Dagblaðið Vísir - DV - 26.01.2002, Page 16
16
LAUGARDAGUR 26. JANÚAR 2002
Helgarblað
DV
DV-MVND BRINK
Lækkuðu fyrstir í Firöinum
„Þetta er einlægt irmlegg okkar til bættra lífskjara og minnkandi veröbólgu. Því hefur veriö mjög vel tekiö af neytendum," segir Gisli Sigurbergsson,
kaupmaður í Fjaröarkaupum. Hinir baráttuglööu kaupmenn í Firðinum riöu á vaöið á matvörumarkaöi meö 3ja prósenta verölækkun. Hvaö gera hinir?
Innlendar fréttir víkm
Inga Jóna Þórðar-
dóttir kom með
óvænt útspil á
þriðjudaginn þegar
hún tilkynnti að
hún hefði ákveðið
að draga sig í hlé í
leiðtogaslagnum hjá
Sjálfstæðisflokkn-
um í Reykjavík. Gerði hún þetta í
nafni samstöðu í flokknum. Sam-
hliða lýsti hún yfir stuðningi við
Bjöm Bjarnason í leiðtogasætið og
bauöst til að setjast í 8. sæti listans,
baráttusætið. Björn Bjarnason
þakkaði Ingu Jónu stuðninginn. í
kjölfarið hafa Eyþór Arnalds og Júl-
íus Vífill Ingvarsson tilkynnt að
þeir muni ekki taka þátt í leiðtoga-
prófkjöri - en lýsa í staðinn yfir
stuðningi við Björn.
Sviptingar
R-listi í höfn
Aðstandendur Reykjavíkurlistans
kynntu á fimmtudag hvernig staðið
verður að framboðsmálum kosn-
ingabandalagsins. Flokkamir þrír
koma að bandalaginu á jafnréttis-
grundvelli þannig að hver fær 2
sæti á listanum af þeim átta efstu.
VG fá 1. og 6. sætið, Framsókn fær
2. og 5. sæti en Samfylkingin fær 3.
og 4. sætið. í 7. sæti verður fulltrúi
sem uppstillingarnefnd flokkanna
og borgarstjóra velja. Ingibjörg Sól-
rún Gísladóttir borgarstjóri verður
í 8. sætinu.
Verðhjöðnunarstríöiö síðustu viku hefur vakið ýmsar grundvallarspurningar:
Blekking eða búhnykkur?
- beðið eftir verðlækkunuin hjá stóru matvörukeðjunum. Viðskiptaráðherra bjartsýnn á vaxtalækkun
„Ég ætla að trúa því að þær verð-
lækkanir sem við höfum nú þegar
séð séu raunverulegar og engin aug-
lýsingabrella. Kannanir munu þó
skera úr um þetta,“ segir Gylfi Arn-
bjömsson, framkvæmdastjóri ASÍ,
við DV. Tilefnið eru verðlækkanir
hjá stærstu fyrirtækjunum á bygg-
ingavörumarkaði, og einstöku mat-
vörukaupmönnum. Vomur virðast á
öðrum kaupmönnum en frekari
verðlækkanir á næstunni mega þó
teljast líklegar.
Lækkun á beiskum berjum
Tilkynning BYKO síðastliðinn
laugardag, um tveggja prósenta
verðlækkun og frystingu vöruverðs
fram til 1. maí, var upphaf að stríði.
Verðhjöðnunarstríði. 1 DV á mánu-
dag svaraði Húsasmiðjan keppi-
nautnum með þriggja prósenta
verðlækkun og verðstöðvun til jafn-
lengdar. „Gengi krónunar hefur
verið að styrkjast undanfarnar vik-
ur og fyrir lá aö vörur yrðu leystar
út á hagstæðara gengi. Verðlagsmál
snúast ekki síöur um þróun verð-
lags almennt en haröa samkeppni...
Við treystum því að hið opinbera og
atvinnulífið taki sig saman til að
verðbólgumarkmið náist i maí og
því erum við tilbúnir að leggja
meira undir,“ sagði Bogi Þór Sig-
uroddsson, forstjóri Húsasmiðjunn-
ar, við DV sl. mánudag.
Stríðið breiddist út. Á miðviku-
dag lækkuðu Fjarðarkaup vöruverð
um þrjú prósent og hækka ekki
vöruverð að minnsta kosti fram í
maí. Þessu útspili hefur ekki verið
svarað af stóru keðjunum á mat-
vörumarkaðnum með beinum
hætti, það er flötum verðlækkun-
um. Hins vegar hafa komið tilboð í
einstaka vöruflokkum. Til dæmis
lækkaði Hagkaup vinberjaverð í
vikunni, en þau beisku ber urðu til
þess að valda hækkun á neyslu-
verðsvísitölunni í síðustu mælingu
og koma efnahagslífinu i uppnám.
