- tækin og þar með miðin. Þrátt fyrir skráningu hér mundi arðmiðstöðin verða erlendis og arðurinn rynni úr landi. Eftir inngöngu í Evrópubandalag- ið mundi styttast í að á skipunum yrðu erlendir sjómenn og fiskurinn yrði veiddur hér en fluttur út beint án viðkomu hér á landi. Jafnvel vinnulaunin færu úr landi. Verður að líta málið berum augum Hér er þó aðeins um eina hlið þessa flókna máls að ræða. Aflahá- mark og útdeiling fiskveiðiréttinda er annað. Eignarrétturinn á kvótan- um eins og hann er í reynd nú getur haft alvarlegar afleiðingar í framtíð- inni og ástæða er til að taka alvar- lega umræðu um mismunandi áhrif þessara tveggja kerfa á dreifingu arðsins í þjóðfélaginu. Guðmundur G. Þórarinsson Ummæli Glöddu hjartað „Verslun um jólin var ekki minni en áætlað hafði verið og hlýt ég sem viðskipta- ráðherra að gleðjast yfir því. Ég gladdist a.m.k. alveg sérstak- lega yfir því hversu mikið seldist af íslenskri tónlist. Hvorki meira né minna en 10 mest seldu diskamir vom islenskir og 9 titlar fengu gull. Þetta sýnir mikla grósku á tónlistar- sviðinu, sem án efa gæti orðið drjúg útflutningsvara með örlitlum stuðn- ingi, sem ég hef verið að reyna að gera að veruleika síðan ég kom í ráðuneytið. Það er vonandi að úr ræt- ist áður en þetta ár líöur hjá. Annað sem gladdi mjög mitt litla hjarta um jólin var að sjá í sjónvarpi allar þess- ar góðu íslensku kvikmyndir, sem ég reyndar hafði sumar séð áður.“ Valgeröur Sverrisdóttir á heimasíöu sinni. Lýðræði á að vera beinna „Stjómmál eru að breytast úr lang- hlaupi í spretthlaup þar sem augun beinast fyrst og fremst að forustu- manninum. Stjórnmál skipta minna máli en áður vegna þess að almenn- ingur tekur sjálfur sífellt fleiri ákvarðanir á frjálsum markaði. Það er æskileg þróun og það ættu að fara fram fleiri kosningar meðal almenn- ings um margvísleg málefni. Stjórn- málamenn hafa ekki lengur þá sér- þekkingu sem var undirstaða full- trúalýðræðisins. Lýðræði á að vera beinna en stjórnmálaflokkarnir eru ekki spenntir fyrir sliku vegna þess að það dregur úr völdum þeirra. Minnkandi tryggð almennings við flokka er eðlileg viðbrögð í breyttu samfélagi en lýðræðisleg umræða má ekki minnka." Ágúst Einarsson á heimasíöu sinni. Spurt og svarað______Kemur sumarlokun Sjónvarpsins í einn mánuð til greina? Gísli Gunnlaugsson, sjónvarpsstöðinni Aksjón: Allir í heyskap „Þetta er frumleg hugmynd. Ef ég man rétt var almenn ánægja með sumarlokunina í gamla daga og örugglega er ekki minni áhugi á sumarlokun í dag þegar menn hafa fjölda góðra sjónvarpsstöðva úr að moða allt árið. Þeir vita það líka hjá Sjónvarpinu að landsmenn eru í hey- skap yfir sumarmánuðina og hafa öðrum hnöpp- um að hneppa en góna á sjónvarp og svo borga skattgreiðendur brúsann hvort svo sem þeim lík- ar betur eða verr og væntanlega líka án tillits til þess hvort eitthvert efni sé á stöðinni eða ekki. Spuming hvort þeir ættu ekki að stíga skrefið tU fulls og gera tilraunir með vetrarlokun líka?