Dagblaðið Vísir - DV - 06.02.2002, Blaðsíða 22
26
MIÐVIKUDAGUR 6. FEBRÚAR 2002
íslendingaþættir__________________________________________________________________________________________________________DV
Umsjón: Kjartan Gunnar Kjartansson
80 ____________________________________
ingibjörg Skúladóttir,
Háaleitisbraut 121, Reykjavík.
75 ára_________________________________
Gunnar Jóhannsson,
Hafnartúni 4, Siglufirði.
Jónína Sigríöur Jónsdóttir,
Lindarbrekku, Selfossi.
70 ára_________________________________
Þórunn S. Pálsdóttir,
Árskógum 6, Reykjavík.
Tryggvi Hjörvar,
Austurbrún 35, Reykjavík.
Sigurbjörg Pálsdóttir,
Árbraut 2, Vík.
Haukur Sveinbjörnsson,
Snorrastöðum 2, Kolbeinsstaðahreppi.
60 ára_________________________________
Birna K. Kristjánsdóttir,
Jöklafold 19, Reykjavík.
Jóhannes Sigurvin Sigmundsson,
Brekkukoti, Hofsósi.
Jónína Helgadóttir,
Laugum, kennarabústað.
Svanhildur Vilhjálmsdóttir,
Skólabraut 10, Hójmavík.
Anna Agnarsdóttir,
Miklubraut 74, Reykjavík.
Böövar Valgeirsson,
Grundarlandi 13, Reykjavík.
50 ára_________________________________
Eiríkur Jónsson,
Vaðlaseli 5, Reykjavík.
Sveinn Sigurjónsson,
Álfaskeiði 93, Hafnarfirði.
Þóra Hlööversdóttir,
Kirkjubraut 54, Höfn í Hornafirði.
Helgi Sigurjónsson,
Yrsufelli 16, Reykjavík.
Guörún Ólöf Agnarsdóttir,
Efstaleiti 55, Keflavík.
Hafdís Sveinsdóttir,
Grundargötu 4, Akureyri.
Ragnheiður K. Pétursdóttir,
Strýtuseli 15, Reykjavík.
Ingibjörg Pétursdóttir,
lllugagötu 4, Vestmannaeyjum.
Hrefna G.B. Þórarinsdóttir,
Neðstaleiti 4, Reykjavík.
Kristín Þórarinsdóttir,
Sjafnargötu 11, Reykjavík.
Höröur Þór Hjálmarsson,
Hllðarvegi 31, Siglufirði.
María Lísa Wdowiak,
Gullengi 5, Reykjavík.
Bjarni Bjarnason,
Brekku, Höfn í Hornafirði.
40 ára_________________________________
Jón Þór Brynjarsson,
Brekkuhúsi 3a, Akureyri.
Flemming Dan Christensen,
Hjaltabakka 2, Reykjavlk.
Andrzej Klawikowski,
Hafnarbraut 4, Kópavogi.
Hannes Örn Jónsson,
Sjávargötu 26, Bessastaðahreppi.
Emilía Sighvatsdóttir,
Mávahlíö 43, Reykjavík.
Guöjón Guömundsson,
Njarðarholti 12, Mosfellsbæ.
Jóna Kristín Bjarnadóttir,
Rjúpufelli 35, Reykjavík.
Hjördís Leifsdóttir,
Arnarheiði 22, Hveragerði.
Eiríkur Viöar Sævaldsson,
Furuhlíð 8, Hafnarfirði.
Hulda Þorsteinsdóttir,
Vestursíðu 5a, Akureyri.
Ingibjörg Hinriksdóttir,
Baughúsum 44, Reykjavik.
Sigríöur Valgeirsdóttir,
Rauðageröi 63, Reykjavík.
Matthildur Birgisdóttir,
Jöklafold 3, Reykjavík.
Flosi Arnórsson,
Stórholti 13, ísafirði.
Fólk í fréttum
Guðmundur Þ. Guðmundsson
þjálfari íslenska handknattleikslandsliðsins
Guðmundur Þórður Guðmunds-
son, þjálfari karlalandsliðsins ís-
lenska í handknattleik, hefur að von-
um verið mikið í fréttum að undan-
fórnu eftir frábæra frammistöðu liðs-
ins á Evrópumeistaramótinu i Sví-
þjóð sem nú er nýlokið.
