Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2002, Blaðsíða 22

Dagblaðið Vísir - DV - 22.01.2002, Blaðsíða 22
26 ÞRIÐJUDAGUR 22. JANUAR 2002 íslendingaþættir Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson 90 ára__________________ Aðalbjörg Jóakimsdóttir, Drápuhlíð 27, Reykjavík. 85 ára_______________________ Pétur Sigurösson, Sæbergi 5, Breiðdalsvík. 80 ára_______________________ Oddný Gísladóttir, Miðleiti 7, Reykjavík. Guðbjartur Andrésson, Hjaröarholti 15, Akranesi. Kristbjörg Hermannsdóttir, Höfðagötu 17, Stykkishólmi. 75 ára_______________________ Eiríkur Ásmundsson, Hamraborg, Akureyri. Ari Magnússon, Strandgötu 36, Neskaupstað. 70 ára_______________________ Indriði Pétursson, Fálkagötu 28, Reykjavík. Hrefna Svava Þorsteinsdóttir, Ásgarði 3, Reykjavík. Páll Hallgrímsson, írabakka 12, Reykjavík. Gunnar Haukur Sveinsson, Fannafold 31, Reykjavík. Randver G. Kariesson, Norðurgötu 35, Akureyri. 60 ára_______________________ Sigurjón Jónsson, Hverafold 42, Reykjavík. Hafliöi Ólafsson, Urðum, Dalvlk. Björn Eymundsson, Fagranesi, Höfn í Hornafirði. 50 ára______________________________ Ágúst Ágústsson, Hlaðhömrum 42, Reykjavík. Kristján E. Ágústsson, Gerðhömrum 6, Reykjavík. Kristján Gunnarsson, Funafold 79, Reykjavík. Bergþór Guðmundsson, Kársnesbraut 51, Kópavogi. Þorvaidur Árnason, Starmóa 15, Njarðvik. Bára Guðjónsdóttir, Böðvarsgötu 3, Borgarnesi. Jóhann Hafberg Óskarsson, Brautarholti 20, Snæfellsbæ. Guðmundur F. Baldursson, Kambahrauni 25, Hverageröi. 40 ára______________________________ Þorbjörg Erla Ásgeirsdóttir, Rauðalæk 53, Reykjavík. Sveinn Bragason, Tómasarhaga 55, Reykjavlk. Unnur Vilhelmsdóttir, Flyðrugranda 10, Reykjavlk. Kristín Birna Porter, Bollagörðum 109, Seltjarnarnesi. Inga Dís Guðmundsdóttir, Víöihvammi 9, Kópavogi. Jón Ólafur Halldórsson, Bjarnhólastig 10, Kópavogi. Logi Sigmundsson, Birkigrund 67, Kópavogi. Sveinn Kjartansson, Brekkuhjalla 7, Kópavogi. Hilmar Sigurösson, Brekkuhvarfi 15, Kópavogi. Guðrún Siguröardóttir, Heiðarbakka 3, Keflavlk. Birgir Óli Einarsson, Túngötu 8 Hvanneyri, 311 Borgarnes. Sigurveig M. Kjartansdóttir, Sandholti 36, Snæfellsbæ. Magnús Axel Jónsson, Miðbraut 1, Búöardal. Skúli Sveinsson, Borg, Borgarfiröi. Jónína Elíasdóttir frá Bolungarvík lést á St. Jósefsspltala I Hafnarfiröi þriðjud. 8.1. Útförin hefur farið fram I kyrrþey að ósk hinnar látnu. Ámý Guðlaug Sigurðardóttir, Ægisbraut 11, Blönduósi, andaðist á Heilbrigðis- stofnun Blönduóss fimmtud. 17.1. Ólafur Axelsson hæstaréttarlögmaður, Frakkastíg 24, Reykjavík, er látinn. Sigurborg Jónsdóttir, Heiðarhvammi 8G, Keflavik, lést á Heilbrigðisstofnun Suðurnesja miðvikud. 16.1. Guðrún Sigríður Sigurjónsdóttir, Akur- gerði, Álftanesi, lést á Sólvangi fimmtud. 