Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Qupperneq 6
6
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002
Fréttir DV
Breytingar á hugmyndum um uppstillingu á R-listann og almenn sátt um nýja tillögu:
Óháður í 7. sætið
- raett um að fá virtan einstakling til að styrkja listann. Margir vilja Garðar Sverrisson
Samkomulag er í burðarliðnum
milli flokkanna þriggja sem standa
að kosningabandalagi Reykjavík-
urlistans. í dag mun þriggja
manna starfshópur flokkanna hitt-
ast til að reyna að klára tillögur
sínar um uppstillingu og takist
þeim að ganga frá tillögum mun
hin eiginlega samninganefnd
flokkanna fara yfir þær um helg-
ina og í framhaldinu munu viðeig-
andi flokksstofnanir taka af skarið
um málið. Ljóst er aö nokkuð víð-
tæk sátt er um þær hugmyndir
sem nú eru uppi á boröum og að
starfshópurinn, sem jafnan gengur
undir nafninu „vitringamir þrir“,
hefur haft gott samráð við bak-
landið í sínum flokkum við vinnsl-
una á þeim tillögum sem nú liggja
fyrir. „Vitringarnir", þeir Páll
Halldórsson jarðeðlisfræðingur frá
Samfylkingunni, Guðjón Ólafur
Jónssson lögfæðingur frá Fram-
sókn og Ármann Jakobsson sagn-
fræðingur frá Vinstri grænum,
höfðu strax í desember komið sér
saman um drög að samkomulagi,
sem ekki féll í nægjanlega góðan
jarðveg, þannig að sú útgáfa sem
nú er fram komin er talsvert
breytt frá því
sem þá var.
Málamiðlun
Nýja sam-
komulagið er
málamiðlun sem
kom fram eftir
að Ingibjörg Söl-
rún Gísladóttir,
borgarstjóri og
borgarstjóraefni framboðsins,
hafði farið yfir fyrri tillögur vitr-
inganna þriggja. Samkvæmt því
sem nú er talað um fær hver flokk-
ur tvö sæti af þeim átta efstu, en 7.
sætið verður frátekið fyrir óháðan
frambjóðanda, sem valinn verður
af sérstakri uppstillingarnefnd í
samráöi við borgarstjóra, sem
mun skipa 8. sætið og vera borgar-
stjóraefni listans eins og áður.
Áður hafði verið gert ráð fyrir að
Framsókn og VG fengju tvo full-
trúa hvor úr hópi átta efstu en
Samfylkingin þrjá. Hugmyndin
var síðan að VG fengi efsta sæti
listans og Framsókn fyrsta val í
allar nefndir auk þess að fá for-
mann borgarstjórnarflokksins.
Þessar forsendur og þessi úrfærsla
breytist hins vegar með nýja sam-
komulaginu enda „missir" Sam-
fylkingin einn mann úr öruggu
sæti fyrir hinn óháða.
Páll
Halldórsson.
Nýja tillagan
Sú tilllaga sem unnið er út frá
núna er eftirfarandi, en rétt er að
undirstrika að hún gæti breyst í
meðförum vitringanna í dag eða
stóru samninganefndarinnar um
helgina þó tæplega geti það orðið í
veigamiklum atriðum:
Samfylking fær fjögur sæti af 15
á listanum. Þaö eru sæti eitt, sex,
ellefu og þrettán. Framsókn fær
líka fjögur sæti af fimmtán. Það
eru sæti tvö, fimm, tíu og fjórtán.
Vinstrihreyfingin grænt framboð
fengi sömuleiðis fjögur sæti, sem
yrðu sæti þrjú, fjögur, niu og
fimmtán. Ingibjörg Sólrún Gísla-
dóttir yrði síðan í áttunda sætinu
og síðan „hin óháða skrautfjöður"
í því sjöunda, eins og einn viðmæl-
andi kallaði þann sem valinn yrði
til að setjast í sjöunda sætið. Skipt-
ing embætta og nefnda breytist
líka frá þvi sem áöur hafði verið
talað um því nú er gert ráð fyrir
að embætti forseta borgarstjórnar
róteri milli flokkanna á kjörtíma-
bilinu og nefndir og önnur emb-
ætti skiptast líka jafnar milli
flokka en áður hafði verið gert ráð
fyrir.
