Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Side 20
32
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002
Tilvera DV
Jalla! Jalla:
Getulausi brúðguminn
Sænska kvikmyndin Jalla! Jalla
verður frumsýnd í Regnboganum á
morgun. Myndin var frumsýnd í Sví-
þjóð í desember árið 2000 og naut
strax gríðarlegra vinsælda og sló öll
aðsóknarmet en talið er að um 790.000
Svíar hafi séð Jalla! Jalla í bíói.
Myndin var einnig tilnefnd til Golden
Bug-verðlaunanna en það eru nokk-
urs konar Edduverðlaun Svía.
Alls staðar þar sem myndin hefur
verið sýnd hefur hún notið mikilla
vinsælda og náð góðum árangri á
kvikmyndahátíðum víða um heim.
Yngsti nemandinn
Leikstjóri og höfundur Jalla! Jalla
heitir Josef Fares. Hann er fæddur í
Libanon árið 1977 en flutti með fjöl-
skyldu sinni til Svíþjóðar 1987. Fares
byrjaði ungur að gera stuttmyndir og
vann fjölda verðlauna fyrir þær. Þeg-
ar hann ílutti til StokkhóLms árið 1998
var hann að eigin sögn búinn að gera
yfir fimmtíu stuttmyndir. Sama ár
fékk Fares inngöngu í kvikmynda-
skóla Dramatiska Institutet en hann
er yngsti nemandinn sem hefur verið
tekinn inn í skólann.
Vandamál karlmanna
Fares segir hugmyndina að Jalla!
Jalla vera sprottna upp úr stuttmynd
sem hann gerði á meðan hann var í
námi í kvikmyndaskólanum. Sú mynd
nefnist Dicken og fjallar um getulaus-
an innflytjanda sem er að ganga í
hjónaband sem var skipulagt þegar
hann var barn.
Höfundur myndarinnar segist telja
að efni hennar eigi fullt erindi til
fólks og að í myndinni sé tekið á mál-
efnum innflytjenda á annan hátt en
áður. „Hér er fjallað um vandamál
karlmanna sem neyddir eru i hjóna-
band en geta ekki staðið undir þeim
væntingum sem til þeirra eru gerð-
ar.“
Josef Fares segist leita að viðfangs-
efnum í daglegi lifi fólks og vilji segja
sögur sem eiga sér stoð í raunveru-
leikanum. „Hér áður fyrr fannst mér
gaman að gera hasarmyndir í stíl viö
John Woo og eyddi miklum tíma í
ódýrar tæknibreilur."
Eitt af því sem vekur athygli við
myndina er aö leikararnir er flestir úr
fjölskyidu Fares. „Faðir minn og
frændi leika voodoo-karla og gera það
mjög vel enda höfðu þeir leikið í stutt-
mynd áður. Aftur á móti var erfiðara
að eiga við ömmu, hún átti það til að
horfa of mikið í myndavélina þannig
að við þurftum að taka mjög stutt skot
af henni í hvert skipti. Ég vona bara
að fólk hafi gaman af því að horfa á
myndina því megintilgangur hennar
er að skemmta fólki.“
Jalla! Jalla verður frumsýnd í
Regnboganum á morgun. -Kip
Ss joua-.v 15 «54 l'jtf.js 11!ur
Frönsk kvik-
myndahátíð
í dag hefst ellefu daga kvik-
myndahátíð Filmundar og Alliance
Frangaise í Háskólabiói. Sýndar
verða ellefu nýlegar franskar kvik-
myndir af ýmsu tagi og öllum mögu-
legum kvikmyndategundum, frá
vísindaskáldskap til teiknimynda.
Þetta er annað árið í röð sem Fil-
mundur og AUiance Frangaise taka
saman höndum og líklegt þykir að
framhald verði á samstarfi félag-
anna.
Myndirnar sem sýndar verða á
hátíðinni eru:
Voyous voyelles (1999)
(Prakkararnir)
Leikstjórn og handrit: Serge Meynard
Leikarar: Olivia Bonamy, Léa Audrey
Tautou, Anne-Sophie og Axelle Ade-Pas-
deloup.
Le Comptoir (1998)
(Afgreiösluboröiö)
Leikstjórn og handrit: Sophie Tatischeff
Leikarar: Mireille Perrier, Maurane,
Christophe Odent og Jacques Penot.
La Maladie de Sachs (1999)
(Veikindi Sachs)
Leikstjórn og handrit: Michel Deville
Leikarar: Albert Dupontel, Valérie Dréville
og Dominique Reymond.