10.1. Jarðarförin hefurfariö fram I kyrrþey að ósk hinnar látnu. DV Hundrnft og eing t'irs Sigurrós Kristinsdóttir fyrrv. húsfreyja að Hálsi í Öxnadal Sigurrós Kristinsdóttir, fyrrv. húsfreyja að Hálsi í Öxnadal og síð- ar á Akureyri, Kvistagerði 5, Akur- eyri, er hundrað og eins árs í dag. Starfsferill Sigurrós fæddist að Gili í Öxna- dal en flutti með foreldrum sinum að Geirhildargörðum í Öxnadal þar sem hún ólst upp við öll almenn sveitastörf þess tíma til sautján ára aldurs. Hún fór þá i vinnumennsku og var vinnukona á bæjum í Skaga- flrðinum og í Öxnadalnum. Þegar Sigurrós gifti sig hófu þau hjónin búskap að Hálsi í Öxnadal þar sem þau bjuggu til 1973 að þremur árum undanskildum. Þá brugðu þau búi og fluttu til Akur- eyrar þar sem Sigurrós býr enn. Fjölskylda Sigurrós giftist 29.5. 1925 Ásgrími Halldórssyni, f. 21.11. 1903, d. 8.1. 1980, bónda að Hálsi í Öxnadal. Hann var sonur Halldórs Gottskálks Jóhannssonar, f. 25.11. 1871, d. 9.6. 1942, og k.h., Jónínu Jónsdóttur, f. 31.1. 1880, d. 18.8. 1958, en þau bjuggu að Egilsá, á Löngumýri, á Vöglum og í Vaglagerði í Skaga- flrði. Börn Sigurrósar og Ásgríms eru María Ásgrímsdóttir, f. 14.6. 1925, húsmóðir á Akureyri en maður hennar er Baldvin Ólafsson, lengst af verslunarstjóri á Akureyri og eiga þau þrjú börn; Jónína Ásgrims- dóttir, f. 7.2. 1929, húsfreyja í Efsta- landi í Öxnadal, en maður hennar er Sigurður Jónasson, bóndi þar, og eiga þau fjögur böm; Sigríður Ás- grímsdóttir, f. 30.1. 1931, lengst af húsfreyja á Svínabökkum i Vopna- firði, nú búsett á Akureyri en mað- ur hennar var Magnús Bjömsson sem lést 1978, bóndi á Svínabökkum, og eignuðust þau átta börn; Svana Ásgrímsdóttir, f. 12.12.1932, lengst af ráðskona og verslunarmaður á Ak- ureyri og á hún eina dóttur; Hulda Ásgrímsdóttir, f. 31.5. 1934, lengst af húsmóðir og iðnverkakona á Akur- eyri og húsfreyja á Hálsi um skeið en maður hennar er Ragnar Tryggvason, bóndi á Hálsi um skeið en lengst af sjómaður og eiga þau fimm börn; Sigurður Ásgrímsson, f. 15.3. 1939, bóndi að Hálsi um skeið en lengst af veghefilsstjóri hjá Vega- gerð ríkisins, búsettur á Akureyri. Systkini Sigurrósar: Sigurður, f. 11.2.1897, var bóndi á Grímsstöðum í Mývatnssveit; Jóhannes, f. 10.10. 1898, var bóndi í Flatey á Skjálfanda; Sigríður, f. 27.6. 1902, flutti til Kanada; Sigurjóna, f. 28.10.1905, var búsett í Reykjavík; Jóhanna Sigfríð- ur, f. 20.5.1907, d. 14.4.1915; Margrét, f. 20.1. 1911, var búsett á Akureyri. Foreldrar Sigurrósar voru Krist- inn Magnússon, f. 25.12.1856, d. 10.6. 1917, bóndi í Geirhildargörðum og á Gili í Öxnadal, og k.h., Guðrún Mar- ía Sigurðardóttir, f. 26.2. 1868, d. 16.4.1915, húsfreyja. ITH Stefán Árni Tryggvason fyrrv. lögreglumaður á Akureyri Stefán Árni Tryggvason, fyrrv. lögreglumaður, að Hrísalundi 16c, Akureyri, nú búsettur í Praha í Tékklandi, varð sextugur i gær. Starfsferill Stefán fæddist á Akureyri og ólst þar upp. Hann lauk grunn- skólanámi og gagnfræðaprófi á Akureyri, stundaði nám við Iðn- skólann á Akureyri, lærði stál- smíði frá 1963 og lauk sveinsprófi i þeirri grein 1967, lauk prófum frá Lögregluskólanum, sótti end- urmenntunamámskeið á vegum lögreglunnar, stundaði nám við enskuskóla í Englandi 1983 og þýskuskóla í Þýskalandi 1984 og lauk stúdentsprófi frá MA 1985. Stefán stundaði akstur, sjó- mennsku og önnur