0,7% lækkun á níu dögum
Verðhjöðnunarstríðið hefur verið
ofarlega á baugi í þjóðmálaumræðu
vikunnar. Spurningarnar hafa verið
áleitnar, svo sem hvort verðlækkan-
ir séu raunverulegar eða ekki? Hef-
ur gengi íslensku krónunnar verið
að þróast á þann veg að fullt svig-
rúm sé til verölækkana? Verðkönn-
un DV á fimmtu-
dag, sem gerð var
degi fyrr, bendir
til að svo sé. Mat-
arkarfan sem lögð
var til grundvallar
i könnuninni
hafði að jafnaði
lækkað í verði um
0,7% á níu dögum.
Þess má svo
geta að DV verður
virkt í verðkönnunum á næstunni
og mun út frá hagsmunum neyt-
enda fylgjast grannt með þróuninni.
I vefriti fjármálaráöuneytisins í
vikunni segir að styrking krónunn-
ar ætti að vera farin að hafa áhrif á
verðlag. Innfluttar matvörur eru
nefndar í því sambandi. Segir að í
raun megi ganga lengra þar sem
gengi krónunnar hafi styrkst veru-
lega frá því i haust, eða um 3,5%
miðað við meðaltal síðasta ársfjórð-
ungs og 5,5% frá hámarki í nóvem-
ber.
Standa viö stóru orðin
Um verðlækkanir - raunverulegar
eöa ekki - segir Guðmundur B. Ólafs-
son hagfræðingur að útilokað sé
leggja nokkurn dóm á slíkt. Til þess
þurfi upplýsingar úr bókhaldi fyrir-
tækjanna. Hann vill þó trúa því að
verðlækkanirnar séu raunverulegar.
„Auðvitað er lækkun vöruverðs til
þess fallin að skapa jákvæð áhrif al-
mennings gagnvart viðkomandi fyrir-
tæki,“ eins og hann orðar það.
Jóhannes Gunnarsson, formaður
Neytendasamtakanna, segir samtök-
in ekki hafa kannað hvort verð-
lækkanirnar eigi sér í raun stað.
Hvort verð hafi hugsanlega verið
hækkað um t.d. 2 til 3%, skömmu
áður en það hafi svo verið lækkað
aftur um sömu hlutfallstölu? Ef svo
er væri slíkt blekkingaleikur.
„Menn verða að standa við stóru
orðin," segir Jóhannes. Hann bend-
ir raunar á að verðlækkunin í
Fjarðarkaupum sé ekki algild.
Nokkrar vörutegundir þar hafa
hækkað í verði, skv. því sem fram
hafi komið í fjölmiðlum.
Gísli Sigurbergsson, kaupmaður í
Fjarðarkaupum, gefur ekki mikiö
fyrir kenningar um að verðlækkan-
ir fyrirtæksins séu brella. Það kosti
verslunina um 20 milljónir á mán-
uöi að slá þrjú prósent af vöruverði.
Guömundur
Ólafsson.
Jóhannes Valgeröur
Gunnarsson. Sverrisdóttir.
Verðkönnun DV á fimmtudag sem
sýndi 2ja prósenta verðlækkun í
Fjarðarkaupum frá síðustu könnun
ætti í raun að slá á allar efasemd-
araddir. „Þetta er einlægt innlegg
okkar til bættra lífskjara og minnk-
andi verðbólgu. Því hefur verið
mjög vel tekið af neytendum," segir
Gísli.
Hvorugur í hart viö hinn
Um verðþróun á matvörumark-
aði sl. ár segir Guðmundur Ólafs-
son að hún sé í mörgum tilvikum
meiri en gengi og vísitölubreyting-
ar síðasta árs gefi tilefni til. Síðast-
Siguröur Bogi
Sævarsson
blaðamaður
Innlent fréttaljós
liðin þrjú ár hafi verðlag á mat-
vöru hækkað umfram það sem
gengi og vísitala gefi tilefni til. Það
þurfi að rannsaka. „Ég ætla ekki
að fella neina dóma í þessu sam-
bandi, það gerir Samkeppnisstofn-
un,“ segir Guðmundur.
Af könnun DV i gær má draga
þá ályktun að samkeppni á mat-
vörumarkaði sé ekki til staðar.
Báðar stóru matvörukeðjurnar,
Baugur og Kaupás, hafa markað
sér bása á markaðnum, það er frá
lágvöruverðsverslunum til þæg-
indabúða. Hvorugur aðilinn fer í
hart við hinn. Á verölægri endan-
um er Bónus ævinlega lítið eitt
ódýrari en Krónubúðir Kaupáss.
Þægindabúðimar Nýkaup og Nóa-
tún, sem eru i eigu sinnar keðj-
unnar hvor, eru sambærilegar,
svo sem í verði. Svona má áfram
telja.