Princes et princesses (1999)
(Prinsar og prinsessur)
Leikstjórn og handrit: Michel Ocelot
Teiknimynd
Peut-étre (1999)
(Ef til vill)
Leikstjóri: Cédric Klapisch
Leikarar: Jean-Paul Belmondo, Romain
Duris og Géraldine Pailhas.
Dleu seul me voit (1998)
(Guö einn sér mig)
Leikstjórn og handrit: Bruno Podalydés
Leikarar: Denis Podalydés, Anna Isabelle
Candelier, Cécile Bouillot og
Jean-Noél Brouté.
Ceux qui m'aiment prendront le train
(1998)
(Þeir sem elska mig taka lestina)
Leikstjórn og handrit: Patrice Chéreau
Leikarar: Pascal Greggory, Valeria Bruni
Tedeschi og Charles Berling.
La Classe de neige (1998)
(Skíöaferöin)
Leikstjórn og handrit: Claude Miller
Leikarar: Clément van den Bergh, Lok-
man Nalcakan og Frangois Roy.
Jeanne et le gargon formidable (1998)
(Jeanne og frábæri drengurinn)
Leikstjórn og handrit: Olivier Ducastel og
Jacques Martineau
Leikarar: Virginie Ledoyen, Mathieu Demy
og Olivier Jacques Bonnaffé.
Comme elle respire (1998)
(Hvítar lygar)
Leikstjórn og handrit: Pierre Salvadori
Leikarar: Marie Trintignant, Guillaume
Depardieu og Jean-Frangois Stévenin.
Á vendre (1998)
(Til sölu)
Leikstjórn og handrit: Laetitia Masson
Leikarar: Sandrine Kiberlain, Robert
Sergio Castellitto, Primo Jean-Frangois
Stévenin.
Vandamál karlmanna
Höfundur myndarínnar segist telja
aö efni henn'ar eigi fullt erindi viö
fólk og aö í myndinni sé tekið á mál-
efnum innflytjenda á annan hátt en
áöur.
Heist:
Síðasta ránið
hafa tekið leikrit hans og kvik-
myndað. Má þar nefna American
Buffalo og Glengarry Glen Ross. Þá
hefur hann skrifað handrit að
nokkrum frægum kvikmyndum,
meðal annars Hannibal, Wag the
Dog, The Untouchables og The Post-
man Always Rings Twice. David
Mamet hefur leikstýrt níu kvik-
myndum. Þær eru: House of Games,
Things Change, Homicide, Oleanne,
The Spanish Prisoner, The Winslow
Boy, State and Main, Catastrophe og
Heist.
Þeir sem þekkja til kvikmynda
Mamets ættu að kannast við persón-
urnar í Heist, en hann hefur iðulega
skrifað um undirmálsfólk og mis-
heppnaða krimma. Gene Hackman
og Danny DeVito leika gamla vini,
Joe Moore og Bergman. Þeir eiga að
baki fortíö sem ekki þolir dagsins
ljós. Moore er þó á því að snúa við
dæminu og lifa rólegu og heiðarlegu
lffi og dreymir um að komast til
Argentínu. Til að svo geti verið þarf
eitt rán í viðbót. Bergman er með
stórrán í huga sem Moore er ekki
hriflnn af, það er að ræna flutninga-
vél skömmu áður en hún fer á loft.
Hann hálfpartinn neyðir Moore til
að taka þátt í ráninu sem Bergman
segir vera hið fullkomna rán. En
hópurinn er ekki samstæöur og það
gengur á ýmsu.
Heist er frumsýnd á morgun í
Sambíóunum í Reykjavík og á Ak-
ureyri. -HK
íMÉISíjí:®
„Það er ekki til pólitísk
rétthugsun í mér”
Reyna við hið fullkomna rán
Á myndunum eru Gene Hackman og Danny DeVito í hlut-
verkum Joe Moore og Bergman sem gera síöustu tilraun
til stórráns.
Þegar nafn
David Mamets
ber á góma
sperra menn yfir-
leitt eyrum. Þessi
hæfileikamikli
listamaður sem
er jafnvígur á
leikrit, kvik-
myndahandrit og
leikstjórn á að
baki margra sigra. Leikrit hans
hafa farið sigurför um heiminn og
meðal annars einstök verið sýnd
hér á landi. Hann er einn eftirsótt-
asti handritshöfundurinn í
Hollywood og kvikmyndir þær sem
hann hefur leikstýrt eru yfirleitt
vandaðar og efnismiklar. Aðeins
einu sinni hefur hann tekið fyrir
eigið leikrit og leikstýrt kvikmynda-
gerð þess, var það Oleanna. Aðrir