almenn dag- launastörf til 1963, starfaði við Slippstöðina á Akureyri og hjá Héðni í Reykjavík, var lögreglu- maður á Akureyri og á Raufar- höfn 1967-85, skrifstofustjóri hjá Eimskipafélagi íslands á Akur- eyri 1985-87, lögreglumaður á Ak- ureyri 1988-1999 og stundaði sjó- mennsku af og til með lögreglu- störfunum. Stefán var búsettur að mestu á Akureyri til 1999 að undanskild- um þremur árum er hann var bú- settur á Raufarhöfn. Stefán var formaður Lögreglufé- lags Norðurlands 1975-77 og sat í stjórn handknattleiksdeildar KA 1984-92. Fjölskyida Stefán kvæntist 21.1. 1992 Jarmilu Jónbjörgu Tryggadóttur, f. 7.2. 1952, hagfræðingi. Hún er dóttir Franzitek Mikes, iðnfræð- ings í Praha í Tékklandi, og Marie Mikesovu, húsmóður þar. Fyrri kona Stefáns er Björg Þórðardðttir, f. 14.4. 1945. Börn Stefáns og Bjargar eru Þórður Tryggvi Stefánsson, f. 23.12. 1963, rekstrarfræðingur í Ólafsvík; Marta María Stefáns- dóttir, f. 17.11. 1962, sjúkraliði í Reykjavík; Unnur Rannveig Stef- ánsdóttir, f. 22.6. 1969, sagnfræð- ingur í Hafnarfirði; Hulda Þor- björg Stefánsdóttir, f. 18.3. 1972, leikskólakennari í Reykjavík. Börn Jarmilu eru Andrea Krouska, f. 23.2. 1976, einkaritari í Praha; Michaela Margrét Stefáns- dóttir, f. 11.12. 1980, einkaritari í Praha. Systkini Stefáns: Hulda Tryggvadóttir, f. 2.8. 1931, d. 21.8. 1996, kaupkona í Kópavogi; Brynjólfur Tryggvason, f. 27.5. 1945, verkstjóri á Akureyri; Soffia Tryggvadóttir, f. 9.5. 1948, lækna- ritari á Akureyri. Foreldrar Stefáns voru Tryggvi Bogason, f. 3.9. 1906, d. 22.7. 1976, verkamaður á Akureyri, og Stef- anía Brynjólfsdóttir, f. 3.4. 1911, húsmóðir. Árni Halldórsson rekstrarstjóri Fiskiðjunnar Skagstrendings Ámi Halldórsson, rekstrarstjóri Fiskiðjunn- ar Skagstrendings og rik- isstjóri ÁTVR í Grundar- firði, Sæbóli 29, Grundar- firði, er fimmtugur í dag. Starfsferill Árni fæddist í Grund- arfirði og ólst þar upp. Hann lauk 1. stigs prófi frá Vélskólanum i Vestmannaeyjum 1972 og 2. og 3. stigs prófum frá Vél- skóla íslands í Reykjavík 1982. Árni var vélstjóri á fiskiskipum til 1979, starfaði við þróunaraðstoð á Grænhöfðaeyjum 1980-82, starfaði hjá Kælivélum Sveins Jónssonar 1982, stundaði eigin rekstur i Kæli- vélum til 1996, var vélstjóri í Hrað- frystihúsi Grundarfjarðar til 1995 og hjá Fiskiðjunni Skagfirðingi til 1997, varð rekstrarstjóri Fiskiðjunn- ar Skagfirðings 2001, starfrækti vín- búð í Grundarfirði, ásamt konu sinni, 1970-2000, er atvinnukafari í aukastarfi, starfaði í slökkviliði Grundarfjarðar 1985-2000 og var þar slökkviliðsstjóri í fjögur ár. Árni sat í sveitastjórn Eyrar- sveitar i fógur ár, var varamaður í fjögur ár, starfaði í Lionsklúbbi Grundarijarðar, hefur gegnt þar ýmsum trúnaðarstörfum formaður klúbbsins í tvígang auk þess sem hann hefur verið trúnaðarmaður Vélastjórafélags Islands á Vestur- landi sl. tíu ár. Fjölskylda Eiginkona Árna er María Gunnarsdóttir, f. 22.9. 