BBf
Samkomulag
Reykjavíkurlistinn er nú kominn á beinu brautina varöandi uppstillingu á lista hjá sér. Mikil spenna hefur myndast í
kringum uppstillinguna, sérstaklega í Samfylkingunni þar sem þrír borgarfulltrúar bítast um tvö sæti. Einnig ríkir eftir-
vænting um hver muni fara í 7. sætiö, veröur þaö Garöar Sverrisson eöa einhver allt annar?
Guðjón Olafur
Jónsson.
Ármann
Jakobsson.
Víðtæk sátt
Eins og áður segir er þessi nýja
tillaga málamiðlun sem kom til eft-
ir að Ingibjörg Sólrún Gísladóttir
haföi komið að málinu en sam-
kvæmt heimildum DV hafði hún
áhuga á að fá að ráða sjöunda sæt-
inu sjálf. Það þótti hins vegar full-
trúum flokkanna, einkum Fram-
sóknar og Vinstri grænna, óeðlilegt.
Málamiðlunartillagan um að sér-
stök uppstillingarnefnd í samráði
við borgarstjóra ákveði hver skipi
sjöunda sætið mun síðan hafa kom-
ið frá Guðjóni Ólafi Jónssyni,
„framsóknarvitringnum" í hópnum,
og grundvallarhugmyndin fengiö
samþykki hinna í hópnum sem og
borgarstjóra.
Eins og áöur segir virðist þokka-
leg sátt um þessa niðurstöðu í röð-
um allra aðildarflokkanna og eng-
inn fjölmargra sem blaðið ræddi við
í gær taldi að þessi niðurstaða væri
lakari en sú fyrri. Þvert á móti virð-
ast menn sáttari, sérstaklega í röð-
um framsóknarmanna og Vinstri
grænna, við það að flokkamir komi
að bandalaginu á jafnréttisgrund-
velli, þ.e. að allir fái jafna stööu á
listanum og í embættaveitingum.
Ármann Jakobsson segist þannig
eiga fastlega von á að tillaga af
þessu tagi, hugsanlega þó með smá-
vægilegum breytingum, muni fást
samþykkt í flokksdeild Vinstri
grænna í Reykjavík. Sömu sögu er
að segja af þeim framsóknarmönn-
um sem rætt var við og Óskar
Bergsson, varaborgarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins, fullyrðir að það sé
margfalt heppilegra fyrir alla aðila,
ekki síst Framsókn, að flokkarnir
komi allir jafnir að málum. Þetta sé
kosningabandalag á jafnréttisgrund-
velli og þessi skipan undirstriki
það. Páll Halldórsson „samfylking-
arvitringurinn" vildi í gær ekki tjá
Óskar Ingibjörg Sólrún
Bergsson. Gísladóttir.
sig um þessa niðurstöðu, en augljóst
er á viðbrögðum annarra samfylk-
ingarmanna að þeir telja þetta
ásættanlega lausn. Rétt er að geta
þess að talsverð óánægja hafði alla
tíð verið í röðum samfylkingar-
manna með fyrri niðurstöðu vitr-
inganna þriggja.
Margir vilja Garðar
Sú ráðstöfun, aö skflja eftir sjö-
unda sætið handa óháðum aðila,
hefur eðlilega vakið mikla athygli.
Einn viðmælandi blaösins úr borg-
arstjórnarflokki R-listans sagði
þetta sæti „eins konar bjarg-
hring“. Þegar þrír fiokkar stilli
upp hver i sínu lagi - og allir prýð-
is-fulltrúum - geti niðurstaðan þó
orðið sú að listinn verði hreint
ekki árennilegur þegar hinir ein-
stöku hlutar hans koma saman.