Starfsferill
Guðmundur fæddist í Reykjavík
23.12. 1960. Hann lauk stúdentsprófi
frá MS 1980, stundaði nám í tölvunar-
fræöum við HÍ 1981-82, sótti nám-
skeið í gagnasafnsfræðum hjá
Software AG í London, Chicago og
Derby 1983, 1986, 1987, 1991 og 1992,
námskeið á vegum IBM á islandi,
námskeið í forritun á vegum
Software AG á Islandi og hefur
stundaði nám með vinnu við HR frá
2001.
Guðmundur var kerfisfræðingur
hjá Rekstrartækni 1984-85, hjá
Landsbanka íslands 1986-88, hjá Visa
íslandi 1988-97, verkefnastjóri Reikn-
isstofnunar bankanna 1997-99, hand-
knattleiksþjálfari hjá Bayer Dor-
magen í Þýskalandi 1999-2001 og hef-
ur verið þjálfari landsliðs karla í
handknattleik frá 1.5. 2001. Hann var
þjálfari meistaraflokks UMFA
1992-95, þjálfari 21-árs landsliðs karla
1995 og meistaraflokks Fram 1995-99.
Guðmundur hóf að æfa og keppa í
handknattleik með Víkingi er hann
var á sjöunda árinu. Hann varð ís-
landsmeistari í 1. deild karla 1980,
1981, 1982, 1983, 1986 og 1987. Hann
varð bikarmeistari í meistaraflokki
1983,1984,1985 og 1986. Þá varð hann
Reykjavíkurmeistari í meistaraflokki
1980, 1981, 1982, 1983 og 1991 og deild-
armeistari i 1. deild karla 1991. Sem
þjálfari gerði hann UMFA að íslands-
meisturum i 2. deild 1992 og Framara
að íslandsmeisturum einu sinni.
Guðmundur lék alls 248 landsleiki
fyrir íslands hönd á árunum 1980-90.
Hann tók þátt í heimsmeistarakeppni
21 árs landsliöa í Portúgal 1981, B-
heimsmeistarakeppni í Frakklandi
1981 og í Hollandi 1983, Ólympíuleik-
um í Los Angeles 1984, A-heimsmeist-
arakeppni i Sviss 1986, Ólympíuleik-
um í Seoul 1988, B-heimsmeistara-
keppni í Frakklandi 1989 og A-heims-
meistarakeppni í Tékkóslóvakíu
1990.
Guðmundur var kosinn íþrótta-
maður Reykjavikur 1986, handknatt-
leiksmaður árins, valinn af ÍSÍ og
Morgunblaðinu, 1986 og besti sóknar-
leikmaður í 1. deild karla 1986-87. Þá
var hann í 3.-4. sæti i kjöri iþrótta-
manns ársins 1986.
Fjölskylda
Guðmundur kvæntist 1989 Helgu
Björgu Hermannsdóttur, f. 18.7. 1962,
kennara. Hún er dóttir Hermanns
Samúelssonar, f. 24.4.1938, nú látinn,
pipulagningarmeistara, og Sigrúnar
Garðarsdóttur, f. 19.9. 1941, húsmóð-
ur.
Synir Guðmundar og Helgu eru
Hermann, f. 9.1. 1990; Guðmundur
Lúðvik, f. 15.7.1992; Arnar Gunnar, f.
4.7. 1996.
Bræður Guðmundar eru Gunnar
Helgi Guðmundsson, f. 27.7. 1947,
læknir í Reykjavík, kona hans er
Ragnheiður Alice Narfadóttir hjúkr-
unarfræðingur; Bjöm Guðmundsson,
f. 20.8. 1955, efnafræðingur og fram-
haldsskólakennari í Reykjavík, kona
hans er Margrét Héðinsdóttir hjúkr-
unarfræðingur.
Foreldrar Guðmundar eru Guð-
mundur Lúðvík Þorsteinn Guð-
mundsson, f. 4.12. 1921, húsasmíða-
meistari á ísafiröi og síðar verslunar-
stjóri í Reykjavík, og k.h., Guðrún
Þórðardóttir, f.
