Dagblaðið Vísir - DV - 10.01.2002, Síða 25
37
FIMMTUDAGUR 10. JANÚAR 2002_________________________________________________
I>V Tilvera
Nýja endurhæfingarmiðstöðin á Reykjalundi:
Gerir lífiö auðveldara
- er samdóma álit sjúklinganna
Gangandi kraftaverk
Guömundur Páll Magnússon gefur
staönum 22 í einkunn
af 10 mögulegum!
Á öðrum degi frá opnun hinnar nýju
og glæsilegu þjálfunarstöðvar á
Reykjalundi var enn „vígsluljómi“ á
andlitum fólksins, blómvendir í hverju
homi og stöku iðnaðarmaður að leggja
lokahönd á verk sitt. Þjálfaramir vom
flestir á námskeiði til að æfa björgun
úr vatni og endurlífgun vegna breyttra
aðstæðna með tilkomu nýju stóm laug-
arinnar. „Við viljum vera alveg skot-
held og hafa alla í góðri þjálfun," segir
íris Marelsdóttir yfirsjúkraþjálfari
sem tekur á móti útsendumm DV,
ásamt Bimi Ástmundssyni forstjóra.
Og fyrst minnst er á sundlaugina er
best aö byrja heimsóknina á því að
Sigfús segir hafa verið sundlaug heima
á Laugarbakka en nú hafi henni verið
lokað. „En við höfum heita potta, sem
er betra en ekki neitt,“ segir hann.
Skúli Jónsson er við hlið Sigfúsar.
Hann er á fjórðu viku, ber staðnum
góða sögu og er yfir sig hrifinn af nýju
aðstöðunni. En hvað skyldi hrjá hann?
„Það er aumt bak sem hefur verið mitt
vandamál lengi,“ segir Skúli. Júlíus
Sigurðsson er líka að svamla í laug-
inni. Hann kveðst vera að æfa upp
þrek og hæfni eftir blóðtappa sem
hann fékk fyrir tveimur ámm. „Sund-
ið er stórt atriði í þeirri þjálfun," segir
hann.
Fæddist með vatnshöfuð og
klofinn hrygg
Guðmundur Páll Magnússon úr
Biskupstungunum er næsti viðmæl-
andi. Hann var tvo mánuði á Reykja-
lundi fyrir jól og býst við að verða að
minnsta kosti mánuð í viöbót. En hvað
skyldi hafa komið fyrir hann? „Ég
fæddist sjúklingur, með vatnshöfuð og
klofinn hrygg og er í stöðugri þjáifun,
andlegri og líkamlegri. „Það er alveg
ótrúlegt hvað þessi stofnun er búin að
Sigurður Þorsteinsson og Kristín Hannesdóttir
Siguröur býr á sambýlinu Hlein og kemur í þreksalinn þrisvar í viku. „Ég er
aöstoöarkerlingin hans Sigga, “ segir Kristín hlæjandi, en hann vill frekar
kalla hana „viðhald!“ Tækiö er nýtt og var gefiö af Verkstjórafélaginu.
Svamlaö í lauginni
Sigfús Traustason og Skúli Jónsson eru ánægöir meö aöstööuna á Reykjalundi.
Flest tækin frá félögum og
klúbbum
í nýja íþróttasalnum em þrír menn
og ein stúlka í borðtennis og virðast
skemmta sér vel. En við höldum upp á
efri hæð þar sem æfingaaðstaða er í
tveimur sölum með ýmsum þrekþjálf-
unartækjum. Öðrum megin em bekk-
ir, ætlaðir gigtarsjúklingum og þeim
sem þurfa að æfa upp færni sem hefur
verið til staðar, hinum megin em hjól
og lóð tO að efla styrk og þol. Flest hafa
tækin verið gefin af félögum og klúbb-
um. Þar hafa Lions- og Kiwanisklúbb-
ar verið drjúgir, að sögn Björns.
Reykjalundur er sjálfstæð stofhun í
eigu SÍBS. Þar er gistiaðstaða fyrir 150
manns og auk þeirra njóta fjölmargir
Við sundlaugina
Björn Ástmundsson forstjóri, íris Marelsdóttir yfirsjúkraþjálfari og Jón M.