Fáheyrö dýrtíð
í umræðum um efnahagsmál á
Alþingi í vikunni kom meint fá-
keppni á matvörumarkaði til um-
ræðu. Þar sagði Davíð Oddsson
forsætisráðherra að fylgja ætti því
eftir að fyrirtæki sem heföu allt að
60% hlutdeild á markaðnum mis-
notuðu ekki aðstöðu sína. Til
greina kæmi aö rikið hlutaðist til
um að skipta þessum fyrirtækjum
upp. Við sama tilefni sagði Össur
Skarphéðinsson, formaður Sam-
fylkingar, að stóru verslunarkeðj-
urnar hefðu keyrt upp matvöru-
verð í krafti einokunar. „Hreðja-
tak þeirra á markaðnum hefur
kallaö fáheyrða dýrtíð yfir neyt-
endur," sagði Össur.
En hvað voru þessar umræður?
Hávaði í dagstund, hróp milli
stjórnar og stjórnarandstöðu? Eða
upphaf að aðgeröum í þá átt að
stóru keðjurnar tvær á matvöru-
markaðnum veröi brotnar upp?
Valgerður Sverrisdóttir við-
skiptaráðherra sagðist í samtali
við DV vera tilbúin að skoða allar
hugmyndir sem væru til þess
fallnar að styrkja Samkeppnistofn-
un og hennar mikilvæga starf. Ef
vilji samstarfsflokksins í ríks-
stjórn væri sá að skerpa á annars
metnaðarfullum samkeppnislög-
um væri hún til viðræðu um slíkt.
Hins vegar væri sín skoöun að ef
beittari lög hefðu komið fyrr væri
ekki uppi sú fákeppnisstaða sem i
dag væri á matvörumarkaði og
raunar víða.
Væntir vaxtalækkana
Um þróun siðustu daga í verð-
lagsmálum sagðist viðskiptaráð-
herra fagna þeim verðlækkunum
sem farið hefðu af stað um síðustu
helgi. Hún kvaðst þó enn bíða eftir
verðlækkunum hjá þeim fyrirtækj-
um sem stærst væru á markaði.
Um hvort svigrúm væri tU verð-
lækkana sagði Valgerður að í þeim
efnum yrðu menn að fóma minni
hagsmunum fyrir meiri. Þegar tU
kastanna kæmi yrði lægri verð-
bólga öUum í hag, en allra mikU-
vægast í þeim efnum væri viðmið
kjarasamninga. Með minnkandi
spennu í efnahagslífinu hlytu vext-
ir að lækka, sem Valgerður kvaðst
vænta upp úr mánaðamótum.
Síminn í vondum málum
Landssíminn
tapaði 500 mUlj-
ónum króna á nú-
virði á kaupum í
hátæknifélaginu
QlPbeU. Það fyr-
irtæki varð gjald-
þrota ári eftir að
Síminn lagði
fram peningana.
QlPbeU boðaði heimsbyltingu i fjar-
skiptum en ekkert varð úr áformum
þess. Þórarinn Viðar Þórarinsson
stýrði viðræðum við fyrirtækið fyr-
ir hönd Símans en einnig áttu Opin
kerfi og FBA hlut. í málaferli stefn-
ir vegna brottrekstrar Þórarins úr
forstjórastóli Símans sem skýrður
er með trúnaðarbresti.
Verðhjöönunarstríð
Verðhjöðnunarstríð hófst í vik-
unni með verðlækkun stóru bygg-
ingarvöruverslananna um 2 til 3%. í
kjölfariö kom Fjarðarkaup og lækk-
aði vöruverð um 3%. Beöið er eftir
útspUi frá stóru matvörukeðjunum
sem enn hafa aðeins lækkað vöru-
verð á einstaka tegundum. Verka-
lýðsforingjar og stjórnmálamenn
hafa fagnað þessu útspUi - og sagt
það mikUvægt svo markmið kjara-
samninga vegna stöðu efnahags-
mála haldist.
Mein-
hægt veður
hefur verið
sunnan
heiða í vik-
unni og
auð jörð.
Steingrím-
ur Her-
mannsson,
fv. forsætis-
ráðherra, setti sig ekki úr færi við
þessar aðstæður og spilaði golf í
góða veðrinu. Fyrir norðan hefur
hins vegar verið aUt að saután stiga
gaddur. Á Akureyri var ný skíða-
lyfta tekin i notkun i vikunni.
Golf a goöum vetri
--------------
Kurr hjá Byggðastofnun
Forstjóri Byggðastofnunar hefur
aðeins virkra daga búsetu á Sauðár-
króki í einbýlishúsi sem stofnunin
keypti fyrir hann þar. Um helgar
keyrir hann suður til Reykjavíkur á
bíl sem hann hefur til afnota frá
stofnuninni og hún greiðir aUan
kostnað af. Þetta hefur vakið kurr -
en skömmu fyrir jól fékk forstjórinn
traustsyfirlýsingu frá stjórn
Byggðastofnunar.