29.8.1922, húsmóð-
ir.
Ætt
Guðmundur er
sonur Guðmund-
ar, sjómanns,
verkamanns og
fiskmatsmanns á
Ísafírði, Halldórs-
sonar frá Vogum,
b. og húsmanns í
Vatnsfjarðarsveit,
Sigurðssonar.
Móðir Guðmund-
ar fiskmatsmanns
var Þórdís Guð-
mundsdóttir frá
Skálavík i Mjóa-
firði.
Móðir Guðmundar var Guðbjörg
Margrét Friðriksdóttir, b. í Dverga-
steini og sjómanns í Hnífsdal, Guð-
mundssonar, b. í Hattardal, Jóhann-
essonar. Móðir Friðriks var Frið-
gerður Gunnlaugsdóttir. Móðir
Guðbjargar Margrétar var Guðrún,
systir Magnúsar á Saurum, afa
Kára Arnórssonar skólastjóra. Guð-
rún var dóttir Guðmundar, ríka í
Eyrardal í Álftafirði, Arasonar, og
Guðrúnar, systur Hjalta, fóður
Magnúsar H. Magnússonar „Ljós-
víkings". Guðrún var dóttir Magn-
úsar pr. í Ögri, Þórðarsonar. Móðir
Magnúsar var Guðbjörg, systir Guð-
rúnar, langömmu Hannibals Valdi-
marssonar. Guðbjörg var dóttir
Magnúsar, b. í Súðavik, Ólafssonar,
ættföður Eyrarættar Jónssonar.
Móðir Guðrúnar var Matthildur Ás-
geirsdóttir, prófasts í Holti í Önund-
arfirði, Jónssonar, bróður Þórdísar,
móður Jóns forseta. Móðir Matthild-
ar var Rannveig, systir Jóns, pr. í
Arnarbæli, langafa Matthíasar,
fyrrv. ráðherra, fóður Þorgilsar
Óttars, fyrrv. handknattleikskappa.
Rannveig var dóttir Matthíasar,
stúdents á Eyri, Þórðarsonar, ætt-
foður Vigurættar og bróður Magn-
úsar í Súðavík.
Guðrún er dóttir Þórðar, bóksala
á Stokkseyri, Jónssonar, járnsmiðs
i Garðbæ og á Brávöllum á Stokks-
eyri, Þorsteinssonar, b. í Kolsholts-
helli í Villingaholtshreppi, bróður
Einars á Miðfelli í Hrunamanna-
hreppi, afa Einars Magnússonar,
rektors MR. Þorsteinn var sonur
Magnúsar, b. á Miðfelli, Einarsson-
ar. Móðir Jóns var Kristrún Einars-
dóttir frá Kolsholtshelli. Móðir
Þórðar var Kristín Þórðardóttir, b.
á Mýrum, Eiríkssonar, og Helgu
Sveinsdóttur.
Móðir Guðrúnar var Málfríður
Halldórsdóttir, b. á Kumbaravogi,
Pálssonar, b. í Fíflholtshjáleigu,
Halldórssonar. Móðir Málfríðar var
Málhildur Guðmundsdóttir.
Sjötugur
Gunnar Helgi Valdimarsson
sjómadur á Flateyri
Gunnar Helgi Valdimarsson sjó-
maður, Eyrarvegi 10, Flateyri, er
sjötugur í dag.
Starfsferill
Gunnar Helgi fæddist í Reykja-
vík, ólst þar upp og á Þursstöðum á
Mýrum þar sem hann var í sveit á
sumrin frá því hann man eftir sér
og fram á fermingaraldur, hjá móð-
urbróður sínum, Helga Jónasi
Helgasyni, bónda þar, og k.h., Guð-
rúnar Magneu Þóröardóttur hús-
freyju. Hann lauk búfræðiprófi frá
Hvanneyri 1952.
Gunnar Helgi stundaði sjó-
mennsku nær samfellt í fjörutíu og
fimm ár að einu ári undanskildu,
1955, er hann var ársmaður á Hvilft
í Önundarfirði. Hann var þrjár ver-
tíðir á gufutogaranum Gylfa, sem þá
var gerður út frá Flateyri, var eitt
ár á togaranum ísólfi frá Seyðis-
firði, í rúman áratug á vertiðarbát-
um frá Flateyri, stundaði handfæra-
veiðar á sumrin frá 1957-92, mest á
eigin bátum, en hætti þá vegna
veikinda.