“ Sigríður Dóra Sverrisdóttir, húsmóðir á Vopnafirði: Bankastjóra- sjónvarp „Syngja á íslandi og loka Sjónvarpinu í mánuð. Hvaða fortíðarþrá er þetta í Merði? Við eigum að hafa sjónvarp tólf mánuði á ári - verst að ekki er hægt aö senda út í þrettán mánuði á ári - eins og gerist með bankastjóralaun. Skyn- samlegast væri ef fólk myndi sameinast um að efla Ríkisútvarpið, ekki síst Rás 2. Það ætti ekki einvörðungu að gerast með flutningi starfa út- varpsfólks úr Reykjavík og út á land heldur með fjölgun þess. Annars finnst mér það fjarstæða ef Sjónvarpið ætlar ekki að sýna frá HM í fótbolta. Ef svo verður ekki verða íslendingar ekki leng- ur hamingjusamasta þjóð í heimi.“ Halldóra Geirharðsdóttir leikkona: Hreint ísland „Mér líst ekki illa á þá hug- mynd, það er ef hægt er að spara peninga með lokun sjón- varpsins í þennan eina mánuð - þannig að hægt sé að efla innlenda dagskrárgerð hina ellefu mánuðina. En þetta finnst mér að þyrfti að vera samhangandi við að Stöð 2 og Skjár einn lokuðu þá líka fyrir sínar útsendingar þennan eina mánuð þannig að við hefðum hreint ísland. Það er afar mikilvægt í mínum huga að sem mest sé framleitt af innlendu efni fyrir íslenskt sjón- varp; og þó ég horfi ekki mikið á sjónvarp þá get ég sagt að mér finnst það efni sem sést í dag vera mjög misjafnt að gæðum." Einar Bárðarson athafnamaður: Mörg skref aftur í tímann „Mér finnst nú í fyrsta lagi bagalegt að senda eigi Rás 2 í útlegð norður. Ekki það að ég hafi neitt á móti Akureyri, þvert á móti. Hins vegar finnst mér nú sumarlokun Sjónvarpsins vera skref mörg ár aftur í tímann. En þá mæti nú líka skoða að loka útvarpinu í hádeginu. Vera með fréttirnar bara fyrir hádegi og vera svo með hálftíma pásu í morgunkaffi og síðdegiskaffi sem væri sinn hvor hálftíminn og hafa lokað alla rauða daga! Ég held að það eina sem gerist við þetta sé það aö þetta skapar frjálsu stöðvunum forskot á fjölmiðlamarkaðinum." Möröur Árnason, fulltrúi Samfylklngar, varpaðl þessari hugmynd fram á útvarpsráösfundi í fyrradag og vill fá rök meö og á móti. t.l Skoðun Ný öld - breyttur byggingarmáti Fyrir nokkrum árum taldi ég það auðvelt að breyta atvinnulífi hjá flest- um þjóðum. Ég komst sem sé að þeirri niðurstöðu í byggingarmálum sem hvergi virðist hafa komið fram áður svo ég viti til. Þetta fólst í byggingu stórra og lítilla húsa, ein- býlishúsa sem blokka, verslunar- og verksmiðju- húsa af hvaða tagi sem vera skal. Húsin yrðu það ódýr að ég næstum fór hjá mér að segja frá því. Unnin hér - seld erlendis Hér á landi er nægur jarðhiti og næg raforka sem hægt er að marg- falda ef vilji er fyrir hendi. Og íslend- ingar eiga þau efni sem notuð yrðu í þessi hús um alla framtíð. Perlustein. Misgott er þó að nálgast efnið þótt nóg sé af þvi. Lít ég svo á að efni í slíka húsagerð verði unnin hér á landi og að undirbúningi loknum verði þau flutt út til annarra landa i stórum stíl. Verkefni þessu yrði ekki stefnt gegn þeirri vinnu sem fyrir er i öðrum löndum en myndi margfalda bygging- ar í miklum mæli. Eitt 100 fermetra einbýlishús með þaki - 150 fermetra, tekur rými sem nemur 250 ferm. Eftir að hafa sent upplýsingar um málið til Belgíu og spurst fyrir um hvað venjulegt gler kostar og sömuleiðis til Tékklands, komu