Því mun hugmyndin að bíða með
þetta 7. sæti þar til tilnefningar i
hin sætin eru komnar fram og sá
frambjóðandi sem þar kæmi inn
myndi þá metinn með tilliti tfl
þess að fá sem besta heildarmynd
á listann. Borgarfulltrúar sem
blaðið ræddi við telja greinOegt að
þessi einstaklingur yrði að standa
utan flokka, eða í það minnsta
ekki vera mitt í hringiðu
flokkapólitíkurinnar. Þess hefur
vandlega verið gætt aö festa ekk-
ert nafn við þetta sæti, en það hef-
ur þó ekki komið i veg fyrir að
fólkið sem myndar bakland vitr-
inganna inni í flokkunum hefur
mikið spurt um einstaklinga og
ýmis nöfn eru þar á lofti. Viðmæl-
endur blaðsins nefna í þessu sam-
bandi að umræður séu um sér-
framboð aldraðra og öryrkja og
einn viðmælandi sagði óvarlegt að
útiloka menn eins og Ólaf F.
Magnússon. Hann á þó augljóslega
ekki víötækan stuðning. Það sama
er ekki hægt að segja um menn
eins og Ólaf Ólafsson landlækni og
þó sérstaklega Garðar Sverrisson,
formann Öryrkjabandalagsins, en
þeirra nöfn hafa verið nefnd í
þessu samhengi sem sú tegund
fólks sem verið sé að tala um í sjö-
unda sætið. Þannig er greinilegt
t.d. af samtölum DV við Reykjavík-
urlistafólk í gær að Garöar Sverr-
isson nýtur stuðnings áhrifa-
manna úr röðum allra aðildar-
flokkanna og nafn hans er augljós-
lega ofarlega í hugum margra sem
tengjast þessum framboðsmálum.
Sjálfur útilokar Garðar ekkert og
þegar hann var spurður beint að
því í gær hvort hann gæfi kost á
sér í þetta sæti, var greinilegt að
hugur hans stendur meira til
næstu alþingiskosninga. „Ef um
beina þátttöku I stjórnmálum af
minni hálfu verður að ræöa er
mun líklegra að það verði á sviði
landsmála en borgarmála. Ég vil
að minnsta kosti ekki gera neitt
sem bindur hendur mínar á einn
eða annan hátt gagnvart þeirri
baráttu sem er fram undan í lands-
málunum," segir Garðar.
Flokkarnir velja
Flokkamir munu hver um sig
velja fólk á listann og hafa sitt eig-
ið lag á því. í Samfylkingunni er
búist við einhvers konar „lýðræð-
islegu valferli" þar sem kosið
verður milli manna, en fyrir fram
er búist við hörðum slag þar á bæ.
Þrír borgarfulltrúar munu bítast
um tvö örugg sæti, þau Helgi
Hjörvar, Steinunn Valdís Óskars-
dóttir og Hrannar B. Arnarsson.
Þá er talið að einhver ný nöfn
kunni aö blanda sér í slaginn og er
nafn Stefáns Jóns Hafstein nefnt í
því samhengi.
Hjá Framsóknarflokknum mun
það koma í hlut kjördæmisþings
flokksins í Reykjavíkurkjördæm-
unum að ákveða hvernig valið
verður á listann, en að sögn Al-
freðs Þorsteinssonar er líklegt að
um einhvers konar kosningu verði ■
að ræða milli manna. Fyrir því
eru mörg fordæmi að kjördæmis-
þing velji sjálf lista, þannig að
ýmsir möguleikar eru í stöðunni.
Alfreð segist ákveðinn í að sækjast
eftir sæti ofarlega á listanum, en
óljóst er hvað Sigrún Magnúsdótt-
ir, hinn borgarfulltrúi flokksins,
gerir. Þá munu Óskar Bergsson
varaborgarfulltrúi og Anna Krist-
insdóttir og Vigdís Hauksdóttir
trúlega blanda sér. í þennan slag.
Óvíst er hvernig VG velur á
sinn lista en talið er líklegt að
Árni Þór Sigurösson muni leiða
hann, en Árni er eini VG-maður-
inn sem hefur verið i áberandi for-
ustuhlutverki hjá R-listanum á
þessu kjörtímabili. Búist er við að
upp úr þessu muni hlutirnir ganga
hratt fyrir sig og að listinn geti
legið fyrir einhvern tímann í byrj-
un febrúar.
Umsjón: Birgir Guömundsson
netfang: birgir@dv.is
Viötal við heimilisfang?