Gunnar Helga sat um árabil í
stjóm og trúnaðarráði verkalýðsfé-
lagsins Skjaldar og var formaður
þess í tvö ár.
Fjölskylda
Gunnar Helgi kvæntist 29.10. 1959
Mörtu Kristínu Ingvarsdóttur, f.
31.10.1931, húsmóður. Hún er dóttir
Ingvars Jónssonar, f. 24.9. 1894, d.
13.11. 1974, bónda á Hóli í Lýtings-
staðahreppi í Skagafirði, og k.h.,
Ragnheiöar Pálsdóttur, f. 13.11.1896,
d. 1.11. 1982, húsfreyju.
Börn Gunnars Helga og Mörtu
Kristínar eru Valdimar Ingi Gunn-
arsson, f. 24.5. 1957, sjávarútvegs-
fræðingur, búsettur í Reykjavík,
kvæntur Laufeyju Jóhannsdóttur og
eiga þau þrjár dætur, Nínu Katrínu,
Sigurbjörgu Sólveigu og Gunnhildi
Ýr; Páll Gunnarsson, f. 31.8. 1958, d.
3.6. 1992, verslunarmaður, búsettur
í Reykjavík og síðar i Kópavogi, var
kvæntur Jóhönnu Tómasdóttur og
eignuðust þau eina dóttur, Mörtu;
Þórður Már Gunnarsson, f. 16.1.
1964, við nám og störf á írlandi,
kvæntur Sile Cogan og eiga þau tvo
syni, Pál Matthías og Wilhelm.
Systir Gunnars Helga var Hildur
Hafdís, f. 15.4.1937, d. 3.10.1998, hús-
móöir í Súgandafirði, Grundarfirði
og í Reykjavík, var gift Sverri Dav-
iðssyni, fyrrv. sjómanni frá Ólafsvík
og síðar starfsmanni við Tollvöru-
geymsluna.
Foreldrar Gunnars Helga voru
Valdimar Valdimarsson, f. 12.8.
1906, d. 4.3. 1965, póstfulltrúi í
Reykjavík, og k.h., Sigurbjörg
Helgadóttir, f. 18.5.1908, d. 11.5.1987,
húsmóðir.
Ætt
Valdimar var sonur Valdimars,
skipstjóra og veitingamanns á Eski-
firði, Sigurðssonar yngri, b. í Hellis-
firði og beykis á Eskifirði, Eiríks-
sonar. Móðir Valdimars skipstjóra
var Þuríður Ámadóttir.
Móðir Valdimars póstfulltrúa var
Hildur Jónsdóttir, b. á Eskifirði,
Pálssonar, b. á Hólalandi, Jónsson-
ar, Ögmundssonar. Móðir Hildar
var Sesselja Jónsdóttir, b. á Ketils-
stöðum á Völlum, Sigfússonar og El-
inar Katrínar Þorvarðardóttur frá
Papey.
Sigurbjörg var dóttir Helga
Jónasar, b. á Þursstöðum á Mýrum,
Jónssonar, b. i Hrafnadal og Bakka-
seli, Lýðssonar, b. í Hvítuhlíð, Jóns-
sonar, b. í Skálholtsvík, Hjálmars-
sonar, ættfóður Tröllatunguættar,
Þorsteinssonar. Móðir Jóns í
Hrafnadal var Guðrún Brynjólfs-
dóttir, b. á Kárastöðum, Brynjólfs-
sonar, og Sesselju Erlendsdóttur.
Móðir Helga Jónasar var Sigríður
Bjarnadóttir, b í Kollsá, Illugasonar,
og Guðrúnar Jónsdóttur.
Móðir Sigurbjargar var Guðrún
Magnea Þórðardóttir, skipasmiðs í
Gróttu á Seltjamarnesi, Jónssonar,
og Sigurbjargar Sigurðardóttur.