1953, rekur Blóma- búð Maríu. Hún er dóttir Gunnars Marinós Gunn- arssonar sem er látinn, fulltrúa hjá Samvinnu- tryggingum, og Guðlaug- ar Elíasdóttur húsmóður. Börn Arna og Maríu eru Kristín Björg, f. 13.3.1974, nemi í Horsens í Danmörku en maður hennar er Smári Björnsson, f. 10.2. 1975 og er dóttir þeirra Amalía Rún, f. 13.11. 1999; Gunnar Már, f. 9.2. 1984, nemi. Dóttir Árna er Sigríður Lára Árnadóttir, f. 11.9. 1972, en maður hennar er Halldór Karlsson, f. 28.9. 1969, byggingafræðingur en börn þeirra eru Bryndís Jóna, f. 21.2. 1995, og Hlökk, f. 2.8. 2000. Dóttir Maríu er Hjördís Davíðs- dóttir, f. 24.5. 1970, og börn hennar Gauti Gunnar, f. 9.3. 1995, og Hekla Kristin, f. 19.2. 1997. Systkini Árna: Sigurjón, f. 21.9. 1949; skipstjóri í Grundarfirði; Björg Bára, f. 5.5. 1960, fram- kvæmdastjóri í Ólafsvík; Halldór Kristinn, f. 20.5. 1963, framkvæmda- stjóri í Grundarfirði. Foreldrar Árna: Halldór Sigur- jónsson, f. 15.8. 1926, d. 10.9. 1979, skipstjóri og útgerðarmaður i Grundarfirði, og k.h., Kristín Sigur- björg Árnadóttir, f. 28.6. 1931, matartæknir. Árni er að heiman. Merkir íslendingar Jónas Þorbergsson útvarpsstjóri og alþm. fæddist 22. janúar 1885 á Helgastöðum í Reykjadal í Suður-Þingeyjarsýslu. Hann var sonur Þorbergs Hallgrimssonar, bónda þar, og k.h., Þóru Hálfdanardótt- ur. Þorbergur var af Hraunkotsætt, son- ur Hallgríms á Hallbjamarstöðum Þor- grímssonar, bróður Jóns, langafa Kristjáns Eldjárns forseta og Gísla Jónssonar menntaskólakennara. Son- ur Jónasar er Jónas, rithöfundur og útvarpsmaður um langt árabil sem veitti um skeið forstöðu RÚV á Akur- eyri. Jónas lauk gagnfræðaprófi á Akureyri 1909 og dvaldi ungur í Kanada í sex ár. Hann var ritstjóri Dags á Akureyri 1920-1927 og ritstjóri Tímans í Reykjavík 1927-1930. Jónas Porbergsson Jónas var einn af mörgum ungum stuðnings- mönnum nafna síns frá Hriflu sem var menntamálaráðherra þegar Ríkisútvarpið var stofnað 1930. Hann skipaði Jónas Þor- bergsson fyrsta útvarpsstjórann og gegndi hann embættinu til 1953. Staða útvarpsstjóra þótti þá eitt virðulegasta embætti þjóðarinnar enda hlutverk út- varpsins sem menningar- og upplýs- ingamiðfls mun þýðingarmeira þá en síðar varð. Jónas mótaði embættið, var gætinn stjómandi, forðaðist of- stjómun og lagði áherslu á pólitískt hlutleysi stofnunarinnar. Hann var al- þingismaður Dalamanna 1931-1933. Eftir Jónas liggja nokkur rit, m.a. um lifið eftir dauðann en hann var um árabfl sannfærður spíritisti. Hann lést 6. júní 1968. Jarðarfarir Guðmundur Finnbogason verkstjóri, Melhaga 15, verður jarðsunginn frá Grensáskirkju þriðjud. 22.1. kl. 13.30. Una Bergmann frá Fuglavik, áður búsett I Meðalholti 11, verður jarðsungin frá Flvalsneskirkju þriðjud. 22.1. kl. 14. Helga Guðmundsdéttir, Boðagranda 7, Reykjavík, veröur jarðsungin frá Nes- kirkju þriðjud. 22.1. kl. 13.30. Minningarathöfn um Önnu Fanneyju Kristinsdóttur fer fram frá Fossvogs- kapellu miðvikud. 23.1. kl. 15. Að lok- inni athöfn veröur jarösett I Fossvogs- kirkjugarði. Svanhildur Bjarnadóttir, Heiðarhjalla 27, Kópavogi, verður jarðsungin frá Fossvogskirkju 23.1. kl. 13.30.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.