þau svör, að ef pantað yrði ár- lega umtalsvert magn í stórum gám- um yrði verð glersins 4 dollara fermet- erinn fob. i Hamborg, eða alls um 400 kr. Nokkuð er um liðið síðan ég gerði fyrirspurnina, svo að ég gerði 6 mm. þykkt gler að 1000 kr. fermetrann. Einnig reiknaðist mér tO að utan um húsin og yfir þökin kostaði glerið 500 þúsund kr. hingað komið. Þá er hægt að reikna út hversu mikið það kostaði að koma glerinu fyrir á sínum stað, sem þó er lítill hluti fram- kvæmdarinnar. Sannarlega ótrúlegt dæmi sem ber að huga að frekar. Til breyttra tíma Haft er eftir tölfræðingi einum, bandarískum, að um 80% jarðarbúa búi í húsum undir gæðastaðli og hluti af þeim 20% jarðarbúa ráði yfir um 60% af auðæfum jarðar. Það er því stór hluti mannkyns sem ekki hefur haft aðstöðu tO að afla sér fjár sem er svo bein forsenda tO að koma sér upp húsnæði. Þetta er sú vinna sem breytt gæti atvinnulífi margra þjóða á hinni nýju öld. Okkur er tjáð, að aukin ál- ver og álframleiðsla sé það sem helst veiti mönnum vinnu. Það er mikill misskiln- ingur. Álver eru margfalt dýr- ari framleiðslueiningar en það sem hér er ýjað að og myndi veita þúsundum manna vinnu hjá þeim þjóð- um sem vildu taka þátt í fram- leiðslu hinna ódýru húsa. Þetta er gjaldeyrisskapandi leið sem gefur færi á að greiða erlendar sem innlendar skuld- ir. Fram til þessa hefur enginn rætt þessi mál af neinni alvöru. Og málið hefur mætt andstöðu hér á landi. Ljóst er þó að Islendingar myndu aldrei framleiða nema lítið brot af því sem framleiða þarf fyrir önnur lönd um heim aOan. Ég hef því orðið að hverfa með hug- myndir þessar tO landa sunnar á hnettinum og m.a. beint tO spænsku- og enskumælandi þjóða sem kynna hugmyndina svo ríkjum Suður-Amer- íku, t.d. Argentínu þar sem atvinnu- leysið nú er óviðunandi eins og kom- ið hefur fram í fréttum síðustu vik- umar. Perlusteinninn undirstaðan Ég sótti fund með erlendum arki- tektum sem sýndu myndir af stórum húsum sem reist hafa verið víðs veg- ar erlendis. Heilar hliðar voru úr gleri, sem þó hefur gaOa sem ég er ekki sáttur við. Burðarvirkin eru þó reist úr stáli. áli eða límtrjám þar sem hentar. Annars úr léttum einangr- andi, eldtraustum og sjálfberandi plöt- um framleiddum sérstaklega fyrir þessi hús. Hér er þó perlusteinninn undirstað- an og nú tekinn i myndina í fyrsta sinni í byggingarsögunni í þeim mæli sem hér um ræðir. Perlusteinninn er þeim eiginleikum gæddur að eftir að hann er hitaður upp í 900-1000 gráður þenst hann út 20 tO 30 falt að rúm- máli. Hann kemur úr hitanum í smá- kornum og er þá svo léttur að hann einangrar með afbrigðum vel. - Hér er sannarlega mál fyrir okkur íslend- inga að ræða, því hér vantar ekki raf- orku en hún ásamt perlusteininum er undirstaðan fyrir framleiðslunni. Hafsteinn Ólafsson „Hér er þó perlusteinninn undirstaðan og nú tekinn inn í myndina í fyrsta sinni í byggingarsögunni í þeim mæli sem hér um ræðir. Perlusteinninn er þeim eiginleikum gœddur að eftir að hann er hitaður upp í 900-1000 gráð- ur þenst hann út 20 til 30 falt að rúmmáli. “ ■it

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.