Jón Breiöfjörö Ólafsson, Bólstaöarhlíö
68, Reykjavík, lést á heimili sínu laug-
ard. 2.2.
Einar Jónsson frá Tannstaðabakka,
Stóragerði 10, Reykjavík, lést á hjarta-
deild Landspítalans í Fossvogi 3.2.
Ingibjörg Guðjónsdóttir, áöur til heimilis
á Laugarnesvegi 72, Reykjavík, andaö-
ist á Hrafnistu í Reykjavík sunnud. 3.2.
Kristjana G. Einarsdóttir frá Önundar-
horni lést á dvalarheimilinu Lundi,
Hellu, laugard. 2.2.
Heiðar Már Kristjánsson lést á Land-
spítalanum Hringbraut laugard. 2.2.
Elín Kristjánsdóttir frá Hvítárholti and-
aðist á Sjúkrahúsi Suöurlands 2.2.
Ósk Ásgrímsdóttir andaöist á elliheimil-
inu Garövangi, Garöi, föstud. 1.2.
Bjarni Jóhannsson frá Árbakka lést á
dvalarheimilinu Lundi laugard. 2.2.
Merkir íslendingar
Sigfús Sigurhjartarson, alþingismaður pg
ritstjóri, fæddist að Urðum í Svarfaðardal
6. febrúar 1902. Hann var sonur Sigur-
hjartar Jóhannessonar, bónda á Urðum,
og 2. k.h., Sigríðar Friðriku Sigurðar-
dóttur húsfreyju. Sigfús var faðir Öddu
Báru Sigfúsdóttur, veðurfræðings og
varaþingmanns. Systir Sigfúsar var
Soffia, amma Einars Más Guðmunds-
sonar rithöfundar. Hálfsystur Sigfúsar
voru Sigrún, móðir Kristjáns Eldjárns
forseta, föður Þórarins rithöfundar og
Sigrúnar myndlistarmanns, og Arnfríð-
ur, móðir Gísla Jónssonar, menntaskóla-
kennara og varaþingmanns.
Sigfús lauk gagnfræðaprófi á Akureyri
1920, stúdentsprófi frá MR 1924 og embættis-
Sigfús Sigurhjartarson
prófi í guðfræði frá HÍ 1928.
Sigfús var kennari við Gagnfræðaskóla
Reykvíkinga 1928-1942, blaöamaður við
Alþýðublaðið 1934-1937, ritstjóri Nýs
lands 1938 og Þjóöviljans frá 1938. í
arpíl 1941 voru Sigfús, Einar Olgeirs-
son og Sigurður Guðmundsson hand-
teknir af bresku herstjórninni hér á
landi vegna skrifa Þjóöviljans og hafð-
ir í haldi í Brixton-fangelsinu í Bret-
landi fram í ágústmánuð sama ár en þá
sleppt.
Sigfús var alþingismaður Sósíalista-
flokksins 1942-1949, sat í bæjarstjórn
Reykjavíkur og bæjarráði frá 1942 og til
dauðadags, sat í Útvarpsráði, í Trygginga-
ráði og 1 stjórn KRON. Hann lést 15. mars 1952.
Helga Þ. Þorgeirsdóttir kennari, Baug-
húsum 38, Reykjavík, verður jarðsungin
frá Grafárvogskirkju 7.2. kl. 13.30.
Útför Ingveldar Stefánsdóttur, áöur til
heimilis í Hraunbæ 4, fer fram frá Ár-
bæjarkirkju fimmtud. 7.2. kl. 13.30.
Jarösett verður í Neskaupstaö laugard.
9.2. kl. 14.00.
Útför Bryndísar Þorbergsdóttur, Grettis-
götu 32, Reykjavík, fer fram frá Frikirkj-
unni í Reykjavík föstud. 8.2. kl. 13.30.
Útför Frímanns Gunnlaugssonar, fyrrv.
framkvæmdastjóra Golfsambands Is-
lands, Hrinbraut 2B, Hafnarfirði, fer
fram frá Bústaöakirkju mánud. 11.2. kl.
10.30.
Útför Guömundar Sörlasonar húsa-
smiös, Vesturbergi 81, Reykjavík, fer
fram frá Áskirkju þriðjud. 12.2. kl.
13.30.