Benediktsson, formaöur byggingarnefndar.
Heita vatnið er gulls ígildi
Júlíus Sigurösson er í endurhæfingu
eftir blóötappa.
þjónustu þar, gegnum göngudeildina.
„Á síðasta ári vom það um 1000 manns
sem komu á hana, fyrir utan um 1400
manns sem „ílæddu“ um stofnunina,
eins og Bjöm orðar það.
Húsið er byggt é bjsígi
Nýja húsið sem er 2700 ferm. hefur
risið upp á einu og hálfú ári. Fjár-
magnið sem safnaðist i landsátakinu
Sigur lífsins í október 1998, ásamt
erfðafé, ýmsum gjöfum og afrakstri af
happdrætti SÍBS gaf gott trukk til að
ýta framkvæmdum í gang. Nýbygging-
in tengir saman aðrar mikilvægar
byggingar sem fyrir vora, svo sem
sjúkradeild og iðjuþjálfunardeild. Þrátt
fýrir stærðina yfirgnæfir hún ekki aðr-
ar enda fellur hún að nokkra inn í
landið. Til að koma henni fyrir vom
nefnilega sprengdir í burtu rúmlega
8000 rúmmetrar af grjóti og klöpp. Hús-
ið er svo sannarlega byggt á bjargi og
sú starfsemi sem þar fer fram eykur
lífsgæði fjölda fólks. -Gun.
Rausnarleg gjöf
Oddur Vífilsson, sonarsonur Odds Ólafssonar læknis, átti fertugsafmæli á
vígsludaginn, 4. janúar. Hann slasaöist illa áriö 1987 og býr á Hlein, sambýli
fyrir fatlaöa. Á afmælinu sínu færöi hann Reykjalundi aö gjöf hvorki meira né
minna en eina milljón króna í byggingarsjóö. Á myndinni sést Hjördís Jóns-
dóttir yfirlæknir taka viö gjöfinni og Jón M. Benediktsson, formaöur bygging-
arnefndar, fylgjast meö.
skoða hana. Laugamar era reyndar
tvær, 25x9 og 7x9 m að stærð. Gamla
laugin á staðnum er minni en litla
laugin svo viðbrigðin em mikil. „Nú
erum við komin með löglega 25 m
keppnislaug og getum þess vegna hald-
ið íþróttamót fatlaðra með glans," seg-
ir íris glaðlega og bætir við að það hafi
verið glæsilegt opnunaratriði þegar
þau stungu sér til sunds, heimsmethaf-
amir Bjarki Birgisson, Kristín Rós Há-
konardóttir, Pálmar Guðmundsson og
Sigrún Huld Hrafnsdóttir.
Sundið er stórt atriði í
þjálfúninni
í lauginni eru nokkrir að æfa sig.
Fyrstan tökum við tali Sigfús Trausta-
son á Laugarbakka í Miðfirði. Hann er
að byrja aðra viku sína í þjálfuninni,
kveðst hafa verið eina viku fyrir jól og
þá í gömlu endurhæfingarstöðinni.
„Þetta er allt annað og betra," segir
hann brosandi. Sigfús kveðst hafa
fengið heilablóðfall fyrir tveimur ámm
en' þetta sé fyrsta endurhæfingin sem
hann kemst í. „Ég átti að koma hér í
sumar en hafði ekki tök á því þá. Ég
held að prógrammið sé fimm vikur og
ég ætla að útenda það,“ segir hann.
Endurhæfing
Svava Siguröardóttir er aö ná sér eftir gerviliösaögerð á hné, meö
aöstoö Hlínar Bjarnadóttur þjálfara.
gera fyrir mig. En maður verður auð-
vitað að vera jákvæður sjálfur til að ná
bata.“ segir þessi ungi maður sem á
sinni 24 ára löngu ævi kveðst vera bú-
inn að fara í yfir 50 aðgerðir og stríða
við einelti í skóla, þunglyndi og ýmsar
hremmingar. „Ég er búinn að vera
meira og minna á sjúkrastofnunum
alla mína ævi,“ segir hann og gefúr
Reykjalundi 22 í einkunn af 10 mögu-
legum! „Hér em undin- og stónnerki
að gerast á hverjum degi,“ segir hann
af sannfæringarkrafti.