Það vakti athygi í heita pottinum
þegar Fréttablaðið flutti á mánudag-
inn frétt af hörmulegu andláti ís-
lenskrar konu sem féll fram af svöl-
um á
hóteli á I
Kanarí-'
frfttablaqíp
eyjum. Fréttablaðið ræddi af þessu
tilefni við Juan de Escobedo sem
sagður er ræðismaður íslands á
staðnum. Þetta viðtal mun hins vegar
hafa komið mönnum í utanríkisþjón-
ustunni nokkuð á óvart því ræðis-
maður íslands þarna suður frá heitir
Francisco Luis Carreras Irimia. Hins
vegar mun Irimia konsúll - eins og
sjá má á vef utanríkisráðuneytisins -
vera búsettur við götu sem heitir
Juan de Escobedo, nánar tiltekið
Juan de Escobedo'5. í pottinum velta
menn því nú fyrir sér hvort það geti
verið að viðtal Fréttablaðsins hafl
ekki verið við ræðismanninn heldur
heimilisfang hans!...
Hafró og Smáralind
Eins og frægt er orðið hafa margir
höfuðborgarbúar efasemdir um að
verslunin i hinni nýju og glæsilegu
Smáralind sé jafnmikil og af er látiö
og hefur
kveðið svo
rammt að
sögusögn-
um um dræma aðsókn og verslun að
forsvarsmenn miðstöðvarinnar hafa
séð sig knúna til að hafa orð á þess-
um sögum og bera þær til baka. En
það virðist illa duga, alltaf eru efa-
semdamenn að láta heyra í sér og
þær raddir heyrast í heita pottinum
jafnt sem annars staðar. Það hefur
komið fram að í Smáralind eru notað-
ir mjög fullkomnir teljarar sem eru af
sama tagi og þeir teljarar sem Haf-
rannsóknastofnun notar við að telja
seiði. í ljós hefur komið að um 1,6
milljónir manna hafa sótt verslunar-
miðstöðina heim samkvæmt þeim
mælingum. Þetta hefur ekki orðið til
að þagga niður i efasemdamönnum,
nema síður sé, sem nú eru farnir að
benda á að það sé ekki furða þó að
lítið sé að marka stofnstærðarmæl-
ingar Hafrannsóknastofnunar á
þorski, seiðateljararnir sem notaðir
eru séu greinilega vitlausir!...
Austurglugginn!
í heita pottinum heyrist nú að til
standi að stofna nýtt blað á Austur-
landi sem á að rísa á rústum gömlu
flokksblaðanna, s.s. Austurlands og
Austra sem nú eru i—-—~
hætt að koma reglu- Ijjf'
lega út. Að málinu Wr
koma margir aðilar u. -
sem spanna hið póli- fe' -- |i
tíska iitróf eins og sjá ^ " M
má af þeim fimm sem Wt
eru í undirbúnings- ^---
nefnd en það eru Einar Már Sigurð-
arson og Smári Geirsson, sem báðir
tengjast Samfylkingunni og Fjarða-
listanum, sjálfstæðismaðurinn Hilm-
ar Gunnlaugsson lögfræðingur,
framsóknarmaðurinn Ingi Már Aðal-
steinsson og fjölmiðlamaðurinn frá
Athygli hf., Valþór Hlöðversson.
Ritstjóri mun hafa verið ráðinn að
þessu nýja blaði en það er Brynjólf-
ur Þorvarðarson sem eitt sinn var
með Eystrahorn. Þá mun búið að
ákveða nafn á nýja blaðið en það á að
heita Austurglugginn.
Júlíus styrkir sig í sessi
Það vekur athygli hve tómlega
Inga Jóna Þórðardóttir og stuðn-
ingsmenn hennar hafa tekið niður-
stöðu Gallups um hvor væri sigur-
stranglegri leiðtogi
sjálfstæðismanna i
borginni, Júlíus Víf-
ill Ingvarsson eða
Inga Jóna. Júlíus
mældist sem kunnugt
er með 58% fylgi
þeirra sem tóku af-
stöðu en Inga Jóna með 42%. Er ljóst
að þessi niðurstaða er verulegt áfall
fyrir sitjandi oddvita en styrkir að
sama skapi Júlíus í sessi sem aöal-
keppinaut hennar um leiðtogasætið -
að því gefnu að Björn Bjarnason
blandi sér ekki í slaginn sem myndi
breyta stöðunni verulega....